Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Side 27
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990.
39
LífsstíU
Hótel í stað fiskeldis
Eva Sigurbjörnsdóttir og Ásbjörn
Þorgilsson komu fyrst til Djúpuvíkur
á Ströndum áriö 1984 til að vinna viö
aö loka gömlu verksmiðjuhúsunum.
Þau dreymdi um að koma upp fisk-
eldi á staðnum. Hugmyndin breyttist
(sem betur fer, segja þau núna) og í
staö fiskeldis settu þau á stofn hótel.
„Hér var töluverður gangur af
ferðafólki en aðstöðuna vantaði al-
veg,“ segir Eva hótelstjóri. Þegar
hugmyndin hafði kviknað var ekki
tvínónað við hlutina og fyrstu helg-
ina í júlí 1985 voru herbergi hótelsins
opnuð fyrir gestum.
Meðan byggðin blómstraði og síld-
in gekk var húsið heimili kátra sölt-
unarstúlkna og hét Kvennabragginn.
Svo fór síldin og stúlkumar tíndust
í burtu, fengu sér aðra vinnu og hús-
ið stóð tómt eftir.
Löngu seinna komu Eva og Ás-
bjöm til sögunnar. Nú hefur húsið
lifnaö við að nýju og er orðið Hótel
Djúpavík
Ein búsett á Djúpuvík
Strandasýslan er fámenn og aðeins
um 18 heimili fyrir norðan Djúpuvík,
það er á Gjögri, í Trékyllisvík og
sveitunum þar um kring.
SOdarverksmiðjan á Djúpuvík
hætti um 1950 þegar síldin hvarf að
fullu. Árið 1983 fluttu svo síðustu
Djúpvíkingamir burtu og var staður-
inn mannlaus í einn vetur áður en
Eva, Ásbjörn og börn þeirra þijú
komu. Núna em þau eina fólkið sem
býr á Djúpuvík allan ársins hring en
á sumrin búa þar hins vegar um 20
manns.
Ekki einmana
Á veturna er oft erfitt um samgöng-
ur. Þau hjónin eiga bát sem er notað-
ur til ferðalaga á vetuma en þá lok-
ast allir vegir. Raunar má segja að á
vetuma fari báturinn í nokkurs kon-
ar áætlunarferðir frá Djúpuvík til
Gjögurs þar sem yngri börnin ganga
í skóla.
En er ekki einmanalegt hjá þeim á
veturna? „Þetta er algengasta spurn-
ingin sem við fáum,“ segir Eva og
hlær við. „Einmanaleiki er bara hug-
arfar. Það er alveg eins hægt að vera
einmana í borgum eins og héma. Við
fáum auðvitað marga gesti hingað
og svo kemur vinafólk í heimsókn.
Þegar við bjuggum í Reykjavík
komu kannski gestir í heimsókn,
sátu í úlpunum, drukku 10 dropa af
kaffi og voru svo farnir. Núna koma
vinimir sjaldnar en stoppa þá líka
lengur," segir Eva Sigurbjörnsdóttir.
Heimilislegt hótel
Hótelhúsið á Djúpuvík er byggt í
kringum 1938 og fékk að halda yfir-
bragði sínu þegar það var endurgert.
Það er gamaldags og einstaklega
heimilislegt.
Átta tveggja manna herbergi em
leigð út. Þau em öll búin vöskum,
Hótel Djúpavík var áður kvennabraggi síldarsöltunarstúlkna.
speglum og skápum. Góð snyrtiað-
staða og sturtur eru frammi á gang-
inum.
Að sögn Evu gengur rekstur hótels-
ins alveg ljómandi vel. í júní var til
dæmis 100% aukning frá fyrra ári.
Megnið af gestunum er íslendingar
en hlutur útlendinga er sífellt að
aukast. Hótehð býður upp á veitingar
allan daginn og hefur léttvínsleyfi
með mat. Eva sér sjálf um elda-
mennskuna en fær hjálp ráðskonu
yfir mesta annatímann.
Seiðandi draugabær
Út frá Djúpuvík er hægt að komast
í ótal stuttar og skemmtilegar ferðir.
Eva og Ásbjörn aðstoða fólk við
skipulagningu skoðunarferða um
nágrennið og annast leiðsögn í styttri
ferðum. Skemmtileg sundlaug er í
Krossnesi, aðeins norðar í hreppn-
um, og einnig er hægt aö komast með
Ásbimi á sjóinn og prófa handfæra-
veiðar.
Dagar á Djúpuvík eru ógleyman-
Auöar augntóftir og hrunin verksmiðjuhús blasa nú við Gömlu húsin og hrundu bryggjurnar eru heillandi á
á Djúpuvik. sinn sérstaka hátt. Andrúmsloftið er dularfullt og seiö-
andi.
legir. Allir sem þangað koma verða draugabæ. Það er skrítin tilfinning leggja hlustir við hljóðskrafi gamalla
fyriráhrifumafhinudularfullaand- að skoða hinar hálfhmndu. og tíma.
rúmslofti sem ríkir í þessum seiðandi drungalegu verksmiðjubyggingar og -BÓl
Hótel Djúpavík:
Vin í vestri
Hvemig iitist þér á að fara í helg-
arferö tii Lundúna eða dveija á
Edduhóteli að eigin vafi? Ef þú átt
góða mynd af einhverju viðfangs-
efiú, sem tengist ferðalögum og úti-
vist, þá er þetta ekki óraunhæfur
möguleiki.
ogutivist
Árið 1990 er ferðaraálaár Evrópu.
Þau lönd, sem em aðUar að EB og
EFTA, vinna í sameiningu að ýms-
um verkefnum i tilefni ársins.
Meðai annars hefur verið ákveðiö
að að halda ijósmyndasamkeppni í
öhum aöiidariöndunum og láta svo
sigurmyndir hvers lands keppa
innbyrðis um bestu myndina sem
tengist ferðalögum og útivist.
DV mun í samvinnu viö feröa-
málaár Evrópu 1990 standa að ljós-
myndasamkeppninni hérna helma.
Þátttakendur geta sent inn rayndir
í öllum stærðum ogjaíht Jitskyggn-
ur sem pappírsmyndir, svart-hvít-
ar eða í tit. Eina skilyrðið er að
rayndefnið tengist á einhvern hátt
ferðalögum og útivist.
Glæsilegir vinningar
Senda skal myndimar til DV fyr-
ir 1. september og merkja þær:
Ljósmyndasamkeppni, DV, Þver-
holti 11,105 Reykjavík. Meðmynd-
unum skal fyigja lokað umslag með
nafni, heimilisfangi og símanúmeri
þátttakanda.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir
10 bestu myndirnar.
1. LundúnaferðfyrirtvomeðFiug-
leiöum. Innifalin er hótelgisting
með morgunverði í þijár nætur.
2. Farseðlar að eigin vaii fyrir tvo
til áætlunarstaöa Flugieiða innan-
iands.
3. Dvöl á Edduhóteii Ferðaskrif-
stofu íslands að elgin vali fyrlr tvo.
Gisting og morgunmatur í fimm
nætur.
4. Hringmiði fyrir tvo kringum
landið með sérleyfisbíium BSÍ.
5. Helgarferð fyrir tvo í Þórsmörk
raeð Ferðaskrifstofu BSÍ og Aust-
urleiö.
6. -10. Bókaverðlaun.
Þá er bara að dusta rykið af
gömlu myndavélinni, vera dugieg-
ur viö að smella af í sumarfriinu
og vera meö.