Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Síða 43
; LAlíGARl>AGtrrt l-7,'ÍMARft Í8Ö0.
«551»
Afmæli
Þóra Ása Guðjohnsen
Þóra Ása Guðjohnsen, Háageröi 15,
Reykjavík, er sextug í dag.
Þóra Ása er fædd á Húsavík og
ólst þar upp. Hún var gagnfræðing-
ur frá Gagnfræðaskóla Húsavíkur.
Þóra bjó í Seattle 1958-1963 og vann
hjá Hafrafelli hf. í Rvík 1963-1986.
Hún vann hjá bókaforlaginu Sögu-
steini 1986-1989 og er meðhöfundur
Knudsensættarinnar I.-II. 1986.
Þóra giftist 3. júlí 1954 Sigurþóri
Margeirssyni, f. 27. október 1925,
forstjóra Hafrafells hf., síðar skrif-
stofumanni í Rvík. Foreldrar Sigur-
þórs voru: Margeir Guðmundur
Rögnvaldsson, verkamaður í Rvík,
og kona hans, Anna Gíslína Gísla-
dóttir.
Böín Þóru og Sigurþórs eru:
Halldór Gísli, f. 13. desember 1954,
bifreiðasmiður i Hafnarfirði,
kvæntur Sigríði Jónsdóttur sjúkra-
liða, Guðrún Gerða, f. 5. október
1956, gift Gústaf Adolf Hjaltasyni,
tæknifræðinema í Horsens á Jótl-
andi oglngibjörgÞórdís, f. 21. des-
ember 1962, forstöðukona Folda-
borgar í Rvík. Systkini Þóru eru:
Halldóra Margrét, f. 28. september
1920, gift Henry Albert Reimann,
húsgagnasmiði og skipasmiði í Bot-
hell í Washington í Bandaríkjunum,
Einar Þórður, f. 14. apríl 1922, við-
skiptafræðingur, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri í Rvík, kvæntur Berg-
Ijótu Líndal hjúkrunarforstjóra,
Stefán Sverinbjörn, f. 18. september
1924, byggingameistari í Portland í
Oregon í Bandaríkjunum, kvæntur
Ruth Junita Young hárgreiðslu-
konu, Pétur, f. 8. nóvember 1927,
stýrimaður í Rvík, kvæntur Grete
Marion Tangen, og Baldur Ásgeir,.
f. 17. Ágúst 1932, byggingaverktaki
í Pittsburg í Kalforníu, kvæntur
Sharon Moody.
Fósturforeldrar Þóru frá níu ára
aldri voru: Bjarni Benediktsson,
kaupmaður í Húsavík, og kona
hans, Þórdís Ásgeirsdótir. Foreldrar
Þóru voru: Sveinbjörn Guðjohnsen,
gullgrafari í Klondike í Alaska, síðar
sparisjóðssstjóri á Húsavík, og kona
hans, Guðrún Hallgerður Eyjólfs-
dóttir. Sveinbjörn var sonur Þórðar,
verslunarsjóra í Húsavík, Péturs-
sonar Guðjohnsens, organleikara og
alþingismanns í Rvík, ættfóður
Guðjohnsensættarinnar. Móðir
Þórðar var Guðrún Sigríður, dóttir
Lauritz Knudsens, kaupmanns í
Rvík, ættfóður Knudsensætarinnar.
Móðir Sveinbjarnar var Halldóra
Margrét Þórðardóttir, háyfirdóm-
ara í Rvík, og konu hans, Kirstine
Cathrine Knudsens, systur Guðrún-
ar Sigríðar.
Guðrún Hallgerður var dóttir Ey-
jólfs, b. á Brekku í Breiðdal, bróður
Önnu, afa Fjalars Sigurjónssonar,
prófasts á Höfn í Hornafirði. Eyjólf-
ur var sonur Eyjólfs, b. á Undir-
hrauni í Meðallandi, Marteinssonar
b. á Krossi á Berufjarðarströnd,
Jónssonar, bróður Páls, langafa
Eysteins, fyrrv. ráðherra, og Jakobs
Jónssonar, prests og rithöfundar í
Rvík. Móðir Eyjóls á Brekku var
Steinunn, systir Margrétar, ömmu
Valdimars Björnssonar ráðherra.
