Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Side 5
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990.
5
Fréttir
Málarekstur í Hafskipsmálinu kostar 1 heild á annað hundrað miiljónir:
Tugmilljóna kostnaður
lendir á ríkissjóði
Eftir niöurstööu Sakadóms Reykja-
víkur viröist hafa komið í ljós að lít-
ill sem enginn fótur var fyrir refsi-
þætti Hafskipsmálsins. Rannsókn á
refsiverðum gjörðum eða aðgerða-
leysi Hafskips- og Útvegsbanka-
manna reyndist ónýt. Nær ógjöm-
ingur er að meta hvað þetta mál hef-
ur kostað ríkissjóð. Að því unnu fjöl-
margir rannsóknarlögreglumenn,
starfsmenn ríkissaksóknara, dómar-
ar, sérstakur ríkissaksóknari og að-
stoðarmenn hans auk hinna ákærðu
og verjenda þeirra.
Það gefur vissa hugmynd um
kostnaðinn að verjendunum voru
ákveðin 17,6 milljóna króna máls-
varnarlaun í sakadómi. Af þeirri
fjárhæð þarf ríkissjóður að borga 17
milljónir og 355 þúsund krónur.
Um síðustu áramót var kostnaður
við skrifstofu sérstaks saksóknara,
Jónatans Þórmundssonar, orðinn
rétt rúmlega 9 milljónir króna. Ætla
má að um 3 milljónir hafi bæst við
þá upphæð síðan. Ríkið situr uppi
með megnið af þessum 12 milljónum
en þeir sem voru sekir fundnir í
sakadómi greiða 300 þúsund krónur
upp í þennan kostnað.
Til viðbótar þessu voru þrír dómar-
ar sakadóms og ritari þeirra í fullu
starfi viö málið í hálft ár, fjölmargir
rannsóknarlögreglumenn unnu að
rannsókn málsins, embætti ríkissak-
sóknara hafði málið til meðferðar,
leitað var til sérfræðinga í endur-
skoðun, Hæstiréttur tók það nokkr-
um sinnum til umijöllunar og ýmis
kostnaður annar hlóðst upp.
Það er því ljóst að kostnaður ríkis-
sjóðs vegna refsiþáttar Hafskips-
málsins hleypur á tugum milljóna.
Kostnaður hinna ákærðu, sem
sumir gerðu ekkert annað í langan
tíma en vera sakborningar í málinu,
er og umtalsverður en það er jafn-
erfitt að áætla hann og kostnað ríkis-
sjóðs.
Hinn angi málsins, gjaldþrotamál-
ið, kostaði líka sitt. Kostnaður við
skipti búsins, sem féll á kröfuhafa,
reyndist vera um 50 milljónir á nú-
virði. Auk þess var stofnað til margra
dómsmála í tengslum við skiptin til
að útkljá deilumál. Málarekstur
gjaldþrotamálsins hefur því kostað
hátt í 100 milljónir.
Heildarkostnaður af HafSkipsmál-
inu, refsiþættinum og gjaldþrota-
skiptunum, verður því varla áætlað-
ur minni en á annað hundrað millj-
ónir. . -gse
Vió bjóðum þér að kynnast ferðabíl fjölskyldunnar í ár - FAVORIT
Nú getur þú ferðast um landið okkar eða önnur lönd á þægilegan máta
með nóg rými fyrir alla.
Þú þarft ekki einu sinni að tjalda, þar sem auðveldlega má sofa í bílnum, en
viljir þú það er dráttarkúlan upplögð fyrir tjaldvagninn.
Fallegur, framhjóladrifinn, fjölskyldubíll, með frábæra aksturseiginleika.
Sparneytinn og á einstöku verði.
Já, og þegar þú kaupir FAVORIT verða fjármálin smámál, þar sem
FAVORIT kostar aðeins frá kr. 469.000.
NM í bridge: J
íslensku konurn- |
ar efstar á ný
ísak Öm Sgurðsscm, DV, Færeyjum;
íslenska kvennasveitin náði aftur
forustu á Norðurlandamótinu í
bridge í gærdag þegar sveitin vann
stórsigur á Finnum, 24-6, í 8. um-
ferðinni. Á sama tíma vann danska
sveitin þá norsku sem var í efsta
sæti fyrir umferðina, 19-11, en mest
kom á óvart að Færeyingar unnu
sinn fyrsta sigur í kvennaflokki á
NM frá upphafi - færeysku konurnar
unnu þær sænsku, 16-14.
Staðan eftir 8 umferðir í kvenna-
flokknum var þannig. ísland 150,
Noregur 148, Danmörk 147, Svíþjóð
121, Finnland 90 og Færeyjar 45. í
gærkvöldi spilaði Island við Dan-
mörku en úrslit voru ekki kunn þeg-
ar DV fór í prentun. í lokaumferð-
inni í dag spilar ísland við Færeyjar.
í 8. umferð í gær vann ísland einn-
ig stórsigur á Finnlandi í opna
flokknum, 25-2, og hefur möguleika
á að ná öðru sæti. íslendingar spil-
uðu við Dani í gærkvöldi og spila við
Færeyinga í dag. Staðan í opna
flokknum. Svíþjóð 164 stig, Danmörk
137, Noregur 132, ísland 125, Finn-
land 95 og Færeyjar 50. í umferðinni
unnu Svíar Færeyinga, 25-2, og Dan-
ir Norðmenn, 19-11.
-hsím
Tjaldvagninn er frá TÍTAN
Auðveldlega má sofa í bílnum FAVORIT með dráttarkúlu
Vél: 1289 cc 63 din hö
5 manna
5 gíra
5 dyra
Vél og Ijöúrun hönnuó í
, samvinnu vió Porsche.
ítalskt útlit.
Til 17. júlí bjóðum við viðurkennd dráttarbeisli
frá Víkurvögnum hf. með öllum FAVORIT bílum
fyrir aðeins kr. 7.500.
Þú nýtur ferðarinnar á FAVORIT og ferð áhyggjulaus í fríið.
JÖFUR
Nýbýlavegi 2, sími 42600
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL