Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1990, Page 43
LAUtURDAGXJft 24. MARS 1990.
5i
Afmæli
Halldóra S.G. Veturliðadóttír
Halldóra Sigurlína Guörún Vetur-
liöadóttir, fyrrv. verkakona, af-
greiðslukona og húsmóðir, Höfða-
grund 19, Akranesi, er áttræö í dag.
Halldóra fæddist í Hnífsdal og ólst
upp í foreldrahúsum að Lækjamót-
um á ísafirði, elst nítján systkina.
Hún lauk barnaskólaprófi frá
Barnaskóla ísafjarðar 1924 og gætti
systkina sinna og hjálpaði til við
uppeldi þeirra þar til hún hóf sjálf
búskap 1933. Meðan Halldóra var í
foreldrahúsum vann hún í ílsk-
vinnu hjá Samvinnufélagi ísfirðinga
en eftir að hún fór sjálf að búa vann
hún ýmis störf, í fiskvinnu, í strau-
stofu Sjúkrahúss ísafjarðar og við
Fatahreinsun Halldórs Gunnars-
sonaráísafirði.
Halldóra starfaði í Kvenfélaginu
Hlíf á ísafirði og var einn af stofn-
endum Sjálfstæðiskvennafélags ísa-
flarðar.
Halldóra og fjöldskylda hennar
fluttu á Akranes 1964 þar sem Hall-
dóra afgreiddi í mjólkurbúðinni við
Stillholt í fjölda ára, til ársins 1978.
Þá hóf hún störf hjá Artic þar sem
hún starfaði þar til hún varð sjötíu
ogþriggjaára.
A Akranesi hefur Halldóra starfað
mikið í Kvenfélaginu og Sjálfstæðis-
félaginu. Hún bjó þar lengst af á
Vesturgötu 154 eða þar til hún
keypti einbýlishús á vegum aldr-
aðra á Akranesi árið 1985.
Halldóra giftist 24.10.1937 Karvel
Lindberg Olgeirssyni vélstjóra, f.
18.1.1907, d. 12.11.1968, en foreldrar
hans voru Olgeir Oliversson sjó-
maður og María Guðmundsdóttir
húsmóðir. Fósturforeldrar Karvels
voru Jónína Jónsdóttir og Einar
Hákonarson frá Klettabúð á Hellis-
sandi.
Börn Halldóru og Karvels: Sverrir
Oliver Karvelsson, f. 20.2.1938, fisk-
matsmaður, í sambúö með Ósk
Árnadóttur húsmóður og eiga þau
tvo syni, Kristján og Arnar; Hall-
dóra Guðrún Karvelsdóttir, £5.9.
1939, sjúkrahði, gift Brynjari ívars-
syni skipasölumanni en börn þeirra
eru Guðmundur Ómar, Örn Ægir,
Halldóra Berglind, Sigurður ívar og
Hlöðver Már; Jónína Sigfríður Kar-
velsdóttir, f. 23.7.1943, skrifstofu-
stúlka, gift Edward Scott verka-
manni en börn þeirra eru Eiríkur
Valgeir, Dóra Björk, Eyþór Atli,
Gunnar Jóhannes og Lindberg Már;
Hafdís Karvelsdóttir, f. 6.2.1946,
sjúkraliði, gift Sigurði Vésteinssyni
trésmið en börn þeirra eru Elfur
Sif, María Karen, Ernir Freyr og
Irma Dögg; Júlíana Karvelsdóttir,
f. 8.7.1947, verkakona, gift Hinriki
Líndal Hinrikssyni útgerðarmanni
en börn þeirra eru Karvel Líndal,
Ása Líndal og Olga Líndal; Karvel
Lindberg Karvelsson, f. 13.3.1952,
pípulagningameistari, giftur Ólafiu
Ólafsdóttur en börn þeirra eru Kar-
vel Lindberg, Ólafur Lindberg og
Andri Lindberg. Halldóra á nú ell-
efu langömmuböm.