Önnur systir Steinunnar var Sigríð-
ur, langamma Braga Benediktsson-
ar, prests á Reykhólum. Steinunn
var dóttir Eyjólfs, b. á skriðu í
Breiðadal, Þórðarsonar, b. á Finns-
stöðum í Eiðaþinghá, Gíslasonar.
Móðir Eyjólfs var Eygerður Jóns-
dóttir pamfíls Jónssonar, ættföður
Þóra Ása Guðjohnsen.
Pamfílsættarinnar.
Móðir Hallgerðar var Jónína Ól-
afsdóttir, b. á Undirvegg í Keldu-
hverfí, Gabríelssonar, b. á Skriðu,
Ketilssonar, bróður Sigurðar, lang-
afa Aðalbjargar Sigurðardóttur,
móður Jónasar Haralz.
Þóra tekur á móti gestum á heimil-
i sínu eftir kl. 14 á afmælisdaginn.
Helga Jónsdóttir
Helga Jónsdóttir, Digranesvegi 69,
Kópavogi, verður sjötíu ára á morg-
un, 18. mars.
Helga er fædd á Möðruvöllum í
Hörgárdal í Eyjafirði. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri 1940, varð cand. phil. frá
Háskóla íslands 1941, lauk kennara-
prófí frá Kennaraskóla íslands 1941
og 1. stigi BA prófs frá Háskóla ís-
lands 1946. Helga starfaði sem ritari
hjá Tóbakseinkasölu ríkisins
1941^16 og var stundakennari við
Kennaraskóla íslands 1946-47. Hún
vann sem ritari í Blóðbankanum
1962-67, var kennari í Kópavogi
1967-69, ritari á Skólaskrifstofu
Kópavogs 1969-70 og var prófdómari
við barnaskóla í Kópavogi og Kenn-
araskólann. Einnig hefur hún veriö
við prófgæslu viö Háskóla íslands
og Kennaraskólann. Helga söng í
kirkjukór Kópavogs um áratuga-
skeið og var formaður kórsins í 13
ár.
Helga giftist þann 30.10.1943 Guð-
mundi Eggert Matthíassyni, kenn-
ara og organista í Kópavogskirkju,
f. 26.2.1909, d. 17.7.1982. Foreldrar
hans voru Matthías Eggertsson,
prestur á Helgastöðum í Reykdæla-
hreppi og síðar í Miðgörðum í
Grímsey, og kona hans, Mundíana
Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja.
Dætur Helgu og Guðmundar eru:
María, f. 8.9.1944, hjúkrunarfræð-
ingur og tónlistarkennari, búsett í
Asker í Noregi, gift Per Jacobsen
matreiðslumanni og eiga þau son-
inn Magnú? Björndal.
Guðný, f. 11.1.1948, fíðluleikari og
konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, gift Gunnari Kvaran
sellóleikara og er dóttir þeirra Karol
Kvaran.
Rannveig, f. 29.9.1950, félagsráð-
gjafí, gift Hallgrími Axelssyni verk-
fræðingi og eiga þau þrjá syni: Guð-
mund, Hallgrím og Helga Mar.
Björg, f. 10.1.1954, snyrtifræðing-
ur, gift Aron Magnússyni, rafvirkja
og matreiðslumanni, og eiga þau
tvær dætur, Fjólu og Maríu.
Foreldrar Helgu voru Jón Egg-
ertsson, trésmiður og organleikari á
Möðruvöllum í Hörgárdal, f. 28.12.
1884, d. 25.11.1923, ogMaría Þor-
gerður Sigurðardóttir húsfreyja, f.
Helga Jónsdóttir.
18.5.1893, d. 3.8.1971.
Foreldrar Jóns voru Eggert Da-
víðsson, b. á Möðruvöllum í Hörgár-
dal, og Jónína Vilhelmína Kristjáns-
dóttirhúsfreyja.
Foreldrar Maríu voru Sigurður
Oddsson, b. á Dagverðareyri í
Glæsibæjarhreppi, og Rannveig Sig-
ríður Jónsdóttir húsfreyja.
Elís Pétur Sigurðsson
Elís Pétur Sigurðsson bílstjóri, Sæ-
bergi 15, Breiðdalsvík, verður sex-
tugur á mánudaginn, 19. mars.
