Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Síða 38
50
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990.
Afmæli
Amfríður ísaksdóttir
Arnfríður ísaksdóttir hárgreiðslu-
meistari, Bakkavör 32, Seltjarnar-
nesi, verður sextug á morgun. Arn-
fríður er fædd á Bjargi á Seltjamar-
nesi og ólst þar upp. Hún lauk námi
í hárgreiðslu 1948 og var formaður
Hárgreiðslunemafélagsins 1946-
1948. Arnfríður var formaður Hár-
greiðslusveinafélagsins 1948-1949 og
vann í Kaupmannahöfn 1949-1950.
Hún fékk meistarabréf í hárgreiðslu
1956 og var í stjórn Hárgreiðslu-
meistarafélags íslands, fyrst 1956,
þar af formaður í 12 ár. Arnfríður
var formaður Sambands hár-
greiðslu- og hárskerameistara um
árabil og hefur verið í fram-
kvæmdastjóm Landssambands iðn-
aðarmanna. Hún var í prófnefnd í
hárgreiðslu, þar af formaður í 15 ár
og fékk alþjóðleg dómararéttindi
1976. Arnfríður stofnaði Hár-
greiðslustofuna 7ermu, Garösenda
21,1961.14 árum síðar Permu í Iðn-
aðarmannahúsinu og er sú stofa
rekin í samvinnu við Láru, dóttur
hennar. Lára stofnaði ásamt Björgu,
dóttur sinni, Permu viö Eiðistog
1985. Hún hefur útskrifað hátt á
fjórða tug hárgreiðslusveina, meöal
þeirra em margir úr fjölskyldunni:
Helga Vala, systir hennar, dætur
sínar, Björgu og Láru, og systkina-
börn hennar, Helgu og Guðfmnu
Jóhannsdætur, Helgu Ólafsdóttur
og Sigurveigu Runólfsdóttur. Arn-
fríður giftist 17. nóvember 1951
Óskari Ólasyni, f. 13. apríl 1923,
málarameistara: Foreldrar Óskars
vora: Óli Þorleifsson, formaður á
Eyri við Reyðarfjörð, og kona hans,
Jóhanna Lára Guðjónsdóttir. Börn
Amfríður og Óskars eru: Óli Þor-
leifur, f. 28. mars 1952, bygginga-
meistari, rekur nú Graskögglaverk-
smiðju á Flatey á Mýrum í A-Skafta-
fellssýslu, kvæntur Jónínu Sigur-
jónsdóttur hárskerameistara, börn
þeirra eru: Sigrún Ósk og Óskar
Óm; Björg, f. 13. janúar 1956, hár-
greiðslumeistari, gift Sigurði Rúna-
ri Jakobssyni, upptökustjóra á Stöð
2, börn þeirra eru: Jakob Jóhannes
og Óskar; Lára, f. 19. október 1960,
hárgreiðslumeistari, gift Gísla Birg-
issyni rafvirkja, böm þeirra era:
Erla og Arnór, og Helgi Rúnar, f. 31.
júlí 1967, nemi í markaðsfræði í
Bandaríkjunum, kvæntur Ásdísi
Ósk Erlingsdóttur, dóttir þeirra er:
Eva Sif. Systkini Arnfríðar eru:
Björg, f. 31.piaí 1928, myndlistamað-
ur, var gift Jóhanni Einarssyni
blikksmíðameistara og eiga þau 5
börn; Sigrún, f. 31.maí 1932, d. 31.
október 1978, gift Ólafl Ólafssyni
lækni, þau eru bæöi látin, þau áttu
6 börn; Helga Valgerður, f. 13. ágúst
1934, bókavörður, lauk námi í hár-
greiöslu, gift Pétri Árnasyni raf-
irkjameistara og eiga þau 4 börn og
Runólfur Helgi, f. 18. janúar 1937
rafvirki, kvæntur Valgerði þórðar-
dóttur og eiga þau 4 börn.
Foreldrar Arnfríðar voru: ísak
Kjartan Vilhjálmsson, f. 14. október
1894, d. 26. október 1954, b. á Bjargi
á Seltjaranarnesi og kona hans
Helga Sigríður Runólfsdóttir, f. 13.
