Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Qupperneq 24
32
Fréttir
.imi míi a ffiiKíMKnrgöi
1 ""f.”“"POSTITÖ’SUOKr5.,,JONI l«Ub.
DV
Slitnar upp úr viðræðum við Sleipnismenn:
Stefnir í verkfall
um miðja næstu viku
Það slitnaði upp úr viðræðum
Sleipnismanna, félags bifreiðar-
stjóra, og viðsemjenda þeirra eftir
fund með sáttasemjara á miðviku-
dag. Mikið bar í milli og er hart
deilt um kjör þeirra langferðabíl-
stjóra sem meðlimir eru í félaginu.
Ef ekki semst fyrir miðnætti mið-
vikudaginn 13. júní hefst boðað
verkfall sem standa mun til mið-
nættis 18. júní. Við það stöðvast
hluti þeirra rútuferða sem áætiað-
ar eru á þessum dögum.
Magnús Guðmundsson, formað-
ur Sleipnis, segir Sleipnismenn
vilja semja en að öðrum kosti verð-
ur farið í hart. „Við erum ákveðn-
ari en áður og ætlum að ná ár-
angri,“ sagði Magnús.
Meðlimir Sleipnis eru um 120
talsins og er það aðeins hluti starf-
andi langferðabílstjóra. Aðrir eru
annað hvort i öðrum félögum eða
sjálfseignarmenn og semja á
grundvelli þess. Sleipnismenn
segja kjörin slæm og vilja ekki
semja á nótum ASÍ og VSÍ samn-
ingsins en þar er kveðið á um tæp-
lega 10% hækkun á einu og hálfu
ári.
Vilja tíu þúsund króna hækk-
un á mánuði nú þegar
Byrjunarlaun hjá Sleipnisbíl-
stjóra eru tæpar 42 þúsund krónur
og vilja þeir fá 10 þúsund króna
hækkun nú þegar. Þeir vilja styðj-
ast við það samkomulag sem starfs-
menn Sérleyfisbifreiða Keflavíkur
hafa náð en það mun vera nokkuð
hagstæðari samningur en annars
staöar hefur verið boðinn. Flest
fyrirtæki hafa þegar samið, t.d.
Austurleið og Sæmundur Sig-
mundsson í Borgamesi. Síðast en
ekki síst hafa Landleiðamenn skrif-
að undir samning en þeir eru sér-
stök deild innan Sleipnis.
Sleipnismenn vonast til að verk-
fall nú hafi meiri áhrif en í vetur,
ef til þess kemur, þar sem ferða-
mannatíminn er hafinn. Misjafnar
skoðanir eru þó uppi um áhrif þess.
BSÍ mun verða með 600 ráðstefnu-
gesti á sínum vegum en samkvæmt
heimildarmönnum DV geta leigur-
útur annað mestum hluta þeirra
ferða sem farnar verða. Líklegt er
þó að ferðir milli Akureyrar og
Reykjavíkur svo og ferðir milli Sel-
foss og Reykjavíkur raskist.
Ferðaskrifstofan Kynnisferðir
lendir væntanlega í vandræðum
með að halda uppi ferðum til og frá
Keflavíkurflugvelh. Talsmenn
Ferðaskrifstofu Guðmundar Jón-
assonar voru hvað svartsýnastir
og sögðu að nær allar rútur þeirra
myndu stöðvast.
Sleipnismenn telja að þrýstingur
á viðsemjendur væri mun meiri nú
en fyrr á þessu ári en forráðamenn
ferðaskrifstofa og bifreiðastöðva
vildu gera mun minna úr máhnu.
-tlt
Stokkseyri:
Ummerki flóðsins að hverfa
og fiskverkun komin í gang
bigi S. Ingasan, DV, Stokkseyii
Vorverkin á Stokkseyri voru með
nokkuð öðrum brag að þessu sinni
en oftast áður. Eins og margan rekur
minni til gekk mikih sjór á land hér
í janúar sl. og olh miklum skemmd-
um á mannvirkjum og tækjum, auk
þess sem þang og sandur ásamt grjóti
úr sjóvamargörðunum lagðist yfir
gróna jörð.
Vart hafði fyrr fjarað út í vetur en
jörð lagðist undir snjó og kom ekki
undan honum fyrr en í maíbyrjun.
Voru þá böm og unghngar þorpsins
send af stað vopnuð hrífum, strá-
kústum og skóflum til að hreinsa
gróðurlendið en stórvirkar vinnuvél-
ar réðust gegn gijótinu og hófu viö-
gerð vega sem urðu fyrir alvarlegum
skemmdum og eyðileggingu í vetur
leið.
Nú er þessu að mestu leyti lokið
og fleiri uppbyggingarstörf hafin,
meðal annars er verið að endurhlaða
Þuríðarbúð, en hún var að hruni
komin, þó ekki séu nema 20 ár síðan
hún síðast var endurreist.
