Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Page 12
12
LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1990.
Breytt um mataræði
{ síðasta pistli sögðum við frá
honum vini okkar sem létti sig um
átta kíló á einum mánuði og fékk
samt nóg að borða. Frásögnin hefur
vakið athygli fólks sem stríðir við
og ofát og offitu. Margir lesendur
DV höfðu samband við mig og báðu
um að birta alla meðferðina í pistl-
unum hér í blaðinu. Það skal gert
í þessum pisth og þeim næsta í eins
konar telexformi en ítarleg út-
færsla er í bókinni Það er allt hægt
vinur eftir undirritaðan og Al-
menna bókafélagiö gaf út fyrir jól-
in.
En því aðeins getum við lagt af
stað að okkur sé hjartans alvara
aö breyta um mataræði og taka á
honum stóra okkar til að ná því
markmiði. Við verðum fyrst að
spyija okkur sjálf í einlægni og
svara því játandi úr innstu hólfum
hjartans. Við verðum líka að fylgja
meðferðinni út í æsar því annars
er hún bæði dauð og ómerk.
Fyrsta skrefið að segja makanum
okkar og öðrum í fjölskyldunni frá
ætluninni að létta okkur og biðjum
þau að kynna sér líka meðferðina
og styðja við bakið á okkur alla
leið. Gott ráð er að tala við heimil-
islækninn og spyrja hann hvort
okkur sé ekki óhætt að draga úr
mat og auka hreyfingu og fá tillög-
ur hans um vítamín. Þá erum við
tilbúin. Meðferðin er í þrem þátt-
um:
1. Andlega hliðin
Við verðum að játa okkur sigruð
og máttvana frammi fyrir matnum.
Maturinn hefur hingað til verið
meistari okkar en nú ætlum við að
skipta um húsbónda fyrir fullt og
fast og fá öll ráð yfir líkamanum.
Til þess verðum við að trúa á ein-
hvem æðri mátt fyrir utan okkar
eigin persónu sem er öflugra en við
sjálf. Kristið fólk þarf ekki að leita
lengi að æðra mætti en aðrir trúa
á það sem þeir vilja: Alla og Búdda
eða Óðin og Þór. Stokka og steina
eða önnur sólkerfi. Ást og um-
hyggju eða OA samtökin.
En trú okkar veröur að vera það
einlæg að við séum reiðubúin til
að biðja okkar æðri mátt um að
hjálpa okkur til að losna undan
matnum. Þannig getum við skipt
um meistara og öðm visi ekki.
Gömlu alkamir sem stofnuðu AA
samtökin byijuðu snemma að nota
æðruleysisbænina til að öðlast frið
og hugarró. En bænin er tahn kom-
in frá heilögum Frans frá Assisi og
hljóðar svo:
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það, sem ég
fæ ekki breytt.
Kjark tíl að breyta því sem ég
get breytt
og vit til að greina þar á milh.
Þá er okkur nauðsynlegt að sækja
fundi hjá OA samtökunum en ef
þau hafa ekki fundi á staðnum þá
gera AA fundir nánast sama gagn.
Þurfum að hitta reglulega fólk sem
stefnir að sama marki til að bera
saman bækur okkar og öðlast
reynslu úr öðrum áttum því sam-
kenndin er mikhvæg á leið th ár-
angurs.
2. Aukin hreyfíng
Mannslíkaminn shtnar meira af
hreyfingarleysi en hreyfingu. Þess
vegna er okkur óhætt að hreyfa
okkur meira en við gerum flest.
Hér er lagt th að ganga þijá khó-
metra á hverjum degi og byrja í
dag. Lengsta gangan hefst á fyrsta
skrefinu og því tökum við eitt skref
í einu uns takmarkinu er náð. Það
kemur öhu kerfinu á hreyfingu og
smám saman lagast ýmis atriði
sem voru gengin úr skorðum.
Þunglyndi víkur og matarlöngun
Allt grænmeti er hollt.
dvínar. Það verður léttara yfir
umhverfinu og öh störf leika í
hendi.
En áður en við höldum af stað
þurfum við að velja okkur hhfðar-
fót eftir veðri og góða gönguskó og
sokka th að hlífa fótunum. Annars
veröur gangan ekki þægileg og við
fáum blöðrur. Kennum göngunni
um þær og hættum við svo búið
að ganga. Við þurfum hka að velja
okkur góða gönguleið sem er
hættulaus fyrir okkur og ekki fyrir
annarri umferð. Best er að ganga á
eftir máltíðum því þá brennir hk-
aminn 18% meira en á öðrum tím-
um en spyrjiö mig ekki af hveiju.
Þriggja khómetra ganga brennir
200 kaloríum á dag en það gerir
heh tíu kíló á ári svo það er til
nokkurs að vinna. Góða ferð.
3. Breyttmataræði
og matarvenjur
Við höldum okkur fast við þann
algenga og góða íslenska mat sem
við höfum vanist og munum borða
áfram eftir að kjörþyngd er náö.
Treystum ekki á einhæft sérfræði
eða fábrotinn kúramat heldur ahan
venjulegan mat. Og það gerir gæfu-
muninn.