Systkini Halldóru, sem komust á
legg, eru Ingibjörg Guðrún, gift Ró-
bert Bjarnasyni verkamanni og eiga
þau tvær dætur; Salvör Kristrún,
gift Ara Guðjónssyni rakara og eiga
þau þrjú börn; Veturliði Gunnar,
fyrrv. framkvæmdastjóri, kvæntur
Huldu Guðmundsdóttur og eiga þau
átta börn; Rakel, sem er látin, var
gift Óskari Finnbogasyni presti sem
einnig er látinn en þau eignuðust
fjögur börn; Lára Huld Thoraren-
sen, gift Guðmundi Ólafssyni mat-
sveini og eiga þau sjö börn; Jóhanna
Margrét, ekkja eftir Bjarna Kjart-
ansson verkamann og eignuðust
þau tvo syni; Guðmunda Daníela,
gift Kristjáni Þórðarsyni afgreiðslu-
manni og eignuðust þau fimm börn;
Eiríkur Sveinbjörn vegagerðar-
stjóri, kvæntur Önnu Jónasdóttur
og eiga þau tvö börn; Margrét Pá-
lína, gift Pétri Jónssyni bifvéla-
virkja og eiga þau fimm börn; Vil-
helmína Erla verkakona, á eitt barn;
Júlíus Magnús Hólm verkamaður,
kvæntur Guðrúnu Sveinbjörndótt-
ur og eiga þau sex börn, og Svala
Sverrey bankagjaldkeri, gift Rík-
harði Þorlákssyni útibússtjóra og
eiga þau fimm börn.
Foreldrar Halldóru voru Veturliði
Guðbjartsson, f. 26.6.1883, d. 21.9.
1966, verksjóri á ísafirði, og kona
hans, Guðrún Halldórsdóttir, f. 3.9.
1889, d. 18.8.1959, húsmóðir.
Veturliði var sonur Guðbjarts, b.
á Grænahóli á Barðaströnd, Þor-
geirssonar, b. á Grænahóli, Sigurðs-
sonar. Móðir Veturliða var Guðrún
Eiríksdóttir, b. í Unaðsdal, Eiríks-
sonar í Dumpu, Jónssonar. Móðir
Guðrúnar var Sveinbjörg Þorkels-
dóttir. Móðir Sveinbjargar var Sig-
ríður Árnadóttir umboðsmanns
Jónssonar, sýslumanns í Reykjar-
firði, þess sem hafði umsjón með
saltvinnslunni í Reykjanesi við
Halldóra S. G. Veturliðadóttir.
Djúp, Arnórssonar, sýslumanns í
Borgarijarðarsýslu, Jónssonar.
Móðir Sigríðar var Elísabet Rós-
inkar Guömundsdóttir, hreppstjóra
og b. í Neðri-Arnardal, Bárðarsonar,
b. í Arnardal, ættföður Arnardals-
ættarinnar, Ulugasonar.
Guðrún, móðir afmælisbarnsins,
var dóttir Halldórs trésmiðs Hall-
dórssonar, b. á Hóli á Hvilftarströnd
í Önundarfirði, Halldórssonar, b. á
Grafargili, Eiríkssonar, prests og
þjóðhagssmiðs, Vigfússonar, stúd-
ents í Stóra-Ási og í Höfn, Vigfús-
sonar, prests í Miðdalaþingum, Ei-
ríkssonar, prests í Hjarðarholti,
Vigfússonar. Móðir Guðrúnar var
Sigurlína Guðmundsdóttir.
í
80 ára
Pétur G. Stefánsson,
Fálkagötu 9, Reykjavík,
75 ára
Ragnar Björnsson, Garðakoti I, Hólahreppi.
70 ára
Ingunn Einarsdóttir, Kirkjuteigi 3, Keflavík. Svava Hólmkclsdóttir, Brekkubraut 15, Keflavík. Sveinlaug Friðriksdóttir, Valllioiti, Grýtubakkahreppi.
60 ára
Guðrún Elin Skarphéðinsdóttir,
Bárugötu 1, Dalvík.
