Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Síða 40
W\VG,ARPAGUR 17;/MARS,1990f
^____________________________________
Smáauglýsíngár - Simi 27Ó22 Þverholti Í1
Bianca 2000 baðinnrétt. 30-40% afsl.
Poulsen, Suðurlandsbraut 10, sími
686499. Útsölustaðir: Málningarþjón-
ustan, Akranesi, Húsgagnaloftið,
Isafirði, flest kaupfélög um land allt.
Skiðapakkar, góður afsláttur, Völkl og
Dynastar skíði, Dolomite skór, Salom-
on og Tyrolia bindingar, Völkl og
Klemm stafir. Skíði, skór, bindingar
og stafir, verð frá:
• 80 90 cm kr. 11.860. Stgr. 11.290.
• 100 llOcm kr. 13.250. Stgr. 12.610.
• 130-150 cm kr. 14.540. Stgr. 13.820.
• 160 cm kr. 14.980. Stgr. 14.270.
• Fullorðins kr; 19.720. Stgr. 18.760.
Versl. Markið, Ármúla 40, s. 35320.
Barnagöngupakkar frá 8200 stgr. Full-
orðinsgöngupakkar frá 8.800 stgr.
Tökum notað upp i nýtt. Sportmark-
aðurinn, Skipholti 50C, s. 31290.
Sérsmíðuð fiskabúr, fyrir þá sem gera
kröfur, allar stærðir og gerðir t.d. frí-
standandi. Vinnum eftir þínum hug-
myndum. Fagleg ráðgjöf við uppsetn-
ingu. Góð greiðslukjör. Smíðagallerí,
Mjóstræti 2b, sími 91-625515.
Sturtuklefar í úrvali.
Fjölbreytt úrval fullbúinna sturtu-
klefa. Stærðir 80x80, 70x90 og 90x90.
Verð frá 46 þúsund. Einnig úrval
sturtuhurða o.fl. Verslið þar sem úr-
valið er. Vatnsvirkinn hf., Ármúla 21,
s. 685966, Lynghálsi 3,'s. 673415.
■ BOar til sölu
Oldsmobile Cutlass LS ’81. Aðeins til
tvö eintök á landinu, skipti ath. á
ódýrari. Uppl. í síma 28299.
Bronco 302 ’74 til sölu eða skipti, skoð-
aður ’90, ekinn 45 þús. á vél, C6
sjálfsk., No-spin læsingar að aftan,
mikið endurnýjaður, s.s. öll bretti,
stýrisendar o.m.fl., v. 450 þús. Uppl. í
s. 656667.
Suzuki - Escort. Suzuki Fox SJ 410 ’82
til sölu, rauður, Volvo B20 vél og
kassi, 33x12,5" dekk, nýklæddur og
ný sæti, fallegur bíll. Verð 480 þús. A
sama stað er til sölu Ford Escort XR3
1600 ’82, rauður, á álfelgum, low prof-
ile vetrardekk. Verð 390 þús. Uppl. i
síma 91-666398 fyrir kl. 20 laugardag.
Sérstakur bill. Willys Koronado blæju-
bíll m/kraftmikilli dísilvél (og mæli),
árg. ’88, ekinn 3000 km, drifhlutföll
4:88, Dana 44 að aftan og Dana 33 að
framan. Bíllinn er sem nýr og sérstak-
lega skemmtilega búinn til ferðalaga
á ódýran hátt. Léttur og kraftmikill,
2ja dekkja gangur á felgum. Uppl. í
síma 91-17678.
Toyota Hilux Ext. Cab ’84, (’87 ’89).
Toyota Coaster B3 vél, turbo með
intercooler, dísil m/mæli, 170 ha, tveir
samtengdir gírkassar, 40 gíra, 44"
negld dekk á 15,5" felgum, no-spin að
framan, air-track að aftan, 4" spil,
jeppaskoðaður, mjög góð Pioneer
stereotæki og talstöð fylgja. Góð kjör
eða skipti. Uppl. í síma 985-22658.