Elís er fæddur í Gautavík í Beru-
neshreppi en frá fjögurra ára aldri
ólst hann upp á Krossi á Berufjarð-
arströnd. Átján ára gamall hóf hann
að keyra vörubíl en einnig vann
hann á bryggjunni í síld. Upp úr
1960 stofnaði Elís ásamt íleiri síldar-
söltunarstöðina Gullrúnu og nokkr-
um árum seinna var hann einn af
stofnendum Síldariðjunnar á Breið-
dalsvík. Undanfarin 20 ár hefur
liann stundað rekaviðar- og timbur-
söfnun og stuðlað að því að íslend-
ingar leituðu réttar síns á Jan May-
en en Elís hefur staðið fast á því að
íslendingar ættu hefðbundinn rétt á
rekaviöi þar. Hann var umboðsmað-
ur Olíuverslunar íslands í 13 ár og
í nokkur ár tók hann að sér verk-
efni fyrir Vegagerðina. Elís gekk í
Lionshreyfinguna fyrir 14 árum og
hefur staðið fyrir ferðum eldri borg-
ara á vegum hreyfingarinnar. Hann
er nú svæðisstjóri landshreyfmgar-
innar. Elís hefur verið safnaðarfull-
trúi Heydalakirkju í nokkur ár og
setið í stjórn Landssambands vöru-
bifreiðastjóra.
Elis kvæntistþann 4.6.1961 Fjólu
Ákadóttur, starfsmanni Kaupfélags
Stöðfirðinga á Breiödalsvík, f. 17.1.
1940.
Hún er dóttir Áka Kristjánssonar,
starfsmanns Kaupfélags Berufjarð-
ar í hálfa öld, og Áslaugar Jóns-
dóttur.
Börn Elísar og Fjólu eru:
Áki, f. 15.2.1959, trésmíðameistari
á Akureyri, kvæntur Bryndísi
Karlsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Sigurður, f. 21.10.1960, starfsmað-
ur Hraðfry stihúss Breiðdælinga,
kvæntur Jóhönnu Guðnadóttur og
eigaþaueittbarn.
Áslaug, f. 14.8.1964, póstburðar-
maður í Reykjavík, gift Birni Her-
mannssyni og eiga þau eitt barn.
Stefanía Fjóla, f. 26.4.1971, raf-
virkjanemi í Iðnskólanum.
Erla Vala, f. 26.4.1971, búsett á
Fáskrúðsfírði.
Ragna Valdís, f. 16.1.1980, nemi í
foreldrahúsum.
Elís Pétur, f. 2.4.1982, nemi í for-
eldrahúsum.
Systkini Elísar voru tvö. Stefán
dó 12 ára og stúlka dó í fæðingu.
Foreldrar Elísar voru Sigurður
Stefánsson, fyrrv. póstur frá Streiti
á Djúpavogi, og Sigríður Stefáns-
dóttir húsmóðir.
Sigríður var dóttir Stefáns, b. í
Núpshjáleigu í Berufírði, Ólafsson-
ar, b. á Kömbum í Stöðvarfirði, Vig-
fússonar, b. í Borgargerði í Reyðar-
firði,' Magnússonar.
Móðir Olafs var Halldóra Finn-
bogadóttir frá Kappeyri. Móðir Stef-
áns var Guðrún Stefánsdóttir, b. í
Snæhvammi, Bjarnasonar, og Þór-
unnar Eyjólfsdóttur „gartners“ frá
Elís Pétur Sigurðsson.
Stuðlum í Reyðarfirði.
Móðir Sigríðar var Elín Jónsdótt-
ir, b. á Hvalnesi og Þverhamri, Er-
lendssonar, b. á Dísastöðum og Þor-
valdsstöðum í Breiðdal, Erlendsson-
ar.
Móðir Jóns var Þórey Jónsdóttir
frá Fremri-Kleif, Jónssonar. Móðir
Elínar var Þórdís Höskuldsdóttir,
b. á Þverhamri, Bjarnasonar, og Sig-
ríðar Jónsdóttur frá Skriðu í
Breiðdal, Gunnlaugssonar.
Elís mun taka á móti gestum á
morgun, sunnudaginn 18. mars, á
Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík.
Til hamii afmælið ngju með 18. mars Hilmar Jakobsson,
70 ára Dverghamri 8, Vestmarmaeyjum. Kristín Sigurðardóttir, Haukadal 2, Biskupstungnahreppi.
Bjarnhólastíg 22, Kópavogi. Ásdís S. Thoroddsen, Vesturbrun 4. Reykjavik. Depluhólum 6, Reykjavík.
