Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990. 15 Fréttir í leikslok Þá er heimsmeistarakeppninni í knattspymu aö ljúka. Lokaörrust- an ein er eftir, stóri slagurinn um sjálfan meistaratitilinn. Argen- tínskur blóðhitinn gegn þýska ag- anum, skæmliðarnir gegn skriö- drekunum, Maradona gegn Matt- háus. Sömu andstæðingar og fyrir íjórum árum þegar sömu þjóðir mættust í sama úrslitaleik. Sagan endurtekur sig. Þetta er búin að vera skemmtileg keppni. Heimsmeistarakeppni í knattspymu hefur ávallt verið magnþrungin í spenningi, drama- tík og óvæntum úrslitum. En núna, í fyrsta skipti, höfum við íslending- ar getað fylgst með keppninni frá byrjun til loka í beinni útsendingu, flestöllum leikjum, marki frá marki, stig af stigi, og fyrir vikið hefur rafmagnað andrúmsloftið komist inn í hvers manns stofu í fjarlægum löndum. Það er af sem áður var. Ég minn- ist þess að þegar úrslitakeppnin var háð í Chile árið 1962 gátu íslenskir knattspymuáhugamenn fengið að sjá helstu atriði nokkurra leikja í Tjamarbíói sex mánuðum eftir að keppninni lauk! Nú rekur hver leikurinn annan í beinni útsend- ingu, enda era íþróttakappleikir eitt allra besta sjónvarpsefnið fyrir þá sök að spenna augnabliksins kemst til skila. Allar sjónvarps- stöðvar úti í hinum stóra heimi hafa uppgötvað þennan eiginleika og eru ósparar á útsendingar frá hvers kyns íþróttum af þeim aug- ljósu ástæðum að áhorfendur sækj- ast eftir spennunni, eftirvænting- unni og þeirri stemningu sem fylg- ir allri keppni. íslenska ríkissjónvarpið hefur einkarétt á efni frá heimsmeistara- keppninni og það hefði verið óðs manns æði ef það tækifæri hefði verið látið ónotað. Það er hins vegar dæmalaust að heyra að það er gert með hálfgerðum afsökunartón. Aft- ur og aftur er það endurtekið aö fréttiun seinki og áhorfendur beðnir velvirðingar á töfinni. Og svo er ekki fyrr búið að flauta leikina af en skipt er yfir á fréttastofuna þar sem þreytulegir fréttamennimir sitja með sömu þreyttu fréttimar. Engar umsagnir, engar útskýringar á mikilvægum atvikum kappleikj- anna, allt klippt og skorið í þágu frétta og veðurlýsinga! Meira en leikur Hvað í ósköpunum liggur á? Get- ur þjóðin alls ekki beðið með að heyra hvort Gorbatsjov hafi flutt ræðu á þingi sovéska kommúnista- flokksins eða er það upp á líf og dauða og mínútu að íslendingar fái fréttir af sameiginlegu myntkerfi Þjóðverja? Liggur lífið við að sjón- varpsáhorfendur viti að Natóleið- togar sitji á fundi? Hverjum er verið að þjóna með þessari þrálátu iðrun og syndafyr- irgefningu? Knattspyrna er auðvit- að ekki allra, en knattspyrnan er leikur og athöfn og augu alheims- ins beinast að þessari heimsmeist- arakeppni, hvort sem antisportist- um líkar betur eða verr. A öllum stærstu sjónvarpsstöðvunum er dagskráin flutt til svo þjóna megi þeim áhuga sem keppnin vekur. Lífið og umheimurinn er ekki ein- asta fréttafrásagnir af gjaldþrotum, hvalveiðiráðstefnum eða flokks- samkomum. Þaö er fleira fréttir en efnahagur. Og hver sá sem lifir líf- inu lifandi hlýtur að hrífast með íþróttaviðburðum og smitast af þeirri stemningu sem ríkt hefur á Italíu. Að minnsta kosti hefði hver og einn gott af því, tilfinningalega og andlega, því vel leikin íþrótt er hst og athöfn, samspil hugar og atgervis, útrás fyrir orku þeirra sem