Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Qupperneq 9
MAMJDACÍÚR 19.' MÁÉS '1990:
Utlönd
Kosið í Eystrasaltsríkjunum:
Búist við sigri
umbótasinna
Kosningar voru haldnar í fimm
lýöveldum Sovétríkjanna í gær,
Rússlandi, Hvíta-Rússlandi, Úkra-
ínu, Lettlandi og Eistlandi. Kosn-
ingaþátttaka var dræm í þremur
fyrstnefndu lýðveldunum, þar sem
fór fram önnur umferð kosninga,
og kváðust sovéskir embættismenn
ekki búast við meira en ijörutíu til
íimmtíu prósent þátttöku. Sam-
kvæmt kosningalöggjöfinni eru
kosningar þar sem þátttaka er und-
ir fimmtíu prósentum ógild og
verður að kjósa þar á ný.
Kosningaþátttaka var nokkru
betri í Eystrasaltslýðveldunum.
Fastlega er búist við að íbúar Lett-
lands og Eistlands feti í fótspor
nágranna sinna, Litháa, og kjósi
róttæka umbótasinna í embætti og
á þing.
Endel Lippmaa, einn þingmanna
í Eistlandi, kvaðst búast við að
frambjóðendur, sem væru hlynntir
sjálfstæði lýðveldisins, myndu
vinna um þrjá fjórðu sæta á þingi.
Hið sama má segja um Lettland en
fulltrúar þjóðernishreyflngar Lett-
lands kváðust búast við að fram-
bjóðendum, sem boðað hafa sjálf-
stæði, gengi vel.
Lippmaa sagði í gær að leiðtogar
Eistlands heföu verið boðaðir á
fund ráðamanna í Moskvu til um-
ræðna um þá kröfu þings lýðveldis-
ins að viðræður milli Moskvu og
Eistlands um sjálfstæði lýðveldis-
ins hefjist hið fyrsta.
í fyrstu umferð kosninganna í
Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og
Úkraínu gekk umbótasinnum mjög
vel. Úrslit síðari umferðar, sem
fram fór í gær, liggja ekki fyrir en
ljóst þykir að nokkrir háttsettir
kommúnistar hafl unnið sæti í
borgarráði Moskvu, þar á meðal
borgarstjórinn og leiðtogi komm-
únistaflokks borgarinnar. í Len-
ingrad er talið að umbótasinnar
vinni stóran sigur og sópi til sín
nær öllum sætum sem í boði eru
til borgarráðs og þings lýðveldisins
Rússlands.
Reuter
Fastlega er búist við að íbúar Lettlands, þar sem þessi mynd var tekin,
og Eistlands feti i fótspor nágranna sinna, Litháa, og kjósi sjálfstæðis-
sinna á þing. Símamynd Reuter
lkU"J
DÁSAMLEQT
í einu orði sagt
Þýska verksmiðjan Klose Kollektion framleiðir svo frábærlega vönduð
og falleg borðstofuhúsgöng að hrein unun erað snerta þau og strjúka.
Á húsgagnasýningunni í Köln núna í janúar keyptum við dágott
úrval afþessum hágæða borðstofusettum í mörgum viðartegundum.
Komdu og sjáðu KIRSJUBERJAVIÐINN, hann ersvo einstaklegafallegur.
NúsgagnMtöllin
Bíldshöfða 20
sími 68-11-99
REYKJAVÍK
Það mun vissulega koma þér á óvart hvað liúsgagnahöllin á mikið
til af borðstofusettum frá liorðurlöndum - Ítalíu - Þýskalandi og
fleiri löndum í öllum hugsanlegum verðflokkum.
Við leggjum áherslu á gæði og hagstæð innkaup til þess að þú fáir
reglulega mikið fyrir peningana þína.
Sjáumst
Stillum hraða í hóf
og HUGSUM FRAM
A VEGINN!
IUMFERÐAR
'rað
Litháar á leið með
svar til Gorbatsjovs
Sendinefnd frá þinginu í Litháen
var í morgun á leið til Gorbatsjovs
Sovétforseta til þess að svara skeyti
hans frá því á laugardaginn. {skeyt-
inu er Gorbatsjov sagður hafa dregið
í efa fullveldisyfirlýsingu Litháa með
því að krefjast svars frá Landsbergis,
forseta Litháen, innan þriggja daga
við ályktun fulltrúaþingsins sov-
éska. í henni er fullveldisyfirlýsingin
sögð ólögmæt. Sendinefndin lagði af
stað daginn eftir miklar mótmælaað-
gerðir rússnesku samtakanna Ed-
instvo sem þekkt eru fyrir andstöðu
sína gegn sjálfstæði Litháens.
Svarið sem Gorbatsjov fær er sagt
tvíþætt. í fyrsta lagi munu Litháar
gera það ljóst að þeír sætti sig ekki
við ályktun sovéska þingsins. Og í
öðru lagi segjast þeir vera reiðubúnir
til samningaviðræðna um þau laga-
legu atriði sem Sovétmenn telja að
þeir þurfi að veija í Litháen. Æðsta
ráðið í Litháen náði samkomulagi
um þessi svör á laugardaginn.
Margir hermenn eru sagðir hafa
tekið þátt í mótmælaaðgerðum Ed-
instvos á laugardaginn og fullyrt er
að flugmiðum, þar sem hvatt var til
mótmælaaðgerðanna, hafi verið
dreift úr þyrlu hersins. Samtökin
kröfðust þjóðaratkvæðagreiðslu um
sjálfstæði Litháens í mótmælunum á
laugardaginn. TT
Við gefum farþegum okkar auglýsingakostnaðinn, í stað þess að nota ferðapeninga ykkar i stórar stríðsaug-
lýsingar dag eftir dag.
Já, - og það sem meira er: Þetta er verð fyrir fullorðna en ekki börn.
Oasis Magalluf
glæsilegt íbúðahótel
Má bjóða þér eitt glæsilegasta ibúðahótel Spánar?
Miðsvæðis i Magalluf, baðstrandarborginni, rétt við
höfuðborgina Palma. Nýjar og fallegar ibúðir, svefn-
herbergi og stofa, stórgóð salarkynni, setustofur, veit-
ingastaðir, barir, dansstaðir og 9000 ferm hótelgarður
með risasundlaugum, veitingastöðum og skemmti-
atriðum.
Þarna er sjórinn, sólskinið og skemmtanalifið eins
og fólk vill hafa það. Íslenskur fararstjóri og fjöl-
breyttar skemmti- og skoðunarferðir.
— WI inggRQlR
=■ SOLRRFLUG
Vesturgötu 12 - Simar 15331 og 22100.
3 vikur 16. mai, 6. júni 27. júni, 19. sept., 10. okt. 18. júli. 8. ágúst og 29. ágúst
0ASIS ibúðahótel Magalluf svelnh. og stofa Kynningarverð á 300 sætum meðan endast til 30. mars Venjulegt verð Kynningarverð á 300 sætum meðan endast til 30. mars Venjulegt verð
4 i ibúð kr. 68.300 (kr. 73.900) kr. 62.500 (kr. 79.600)
3 i ibúð kr. 61.700 (kr. 78.500) kr. 67.300 (kr. 84.600)
2 i ibúð kr. 68.500 (kr. 92.300) kr. 76.900 (kr. 99.500)