Girnnar Karl Þorgeirsson,
Hólagötu 12, Sandgeröi.
Aðalsteinn Friðfinnsson,
Grundargötu 20, Grundarflrði.
Ingibjörg Vilhjáluisdóttir,
Kambahrauní 13, Hverageröí.
Jóhanna Þorsteinsdóttír,
Borgarvegi 20B, Njarövík.
Magnús Sigurðsson,
Oddabraut 22, Þorlákshöfn.
Arndis Haúksdóttir,
Eskihhð 8, Reykjavík.
iijörg Einarsdóttir,
Eyrargötu 22, Sigluflrði.
Björn Búasou,
Vallargötu 9, Sandgerði.
Elísahet, Sigurðardóttir,
Leynisbrún 1, Grindavfk.
Erla Pálmadóttir,
Gerðhömrum 16, Reykjavík.
Ester Halldórsdóttir,
Engiaseli 23, Rfykiavtk.
Gunnlaugur Valdimarsson,
Kollufossi, Fremri-Torfustaðalireppi.
Magnús Filippusson,
Brekkuvegi 3, Seyðisfirði,
Ragnar A. Wessman,
Hrísmóuni I. Garðabæ
Sigriður Alfréðsdöttir,
Ifremri-Hlíð, Vopnaflarðarhreppi.
Stefán Filippusson,
Brekkuvegi 3, Seyðisflrðí.
Guðrún Eggertsdóttir
Stefán Scheving Kristjánsson
Stefán Scheving Kristjánsson, b. í
Götu í Hrunamannahreppi, er sjö-
tugurídag.
Stefán er fæddur í Ólafsvík og bjó
þar til 1924. Þá bjó hann í Reykjavík
til 1930 og síðar í Brekku í Biskups-
tungum 1930-43. Hann hefur verið
bóndi í Götu frá 1947.
Stefán kvæntist þann 8.7.1947
Ágústu Sigurdórsdóttur húsmóöur,
f. 23.8.1923. Foreldrar hennar voru
Sigurdór Stefánsson, f. 11.2.1891, d.
22.7.1970, b. í Götu í Hrunamanna-
hreppi, og Katrín Guömundsdóttir,
f. 22.10.1895, d. 22.5.1976.
Börn Stefáns og Ágústu eru:
Katrín, f. 2.2.1946, bankastarfs-
maöur í Þorlákshöfn, gift Hauki
Viðari Benediktssyni, f. 6.7.1947,
vélstjóra, og eru synir þeirra: Stef-
án, f. 27.3.1967, vélstjóri í Þorláks-
höfn, og Jóhannes Þór, f. 3.3.1968,
stýrimaður í Þorlákshöfn.
Sigríður, f. 4.12.1948, fiskimats-
maður í Þorlákshöfn, gift Ragnari
Óskarssyni, f. 4.8.1942, trésmíða-
meistara, og eru böm þeirra:
Ágústa, f. 15.2.1967, myndlistamemi
í Þorlákshöfn; og Óskar, f. 5.5.1970,
trésmiður í Þorlákshöfn.
Jón, f. 19.6.1952, b. og bílstjóri í
Götu, kvæntur Ólöfu Guðnadóttur,
f. 22.7.1955, og eru börn þeirra: Lilja
Björg, f. 4.12.1977; María, f. 13.7.
1980; ogÁgúst Scheving, f. 17.2.1984.
Sigurdór Már, f. 1.2.1959, vinnur
hjá Sólningu á Selfossi, kvæntur
Guðrún Eggertsdóttir, forstöðu-
maður bókhaldsdeildar Kaupfélags
Borgfirðinga, til heimilis að Bjargi
í Borgarnesi, veröur flmmtug á
morgun.
Guðrún fæddist í Borgarnesi. Hún
lauk stúdentsprófi frá MA1961 og
var við verslunamám og skrifstofu-
störf í Kaupmannahöfn 1962-63.