keppa og orku þeirra sem fylgjast með. Knattspyma er leikur, segja menn. Heimurinn ferst ekki við ósigur. Víst er það rétt, en í augum fjöldans er verið að gera meira á völlunum á Ítalíu en sparka bolta. Þaö er tekist á um stolt hverrar þjóðar, heiður og metnað. Það brestur á sigurhátíð í gervallri Arg- entínu þegar lið þeirra sigrar, það kemur til algerrar vinnustöðvimar á írlandi þegar írarnir keppa, það kveður byltingaröflin í kútinn þeg- ar Rúmenía tapar. Á Ítalíu ríkir þjóðarsorg eftir ósigurinn í undan- úrslitunum og þýska þjóðin liggur andvaka þessa dagana af eftirvænt- ingu. Ekki vegna sameiningar þýsku ríkjanna heldur velgengni þýska knattspyrnulandsliösins. Englendingar hafa endurheimt stolt sitt sem knattspyrnuþjóð og Afríkuþjóðimar sjá uppreisn svarta kynstofnsins í frammistöðu Kamerún. Maradona er áfram guð í augum almúgans í heimalandi sínu, að minnsta kosti fram til þess að úrslitaleiknum er ólokið. í samræmi yið söguna Viö sjáum líka karakter hverrar þjóðar endurspeglast í leik liðanna á vellinum. Dansandi, lipra Brasil- íumenn, þrautskipulagða en svip- lausa Sovétmennina, ólgandi skap- hitann í Argentínumönnunum, fullkomna mýkt svertingjanna í liði Kamerúnmannanna. Leikur Englendinga og Þjóðverja var speg- ilmynd af þjóðareinkennum þess- ara gömlu stórvelda. Seiglan í þeim ensku, skipulagið hjá þeim þýsku. Það eina sem var frábrugðið átök- unum í heimsstyrjöldinni síðari vora úrshtin. En þá er líka forvitni- legt að hafa í huga að þótt Þjóöverj- ar hafi tapað stríðinu þá unnu þeir eftirleikinn. Að því leyti vora úr- shtin í fótboltanum í samræmi við söguna. Haft er á orði að bestu hðin hafi dottið úr keppni of snemma. Hol- lendingamir áttu stærstu stjöm- umar en komust htið áleiðis. Bras- ihumenn áttu skemmtilegasta hðið Laugardags- pistill Ellert B. Schram en féllu á sjálfs sín bragði. Júgó- slavar, Kamerúnmenn og Belgar vora með framúrskarandi hð. Þá má heldur ekki gleyma þvi aö þjóð- ir eins og Danir, Portúgalar og Frakkar eru með landshð sem hefðu sómt sér vel á þessum leikum og í Afríku má finna þrjú th fjögur önnur lönd með tið sem eru sam- bærheg viö Kamerúnliðið. Það skortir ekki á getuna vítt og breitt um heimskringluna, enda finnst vart sú þjóð sem ekki leggur ofur- kapp á árangur í knattspymu og býr vel að knattspyrnumönnum sínum. Alls staðar, held ég, nema hér á íslandi þar sem ætlast er til að knattspyrnumennirnir séu jafn- fætis öðrum með því að halda áfram að vera áhugamenn og leika við aðstæður sem þóttu þolanlegar fyrir þrjátiu árum. Laugardalsvöh- urinn, þjóðarleikvangur íslend- inga, er eins og niðurnítt eyðibýh og verður brátt ólöglegur th brúks vegna ófuhkominna aðstæðna. Þjóóarmetnaður Nú ætla íslendingar að leggja tíu mihjónir í það að segja Ameríkön- um frá því að Leifur heppni hafi fundið Vínland á undan Kólumb- usi. Það mun gert í þjóðræknis- skyni. Forsætisráðherra er nýlega búinn að skipa nefnd th að kynna ísland erlendis. Það mun gert í landkynningarskyni. Það stendur sem sagt ekki á mihjónunum og nefndunum til að svala þeim þjóð- armetnaði að auglýsa þúsund ára afrek Leifs heppna. Menn halda enn í þá forneskjutrú að frægð ís- lands verði auglýst með nefndar- starfi! Nú hef ég að vísu aldrei skihö það ofurkapp sem menn leggja á það að ísland verði heimsfrægt. Ég