Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Page 28
40 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1990. Helgarpopp Whitesnake og Quireboys - á risarokki í Reiðhöllinni Unnendur kraftmikillar rokktóniist- ar eiga von á sannkallaðri veislu í septemberbyrjun. Þá eru bresku hljómsveitimar Quireboys og White- snake væntanlegar til landsins og halda hljómleika í Reiöhöllinni þann 7. september. Báðar þessar hljómsveitir leika á Monsters of Rock-tónlistarhátíðinni við Donnington-kastala upp úr miðj- um ágúst. Þangað koiha einnig bandarísku rokksveitirnar Aero- smith og Poison. Vonir standa til að hægt verði að fá þá síðarnefndu til að koma við hér á landi er hún held- ur vestur um haf og veröa þannig þriðja hjól undir vagni í Reiðhöll- inni. Enn sem komið er hefur ekki borist svar frá Poison. Umsjón Ásgeir Tómasson Einnig hefur það flogið fyrir að söngvarinn alræmdi, Ozzie Osbo- ume, verði meðal áheyrenda er Whitesnake og Quireboys leika hér á landi. Kona hans, Sharon, er um- boðsmaður Quireboys auk þess að annast viðskiptamál manns síns, Litu Ford og fleiri rokkara. Sharon Osboume mun ætla að koma hingað og þykir líklegt að maður hennar slá- ist í forina. Erlendir áhangendur Ef Ozzie karlinn Osboume lítur inn em litlar líkur tii þess að hann verði eini útlendingurinn í áheyrenda- skaranum í Reiðhöllinni. Búist er við áhangendum Whitesnake annars staðar frá Norðurlöndunum, Bret- landi og jafnvel víöar. Það heyrir nefnilega til algjörra undantekninga að Whitesnake leiki lengur í jafnlitl- um tónleikasölum og Reiöhöllinni. Því er tahð að útlendir aðdáendur noti tækifærið og kaupi sér ferö til íslands til að sjá goðin og heyra. Þá munu íslandstónleikamir verða þeir einu sem Whitesnake heldur á Norð- urlöndunum að sinni. Einu Norðurlandatónleikarnir hjá Whitesnake að þessu sinni verða í Reið- höllinni í Reykjavík. Gun fékk starfið eftirsótta > - i - að hita upp í Evrópuferð The Rolling Stones Fjórmenningamir í Glasgow-hljóm- sveitinni Gun em orðnir þekktari en þá gmnaði nokkm sinni að þeir ættu eftir að verða. Þökk sé starfsbræðr- um þeirra í Rolling Stones. Gun hef- ur hitaö upp fyrir Stones á Urban Jungle-hljómleikunum á meginlandi Evrópu og í London. Nú hefur Gun væntanlega lokið hlutverki sínu því að Quireboys hafa tekið við hlut- verkinu. Og þegar Stones halda til Norðurlandanna kemur The Dan Reed Network til skjalanna. Gun var á hljómleikaferð í Banda- ríkjunum þegar kallið kom. Hljóm- sveitin er svo lítt þekkt vestra að hljómleikasahmir, sem hún lék í, vom sumir hverjir lítið stærri en saiemi aö sögn fjórmenninganna. Það er raunar starfsmanni A & M hljómplötuútgáfunnar að þakka að Gun fékk að leika á undan Rolling Stones. Svo og því að Mick Jagger leist nægjanlega vel á hljómsveitina og tónlist hennar til að hann sam- þykkti aö taka hana fram fyrir Paul Young, Ziggy Marley, Aswad, Joan Jett, Faith No More, Fine Young Cannibals og lauslega áætlað fimm hundruð hljómsveitir til viöbótar sem sóttust eftir hlutverkinu. Þó virðist manni Gun aðeins vera eins og hundruð annarra hljómsveita við aö heyra í henni á Wembley- leikvanginum. Hún hefur aöeins yfir betra hljóðkerfi að ráða en nokkur önnur af hennar stærðargráðu. Ung gítarhljómsveit Mark Rankin söngvari Gun sagðist nýlega í blaðaviðtah hafa spurt Mick The Gun - strákar sem voru til i að púla til að koma sér á framfæri. Það vakti athygli Rolling Stones á þeim' Jagger að því hvers vegna hann og félagar hans hefðu orðiö fyrir valinu. „Hann svaraði,“ segir Mark, „að hann hefði orðið feginn að heyra að enn væm til ungir menn í gítar- hljómsveitum sem væru til í að þræla og púla á smástöðum um allan heim til að koma sér og fyrstu plötunni sinni á framfæri. Mér skilst að það hafi gert útslagið að við höfðum búið í sendiferðabíl í fjórtán mánuði og flækst um Evrópu þvera og endi- langa og vorum komnir til Banda- ríkjanna til að kynna plötuna okkar. Við höfðum satt að segja ekkert frí tekið okkur frá því að platan okkar, Taking on the World, kom út í apríl á síðasta ári. Það eru víst ekki marg- ar hljómsveitir sem nenna að leggja slíkt á sig til að kynna sig.“ Á stóru sviðin Fjórmenningarnir í Gun spiluðu éitt kvöld í maí fyrir fjögur hundruð manns á smástað í Los Angeles. Þeir voru tiltölulega ánægðir með að- sóknina. Skömmu seinna var hringt í þá frá aðalstöðvum A & M. Voru I þeir tilbúnir að breyta ferðaáætlun sinni og halda til Evrópu að nýju? Jú, eftir að hafa heyrt málavöxtu i voru þeir tij í hvað sem var nema sjálfsmorð. í næsta skipti sem Gun steig á svið var það ekki fyrir fjögur hundruð manns á smáklúbbi heldur fimmtíu þúsund á Feyenoord-leik- vanginum í Rotterdam. Það er stórt stökk fyrir smáhljómsveit frá Glas- gow. Prefab Sprout Prefab Sprout: Plata á næsta leiti Hljómsveitin Prefab Sprout hef- að kynna naíh nýju plötunnar. ur ekki sent írá sér almennilega Hins vegar kvaöst hann vera að plötu í háa herrans tíö. Ekki frá reyna að fá að semja tónlistina við því að From Langley Park to næstu kvikmynd Warrens Beatty. Memphis kora út árið 1988. Senn Sú á að fjalla um ævi milljarða- verður breyting þar á. Paddy mæringsins Howards Hughes. McAloon tilkynnti nú nýverið að Paddy McAloon hefur lengi verið ný piata kæmi út í ágústmánuði. einlægur aðdáandi Beattys. Sá síð* Upplýsingar um þessa nýju plötu arnefndi hefur enn ekkert gefiö út eru enn af skornum skammti. á hugmyndina um aö fá Paddy McAloon hirti ekki einu sinni um McAloon til liðs við sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.