Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Page 9
MÁNUÐAGÚR 16. ',JÚLÍ 1990. Nicholas Ridley, fyrrum viöskipta- og iðnaðarráðherra Bretlands, ásamt eiginkonu sinni, Judy. Ridley sagði af sér um helgina. Símamynd Reuter Bretland: 3 9 Útlönd Tékkar fara frá Kúbu Um þrjátíu tékkneskir borgarar, flestír konur og börn, fóru í kyrr- þey frá Kúbu í gær en mikil spenna ríkir nú milli yfirvalda í Tékkósló- vakíu og Kúbu vegna tólf kúb- anskra flóttamanna sem leitað hafa hælis í tékkneska sendiráðinu í Havana á Kúbu. Brottflutningur Tékkanna var varúðarráðstöfun af hálfu sendi- ráðsins í kjölfar þess að fimm Kúbumenn, sem krefjast þess að fá að fara úr landi, ruddust inn á heimili tékknesks sendifulltrúa á fimmtudaginn. Tékkar hafa neitað að veita Kúbumönnunum fimm á heimili sendifulltrúans skjól og segja að þeir lítí ekki á þá sem raunverulega flóttamenn. Castro Kúbuforseti hefur gagnrýnt tékknesk yfirvöld fyrir að skjóta skjólshúsi yfir tólf- menningana í sendiráðinu. Yfirvöld á Kúbu hafa beðið spænsk yfirvöld afsökunar á því að öryggislögregla skuii hafa fylgt á eftir flóttamanni inn í sendiráð Spánar í Havana á föstudaginn og dregið hann út. Spænska stjórnin hafði mótmælt atburðinum og farið fram á tryggingu fyrir því að ekki yrði gripið til neinna ráöstafana gegn hinum handtekna. Þrír Kúbu- menn hafast nú við í spænska sendiráöinu. Einkennisklæddir lögreglumenn voru í gær á verði umhverfis erlend sendiráð í Havana. Reuter Thatcher stóð í strönqu Margaret Thatcher, breski forsæt- isráðherrann, stóð í ströngu um helgina. Fyrst vegna umdeildra um- mæla eins fyrrum ráðherra hennar í garð þýsku þjóðarinnar og svo vegna nýrra upplýsinga um afstöðu stjómar hennar til Þjóðverja. í gær birtí breska blaöið The Independent minnisblað frá embættísmannafundi stjómarinnar frá því í mars síðast- hðnum þar sem persónueinkennum Þjóðverja er lýst. í minnisblaðinu er Þjóðveijum lýst sem „ágengum, frekum, eigingjömum en viðkvæm- um“ og þeir sagðir þjást af „minni- máttarkennd". Minnisblaðið klykkir út með því að segja að Bretar eigi að vera „Þjóðverjum góðir“. Douglas Hurd utanríkisráðherra staðfesti innihald minnisblaðsins í gær. Birting blaðsins kemur aðeins sól- arhring eftir afsögn Nicholasar Rid- ley, viðskipta- og iðnaðarráðherra. Ridley neyddist tíl að segja af sér um helgina vegna ummæla sem hann lét falla í viðtali við tímarit um Þjóð- verja, Evrópubandalagið og Frakka. Við embætti hans tók Peter Lilley. í viðtali við breska tímaritíð Spectator sakar Ridley Þjóðverja um að vilja leggja Evrópu undir sig. Hann hkir embættismönnum Evr- ópubandalagsins við Adolf Hitler og segir Frakka vera hlýðna kjöltu- rakka á eftir Þjóðverjum. Viðtahð olli miklum deilum, ekki einungis í Bretlandi heldur einnig handan Ermarsunds, og varð til þess að margir hvöttu hann til að segja af sér. Hann lét undan, að þvi er marg- ir telja, eftir þrýsting frá Thatcher. Fréttaskýrendur telja að alvarleg- ustu áhrif þessa viðtals kunni að vera þau að almenningur telji um- mæh hans endurspegla skoðanir og afstöðu breska forsætisráðherrans. Thatcher hefur lýst því yfir að svo sé ekki, þau endurspegh hvorki hennar afstöðu né stjómar hennar. Hurd tók í sama streng í gær og vís- aöi slíkum hugmyndum á bug. The Independent segir minnisblað- ið, sem dagblaðið birti í gær, vera skrifað af Charles Powell, ráðgjafa Thatchers í utanríkismálum. Það ku vera frá fundi þar sem forsætisráð- herranum var skýrt frá við hverju mætti búast af sameinuðu Þýska- landi. Hurd reyndi að draga úr áhrif- um þessa minnisblaðs í gær og sagði niðurstöðu fyrmefnds fundar hafa verið þá að það væri „fráleitt... að það væm yfirgnæfandi hkur á að það væri fráleitt að halda að við þyrftum að horfast í augu viö annan Hitler“. Breska stjómarandstaðan var fljót að grípa tækifærið og gagnrýna stjóm