ágúst 1904, d. 29. júlí 1938, hún var
ein af stofnendum Kvenskátafélags
Reykjavíkur. ísak giftist aftur 1. júní
1940 Jóhönnu Björnsdóttur, f. 28.
nóvember 1906, d. 7. ágúst 1981, og
gekk Jóhanna börnum ísaks frá
fyrra hjónabandi í móðurstað. ísak
var sonur Vilhjálms, b. á Knopsborg
á Seltjarnarnesi, Guðmundssonar,
bróður Guðmundar í Skáholti, fóöur
Vilhjálms skálds frá Skáholti. Móðir
ísaks var Björg ísaksdóttir, Suður-
landspósts á Kálfhaga í Kaldaðar-
neshverfi, Ingimundarsonar, og
konu hans, Margrétar Þorvarðar-
dóttur, prests á Prestbakka á Síðu,
Jónssonar, prests á Breiðabólstað, í
Vesturhópi, Þorvarðarsonar.
Helga Sigríður var dóttir Runólfs,
lögregluþjóns í Rvík, Péturssonar
og konu hans, Arnfríðar Finnboga-
dóttur, b. á Suður-Reykjum, Árna-
sonar, b. á Galtalæk, Finnbogason-
ar, b. á Galtalæk, Þorgilssonar.
Móðir Finnboga var Margrét Jóns-
dóttir, smiðs í Háagarði í Vest-
mannaeyjum, Jónssonar, b. á Ægis-
síðu, Þorsteinssonar.. Móðir Jóns í
Háagarði var Guðrún Brandsdóttir,
Arnfríður ísaksdóttir.
b. á Felli í Mýrdal, Bjarnasonar, b.
og hreppstjóra á Víkingslæk, Hall-
dórssonar, ættfóður Víkingslækjar-
ættarinnar. Móðir Arnfríöar var
Helga Jónsdóttir, b. á Svínhaga,
Þórðarsonar, b. í Svínhaga, Nikulás-
sonar, b. á Ruðnefsstöðum, Eyvind-
sonar klausturhaldra Jónssonar
„Duggu-Eyvindar“. Móðir Jóns var
Rannveig Þorláksdóttir, systir Jóns,
prests og skálds á Bægisá. Móðir
Helgu var Valgerður Brynjólfsdótt-
ir, b. í Vestra-Kirkjubæ, Stefánsson-
ar, b. og hreppstjóra í Árbæ, Bjarna-
sonar, bróður Brands á Felli.
Til hamingju með afmælið 7. júlí
90 ára
Magnús Rtmólfsson,
Haukadal, RangárvaÚahreppi.
75 ára
Ingibjörg Þórðardóttir,
Byggðavegi 103, Akureyri.
70 ára
Siggeir Guðmundsson,
Sólheimum23, Reykjavlk.
Jón Ingimundarson,
Haukagili, Hvítársíðuhreppi.
60 ára
Sigurður Jóelsson,
Fögrubrekku 38, Kópavogi.
Áslaug Hulda Ólafsdóttir,
Hrauntúni 14, Keflavik.
Finnbogi Gunnar Jónsson,
Drápuhlíð 33, Reykjavík.
Jón Guðlaugur Antoníusson,
Barðavogi 5, Reykjavik.
Bergþóra Sigurjónsdóttir,
Túngötu 13, Sandgerði.
Ágúst Þorleifsson,
Suðurbyggð 19, Akureyri.
50ára
Magnús Þórðarson,
Langagerði 52, Reykjavik.
Einar O. Pétursson,
Bárugötu22, Reykjavík.
Ólafur Steindórsson,
Hjarðardai, Mýrahreppi.
Liy a Þorsteinsdóttir,
Illugagötu 13A, Vestmannaeyjum.
Valgarður Sveinn Hafdai,
Kambaseli 15, Reykjavík.
Einar Kristberg Einarsson,
Hlégarði, Hjaltastaðahreppi.
