Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 1990. 5 dv Viötalið Kennsla og búskapur y / Nafa; Kjartan H. Ágústsson Staða; Framhaldsskólakcnnari og bóndi Aldur: S4 ára Fyrir nokkrum dögum tók nýr oddviti, Kjartan H. Ágústsson, formlega við starfi í Skeiðahreppi í Árnessýslu. „Oddviti sér um ákveðna fram- kvæmdahlið í hreppnum. Hann kemur ýmsum málum áfram sem hreppsnefnd hefur samþykkt auk þess að vera gjaldkeri hreppsins. Mér sýnist þetta vera heilmikið starf en er ekki kominn nægilega vei inn i það ennþá,“ sagði Kjart- an. „Starfíö leggst þokkalega í mig. Ég er ekki mikið farinn að hugsa um hvað þarf aö gera og hef lítið verið í hreppsmálmn. Það var í fyrsta skipti i síðustu kosningum sem ég var kosirrn í hreppsnefad.“ Rabarbararækt Kjartan er fæddur í Reykjavik en uppalinn á Löngumýri á Skeiðum. Þar hefur hann búið alla sína tið. Stúdentsprófi lauk hann frá Menntaskólanum á Laugarvatni áriö 1975 og hóf þá nám viö Háskóla íslands. „Ég er með B A próf í islensku og tók líka uppeldis- og kennslufræði. Frá 1981 hef ég kennt íslensku við Fjölbrautaskóla Suöurlands. Þegar á heildina er litið líka mér kennslan vel. Stundum er það erfitt því oft vantar áhuga nemenda. Ég kem til meö að minnka kennsluna eitthvað nú þegar ég tek við oddvitastarfinu þó ég hætti ekki alveg.“ Kjartan er bóndi þó hann vilji ekki gera mikiö úr því. „Ég er með nokkrar kindur og rækta rabarbara.“ Á hverju ári selur hann sjö til átta tonn af rabarbara svo akurinn hlýtur aö vera nokk- uð stór. Búskapurinn sumarfrí „Áhugamál mín tengjast störf- unum. Ég hef engin öimur sér- stök áhugamál.“ Félagsmáhn hafa fengið sinn tíma. „I seinni tíö hef ég gert óþarflega mikið að því að vera 1 félagsmálum. Ég hef starfað með Ungmennafélagi Skeiðamanna en ætla að minnka félagsstörfin nú þegar ég er orð- inn oddviti.'' Kjartan kveðst hafa feröast lítið um landið, aðeins þaö minnsta sem hægt er að komst af meö. Til útlanda hefur hann aldrei farið og segir óvíst hvenær af því verði. „Eg hef eiginlega aldrei tekið sumarfrí og reikna ekki með neinu fríi í sumar. Búskapurinn er alltaf eins konar sumarfrí frá kennsiunni." Til stendur að byggja tvær kaupleiguíbúðir í hreppnum og segir Kjartan það vera næst á dagskránni. „Svo eru skólinn og félagsheimilið í hálfgerðri biö- stöðu en það þarf að endur- bæta,“ sagði hinn nýráðni oddviti að lokum. Kjartan er ókvæntur. -hmó Fréttir Silfurstjaman: Vantar um 30 milljónir til að dæmið ganqi upp Til þess að koma fiskeldisfyrirtæk- inu Silfurstjörnunni á Kópaskeri í fullan rekstur vantar um 30 milljónir á þessu ári. Að sögn Bjöms Bene- diktssonar stjómarformanns hefur verið rætt um að auka hlutafé fyrir- tækisins um 10 til 15 milljónir og treysta síðan á að Byggðastofnun láni það sem á vantar. Silfurstjaman hefur ekki tryggt fiskinn í stöðinni. Hún fær því ekki bankalán. Aö sögn Björns hafa for- svarsmenn Silfurstjömunnar ekki viljað tryggja fiskinn þar sem þeir sjái sér einfaldlega ekki hag í því. Þeir þyrftu að tryggja allan fiskinn en ljóst er að ef hann dræpist allur myndi stöðin aldrei standa undir því þrátt fyrir tryggingarnar. Þeir hafa því vaíið þann kost að hafa tuttugu og tjögurra stunda vakt í stöðinni. Björn sagði að tryggingar í fiskeldi væru fyrst og fremst miðaðar við að verja banka fyrir áfóllum. Ef fiskur- inn dræpist nægði tryggingin til að greiða bankanum rekstrarlán. Fisk- eldistöðin sæti hins vegar uppi með tjón vegna tapaðra tekna. Verðmæti þess fisk sem er í stöð- inni nú er nálægt 60 milljónir króna, að sögn Björns. Heildarverðmæti fjárfestingarinnar í stöðinni er hins vegar um 310 milljónir. Þar af voru um 60 milljónir greiddar með hluta- fé. Skuldir stöðvarinnar em því ná- lægt 200 milljónum þegar hlutafé og verðmæti fisksins hefur verið dregið frá. Bjöm sagði ljóst að stöðin stæði ekki undir þessu ef starfsemi hennar kæmist ekki í fullan gang. En til þess vantar 30 milljónir eins og áður sagði. Hluthafar í Silfurstjörnunni erut Fiskeldisþjónustan, hópur heima- manna, Byggðastofnun og landeig- endur. Meðal hluthafa er Stefán Val- geirsson þingmaður og fjölskylda hans en hún á um 11 prósent í stöð- inni. Valur Stefánsson, sonur þing- mannsins, hefur sagt upp starfi sínu við stöðina. -gse VtRÐ F BlU FRÁHEKLU BORCAR SIG Laugavegf 170;i74 Stmi 695500 i. ájBm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.