Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
Fréttir
Áætlanir um aö Kópavogur hætti rekstri leikskóla 1 Kópaseli:
Við erum ævareið og
mótmælum kröftuglega
- segirforeldrieinsbamsins
„Þegar foreldrar komu með börnin
sín í Kópasel eftir sumarfrí fengu
þeir framan í sig bréf frá dagvistun-
arfulltrúa Kópavogsbæjar þar sem
tíundað er að viðræður við svokall-
aðan Valdorf-hóp pm yfirtöku á
rekstri leikskólans væru í gangi.
Kom fram að við ættum þó kost á 10
plássum í Kópaseli eftir breytingam-
ar en leikskólinn yrði rekinn á veg-
um Valdorf-hópsins. Það sem við,
foreldrar barnanna í Kópaseh, erum
mjög óánægð með er hvernig staöið
er að þessu máh af hálfu bæjarins.
Þaö er eins og að einhver persóna
eða persónur hjá bænum vilji um-
fram allt loka leikskólanum. Við er-
um ævareið yfir þessu og mótmælum
kröftuglega öllum fyrirætlunum um
að leggja leikskólann niður á vegum
bæjarins," sagði foreldri barns í leik-
skólanum Kópaseh í samtaU við DV.
Kópasel er leikskóU sem starfrækt-
ur er af Kópavogsbæ. LeikskóUnn er
staðsettur i Lækjarbotnum og hefur
verið starfræktur þar í 11 ár. Þangað
er farið frá kjallara leikskólans
Kópasteins við Hábraut í Kópavogi á
hverjum morgni en ferðin tekur 25
mínútur. Leikskólinn Kópasel er sér-
stakur þar sem hann er staðsettur
langt frá ys og þys stórborgarum-
hverfisins. Að sögn þess foreldris
sem DV ræddi viö eru foreldrar
bama í Kópaseli mjög ánægðir með
leikskólann og starfsemina þar.
„Viö héldum fljótlega fund þar sem
dagvistarfulltrúi Kópavogs og for-
maður félagsmálaráös mættu. Það
var helst á máli dagvistarfulltrúans
að heyra að þetta væri þegar ákveð-
ið. Ástæöan fyrir þessu er sögð vera
sú að leikskólaþörf 4-5 ára barna sé
þegar fullnægt í Kópavogi og að
rekstur Kópasels væri dýr, sérstak-
lega þar sem leikskóUnn væri ekki
fullnýttur. Sannleikurinn er hins
vegar sá að foreldrar virðast ekki fá
að vita um Kópasel þegar þeir sækja
um leikskólapláss, ekki nema eftir
grát og gnístran tanna. Þannig var
um þriðjung foreldra á fundinum.
Svo verður að hafa í huga að Kópas-
el er gjöf frá Lionsklúbbi Kópavogs
til barna Kópavogs. Stofnkostnaður
var enginn og afborganir af lánum
engar. Við foreldrar borgum rútu-
ferðirnar en bærinn borgar matinn.
Varðandi tap á rekstrinum þá vitum
við ekki um neinn leikskóla sem rek-
inn er með hagnaði."
Eftir umræddan fund sendu for-
eldramir bréf til bæjarráðs um að
þeir vildu ekki að bærinn léti leik-
skólann af hendi til Valdorfs-hópsins.
Bæjarráð sendi málið til félagsmála-
ráðs og þar hefur verið fundað um
það. Foreldrið segir hins vegar að
fundargerð hafi ekki enn fengist af
fundinum og ekkert sé um svör,
hvorki um ákvarðanir né fyrirætlan-
ir Valdorf-hópsins. -hlh
Úttekt á tekjum lögfræöinga:
Guðjón Armann og
Jón Steinar í sérfiokki
- innheimta gefur betur en málílutningur
Tekjurá mán. '89 í þús. kr. Á verðl. ágúst'90í þús.kr.
Guðjón Ármann Jónsson hdl '. 1.335 1.547
Jón SteinarGunnlaugsson hrl 810 939
Sigurmar K. Albertsson hrl 560 649
VilhjálmurÁrnason hrl 510 590
EirlkurTómasson hrl 471 545
Gestur Jónsson hrl 413 479
ÁsgeírThoroddsen hdl 401 464
Jón Magnússon hrl 367 425
Þór Viihjálmsson hæstaréttardómari 245 283
Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttardómari 232 269
Hallvaröur Einvarðsson ríkissaksóknari 213 247
PállArnór Pálsson* hrl 209 242
Örn Clausen hrl 232 215
Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl 175 203
Arnmundur Backman hrl 165 191
SvalaThorlacius hrl 122 141
Jón Oddsson hrl 112 130
* Líklega áætlað á viðkomandi
Guðjón Ármann Jónsson er lan-
gefstur þeirra lögmanna sem DV
gerði úttekt á. Framreiknaðar tekjur
hans nema rúmlega einni og hálfri
milijón króna á mánuði. Guðjón er
þekktur innheimtulögmaður og hef-
ur m.a. séð um innheimtur fyrir ís-
landsbanka, marga stóra lífeyrissjóði
og aðra stærri lögaðila. Jón Steinar
Gunnlaugsson er hins vegar þektur
málflutningsmaður og er lítiö sem
ekkert í innheimtu.
Aðrir sem eru ofarlega á listanum
eru nær allir í innheimtu. Sigurmar
hefur unnið fyrir Ávöxtun og Ríkis-
útvarpið. Vilhjálmur Árnason hefur
séð um innheimtu fyrir Landsbank-
ann og Sameinaða verktaka. Eiríkur
Tómasson er bróðursonur Vilhjálms
en þeir eru saman með lögmanna-
stofu. Gestur Jónsson hefur verið
nefndur „bústjóri íslands" og Ásgeir
Thoroddsen er þekktur innheimtu-
lögmaður. Jón Magnússon er þekkt-
ur málflutningsmaður en hann er
kannski ekki síður þekktur sem fast-
eignasali.