Þá em fiskverkunarfyrirtæki stað-
arins komin í gang aftur en einkum
eitt þeirra, Eyrarfiskur, sem er harð-
Unnið að endurhleðslu Þuriðarbúðar á Stokkseyri.
DV-myndir Ingi
Ungviðið sópaði upp sandi og ýmsum óþverra, sem barst á land í flóðinu.
DV-mynd Ingi
fiskverkun og frystir jafnframt fisk
fyrir innanlandsmarkað, fór mjög
illa í flóðinu. Hófst vinna þar ekki
aftur fyrr en eftir páska. Þó hefði
verið hægt að byrja hálfum mánuði
fyrr ef fiskverð á innanlandsmarkaði
hefði verið lægra. Að sögn forstjóra
Eyrarfisks, Jóns Haraldssonar, var
fiskverð svo hátt í aprílbyrjun að
ekki hefði verið vegur að vinna hann
í neytendaumbúöir á innanlands-
markað. Heföi kílóið af ýsuflökum til
neytenda farið yfir verð á lambakjöti
á lágmarksverði hefði vinnslan átt
að standa undir sér. Má þá nærri
geta að harðfiskkílóið hefði stigiö
ahmikið í veröi og finnst þó ýmsum
sú kostafæða nógu dýr nú þegar.
Má þetta kahast merkilegt á sama
tíma og Vestmannaeyingar telja sig
ekki geta losnað við hráefni á „viðun-
andi verði“.
Guöbjörg Birgisdóttir fer mjúkum
höndum um haröfisk frá Eyrarbakka.
DV-mynd Ingi
Verðkönnun:
Verulegur
verðmunur
á plöntum
Verulegur verðmunur er á fjöl-
ærum blómum milh gróðrar-
stöðva. Getur verðmunurinn
numið frá 60% til 100%. Þetta eru
meðal aimars niðurstöður Verð-
lagsstofnunar úr könnun sem
gerð var á blómum og runnum.
Könnunin var gerö þann 25.
maí sl. og náði til 17 gróðrar-
stöðva á höfuðborgarsvæðinu og
í Hveragerði. Kom í ljós að verð
á suraarblómum er 45 til 50 krón-
ur hjá öllum gróðrarstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu en í Hvera-
gerði kosta sumarblómin frá 38
til44krónur.
Töluverður verðmunur er
einnig á þeim tegundum garö-
tijáa sem könnuð voru en í könn-
uninni voru garðtré þær plöntur
sem teknar eru beint úr beði eða
seldar í pottum. Trjáplöntur með
hnaus eru í flestum tilvikum mun
dýrari og var verð á hnausplönt-
um ekki tekið með í könnun
Verölagsstofnunar.
Þar sem verðmunur er í sumum
tilvikum allverulegur er ráölegt
fyrir kaupendur að gera verð-
samanburð áöur en keypt er.
-GHK
Akranes:
Sveiflur í
vatnsmagni
Síguiöur Sverrissan, DV, Akranesi;
Hugmyndir eru nú uppi á Akra-
nesi um að setja upp stóran miðl-
unartank f gamla bænum tíi þess
að bæta úr skorti á köldu vatni
og miklum sveiflum á vatns-
magni.
Þetta ástand hefur varaö í lang-
an tíma og hefur ríkt mikil óán-
ægja á meðal íbúa gamla bæjar-
ins vegna þessa. Algengt hefur
vqjiö að fólk hafi orðiö að sæta
lagi við fataþvott og bööun vegna
þess hversu mikið vatn fiskverk-
unarstöðvarnar, sem eru í eldri
hluta bæjarins, nota við vinnsl-
una.
Að sögn Daníels Ámasonar
bæjartæknifræðings er verið aö
skoða þami möguleika að setja
upp 1000 tonna tank til þess að
reyna að laga þetta. Sagðist hann
telja aö miðlunartankur gæti lag-
að ástandið verulega frá því sem
nú er.
Hætt er þó viö að íbúar gamla
bæjarins verði að hafa biðlund
a.m.k. út þetta ár því fé til kaupa
á miðlunartánki er ekki að finna
á íjárhagsáætlun Akraneskaup-
staðar i ár.
Meirihlutar
á Egilsstöð-
um og í
Njarðvík
Framsóknarmenn og óháðir
hafa myndað meirihluta í bæjar-
stjórn Egilsstaða. Sveinn Þórar-
insson Framsóknarflokki verður
forseti bæjarsfjórnar og Ásta
Sigfúsdóttir frá óháðum formaö-
ur bæjarráðs.
í Njarðvík hafa sjálfstæðis-
menn og félagshyggjufólk mynd-
að meirihluta. Ingólfur Báröar-
son, Sjálfstæðisflokki, verður for-
seti bæjarstjómar í þijú ár og
Sólveig Þórðardóttir, Saratökum
félagshyggjufólks, í eitt ár. Staöa
bæjarstjóra verður auglýst.
-sme