Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Qupperneq 7
7
LAUGARDAGUR 7. JÚLl 1990.
dv Fréttir
Ásmundur Stefánsson um húsnæðislánakerfið:
Skilið eftir
fjárvana
- betri aðstaða fyrir lágtekjufólk í almenná kerfinu
„Með þessu er þetta nefndarálit
að færa til bókar það sem þegar er
búið að gera,“ sagði Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, um tillögu
nefndar um að fella niður almenna
húsnæðislánakerfiö og vextir á
veittum lánum verði hækkaðir úr
3,5% í 5%.
„Ríkið hefur fellt niður fjárveit-
ingar til kerfisins. Áður en samið
var um almenna kerfið 1986 var
veitt verulegt fé úr ríkissjóði til
húsnæöiskerfisins. Sérfræðingar
komust aö því að kerfið þyrfti einn
milljarð á ári til þess að það gengi
upp sem þó var minna en það sem
ríkissjóður hafði varið til þessa
málaflokks árin á undan.
Ríkið hefur í skjóli skuldabréfa-
kaupa lífeyrissjóðanna fellt ríkis-
framlagið niður. Menn vissu allan
tímann að húsnæðiskerfið mundi
kosta minnst einn milljarð á ári svo
að aileiðingarnar voru fyrirsjáan-
legar. Þá hefur fé verið ílutt úr al-
menna kerfinu til húsbréfakerfis-
ins og þannig hefur almenna kerfið
verið skilið eftir fjárvana.
Ég hef verulegar áhyggjur af
Vaxtahækkunum sem gert er ráð
fyrir í tillögunum. Það munu marg-
ir finna fyrir þeim hækkunum.
Allra mestar áhyggjur hef ég þó
af félagslega kerfinu. Það er mun
betri aðstaða fyrir lágtekjufólk í
almenna kerfmu en húsbréfakerf-
inu. Verði almenna kerfið fellt nið-
ur fjölgar þeim sem ekki geta leyst
sín mál annars staðar en í félags-
lega kerfmu. Því vex þörfin fyrir
félagslegar íbúðir.
Þá bætist við aö félagslega kerf-
inu er ætlað að sækja fé á almenn-
an lánamarkað á þeim kjörum sem
þar bjóðast. Ég óttast því hvort
tveggja, að félagslega kerfið fái ekki
að afla þess fjár, sem það þarf, og
jafnframt að það verði spenna og
vaxtahækkun."
-pj
Þessir hressu strákar lögðu í gær af stað í hjólreiðaferð yfir hálendið.
Þeir ætla að fara norður fyrir Skjaldbreið og til Kerlingarfjalla. Þaðan halda
þeir áfram yfir Kjöl upp í Skagafjörð. Þeir reikna með að koma aftur á
miðvikudag. Strákarnir eru 15 ára og heita Hlynur Atlason og Karl Eiriks-
son. Við óskum þeim góðrar ferðar. DV-mynd JAK
Þórarinn V. Þórarinsson:
Ekki hægt
að halda
uppi þessum
vaxtamun
„Þessi niðurstaða kemur hvorki
mér né öðrum á óvart,“ sagði Þórar-
inn V. Þórarinson um tillögu nefndar
að leggja niður almenna húsnæðis-
lánakerfið frá 1986 og vextir á veitt-
um lánum verði hækkaðir úr 3,5 pró-
sentum í 5 prósent til aö koma í veg
fyrir 7 milljarða framlag frá ríkis-
sjóöi.
„Gamla kerfið var í vanda því það
er ekki hægt að halda uppi þeim
vaxtamun sem í því fólst. Það að
ætla sér að brúa þennan mun með
framlögum úr ríkissjóði er náttúru-
lega ekki hægt. Þessi ríkisstjórn og
fyrri ríkisstjórnir hafa ekki haft
kjark til þess að leiðrétta þennan
mun.
Ég er sammála þeirri meginniður-
stöðu nefndarinnar að það sé ekki
hægt að halda þessum vaxtamun
svona lengi uppi. En þegar það hefur
verið gert nógu lengi er náttúrulega
hægt að standa upp á stól og segja
að þetta kerfi sé gjaldþrota eins og
nú er gert.“
-PÍ
Myndavélum
stoliðá
Seltjarnarnesi
Brotist var inn í bíl, sem stóð við
golfvöllinn á Seltjarnamesi, og stohð
úr honum myndavélatösku af gerð-
inni Temba. í töskunni var Canon
EF myndavél og Canon linsur, 400,
200, 85, 35 og 15 millímetra.
Þeir sem geta gefið upplýsingar láti
rannsóknarlögregluna vita í síma
44000. -Sme
r
L
t ••
í ferðalagið
TJALDASÝNING UM HELGINA
Júlítilboð
4 manna tjald með fleygahimni (bómull)
kr. 14.060,- stgr.
4 manna bómullartjald með nælonhimni
kr.-12.345,- stgr.
Tjald-, felli- og tjaldvagnasýning um helgina.
Allt í ferðalagið, m.a. tjöld, dýn-
ur, skór, regnföt o.fl. o.fl. Vorum
að fá ódýr sóltjöld.
Opið allar helgar í sumar
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7, SÍMI 621780
■ i i. ■ i ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ 1 ■ ■ i li I I II ■ ■ M I ■ ■ IT'l' M*T7
Þú færð myndirnar á 60 mínútum.
Opnum
k kl. 8.30
■ ■ ■ ■ ■ rn i i t
inimnimnmmmiini
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
Laugavegi 178 - Simi 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið)
iimmmniiMinnmmn