Hún vann skrifstofustörf hjá Véla-
deild SÍS1964-70 en hefur verið
starfsmaður Kaupfélags Borgfirð-
inga frá 1971. Guðrún var þar aðal-
bókari frá 1972 en starfar nú sem
forstöðumaður bókhaldsdeildar
kaupfélagsins.
Guðrún sat í stjórn Verslunar-
mannafélags Borgarness 1972-75 og
var formaður félagsins 1976-80 og
1982-83. Hún sat í stjórn Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna
1977-87 og var ritari Alþýöusam-
bands Vesturlands frá stofnun þess
1977 ogtil 1981.
Dóttir Guðrúnar er Heiður Hörn
Hjartardóttir, f. 3.12.1970, nemandi
viö Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Guðrún á fjögur systkini. Þau eru
Kristín Eggertsdóttir, f. 16.9.1931,
forstöðukona kaffistofu Norræna
hússins; Guðmundur Eggertsson, f.
24.4.1933, prófessor við HÍ; Jóna
Eggertsdóttir, f. 10.1.1937, yfirfé-
lagsráðgjafi á Borgarspítalanum, og
JónAgnarEggertsson,f.5.1.1946,
formaður Verkalýðsfélags Borgar-
ness.
Foreldrar Guðrúnar: Eggert Guð-
. mundsson, f. 20.10.1897, d. 19.8.1979,
bóndi í Skorradal og síðar að Bjargi
við Borgarnes, og Aðalheiður Lilja
Jónsdóttir, f. 8.8.1910, húsmóðir.
Eggert var sonur Guðmundar, b.
á Eyri í Flókadal, Eggertssonar, b.
á Eyri Gíslasonar, prests í Hítar-
nesi, bróður Jóns, b. í Höll í Þverár-
hlíð, langafa þeirra bræðra Guð-
mundar Kamban rithöfundar og
Gísla Jónssonar alþingismanns. Jón
var einnig langafi þeirra bræðra
Sigvalda Kaldalóns tónskálds og
Eggerts Stefánssonar söngvara.
Annar bróðir Gísla var Eggert, pró-
fastur í Reykholti, faðir Guðrúnar í
Stóru-Vogum, ættmóður Waageætt-
arinnar, langömmu Ingunnar, móð-
ur Þorsteins Thorarensen, rithöf-
undar og bókaútgefanda. Eggert í
Reykholti var einnig afi Eggerts,
alþingismanns í Laugardælum, en
hann var afi Benedikts Bogasonar,
alþingismanns og verkfræðings,
Rúnars Bjarnasonar slökkviliðs-
stjóra, Eggerts Haukdal alþings-
manns og Guðrúnar, móður Þór-
hildar Þorleifsdóttur alþingis-
manns. Þriðji bróðir Gísla var Páll,
prestur á Stað í Grunnavík, faðir
Guðmundar, sýslumanns í Arnar-
holti og langafi Guðmundar Hann-
essonar, bæjarfógeta á Siglufirði.
Gísli í Hítarnesi var sonur Guð-
mundar, fangahúsráðsmanns við
Arnarhól og síðar b. í Hjarðarholti
í Stafholtstungum, Vigfússonar, lög-
sögumanns í Hjörsey, Sigurðssonar.
Móðir Gísla var Guðrún Þorbjarn-
ardóttir „ríka“ í Skildinganesi
Bjarnasonar. Móðir Guðmundar á
Eyri var Guðrún Vigfúsdóttir, b. á
Signýjarstöðum, bróður Gísla í Hít-
arnesi.
Móðir Eggerts á Bjargi var Kristín
Kláusdóttir, b. á Steðja í Flókadal
Sigmundssonar, b. á Brúarhrauni
Bárðarsonar. Móðir Kristínar var
Ástríður Jónsdóttir frá Snorrastöö-
um.
Aðalheiður Lilja er dóttir Jóns b.
á Arnarfelli í Þingvallasveit, Ólafs-
sonar, b. í Lónakoti í Hraunum, Sig-
urðssonar, en hann vakti fyrstur
Guðrún Eggertsdóttir.
athygli á því að koma á almanna-
tryggingum á íslandi í bæklingi
1888.