Byggðastofnun
tekur i notkun nýtt
símakerf i og ný símanúmerS
\ \
Jafnframt breytist símanúmer hjá
eftirtöldum sjóðum:
• Lánasjóði Vestur-Norðurlanda
• Hlutafjársjóði Byggðastofnunar
• Atvinnutryggingarsjóði
útflutningsgreina
Frá og með mánudeginum 9. júlí verða
símar Byggðastofnunar sem hér segir:
• 91-605400 : Aðalnúmer
• 99-6600 : Grænt númer
• 91-605499 : Myndsendir
• Akureyri : 96-21210
• ísafjörður: 94-4366
Byggðastofnun
RAUÐARÁRSTlG 25 PÓSTHÓLF 54)0 125 REYKJAVÍK
Sigurión Guðjónsson
Sigurjón Guðjónsson vélfræðingur,
Hraunbæ 84, Reykjavík, varð sex-
tugurígær.
Sigurjón fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp til sjö ára aldurs. Hann
fór þá í sveit að Ásgarði í Grímsnesi
til Guðmundar Ólafssonar, bónda
og símstöðvarstjóra þar, og Guðrún-
ar Gísladóttur húsfreyju. Siguijón
ílengdist þar og ólst upp í Ásgarði
til átján ára aldurs en flutti þá aftur
til foreldra sinna í Reykjavík og hóf
þarnám.
Siguijón stundaði nám við
íþróttaskólann í Haukadal veturinn
1946-47. Hann stundaði vélvirkja-
nám í Vélsmiðjunni Héðni 1950-54,
lauk iðnskólaprófi 1952 og útskrifað-
ist frá Vélskóla íslands 1956.
Siguijón var vélstjóri á strand-
ferðaskipum Skipaútgerðar ríkisins
árin 1956-62 en flutti að írafossi í
Grímsnesi veturinn 1962 og starfaði
við rafstöðvarnar við Sog til ársins
1980. Þá flutti hann til Reykjavíkur
þar sem hann starfaði við fjarstýr-
ingar á kerfisráð Landsvirkjunar að
Geithálsi. Siguijón starfar nú við
stjómstöð Landsvirkjunar við Bú-
staðaveg í Reykjavík.
Sigurjón kvæntist 31.12.1956
Magneu Helgadóttur, f. 29.5.1933,
húsmóöur. Foreldrar Magneu: Helgi
Jón Magnússon, f. að Hofi í Dýra-
firði 17.9.1904, d. 8.7.1982, smiður,
og Guðlaug Jóhannesdóttir, f. aö
Múlakoti í Lundarreykjadal 4.5.
1902, húsmóðir og saumakona, en
þau bjuggu í Reykjavík.
Siguijón og Magnea eiga þrjú
böm. Þau eru Ragna Jóna, f. 22.4.
1955, bankastarfsmaður, búsett í
Reykjavík, gift Magnúsi Matthías-
syni, f. 19.12.1954, rafmagnstækni-
fræöingi, og eiga þau þrjú börn, Sig-
urjón, f. 15.8.1975, Telmu, f. 13.7.
1979 og Rakel, f. 24.11.1983; Helgi,
f. 16.12.1957, rafmagnstæknifræð-
ingur, búsettur í Reykjavík, kvænt-
ur Freydísi Ármannsdóttur, f. 7.8.
1960, húsmóöur, og eiga þau tvö
börn, Magneu, f. 1.5.1981, og Guö-
björgu, f. 5.6.1985; Ingibjörg, f. 23.10..
1960, húsmóöir í Reykjavík, gift
Grími Þór Grétarssyni, f. 30.7.1959,
verktaka, og eiga þau þijú börn,
Grétar Má, f. 9.6.1982, Söndra Ósk,
f. 31.7.1986, og Sævar Örn, f. 12.7.
1989.
Systkini Siguijóns: Jón Vilberg, f.
15.11.1922, búsettur á Seltjarnar-
nesi; Ólafur, f. 8.10.1932, búsettur í
Sigurjón Guðjónsson.
Kópavogi; Brynhildur, f. 18.10.1934,
búsett í Reykjavík; Gyða, f. 27.3.
1937, búsett í Reykjavík; Vilborg, f.
27.3.1937, búsett í Reykjavík; Guð-
rún, f. 30.11.1938, búsett í Bandaríkj-
unum, og Sverrir, f. 6.1.1942, búsett-
ur í Bandaríkjunum.