Cherokee ’75, lítið ekinn, upphækkað-
ur, álmillihedd, heitur ás, flækjur, 4ra
hólfa Holley blöndungur, nýjar legur
í vél, gott lakk, lítið slitinn og góður
bíll. Uppl. í síma 91-39726 eftir kl. 17
laugardag og allan daginn eftir það.
Scout Traveler ’78 til sölu, vél 345,
sjálfskiptur, ný 39” Mickey Thomson,
5,38 drif, mikið endurnýjaður. Verð
630 þús., 490 þús. staðgreitt. Uppl. í
síma 676096, var vitlaust númer áður.
Scout ’80 til sölu, vél 318 cub., 4 gíra,
36" radial mudder, læstur að framan,
jeppaskoðaður. Verð ca 500 þús.,
skipti möguleg. Sími 42284 um helgina
og á kvöldin e.kl. 18.
Þessi Toyota 4-Runner EFi SR5 V6 ’88
er til sölu, bifreiðin er með öllum þeim
aukahlutum sem fáanlegir eru. Úppl.
í síma 92-12410 og eftir kl. 21 í 92-12247.
Daihatsu Rocky ’85 til sölu. Bíllinn er
upphækkaður á 33" dekkjum, vel með
farinn og traustur bíll. Upplýsingar í
síma 91-79522.
Scout Traveller ’78 til sölu, vél 345,
sjálfskiptur, ný 39" Mickey Thomson,
5,38 drif, mikið endurnýjaður. Verð
630 þús., 490 þús. staðgreitt. Uppl. í
síma 676090.
Volvo Lapplander ’82 til sölu, í góðu
standi, gírspil, power lock, CB-talstöð,
stereogræjur, góð innrétting. Skipti
möguleg. Uppl. í síma 15534 eftir kl.
18.
BMW 316 ’87 til sölu, verðhugmynd 850
þús. Uppl. í síma 91-651089.
Honda Prelude EX, sjálfskipt, ’85, til
sölu, ekin 100 þús. Verð 650 þús., skipti
á ódýrari, ca 250 þús. eða slétt skipti
á bitaboxi með farsíma. Uppl. í síma
666437.
Hvítur Suzuki GTi ’88 til sölu. Bein sala.
Staðgreiðsluafsláttur. Uppl. í símum
91-21618, 79713 og 75599 milli kl. 15
og 19.
Golf ’87, hvítur, 1600 vél, topplúga, lit-
að gler, spoiler allan hringinn. Uppl.
í síma 612012.
Subaru Justy J 10 ’86, 5 dyra, ekinn
41 þús., útvarp, sumar- og vetrardekk.
Til sýnis og sölu á Bílasölunni Bílási,
Akfanesi, símar 93-12622 og 93-11836.
Kvikmyndir dv
Háskólabíó: Undirheimar Brooklyn ★★★
Engin leið út
Undirheimar Brooklyn er byggð á samnefndri bók Hubert Selby yngri,
sem olli miklu fjaðrafoki þegar hún kom út árið 1964. Hispurslaus saga
hans var óvægin lýsing á miður fallegu líferni ungs fólks í New York á
eftirstríðsárunum þegar allt logaði í vinnudeilum sem oft snerust upp í
blóöbað. Bók Selby skiptist í þrjár sjálfstæðar sögur sem hafa verið fléttað-
ar saman í þessari þýsku mynd sem er tekin í New York með bandarísk-
um leikurum. Fyrir vikið hefur myndin sérkennilegan og seiðandi blæ,
ólíkt öðru undanfarið.
Myndin er engin þjóðfélagspæling eða póbtísk prédikun, heldur saga
nokkurra lítilmagna sem gera sitt besta til að lifa sínu snauða lífi.
