Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Síða 20
J S 20
LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1990.
Kvikmyndir
Enemies, A Love Story þykir meðal bestu kvikmynda Pauls Mazursky:
Beið eftir kvikmyndarétti á sögu
nóbelsskáldsins í rúm tuttugu ár
Paul Mazursky.
Það er sama hvar litíð er í tíma-
rit um kvikmyndir, allir sem fást
við skriftir um kvikmyndir virðast
hafa falhð fyrir nýjustu kvikmynd
Pauls Mazursky, Enemies, A Love
Story, sem gerð er eftir skáldsögu
nóbelsskáldsins Isaacs Bashevis
Singer.
„A einhvem dularfullan hátt
varð sagan mér afar kær um leið
og ég las hana í fyrsta skiptið,
1973,“ segir Paul Mazursky. „Ég
reyndi strax að fá kvikmyndarétt-
inn en aðrir höfðu orðið á undan
mér og það var ekki fyrr en 1986
að ég gat tryggt mér réttínn. Þetta
er dásamleg saga um andstæður
og mghng sem er í sannleika sagt
eins og spegilmynd af lífinu sjálfu.
í sögunni eru miklar ástríður,
hamingja, leiði og örvænting. Hvað
er hægt að biðja um meira?“
Paul Mazursky hefur starfað sem
leikstjóri, leikari, framleiðandi og
handritshöfundur í tæp þijátíu ár
og efitír hann hggja þrettán myndir
sem hann hefur leikstýrt, má þar
nefna Bob & Carol & Ted & AUce,
Blume in Love, Harry og Tonto,
An Unmarried Woman og Down
and Out in Beverly HUls. Hann
hefur skrifað handritið eða haft
hönd í bagga með samningu hand-
Hér sést Paul Mazursky leikstýra Margaret Sophie Stein, Ron Silver
og Anjelicu Huston í Enemies, A Love Story.
rits að öllum sínum myndum.
Það má segja um kvikmyndir
Mazurskys aö ávaUt sé húmor í
þeim ásamt mannlegum tílfmning-
um og von.
Hann skýrir sjálfur mottó sitt
þannig: „Ef þú ert lifandi og að ein-
hvetjum hluta meðvitaður um
hvað er að gerast í kringum þig þá
sérðu bijálaðan heim. Ibúar hans
geta aðeins Ufað í honum með því
að gera sér grein fyrir hvað ánægja
er. Þess vegna reyni ég að láta endi
í mínum kvikmyndum vera já-
kvæðan."
Tragikómedía um
fjórarpersónur
Enemies, A Love Story er tragi-
kómedía og fjaUar um þijár konur
og einn mann. Þau eru öU gyðingar
sem lifðu af síðari heimsstyijöld-
ina. Nú búa þau í New York og
lenda í ýmsum ógöngum, fyndnum
og hræðilegum. Maðurinn er Her-
mann, sem Ron Silver leikur. Hann
býr á Coney Island ásamt eigin-
konu sinni, Yadwiga. Hann á í eld-
heitu ástarsambandi viö Masha
sem býr í Bronx. Líf hans verður
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
enn flóknara þegar fyrsta eigin-
kona hans, Tamara, sem hann hélt
að hefði látíst í útrýmingarbúðum
nasista, birtíst. Hún er sem sagt
sprelUifandi og býr á Manhattan
og gerir að sjálfsögðu kaU tíl hús-
bónda síns.
í sögunni er látíð að því liggja að
Hermann hafi aldrei verið trúr eig-
inmaður en að vera með þijár í
takinu reynist meira að segja hon-
um of mikið álag. Eins og köngulló,
sem fost er í eigin vef, spinnur hann
lygasögur tíl að slá uppgjörinu á
frest, sögur sem aðeins vekja þján-
ingar hjá konunum þremur.
Hermann sjálfur verður svo
ruglaður af öUu saman að þegar
hann fer í lest veit hann ekki hvort
hann er á leiðinni til Coney Island,
Bronx eða Manhattan.
Ron SUver, sem leikur Hermann,
er þekktur leikari á Broadway og
hefur unnið til Tony-verölauna.
Hann hefur ekki leikið mikið í
kvikmyndum og er hlutverk hans
Að leika í kvikmynd er ekki mikið
mál fyrir Paul Mazursky. Hann
byrjaði feril sinn sem leikari fyrir
þrjátiu árum og leikur í annarra
manna myndum alltaf við og við.
í Enemies, A Love Story leikur
hann lítið hlutverk, illmenni sem
nefnist Tortshiner.
í Enemies, A Love Story stærsta
hlutverk hans til þessa. Konurnar
þijár eru leiknar af AnjeUcu Hust-
on, Lenu Olin og Margaret Sophie
Stein.
j
Lék í fyrstu
kvikmynd Kubricks
Paul Mazursky fæddist í Brooklyn
25. aprU 1930. Faöir hans var verka-
maður. Hann minnist samt best afa
síns sem rak sælgætisverslun og
las Turgenev í bakherbergi búðar-
innar. Mazursky byijaði snemma
að koma fram í skólaleikritum og
eftir að hann lauk almennu námi
hélt hann til New York.