I fyrri dálkinum eru sýndar skatt-
skyldar tekjur á mánuði árið 1989. í
seinni dálkinum eru þessar sömu
tekjur sýndar framreiknaðar til
verðlags í ágúst 1990. Þá er miðað við
hækkun framfærsluvísitölu sem
nemur 15,86% frá meðaltali ársins
1989 tfl ágústmánaðar 1990. Ekki má
blanda saman hugtökunum tekjur
og laun og einnig verður það að vera
ljóst að seinni dálkurinn sýnir fram-
reiknaðar tekjur í fyrra, ekki tekjur
þessara aöila í dag. Þá verður að
hafa í huga aö margir þessara aðfla
eru í raun fyrirtæki frekar en ein-
staklingar.
-pj
Tillaga hjá Sameinuöum verktökum:
2,1 milljarður til eigendanna
Á hluthafafundi Sameinaðra verk-
taka kom fram tillaga um að greiða
út 2,1 milljarö af eigum fyrirtækisins
tfl hluthafa. í henni felst því ekki
einungis að greiða 1.340 mflljónimir
út, sem fyrirtækið fékk úr íslenskum
aðalverktökum, heldur 760 milljónir
til viðbótar. Hlutahafafundurinn vís-
aði þessari tillögu til stjómar.
Eins og komið hefur fram greiddu
eigendur íslenskra aðalverktaka sér
út 2,4 milljaröa af eignum fyrirtækis-
ins. Ef þessi tillaga nær fram að
ganga munu 3.160 milljónir verða
greiddar út af uppsöfnuðum auð
þessara tveggja fyrirtækja.
Ef þessir fjármunir yrðu greiddur út
úr Sameinuðum verktökum fengi
stærsti hluthafinn, Reginn, 157 milljón-
ir í sinn hlut. Við uppstokkun íslenskra
aðalverktaka fékk Reginn, eða Sam-
bandið sem á Regin, 670 milljónir. Ef
stjóm Sameinaðra verktaka sam-
þykkti þessa tillögu fengi Sambandið
þvi 827 milljónir alls í sinn hlut.
Aðrir hluthafar í Sameinuðum
fengju allt frá 210 þúsund krónum upp
í 147 milljónir. Sá einstaklingur sem á
stærstan hlut, Þorkell Ingibergsson,
fengi um 47 milljónir. Thor Ó. Thors,
forstjóri íslenskra aðalverktaka, sem á
frekar stóran hlut einstaklings, fengi
uml9milljónir. -gse
Frá leikskólanum Kopaseli við Lækjarbotna. Uppi eru fyrirætlanir um að
svokallaður Valdorf-hópur yfirtaki reksturinn en foreldrar virðast lítt hrifnir
afþví. DV-mynd Brynjar Gauti
Nýtt skip í flota Akureyringa:
Ú A kaupir frysti-
togarann Aðalvík
- kaupverðið á milli 400 og 500 milljónir króna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyii
Eftir helgina mun nýtt skip bætast í
flota Akureyringa en þá verður end-
anlega gengið frá kaupum Útgerðar-
félags Akureyringa hf. á frystitogar-
anum Aðalvík sem verið hefur í eigu
Hraðfrystistöðvar Keflavíkur. Tog-
arinn er rúmlega 500 tonn að stærð
og með honum fylgir kvóti sem er
ríflega 2000 þorskígildi í tonnum tal-
ið.
„Þessi kaup bæta nýtinguna hjá
frystihúsi okkar verulega, en áform-
að er að gera skipiö út á ísfiskveið-
ar,“ sagði Pétur Bjarnason, formaður
stjórnar Útgerðarfélags Akur-
eyringa, í samtah við DV í gær-
kvöldi. Hann sagði að fyrirtækið
hefði keypt togarann Sólbak fyrir
þremur árumi þaö væri gamalt skip
sem væri að komast á tíma og þegar
honum yrði lagt myndi kvóti á hina
togara félagsins aukast.
Að sögn Péturs greiðir ÚA á milli
400 og 500 milljónir króna fyrir Aðal-
víkina. Skipið er byggt í Japan 1973
en hefur verið mikið endurbyggt.
Kristinn Einarsson varð að hætta í miðju Hvalíjarðarsundi:
Komst ekkert áfram
vegna öldugangsins
Sigurður Sveriisson, DV, Akranesi:
„Ég komst ekkert orðið áfram fyrir
ölduganginum því öll mín orka fór í
það að synda upp úr öldudölunum.
Ég var kominn um það bfl kílómetra
út á íjöröinn en bar hratt af leið
þannig að sundið varö miklu lengra
en ég ætlaði. Ég taldi því ráðlegast
að snúa við og freista þess aö gera
aðra tilraun í næstu viku,“ sagði
Kristinn Einarsson, ofurhugi af
Akranesi, er DV ræddi við hann í
gærkvöldi.
Óhagstæð veðurskflyrði urðu öðru
fremur til þess að Kristni tókst ekki
að synda yfir Hvalfjörð í gær eins og
hann ráðgerði. Þegar Kristinn tók
land á ný var hann kominn 2 kíló-
metra vestur fyrir Grundartanga.
Þá spilaði það einnig inn í ákvörð-
un hans að snúa við að enginn fylgd-
arbátur var meö í fórinni eins og fyr-
irhugað var.