Thatchers. Paddy Ashdown, leiðtogi- Frjálslyndra demókrata, sagði forsætisráðherrann ekki leng- ur geta verið í forsvari fyrir hags- muni Breta í Evrópu. Hurd mun verða fyrstur breskra stjórnmála- manna til að ræða við háttsetta evr- ópska embættismenn eftir allt íjaðra- fokið í Bretlandi síöustu daga. Hann mun sitja fund embættismanna Evr- ópubandalagsins í Bmssel í dag. Reuter Indland: Stjórnarkreppa yfirvofandi Forsætisráðherra Indlands, Pratap Singh, sem nú á í valdabaráttu við aðstoðarforsætisráðherrann, Devi Lal, dró í gær til baka boð sitt um að segja af sér en afsagnir annarra ráðherra ógna stöðu stjómarinnar. Það var á laugardaginn sem Singh bauðst til að segja af sér. Þá höfðu tveir ráðherrar hans sagt af sér vegna þess að Devi Lal, sem er leið- togi bænda, gerði elsta son sinn að fylkisstjóra í Haryana án þess að ráðfæra sig við aðra flokksleiðtoga. Nú hafa tólf ráðherrar sagt af sér eða boðist til að segja af sér vegna máls- ins. Chautala, elsti sonur Lal, lét af embætti fylkisstjóra í Haryana fyrir tæpum tveimur mánuðum eftir að þrettán manns voru myrtir í baráttu fyrir aukakosningar sem hann tók þátt í. Singh hafði farið fram á afsögn Chautala á meðan rannsókn á morð- unum færi fram. Devil Lal setti son sinn aftur í embætti á fimmtudaginn. Kommúnistar og hægri menn, sem styðja minnihlutastjórn Singhs í helstu málum á þingi, voru fegnir er forsætisráðherrann hætti við að segja af sér. Talsmenn Kongress- flokksins, flokks Rajivs Gandhis, sem tapaði í kosningunum í nóvemb- er síðastliðnum, sögðu hins vegar að Singh hefði ekkert meint með boði SÍnuumafSÖgn. Reuter ilifjliii 1 ■' TiTlHrnufSíw/ f .• — BMW 325i 4x4, sidrif, árgerð 1988. ekinn aðeins 20 þús. km, 5 gíra, 5 dyra, útvarp/kasseHa, litur rauður, skipti á dýrari bifreið, árgerð '89 koma til greina. Verð 450 þús. ekinn 55 þús. km, 6 cylindra, 5 gíra, álfelgur, rafmagn i rúðum og spegl- um, útvarp/kassetta o.fl., iitur silfur, metallic, bifreiðin er nýinnflutt til landsins. Verð 1.750 þús. stgreitt. (Ath. nýr ca 3 millj.) MMC PAJERO, langur, bensín, ár- gerð 1988, ekinn 41 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, brettakantar, breið dekk, 31" white spoke felgur, út- varp/kassetta, litur hvitur, skipti á ódýrari Mitsubishi koma til greina. DAIHATSU CHARADE TS, árgerð 1988, ekinn aðeins 24 þús. km, vel útlitandi, útvarp/kassetta, litur svartur, engin skipti, aðeins bein r—-r — sala. Verö 520 þús. ■•0;; .. ' r. ;‘Wj NISSAN PATHFINDER 3000 SE, ár- gerð 1989, ekinn aðeins 16 þús. km, sjálfskiptur, vökvastýri, útvarp, kassetta, álfelgur, topplúga, litur silfur/vínrauður, stillanlegir demp- arar, sportpakki o.fl., skipti á ódýr- ari bifreið koma til greina. Verð 2.150 þús. VÆNTANLEGIR KAUPENDUR, ATH. Gifurlegt úrval nýlegra bíla er á söluskrá. Ýmiss konar kjör og verð við flestra hæfi. Bilar gegn staðgreiðslu. Bílar gegn skuldabréfum. NISSAN SUNNY 1.5 SEDAN, árgerð 1988, ekinn 34 þús. km, 5 gira, vökvastýri, útvarp/kassetta, samlitir stuðarar, litur hvitur, skipti á ódýr- ari bifreið koma til greina. Verð 710 þús. BORGARBILASALAN GREN&ÁSVEGI 11, SIMAR 83085 OG 83150 - SjEVARHÓFDA 2, SÍMI 674848 Thailandsferðir á Spánarverði Við fljúgum með SAS og þið njótið frá- bærrar þjónustu alla leið frá Keflavík til Bangkok með millilendingu í Kaup- mannahöfn. Brottför alla laugardaga, 15 29 daga ferðir. 22 eða Við höfum íslenskan fararstjóra í Thai- landi í allan vetur. Og verðið, já vegna hagstæðra samninga getum við boðið Thailandsferðir nú í fyrsta sinn á Spánarverði. 15 dagar, flug og hótel frá kr. 88.900 22 dagar, flug og hótel frá kr. 99.700 Bókið snemma, takmarkaður sætafjöldi á þessu verði. Hægt aö stansa í Kaupmannahöfn á heimleiöinni. FLUCFERÐIR S4f =SGLRRFLUC Vesturgötu 12, sirnar 620066 og 15331

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.