Foreldrar Sigurjóns voru Guðjón
Jónsson, f. að Stærri-Bæ í Gríms-
nesi 30.11.1894, d. 29.2.1952, húsa-
smiöur í Reykjavík, og Jónína Vil-
borg Ólcifsdóttir, f. 7.6.1903, d. 8.3.
1970, húsmóðir.
Sigurjón er að heiman.
Þórdís Jónsdóttir
Þórdís Jónsdótir, fyrrv. húsfreyja,
Höfn í Borgarfiröi eystra, er níræð
í dag. Þórdís er fædd á Hreðavatni
og ólst upp í Norðurárdal í Nýra-
sýslu. Hún naut barnafræðslu að
þeirra tíma hætti og var síðan á
kvöldnámskeiði. Þórdís kenndi
sauma á námskeiöum í Borgarnesi
og nærsveitum um tíma. Hún átti
steinasafn aö Höfn sem nú er vistað
í Safnahúsinu í Borgarnesi. Þórdís
hefur búið í Borgarnesi, Reykjavík,
Eskifirði og í Viðey. Hún var hús-
freyja á Höfn í Borgarfirði eystra í
fimmtíu ár og nú að mestu í Dvalar-
heimili aldraðra á Egilsstöðum. Þór-
dís giftist 17. júlí 1935 Þorsteini
Magnússyni, f. 28. september 1902,
b. á Höfn í Borgarfiröi eystra. For-
eldrar Þorsteins voru: Magnús Þor-
steinsson, b. á Höfn, og kona hans,
Sveinbjörg Jónsdóttir. Sonur Þór-
dísar og Þorsteins er: Magnús, f. 1.
ágúst 1936, b. á Höfn í Borgarfirði
eystra. Kjördóttir Þórdísar og Þor-
steins er: Helga, f. 19. apríl 1943, gift
Walter Kent jr. og búa þau í Penn-
sylvaníu og eiga þau þijú börn. Syst-
ur Þórdísar eru: Ragnhildur, f. 5.
september 1903, d. 1972, gift Sveini
Guðmundssyni, b. á Hóli í Borgar-
firði eystra; Ingibjörg, f. 20. maí 1906,
húsfreyja í Hafnarfirði, gift Jóni
Hirti Jóhannssyni og eiga þau tvö
böm, og Jóhanna, f. 29. júlí 1910,
húsfreyja í Rvík og Kópavogi, gift
Gunnlaugi Hóim og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Þórdísar voru: Jón
Böðvarsson, f. 4. ágúst 1856, d. 17.
ágúst 1934, b. í Heyholti í Borgar-
hreppi, og kona hans, Herdís Kristín
Halldórsdóttir, f. 21. september 1868,
d. 30. apríl 1948. Jón var sonur Böðv-
ars, b. í Örnólfsdal, Jónssonar, b.
og hreppstjóra í Brennu í Lundar-
reykjadal, Sæmundssonar, b. í Graf-
ardal, Gíslasonar. Móðir Jóns var
Ingibjörg Pétursdóttir, b. í Norö-
tungu í Þverárhlíð, Jónssonar og
konu hans, Ingibjargar Einarsdótt-
ur, b. í Kalmannstungu, Þórólfsson-
ar, b. í Síðumúla, Arasonar. Móðir
Ingibjargar var Kristín Jónsdóttir,
b. í Kalmannstungu, Magnússonar
og kona hans, Ingibjörg Bjarnadótt-
ur.
Herdís var dóttir Halldórs, um-
ferðarbóksala í Höfn í Fjótum í
Skagafirði, Árnasonar, b. á Bjarna-
Þórdís Jónsdóttir.
stöðum í Hvítársíðu, Guðmunds-
sonar, b. á Háafelli í Hvítársíðu,
Hjálmarssonar, ættfóður Háafells-
ættarinnar. Móðir Halldórs var
Helga Bjarnadóttir, b. á Haukagili í
Hvítársíðu, Jónssonar, b. á Melum,
Jónssonar. Móöir Helgu var Kristín
Jónsdóttir, móðir Ingibjargar Ein-
ársdóttur. Móöir Herdísar var Ásdís
Pálsdóttir, b. í Saurbæ í Kolbeinsdal
í Skagafirði, Ólafssonar og konu
hans, Guðrúnar Hálfdánardóttur.