Móðir Aðalheiðar var Agnes
Gísladóttir, b. í Butru í Fljótshlíð,
bróður Ingiríðar, ömmu Jónasar,
afa Einars Ágústssonar ráöherra og
Hrafnkels Helgasonar yfirlæknis.
Gísli var sonur Árna, b. á Brekkum
á Rangárvöllum, Gíslasonar og
konu hans, Ingigerðar Guðmunds-
dóttur, b. á Snjallsteinshöfða, Þor-
steinssonar, bróður Kristínar, konu
Eiríks Jónssonar í Bolholti, ætt-
föður Bolholtsættarinnar, langafa
Kristínar, ömmu Gunnars Thor-
odd-sens forsætisráðherra. Móðir
Agn-esar var Agnes, systir Sigríðar,
langömmu Ingólfs Jónssonar ráð-
herra. Agnes var dóttir Magnúsar,
b. á Eystri-Geldingalæk, Sæmunds-
sonar, bróður Guðbrands, föður
Sæmundar, b. á Lækjabotnum, ætt-
föður Lækjabotnaættarinnar og
langafa Guðmundar Daníelssonar
rithöfundar.
Guðrún tekur á móti gestum á
Bjargi klukkan 16-19.00 á afmælis-
daginn.
Stefán Scheving Kristjánsson.
Guðbjörgu Fríðu Guðmundsdóttur,
f. 4.5.1959, og eru börn þeirra: Egg-
ert Már, f. 13.10.1981; Ágústa Arna,
f. 27.4.1986, ogBrynjar Órn, f. 31.12.
1989.
Systkini Stefáns:
Sigurást Aðalheiður, f. 11.9.1917,
d. 12.8.1984, var búsett í Reykjavík
og gift Baldri Baldvinssyni, og eign-
uðustþaullbörn.
Eggert, f. 14.8.1923, starfsmaður
Ólafsvíkurbæjar, ókvæntur.
Foreldrar Stefáns voru Kristján
Júlíus Guðjón Guðmundsson, f. 30.7
1884, sjómaður í Bakkabúð í Staðar-
sveit á Snæfellsnesi, og María Sig-
ríður Soffia Sveinsína Guðmunds-
dóttir.f. 2.4.1891.
Stefán verður að heiman í dag.
Lúðvík Baldursson
Lúðvík Baldursson sjómaður,
Gerðavöllum 48B, Grindavík, verð-
ur fertugur á morgun, 25. mars.
Lúðvík er fæddur á Bíldudal og
þar ólst hann upp. Hann lauk
grunnskólaprófi við Laugarnes-
skóla en fór síðan til sjós og hefur
stundað sjómennsku alla tíð síðan.
Lúðvík kvæntist þann 15.11.1975
Þóreyju Aspelund fiskvinnslukonu,
f. 25.9.1955. Foreldrar hennar eru
Erling Aspelund og Guðlaug Ásta
Magnúsdóttir saumakona.
Börn Lúðvíks og Þóreyjar eru:
Linda Rós Aspelund, f. 7.8.1976, og
Ásta Soffía Aspelund, f. 15.4.1980.
V/
Auk þess eignaðist Lúðvík eina dótt-
ur fyrir hjónaband, írisi Olgu, f. 26.8.
1968.
Bræður Lúðvíks eru: Björn Ein-
arsson, húsasmíðameistari í Hafn-
arfirði, kvæntur Margréti Árnadótt-
ur gjaldkera, og eiga þau tvö börn;
Ásgeir Baldursson, verkstjóri í
Reykjavík, og á hann þrjú börn;
Heiðar Baldursson, sjómaður á
Bíldudal, og Grétar Ingi Gunnars-
son Fjeldsted, nemi í Reykjavík.
Foreldrar Lúðvíks eru Baldur Ás-
geirsson, kjötiðnaðarmaður í
Reykjavík, og Soffía Sveinbjörns-
dóttir, verkakona í Reykjavík.
noröan við Kaupstað,
I'