Hann fékk sitt fyrsta hlutverk þar
í leikriti utan Broadway sem hét
He Who Gets Slapped. Hann bjó á
þessum árum í Greenwich ViUage
og lýsir lífrnu þar í einni mynda
sinna, Next Stop Greenwich Vill-
age, og byggir hann aðalsöguper-
hann skrifaði og hveiju hann leik-
stýrði og þótt ekki hafi allar mynd-
ir hans hlotið náð hjá áhorfendum
hefur trú framleiðenda á honum
verið það mUtíl að hann hefur aldr-
ei lent í vandræðum með að fá gert
það sem hann langar til.
Paul Mazursky fylgdi eftir Bob &
Carol... með Alex in Wonderland
og þar á eftír Blume in Love sem
hlaut frábærar viötökur gagnrýn-
enda. í þeirri mynd gerir Mazursky
úttekt á hjónabandi eins og í Bob &
Carol... Fjallar myndin um eigin-
konu sem kemst að því að eigin-
maðurinn heldur fram hjá henni
og tíl að hefna sín gerir hún það
sama með þeim atieiðingum að hún
verður ófrísk. Þegar eiginmaður-
inn fréttir þetta nauðgar hann
henni. í lokin sættast þau, leið en
kunnugri eigin göUum.
í næstu mynd sinni, Harry and
Tonto, slær Mazursky á léttari
strengi. Art Camey hlaut óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í myndinni
en hann leikur gamlan mann sem
Ron Silver leikur mann sem giftur er tveimur konum og heldur við eina
í viðbót.
sónuna á sjálfum sér.
Fyrsta kvikmyndahlutverk, sem
Mazursky fékk, var í fyrstu kvik-
mynd Stanleys Kubrick, Fear and
Desire, sem gerð var 1953. Tveimur
árum seinna lék hann í hinni
þekktu unglingamynd The Black-
board Jungle. Mazursky lék svo
ekki í kvikmynd fyrr en 1966 aö
hann lék í Deathwatch. í millitíð-
inni skrifaði hann handrit fyrir
ýmsa sjónvarpsþætti. Lengst af
skrifaði hann handrit fyrir gaman-
þættí Dannys Kaye sem voru mjög
vinsælir á þessum áram.
Áður en hann leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd, Bob & Carol &
Ted & Alice, skrifaöi hann eitt
kvikmyndahandrit ásamt Larry
Tucker, I Love You, Alice B.
Toklas. í þeirri mynd lék Peter Sell-
ers hippa og óvænt varð myndin
vinsæl.
Columbia hafði trú á Mazursky
og leyfði honum að hafa fijálsar
hendur með gerð Bob & Carol...
Sú mynd var opnunarmynd á New
York-kvikmyndahátíðinni 1969 og
má þá segja að heimurinn hafi opn-
ast fyrir Mazursky.
Myndin fékk óskarstílnefningar
ásamt mörgum fleiri viðurkenn-
ingum. AUt frá fyrstu mynd Maz-
urskys hefur verið tcdað um að
hann væri sá amerískra leikstjóra
sem mest er evrópskur. Kemur þar
til að myndir hans láta yfirleitt
ekki mikið yfir sér og ávallt er gert
meira úr mannlega þættínum en
hjá flestum starfsbræðrum hans
vestan hafs, en fyrst og fremst er
ástæðan sú aö aldrei hefur verið
hægt aö kaupa Mazursky. Hann
hefur ávaUt ákveðið sjálfur hvað
fer þvert yfir Bandaríkin ásamt
kettinum sínum.
Nú komu tvær gæðamyndir frá
Mazursky sem héldu nafni hans á
lofti, fyrst Next Stop Greenwich
VUlage, sem margir telja van-
metnustu kvikmynd hans, síðan
An Unmarried Woman, sannkallað
meistaraverk sem vaktí mikla at-
hygh og kom Jtil Clayburgh upp á
stjörnuhimininn.
Á eftir þessum gæðamyndum
komu nokkur mögur ár, Wtilie and
Paul, The Tempest og Moscow on
the Hudson gerðu lítið annað en
rétt að láta menn muna eftir hon-
um.
Mazursky tók sér nú þriggja ára
hvUd. Skrifaði handrit sem var
lauslega byggt á franskri kvik-
mynd eftir Jean Renoir og kallaði
Down and Out in Beverly Hills.
Meö þau Nick Nolte, Richard
Dreyfuss og Bett Midler innan-
borðs skapaði hann skemmtilega
og frumlega kvikmynd. Hann
fylgdi þessari satíru eftir með ann-
arri álíka, Moon over Parador, sem
fjallar um annars flokks leikara
sem fær það hlutverk að leika ein-
ræöisherra sem fallið hefur óvænt
frá.
Með Enemies, A Love Story snýr
hann sér aftur að því sem hann
gerir best, að sýna margar hhðar
mannskepnunnar án þess að dæma
einn eða neinn. Og árangurinn hef-
ur ekki látið á sér standa. Ef
Enemies, A Love Story er ekki
besta kvikmynd Pauls Mazursky
þá er hún aö minnsta kosti meðal
hans þriggja bestu. Enemies, A
Love Story verður sýnd á næstunni
í BíóhölUnni eða Bíóborginni.