Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Síða 3
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990.
3
Fréttir
■ Landsmót hestamanna:
Alþj óðahvalveiðiráðið:
„Dagar ráðsins
brátt taldir“
skýst upp á stjörnuhimimnn
Skín við sólu Skagafjörður syngja
Skagílrðingar því nú hefur sólin
brotist út úr skýjunum og yljar
landsmótsgestum á Vindheimamel-
um. Tæplega sjö þúsund manns voru
komin á Vindheimamela í gær og var
búist við miklum fjölda í gærkvöldi.
í gær voru kynbótahross sýnd í
opnum dómi. Hrossaræktarráðu-
nautar sátu við skriftir fram eftir
kvöldi og í dag verða dómar birtir.
Mikill spenningur er meðal áhuga-
manna um hrossarækt því margar
af helstu stóðhestastjömunum hafa
brugðist.
Kolfmnur frá Kjarnholtum heftir
skotist upp á stjörnuhimin með mjög
glæsilegri sýningu og keppir við
Gassa frá Vorsabæ um efsta sæti í
flokki sex vetra stóðhesta.
Toppur frá Eyjólfsstöðum dæmist
ekki til verðlauna í flokki fimm vetra
stóðhesta og óvíst er með Pilt frá
Sperðh því gömul meiðsl hafa tekið
sig upp hjá honum og því óvist hvort
hann verður sýndur meir. Hann mun
sennilega ekki keppa til verðlauna.
Orri frá Þúfu og Kveikur frá Mið-
sitju eru taldir sigurstranglegir í
fiokki fjögurra vetra stóðhesta.
Hervar frá Sauðárkróki stendur
efstur fyrir afkvæmi í flokki heiðurs-
verðlaunastóðhesta en Þokki frá
Garði stendur efstur stóðhesta með
afkvæmi. Þokki kemur mikið á óvart
því hann náði einungis 2. verðlaun-
um sem einstaklingur en gefur
þrumugóð afkvæmi. Jón Karlsson í
Hala í Djúpárhreppi í Rangárvaha-
sýslu getur verið ánægður með rækt-
un sína í Hala. Nokkrir stóðhestanna
hafa valdið vonbrigðum en hryss-
urnar eru hver annarri betri.
í dag halda sýningar áfram og fást
úrsht smám saman. Á morgun lýkur
mótinu síðdegis með úrslitum tíu
efstu hestanna í A- og B-flokki gæð-
inga. -EJ
„Ástandið í hvalveiðiráðinu hefur
vakið upp spumingu um hvort ekki
sé rétt aö flnna annan vettvang fyrir
þessi viðkvæmu mál,“ sagði fulltrúi
Norðmanna á fundi Alþjóðahval-
veiðiráðsins í Hollandi í gær.
Ágreiningur mihi friöunarsinna
annars vegar og veiðilanda eins og
íslands, Noregs, Japans og Sovétríkj-
anna varð enn djúpstæðari eftir
fundi hvalveiðiráðsins í gær en þar
náði tillaga íslendinga um veiðikvóta
upp á 200 hrefnur ekki að vera tekin
til afgreiðslu. Raddir um upplausn
hvalveiðiráðsins hafa heyrst æ meir
á fundinum og samkvæmt frétta-
skeytum óttast ófáir fundarmenn að
ráöið klofni endanlega á fundinum í
Reykjavík að ári.
„Ég er afar vonsvikin með þennan
fund. Friðunarlöndin hafa greiniiega
ákveðið fyrir fundinn að hvalveiði-
banninu yrði ekki aflétt. Ef bannið
heldur endalust áfram verða dagar
þessa ráðs brátt taldir,“ sagöi Mis-
aki, fuhtrúi Japana.
-hlh
Rannsóknar-
skipin farin
Ránnsóknarskipin Dröfn og Bjami
Sæmundsson em farin í rannsóknar-
leiðangra þá sem frestað var á þriðju-
dag og miðvikudag vegna aðgerða
BHMR. Dröfn fer í þorskrannsóknir
en Bjarni í rækjurannsóknir. -pj
m §
stærrí
°S
kraftmeirí
Daihatsu Charade Sedan er rúmgóður 5 manna fjölskyIdubílI með sérstaklega
stóra farangursReymslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er
að hlaða. Hann er búinn nýrri kraftmikilli 4ra
strokka, 16 ventla 1.3 lítra, 90 hestafla vél með
beinni innspýtingu. bessi vél gerir bílinn bæði
auðveldan og skemmtilegan í akstri hvort sem
hann er með beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Sparneytni og haekvæmni í
rekstri undirstrika svo kosti Charade Sedan sem hins fullkomna fjölskyldubíls.
Ótrúlega hagstætt verð
Daihatsu Charade Sedan SG
5 gíra kr.777.OOO stgr. á götuna.
Sjálfskiptur kr.839.000 stgr. á götuna.
Kassagerðin:
Festi handlegg
í prentvél
Rúmlega tvítugur maður slasaðist
hla á hægri handlegg þegar hann
festist í prentvél í Kassagerð Reykja-
víkur. Það tók um hálfa klukkustund
að losa handlegginn úr vélinni.
Maðurinn er mikið slasaður og
gekkstundirmiklaaðgerð. -sme
Komið og reynsluakið kraftmiklum Charade Sedan
Brimborg hf.
Faxafeni 8 • Sími 685870
Kolfinnur frá Kjarnholtum