Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1990. 13 Uppáhaldsmatur Elnar Vllhjálmsson við ofninn I eldhúslnu helma í Reykjavík þar sem lambatærið er grillað. Einar gelur les- endum DV mynd af því í dag hvernig mataræöi íþróttamanna á heimsmælikvarða er hagað. DV-mynd JAK Lambalæri að hætti mömmu „Uppáhaldsmaturinn minn er nú ekki meö neinu listakryddi. Ann- ars er veikleikinn hjá mér barbecue-rifbein sem ég freistast stundura tiJ aö kaupa úti í Texas. Þau eru rosalega góö. íslenski mat- urinn finnst mér þó bestur. Steikt ýsa eöa lambakjöt," segir Einar Vilhjálmsson spjótkastari. Hann býr í Texas þar sem hann stundar nám í háskóla og æfir íþróttagrein sína. Fjölskylda hans dvelst heima á íslandi í sumar. „Við erum bara þrjú í heimili,“ segir Einar. Hann er kvæntur Halldóru Dröfn Sigurö- ardóttir og eiga þau 5 ára gamla dóttur sem heitir Gerður Rún. Grillaðlðeri með ýmsu meðlæti „Efst í huga mér núna er íslenskt lambalæri að hætti mömrau bless- aörar - ég myndi panta mér það hvar sem ég væri í heiminum í dag. Kjööð er griliað og með því er höfð brún sósa, rauðkál, brúnað- ar kartöfiur, hrásalat og grænar baunir. Þetta er ekki flókið. Lambakjötið er saltað og piprað. Síðan er heilu lærinu stungið í oíhinn og það haft á tæplega 200 gráðu hita í eina klukkustund. Hitinn fer að vísu dálítiö eftir því hvemig ofninn er.“ Morgunmaturinn er stærsta máltíðin „Annars er ég svo mikill mat- maður. Ég borða eiginlega allt. Fæðunni, á meðan þjálfun stendur, reyni ég að haga þannig að hún innihaldi um 70 prósent kolvetni, 15-20 prósent prótein og 15-20 pró- sentfitu. Stærsta máltíðin hjá mér er oftast morgunmaturinn. Brauð ásamt eggjaköku meö fitusnauðri skinku og osti, appelsínusafa, einu til tveimur miólkurglösum og katfi á eftir. Á áiagstímabilum, fyrir próf- tímann, drekk ég líka ginsengte. Þaö hefúr reynst vel þegar maður er undir andlegu álagi í 10-12 tíma á dag. Hádegismáltíðin er oft hrein og klár næringarfæða - hálfgerður grautur sem er hrærður út með vökva og duftefnum. Þetta er fljót- legt og kemur sér vel á haustin þegar ég hef ekki tíma til aö fara heim í hádeginu í skólanum í Tex- as. Aðalmáltíðina borðum við um sexleytið á kvöldin - kaloriurík- ustu fæðu dagsins. Við borðum oft kjúkling og töluvert mikið af nautakjöti - við búum í Texas og því miður er erfitt að ná í lamba- kjöL Fiskinn sem þarna er á boð- stólum höfum viö verið hálftreg við aö kaupa. En viö fáum okkur gjam- an mexíkanskan mat með hakki, baunum, tómötum, lauk og sterkri sósu. Hrísgrjón, korn og mikið af bökuöum kartöflum og grænmeti er líka vinsælt hjá okkur, enda er hagstætt að kaupa slíkt. Yfir seinni fréttunum á kvöldin hef ég síðan átt-þaö til að raöa í mig appelsínum. Þær fylla mag- ann,“ sagði Einar Vilhjálmsson íþróttamaður. -ÓTT Þeir sem hafa áhuga á að gerast meðlimir í Félagi íslenskra förðun- arfræðinga vinsamlegast hafi sam- band í símum: 13074 (Kristín) - 33077 (Svanhvít) - 33438 (Sigga Rósa). Inntökuskilyrði er að hafa verið við nám í förðun erlendis frá 6 vikum upp í 9 mánuði eða lengur. 'örðunarfraömga þejr sem hafa áhuga á að hafa samband við félagið í sambandi við einstaklings- og/eða hópverkefni hafi samband í sömu símanúmer. Laus staða Dósentsstaða i stjarnvísindum við eðlisfræðiskor raunvísindadeild- ar Háskóla islands er laus til umsóknar. Dósentinum er ætiað að stunda rannsóknir í stjarnvísindum, hafa forystu um kennslu í þeim við deildina og stuðla að aukinni þekkingu á þessari vísinda- grein í landinu. Ennfremur þarf umsækjandi að geta tekið að sér almenna kennslu í eðlisfræði. Óskað er eftir greinargerð um rann- sóknir sem umsækjandi hyggst stunda, verði honum veitt staðan. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja- vík, fyrir 20. ágúst 1990. Menntamálaráðuneytið, 19. júlí 1990 FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALSTRÆTI 16 • 101 REYKJAVIK • SIMI 91-621490 • AMSTERDAM UM VERSLUNARMANNAHELGINA Broftför 2. ágúsf og 3. ágúst - 3 eöa 4 nœtur. Veró pr. mann í fvíbýli frá 31.890,- Innifalió flug, gisting og morgunveróur. TONLEIKAR: * FLEETW00D MAC * JETHR0 THULL * DARYL HALL 0G J0HN 0ATS Frábær uppákoma 1. september á Wembley ■ London. Brottför 30. og 31. ágúst, 3 eða 4 nætur. Fararstjóri: Ásgeir Tómasson. Veró pr. mann í tvíbýli fró 42.500,- Innifalió flug, gisting, morgunveróur, flutningur til og frá flug- velli aó hóteli og á Wembley og aógöngumió- ar á tónleikana. * TAKMARKAÐ SÆTAFRAM BOÐ * BENID0RM 26. JÚLÍ 0G 2. ÁGÚST .'Ein'tvœr- 'prjár vikur. Veró frá 32.250,- pr. mann + 'Örfá sœti laus* + Veró mióaó vió hjón meó 2 börn, 2ja til 11 ára. FLUG 0G BÍLL TIL KAU PMAN NAHAFNAR, AMST- ERDAM, LUXEMBORGAR, LONDON, GLASGOW, NEW YORK. ATHUGAÐU VERÐIÐ HJÁ OKKUR. Sjáumst FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKURsF AÐALSTRÆTI 16 • 101 REYKJAVIK • SIMI 91-621490 • FARKORT Sími 621490

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.