Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1990. Guðmundur Bogason og Kristján Jónsson tilbúnir í slaginn en i gær héldu þeir til Noregs þar sem verkefni þeirra verður að hanna bardaga- atriði í nýjustu kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar. DV-mynd GVA Fara til Noregs að búa til bardaga „Við pössum upp á að enginn meiöi sig í bardaganum og kennum leikurunum að slá hver annan, detta og fleira,“ sögðu þeir Guð- mundur Bogason lögreglumaður og Kristján Jónsson, starfsmaður Olíufélagsins, í samtali við DV. Þeir félagar héldu til Noregs í gær þar sem þeir munu taka þátt í gerð nýjustu kvikmyndar Hrafns Gunn- laugssonar, Hvíta víkingsins, sem nú stendur yfir. Þeir munu hanna öll bardagaatriðin í myndinni og þjálfa leikara til að slást þannig að engin meiðsl hljótist af. „Jú, þetta er í rauninni stór- hættulegt því við upptökur er kom- ið á alvöru bardaga,“ sögðu þeir aðspurðir hvort þetta væri ekkert mál fyrir leikarana. „En okkur gefst góður tími til að æfa leikarana og gera þá klára í bardagann. Við tökum sjálfir að okkur erfiðari at- riði ef því verður við komið." Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem þeir Guðmundur og Kristján taka að sér verkefni af þessu tagi. „Við höfum æft bardagalist, „kimewasa", í mörg ár. Fyrir nokkrum árum kom Hrafn Gunn- laugsson á æfingu til okkar og bað okkur um að aðstoða sig. Það varð úr og höfum við samið bardagaat- riði í tveimur myr.da hans, Hrafn- inn flýgur og í skugga hrafnsins. Einnig í myndinni Foxtrott þar sem að vísu voru ekki notuð nein vopn. Það hefur verið mjög skemmtilegt aö taka þátt í þessu og gaman að kynnast skapandi vinnu sem kvik- myndagerð er,“ sögðu þeir vígaleg- ir, tilbúnir í slaginn úti í Noregi. -RóG. Gœðanna vegna! Þúvlltlíka góðaávöxtun 1990! KJARABRÉF eru lausnin. KJARABRÉF - 5 ára örugg reynsla. * KJARABRÉF-19% ársávöxtun. * KJARABRÉF- 8,1% raunávöxtun. * Miðað við 6 fyrstu mánuði þessa árs. VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTING ARFÉLAGSINS HF - LöggUt verðbréfafyrirtæki - HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYRI11100 / 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.