get ekki séð að það breyti neinu í lífs- Kjöramnn eða í landinu hvort ein- hveijir útlendingar vita að við sé- um th. Okkur hður nákvæmlega eins hvort heldur er. En ef menn vhja endhega að ís- land komist í umræðuna og verði aðahandið í heiminum, hvað er þá vænlegra en einmitt að komast á blað í íþrótt sem á hug ahrar heims- byggðarinnar? Vita menn að ís- lenska landshðið var aðeins einum leik og tveim stigum frá því að komast th ítahu og taka þátt í veisl- imni þar? Ef þjóðræknismennirnir og landkynningarnefndimar beindu stuðningi sínum að Atia Eðvaldssyni og Arnóri Guðjohnsen í staðinn fyrir Leifi heppna þá kæmist vitneskjan um ísland th fleiri en þeirra sem sitja með á fundunum eða stunda fomleifa- fræði. Knattspyrnuáhuginn er nefnhega þeirrar gerðar að hann er ekki bundinn við stéttir eða menntun, ekki við sérvisku eða stöðu. Fótboltamanían nær th allra stétta, th alls fjöldans, hins óbreytta borgara, sem tekur kapp- leikinn fram yfir fréttatímann. Veislunni lýkur Það er ekkert aö marka þessi úrsht segja æstir áhugamenn fyrir framan sjónvarpskermana þar sem flett er ofan af mistökum dómar- anna í endursýndum hægagangi af umdehdum atvikum. Og víst eru þau mörg, mistökin, og ljóst að dómararnir eru mistækir og skeik- ulir. í framhaldinu er síðan heimt- að að dómurum sé fjölgað, að atvik séu yfirfarin á myndböndum og dómar séu vefengdir og endurskoð- aðir í ljósi sönnunargagna. En þá má ekki gleyma því að hlutverk dómarans er það sama og leik- manna. Hann verður að taka ákvörðun á staðnum og þegar sagt er að knattspyrnan sé óútréiknan- leg og óvissan geri hana svo skemmthega þá er hlutur dómar- ans meðtalinn. Hvernig á fótbolta- leikur að fara fram ef leikmenn eða þjálfarar hða geta heimtað mynd- band á 'skerminn í hvert skipti sem þeim mislíkar við úrskurð dómara? Hver vhdi taka að sér dómgæslu í knattspymuleik þar sem sífellt þarf að taka dóma th endurskoðun- ar og halda jafnvel fundi um það í miðjum leik hvort brot hafi verið framið eða ekki? Ghdi knattspymunnar felst í hinu óvænta, hraðanum, einfald- leikanum. Leikurinn er vinsæh og þjóðarsport víöa um heim, vegna þess að þar ghda einfaldar reglur. Leikmenn kljást og dómari dæmir. Þaö era til góðir og slæmir dómar- ar alveg eins og það eru góðir og slæmir leikmenn. Þeir bestu standa sig, hinir ekki. Já, þeir bestu standa sig. Hvort heldur við höldum með þessum eða hinum og hvað sem líður leikni og mörkum þá komast þeir áfram sem sigra. Þjóðverjar og Argentinu- menn hafa sigrað og komist áfram. Þeir leika til úrslita. Á morgun verða nýir heimsmeistarar krýnd- ir. Og veislunni lýkur. Það er alveg sama hversu frétta- stofan biðst oft afsökunar á breytt- um fréttatímum og það er alveg sama hversu margir skammast yfir fótboltafárinu. Gladíatorar nútím- ans hafa komið, séð og sigrað. Mihj- ónir manna fá útrás fyrir tilfinn- ingar, sigurvímu og ofbeldi. Fót- boltinn er þjóðfélagslegt fyrirbæri, íghdi styijalda, afl þjóðemis og múgsefjunar. Honum fylgja tilfinn- ingar, karlremba, sviti og tár. Jafn- vel blóð. En fótboltinn rúllar hvað sem líður öhum fréttatímum og Velvirðingum og vei þeirri þjóð sem kann ekki gott að meta, sem telur það neðan sinnar virðingar að fylgjast með heimsstyijöldum nú- tímans. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.