Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 19. MARS 1990.
33
I>V
Sviðsljós
Fimmtugsafmæli
Gunnars Felixsonar
í síðustu viku varð Gunnar Felix-
son, aðstoðarforstjóri Tryggingamið-
stöðvarinnar hf„ fimmtugur. Gunn-
ar ólst upp í vesturbænum og hefur
verið KR-ingur frá blautu barns-
beini. Hann lék knattspyrnu í öllum
flokkum félagsins, þar á meðal með
meistaraflokki á árunum 1959-70, og
er margfaldur íslands- og bikar-
meistari í knattspyrnu. Hann lék
einnig nokkra landsleiki. Þess má
geta að bræður hans, Hörður og
Bjarni, léku allir samtímis með KR
og íslenska landsliðinu.
Gunnar Felixson og eiginkona
hans, Hilda Guðmundsdóttir, tóku á
móti gestum í Hvammi á Holiday Inn
á afmælisdaginn og var þar mikið
fjölmenni ættingja og vina.
Bjarni Felixson, bróðir Gunnars, óskar honum til hamingju með afmælið,
Gunnar Felixson ásamt eiginkonu sinni, Hildu Guðmundsdóttur, og sonum þeirra, Guðmundi Erni og Ágústi Felix
Margir gamlir og grónir KR-ingar heimsóttu Gunnar á afmæli hans. Hér
má sjá nokkra. Talið frá vinstri, Guðmundur Haraldsson, Þorgeir Guðmunds-
son, Sigþór Sigurjónsson, Ársæll Kjartansson, Ólafur Guðmundsson og
Haraldur Gislason. DV-myndirS
Er Jessica Lange
að skilja?
Það er eitthvað dularfullt að gerast
hjá leikkonunni frægu, Jessicu
Lange. Ekki alls fyrir löngu skrapp
hún út eina kvöldstund til að vera
viðstödd frumsýningu á nýjustu
mynd sinni, Men Don’t Leave. Það
er kannski ekki í frásögur færandi
nema að hún fór út án eiginmanns
síns, leikarans og leikritahöfundar-
ins Sams Shepard. Fylgdarfólk
Jessicu var hins vegar fyrrum sam-
býlismaður hennar, ballettdansar-
inn Mikhail Baryshnikov, og átta ára
dóttir þeirra, Alexandra.
Jessica gat sér fyrst verulega gott
orð í kvikmyndaheiminum fyrir
myndirnar The Postman always
Rings Twice, Tootsie, þar sem hún
lék á móti Dustin Hoffman, svo og
fyrir myndina Frances en fyrir það
hlutverk var hún útnefnd til óskars-
verðlauna.
Hún hitti Sam þegar hún lék í Fran-
ces og þau fóru að búa saman
skömmu síðar.
Jessica og Sam eiga tvö börn,
Hannah og Walker, og hefur allt virst
í lagi hjá þeim skötuhjúum. Menn
eru hins vegar farnir að velta því
fyrir sér hvort eitthvað sé að í sam-
bandinu fyrst hún er farin að sjást í
fylgd með Mikhaii aftur.
Jessica leiðir hér dóttur sina, Alex-
öndru, og fast á eftir þeim fylgir
Mikhail Baryshnikov, fyrrum sam-
býlismaður Jessicu.
BIFREIÐAEIGENDUR!
SPARIÐ TÍMA - SPARIÐ FYRIRHÖFN
Renníð bxlnum í gegn hjá Bón- og þvottastöðxnní, Sigtúní 3.
Hjá okkur tekur aðeins 12-15 mínútur aða fá bílinn þveginn
og bónaðan. Hjá okkm: eru allir bílar handþvegnir.
Notað er úrvals tjöruhreinsiefni og hið viðurkennda SONAX*
gæðabón.
Verð mjög sanngjarnt.
Vegna afkastagetu stöðvarinnar, sem er yfir 40 bílar á
klukkustund er biðtími nánast enginn.
Tíma þarf ekki að panta.
i:ó\- og i »v< riTAs n wi x
SIGTÚNI 3 - SÍMI 14820
n ■ 11 ■ i ■ i i ■ i ■ u ■ ■ i ■ i n i ■ i ■ in ■ ■ i ■ ■ 11 ■ ■ i ■ i ■ n ■ ■ ■ i
MINOLTA
MYNDAVÉLAR
FRABÆR GÆÐI Opnum kl. 8.30
íTi ■ ni 11 ii ii 1111111 iJi ■ 11
Allar ljósmyndavörur á einum stað
nnnmiimiiiiiiiiiimn]
LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN HF
Laugavegi 178 - Simi 68-58-11 (næsta hús við Siónvarnið) I
xiniimmiiiiMMninimljj