Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR’ 14.JÚLÍ 1990. Vísnaþáttur Og ennþá er Batseba elskuð sem fyr „Ástin er eins og kvikasilfur, sem liggur kyrrt í lófanum, nema mað- ur reyni að grípa fast um það, þá smýgur það út á milli fingranna." Þessi er skilgreining bandarísku skáldkonunnar Dorothy Parker á ástinni og þeir sem hafa atvinnu af að skrifa um flest mannleg'fyrir- bæri, og þá ekki síst ástina, ættu að vita þetta öðrum betur. Franska ljóðskáldið Antoine Bret, sem uppi var á 18. öld, taldi fyrsta andvarp ástarinnar vera síðasta andvarp skynseminnar. En hvert var - og er - viðhorf íslendinga til fyrirbær- isins? Björn Friðriksson frá Bergsstöð- um á Vatnsnesi: Ástin herjar huga og mál, hér þótt veijast reyni. Þráin erjar anda og sál, ískrar í hverju beini. Einhveiju sinni varð maður nokkur ástfanginn af stúlku sem Erla hét en gárungarnir sögðu hann skorta hugrekki til að biðja hennar. Þá var ort fyrir hans hönd: Ást mín er eins og perla innan í lokaðri skel. Erla, hjartans Erla, þú athugar málið vel. En viðhorf skáldsins á Hofi á Kjalamesi, Hjálmars Þorsteinsson- ar, er kannski ekki alveg í sam- ræmi viö hið algenga í þessum efn- um. Hann kvað: Sé þér ástin ekki neitt ertu minni en hálfur. Sælla er að unna öðrum heitt en elskaður vera sjálfur. Þó fjarlægðin geri fjöllin blá og ástina að líkindum heitari tekur aðskilnaðurinn á taugarnar. Þór- arinn Bjamason, járnsmiður í Reykjavík, orti: Lífs ágæti er ljúfust mey, lyndis mætin skína. Hjá þér sæti hafa ei heftir kæti mína. Og einhver ónefndur höfundur tekur undir: Harmi lostið hjarta er, héðan spor þín lágu. Stari ég einn á eftir þér yfir fjöllin háu. Og jafnvel sólin sjálf, aflgjafi alls lífs, verður að láta í minni pokann þegar konan er annars vegar. Helgi Sveinsson, prestur í Hveragerði: Skarti búna sól ég sá sindra um tún og voga. Þó er hún sem þoka hjá þínum brúnaloga. Vísnaþáttur Torfi Jónsson Jósep Húnflörð skilgreinir áhrif- in þannig. Mörgu illu orka mót, unaðs fyllir strauma, kvennahylli og kærleikshót, kossar milli drauma. Því hefur verið haldiö fram að konur töluðu stundum meira en góðu hófi gegndi, samanber mann- inn sem sagði konuna sína hafa slæman málgalla, hún þyrfti að þagna öðru hvoru til að draga and- ann. En stundum segja augun allt. Einar Friðgeirsson, prestur á Borg á Mýrum: Þó hún reyni að þegja um allt þá er hún skýr í svörum því augun tala einkum snjallt, er orðin deyja á vörum. Að ósk kvenna orti Jón Þor- steinsson á Amarvatni eftirfarandi vísu sem þeim fannst í fyrstu góð en vafasöm eftir nánari athugun: Til þess sem er minnimáttar mannkærleikans þel ég ber. Það er einkum þegar náttar að þetta vakir fyrir mér. Grímur Ebenezersson frá Hlíð á Vantsnesi lét árið 1912 aðeins tví- tugur að aldri. Þótti hann snjall hagyrðingur. Eitt sinn var hann á ferð í vondu veðri en hafði um svip- að leyti fregnað trúlofun ungrar stúlku sem Lára hét. Þá kvað hann: Þó að Kári klóri mér kunna þau sár að gróa. En ef Lára lofuö er læt ég tárin flóa. Ekki er fráleitt að hugsa sér að svipaðar kenndir hafi bært í brjósti þess sem gerði eftirfarandi stöku: Gekk ég ungur grýttan veg, af glöpum þungum vola. En Önnu í Tungu elska ég eins og lungun þola. En Sigmundi Sigurðssyni, úr- smið á Akureyri, hefur verið ljóst að undirbúningurinn skipti megin- máli í þessum efnum er hann kvað: Út á hvikult ástasvið ekki er gott að senda þann sem engin þekkir mið og þorir ekki að lenda. Einar Árnason, bóndi í Landa- mótsseh í Ljósavatnshreppi, orti til konu sinnar. Ást mín hefur aldrei kunnaö eigra þar og hér. Konu hef ég aldrei unnað annarri en þér. Knútur Þorsteinsson, kennari frá Úlfsstöðum í Loðmundarfiröi, á lokaorðin að þessu sinni: í syndugri veröld er stöðugur . styr um stjórnarfar, auðmagn og lendur. Og ennþá er Batseba elskuð sem fyr og Úría í hættuna sendur. AMSTERDAM HLIÐID AD EVRÓPU Raunar má segjá að hún sé hliðið að allri heimsbyggðinni. Þaðan er greið leið með bílaleigubílum (þeim ódýrustu í Evrópu) og/eða lestum suður um alla álfuna. Þaðan flýgur líka KLM til yfir 130 borga í 80 löndunu A mörgum þessara flugleiða getur Arnarflug boðið sérstaklega hagstæð fargjöld. Hliðið er opið. Gjörið svo vel og gangið inn. Lágmúla 7, síml 91-84477. Flugstöð Lelfs Eirikssonar, sími 92-50300.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.