Kristín Alda Guðmundsdóttir, Fossheiði 9, Selfossi. 40 ára
60 ára Anna Meyvantsdóttir, Gerðavegi 7, Garöi. Guðui Chiisiian Aodivaseu
Hörður Þorsteinsson, Sæborg, Grýtbakkahreppi. bakarameistari, Austurvegi 31B, Sel- • fossi. Hann tekur á móti gestura laugar- daginn 17, mars eftir kl. 19 í veitinga- staðnum Básnum, Efstalandi í Ölfusi. Stefán Gislason, Merkurgötu 10, Hafnarfirði.
50 ára
Dvalinn Hrafnkelsson, Vörðubrún, Hlíðarhreppi.
Guðrún Rannveig Ásgeirsdóttir
Guðrún Rannveig Ásgeirsdóttir
húsmóðir, Aðalstræti 17, ísafirði, er
sjötíu ára í dag.
Guðrún fæddist að Árbakka í
Hnífsdal og ólst þar upp til fullorð-
insára.
Guðrún giftist þann 18.11.1944
Kjartani Gunnari Guðmundssyni
málarameistara, f. 28.9.1921. For-
eldrar hans voru Guðmundur Elías
Sæmundsson málarameistari, f. 3.3.
1899, d. 7.5.1966, og Margrét Péturs-
dóttir, Níelssonar, formanns frá
Hnífsdal, f. 22.11.1901, d. 30.6.1987.
Börn Guðrúnar og Kjartans eru:
Margrét, f. 16.11.1943, starfsmaður
Landsímans í Reykjavík og á hún
eina dóttur.
Rannveig, f. 21.5.1945, sjúkraliði,
búsett í Voss í Noregi, gift Per
Gronás og eiga þau tvo syni.
Guðmundur Elías, f. 7.9.1949,
löggiltur endurskoðandi, búsettur á
ísafirði, kvæntur Bryndísi S. Jónas-
dóttur frá Siglufiröi og eiga þau þrjú
börn.
Ásgerður, f. 20.12.1959, bókasafns-
fræðingur, búsett í Reykjavík.
Systkini Guðrúnar: Sigríður, f.
17.5.1921, búsett á Flateyri; Gunn-
rún Jensína, f. 4.8.1922, d. 15.11.
1989, var búsett á ísafirði; Margrét,
f. 11.5.1924, d. 6.3.1925; Kristján
Ásgeir, f. 2.9.1926, búsettur á Akra-
nesi; Guðni Jóhannes, f. 1.3.1930,
búsettur á Akranesi; Margeir Guð-
mundur, f. 12.8.1931, búsetturí
Keflavík; Jón, f. 28.1.1933, d. 17.12.
1953, var búsettur í Hnífsdal; Hinrik
Gísli, f. 7.7.1937, búsettur í Hnífs-
dal; Elinóra Hrefna, f. 12.2.1942,
búsett í Hnífsdal; og Halldór, f. 10.5.
1943, búsettur í Hnífsdal.
Foreldrar Guðrúnar: Ásgeir
Randver Kristjánsson, f. 14.5.1891,
d. 17.12.1965, sjómaður í Hnífsdal,
og Rannveig Karlína Margrét Vil-
hjálmsdóttir, f. 7.9.1900, húsmóðir.
Ásgeir var sonur Kristjáns, b. á
Kambsnesi og i Súðavík, Björnsson-
ar, í Keflavík, Helgasonar.
Guðrún Rannveig Ásgeirsdóttir.
Móðir Ásgeirs var Guðrún Ás-
geirsdóttir, b. á Kambsnesi, Páls-
sonar, b. á Kambsnesi, Ásgeirsson-
ar.
Móöir Ásgeirs Pálssonar var Guð-
rún Jóhannesdóttir. Móðir Guðrún-
ar Ásgeirsdóttur var Rannveig
Þórðardóttir, b. á Blámýrum, Þor-
steinssonar.
Rannveig er dóttir Vilhjálms, sjó-
manns í Hnífsdal, Markússonar,
lausamanns að Hrappsstööum í
Lögmannshlíö, ívarssonar, b. á
Möðruvöllum í Eyjafirði, Jónsson-
ar. Móðir Rannveigar var Elísabet
Guðnadóttir frá Bolungarvík.