Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Blaðsíða 26
38 LAUGARDAGUR 21. JÚLí 1990.
Lífsstm n>v
Danmörk:
Á strönd í Blokhus
Hvítur sandur, melgresishólar,
hreinn sjór, sumarhús og feröamenn
svo þúsundum skiptir og það í Dan-
mörku.
Hvaö í ósköpunum ætlar þú að
gera? Ætlar þú að fara á strönd í
Danmörku? Eru einhveijar strendur
þar? var ég þrásinnis spurð áöur en
ég hélt til Danmerkur. Já, það eru
margar ágætisstrendur þar, var
svarað, aumlega. Hvert sagðirðu aft-
ur aö þú ætlaðir? Ég ætla til Blok-
hus, það er rétt hjá Alaborg. Er eitt-
hvað hægt að gera þar? var næsta
spuming. Og svarið við þeirri spum-
ingu er harla einfalt, það þarf engum
að leiðast í Blokhus.
Blokhus er vinsæll sumarleyfls-
staður í Danmörku, einn sá vinsæl-
asti. Þangað streyma Danir, Færey-
ingar, Þjóðverjar og slangur af Bret-
um. Flestir sem staðinn sækja eru
fjölskyldufólk enda hefur hann
kannski mun meira að bjóða slíku
fólki en einstaklingum.
Ströndin er einstaklega falleg og
þar er svo sem alltaf hægt að finna
sér nóg til dundurs.
Sólaruppkoman er falleg niðri á
strönd, þá era fáir á ferh og ósköp
indælt að taka sér mátulega langan
göngutúr eftir ströndinni.
A heitum dögum er gott að baka
sig í sandlaut í melgresishólunum og
þegar hitinn verður yfirþyrmandi er
hægt að fá sér bað í sjónum.
Á kvöldin, þegar um hægist og
flestir era famir til síns heima, fær
ströndin eyðilegra yfirbragð. Þá
mæta göngugarpar gjarnan niður á
strönd til að fá sér kvöldgöngu, aðrir
koma og fá sér hjólatúr, nú og sumir
leigja sér hesta og fara í reiðtúr.
Strendur Danmerkur hafa þann
kost umfram margar aðrar að þar
er nóg pláss. Þær eru aldrei mjög
þéttsetnar, enda teygist strandlengj-
an marga tugi kílómetra til beggja
átta. Ströndin hefur ekki þennan iðn-
aðarferðamannabrag sem svo marg-
ar aðrar strendur Evrópu hafa, eink-
anlega þær sem eru sunnar í álf-
unni. Svo má ekki gleyma því að
strendur Danmerkur hafa einn kost
umfram aðrar strendur, þær eru
tandurhreinar, þær hreinustu í allri
Evrópu.
Börninvelkomin
Það er gott að vera með börn í
Danmörku. Blokhus er þar enginn
undantekning, bömin eru velkomin
nær alls staðar. Mikið hefur verið
Veðrið í útlöndum
HITASTIG I GRÁÐUM
-10 ©óa leagra OHI-6 1 «I5 S:i:í 6 lll 10 11 11115 1G1II20 m.lra
I CHelsinki 16
StoKkHólmur 16°
ihöfn 25'
Berlín 20'
Londoi
rís 28
Feneyjai
Msrðrid 34
Mallorca 29
Winnipeg 13'
Montreal 18
Léttskýji
Chicago 21
Alskýjal
Los Angeles 20
^B^gg^^eOuriréttunWeÖuretofiHslandsJtLl^áJháclegLffctuGbg
pv,./
Reykjavfk 11°
Bergen t
Þórshöfn13° q V.
rp Osló jj3°
Glasgow j
a—
mj New York 27°
Atlanta 22°
MOrlando 26°
DV JRJ
Rigning V Skúrir Snjókoma Þrumuvefiur = Þoka
í skjóli í sandlaut er upplagt að byggja sandkastala.
gert að því að byggja upp góð leik-
svæði þar. sem allir fiölskyldumeð-
hmir finna eitthvað við sitt hæfi.
Blokhus er lítið þorp og íbúar þess
byggja nær allir afkomu sína á þjón-
ustu við ferðamenn. Þar eru sumar-
húsaþyrpingar, íbúðahótel, tvær
verslunargötur sem mynda kjarna
þorpsins, enda veitingahúsin, krárn-
ar, mínigolfvöhurinn, matvöruversl-
unin, minjagripaverslanir og ahar
þjónustustofnanir þorpsins við þess-
ar tvær götur.
í næsta nágrenni Blokhus, í Fárup,
er Sumarlandið og Vatnalandið -
tveir garðar þar sem allt mögulegt
og ómögulegt er hægt að taka sér
fyrir hendur. Það er ekki svo vitlaus
hugmynd að leigja sér hjól ef maöur
er staddur í Blokhus og hjóla yfir í
garðinn. Það er einungis nokkurra
kílómetra leið sem hggur eftir falleg-
um skógarstígum. Aðgangseyrir að
garðinum er 55 krónur danskar, 550
krónur íslenskar, fyrir alla þá sem
orðnir era þriggja ára og eldri, hins
vegar kostar ekkert í leiktækin. í
Vatnalandinu eru frábærar vatns-
rennibrautir, sundlaugar, gerv-
istrendur og barnalaug. Svo er hægt
að sigla á hraðbát, fara út á vatn að
róa eða á hjólabát og svo framvegis.
1 Sumarlandinu eru margs konar
leiktæki, hægt að fara í mínigolf,
keilu, leigja litla bíla ásamt ýmsu
öðru.
Það væri hægt að eyða mörgum
dögum í þessum skemmtilega garði
án þess að láta sér leiðast eitt augna-
blik.
Þegar fólk er farið að mæðast af
leik er hægt að bregða sér á eitthvert
veitingahúsanna í garðinum eða ef
fólk hefur verið svo forsjált að koma
með eigið nesti þá eru góð afdrep
fyrir það í skuggsælum lundum.
StutttilÁlaborgar
Álaborg er höfuðstaöur Norður-
Jótlands og stendur viö Limaflörð-
inn. Það er rúmlega hálfrar stundar
akstur frá Blokhus til Álaborgar á
einkabíl en ef farið er með rútu tekur
ferðin um klukkstund.
í Álaborg er meðal annars að finna
DV-myndir J.Mar