Léttlynda stúlkan Tralala hefur uppgötvað aö hún hefur nokkuð sem
menn eru tilbúnir að borga fyrir og nýtir sér það óspart. Verkalýösfulltrú-
inn Harry fylgist með verkfalli sem er hægt og bítandi að snúast upp í
átök. Hann hefur þó meiri áhuga á að fylgja hvötum sínum sem eru að
snúast upp í samkynhneigö. Verkamaðurinn Big Joe skammast í kasó-
léttri dóttur sinni og er staðráðinn í að gifta hana þeim sem á sök á þung-
anum.
Fleiri svona litlar sögur, mismiklar að mikilvægi, spinnast saman í
handriti Desmond Nanako og þótt hér virðist ekki upplífgandi efni á ferð
verður maður brátt gagntekinn af ljótleikanum því hann er settur fram
á sannfærandi hátt, án þess að velta sér upp úr volæðinu.
Persónurnar eru lifandi og hrærast í eðlilega niðurníddu umhverfi og
fyrr en varir er maður kominn á þeirra band.
Það er hægt að skrifa það á leikinn hve vel hefur tekist hér. Jennifer
Jason Leigh er hæfilega óþolandi sem gufan réttnefnda, Tralala, en Step-
hen Lang, sem leikur Harry, er hreint út sagt frábær. Þessi nýuppgöt-
vaði leikari gæðir aumkunarverða persónu sína lífsneista sem kveikir í
tjaldinu. Minni háttar hlutverk eru öll vel skipuð og allir taka þátt í að
ýkja leikinn dálítið.
Þegar persónurnar hafa jafnfáar jákvæðar hliðar eins og hér er erfitt
að finna til með þeim. Myndin spilar ekki með tilfmningar áhorfandans
heldur sýnir honum annan heim sem gæti hafa verið svona í raun og veru.
Þetta er ekki skemmtileg mynd en hún er áhrifamikil og smýgur hægt
og rólega inn í innstu sálarkynni og situr þar föst. Þetta er nokkuð sem
margar evrópskar kvikmyndir virðast geta svo áreynslulaust en hending
ef bandarísk á í hlut.
Last Exit to Brooklyn, þýsk 1989.
Leikstjóri: Uli Edel (Christiane F.)
Leikarar: Jennifer Jason Leigh, Stephen Lang, Burt Young, Peter Dobson, Steve
Baldwin, Alexis Arquette, Ricki Lake.
Gísli Einarsson
Til sölu. Gott verð.Uppl. hjé Steinari í
síma 93-71138 og Svan í s. 93-71655 í
dag og næstu kvöld.
Mazda 626 20 GLX ’83, 5 gíra, toppbíll
í toppstandi, rafdrifnar rúður + læs-
ingar, nýsprautaður, álfelgur og vetr-
ardekk á felgum, skoð. ’90. Nánari
uppl. í síma 98-33865.
Peugeot 205 XS ’87, rauður, sumar- og
vetrardekk, útvarp, kassetta, toppein-
tak. Uppl. í sínia 78902.
Ford Econoline F-150 ’87 til sölu, 6 cyl.,
bein innspýting, 5 dyra, með gluggum,
ekinn 51 þús. mílur. Góður bíll. Gott
verð. Uppl. í síma 91-624945.
Benz 711 ’86 til sölu, ekinn 95 þús.,
22ja sæta, loftkæling, tvöfalt, litað
gler. Uppl. í síma 97-88976 og 985-
23128.
Toyota Corolla liftback, árg. ’88, sjálf-
skiptur, ekinn 21 þús., útvarp, sumar-
og vetrardekk. Til sýnis og sölu á Bíla-
sölunni Bílási, Akranesi, símar
93-12622 og 93-11836.
Vorum að fá þennan glæsilega Scania
141, árg. ’80, ásamt álvagni. Mikið
endurnýjaður. Toppeintak. Uppl. í
síma 91-672080. Vörubílasalan Hlekk-
ur.
Þjónusta
Fermingarmyndir. Nýja Myndastofan,
Laugavegi 18, sími 91-15-1-25.
Gröfuþjónusta, 985-24822 og 91-75836,
Eyjólfur. Tek að mér alla almenna
gröfuvinnu. Ný vél. Vinn á kvöldin
og um helgar.