Við borðum mat sem er aðeins
900 kaloríur á dag samtals. 200 kal-
oríur í árbít og 250 kaloríur i hádeg-
ismat en 350 kaloríur í kvöldverð.
Síðan notum viö aht að 100 kaloríur
í meðlæti á borð við mjólkurtár í
kaffið og svoleiðis. Aht samkvæmt
matseðlunum.
Við förum strax yfir matseðlana
og uppskriftirnar með kokkinum á
heimhinu og tölum saman um með-
ferðina. Því okkur er alvara. Við
breytum ekki mataræðinu í nokkra
daga heldur fyrir lífstíð. Við erum
ekki aö grenna okkur th að tolla í
Umsjón:
Ásgeir Hannes
Eiríksson
tískunni á sólarströndu heldur th að halda lífi. það er heha málið.
Mánudagur Morgunverður: Morgunkom að vali 135 kal.
Safi 25kal.
Hálft glas undan renna 40 kal.
200 kal.
Hádegi: Kjúklingasalat 100 kal.
Bökuðkartafla 50 kai.
% glas undanrenna 50 kal.
Ávöxturaðvali 50 kal.
250 kal.
Kvöldmatur: Fiskuraðvalil75g 240 kal.
Meðalstór salatskál 50 kal.
Hálfur bolh grænmeti 20 kal.
Ávöxturaðvali 50 kal.
360 kal.
Þriðjudagur Morgunverður: Jógúrtaðvah 150 kal.
Safi 50 kal.
200 kal.
Hádegi: Rækjusalat 100 kal.
Meðalstór salatskál 50 kal.
Eitt glas undanrenna 70 kal.
Hálfur ávöxtur 30 kal.
250 kal.
Kvöldmatur:
Kjöt að vah 240 kal.
Einn bolli grænmeti 40 kal.
Hálf bökuö kartafla 30 kal.
Ávöxtur að vali 50 kal.
360 kal.
Miðvikudagur
Morgunverður: Morgunkorn að vali 135 kal.
Safi 25 kal.
Hálft glas undanrenna 40 kal.
200 kal.
Hádegi: Omeletta að vali 150 kal.
Meðalstór salatskál 50 kal.
% glas undanrenna 50 kal.
250 kal.
Kvöldmatur: Fiskur að vah 175 g 240 kal.
Bökuð kartafla 50 kal.
Meðalstór salatskál 50 kal.
Hálfur ávöxtur 25 kal.
365 kal.
Fimmtudagur:
Morgunverður: Jógúrt að vah 150 kal.
Safi 50 kal.
200 kal.
Hádegi: Stór salatskál 100 kal.
Bökuð kartafla 50 kal.
Eitt glas undanrenna 70 kal.
Hálfur ávöxtur 30 kal.
250 kal.
Kvöldmatur:
Nautahakk á kvöldin 285 kal.
Bökuö kartafla 50 kal.
Hálfur ávöxtur 25 kal.
360 kal.
Föstudagur
Morgunverður:
Morgunkorn að vah 135 kal.
Safi 25 kal.
Hálft glas undanrenna 40 kal.
200 kal.
Hádegi:
Nautahakk í hádegi 100 kal.
Bökuð kartafla 50 kal.
Meðalstór salatskál 50 kal.
% glas undanrenna 50 kal.
250 kal.
Kvöld:
Kjúklingur að vah 300 kal.
Líth salatskál 25 kal.
Hálf bökuð kartafla 25 kal.
Hálfur ávöxtur 25 kal.
375 kal.
Laugardagur Morgunverður: Jógúrt að vah 150 kal.
Safi 50 kal.
200 kal.
Hájegi: Kartöflusalat 100 kal.
Meðalstór salatskál 50 kal.
Ávöxtur að vah 50 kal.
% glas undanrenna 50 kal.
250 kal.
Kvöld: Fiskur að vali 175 g 250 kal.
Líth salatskál 25 kal.
Einn bolli grænmeti 50 kal.
Ávöxtur að vali 50 kal.
375 kal.
Sunnudagur
Morgunverður:
Morgunkorn 135 kal.
Safi 25 kal.
Hálft glas undanrenna 40 kal.
200 kal.
Hádegi:
Omeletta að vali 150 kal.
% glas undanrenna 50 kal.
Ávöxtur að vali 50 kal.
250 kal.
Kvöldverður:
Nautasteik 110 grömm 300 kal.
Bökuð kartafla 50 kal.
Meðalstór salatskál 50 kal.
400 kal.
Á sunnudögum er allt í lagi að sofa
út og slá saman árbít og hádegis-
verði:
Morgun-dagverður:
Morgunkomaðvali 135 kal.
Safi 50 kal.
Eitt glas undanrenna 70 kal.
Omeletta að vali 150 kal.
Líth salatskál 25 kal.
430 kal.
• Það er góð venja að ganga th
kirkju á sunnudegi og öölast eftir-
sótt jafnvægi og frið.
• Munum að sækja OA fundi
reglulega. í næsta pisth birtast
frekari skýringar á matseðhnum.
mynd: „En því aöeins getum við
lagt af stað að okkur sé hjartans
alvara að breyta um mataræði og
taka á honum stóra okkar th aö
ná því markmiöi,“