Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
3
>v_______________________________________________Fréttir
Sveinn Asgeirsson, framkvæmdastjóri Hringrásar:
Betra að hafa rafgeymana hjá
okkur en graf a þá á haugunum
- höfum flutt út hundruð tonna af rafgeymum árlega
„PCB-málið er búið að stórskaða
okkur og ímynd okkar er orðin mjög
veik gagnvart almenningi. Það er
eins og að við séum mestu skaðvald-
ar sem til eru í umhverfinu en það
er öðru nær. Við erum búnir að
stunda þessa starfsemi í áratugi og
höfum flutt fleiri þúsundir tonna af
rafgeymum úr landi og heildarút-
flutningur á brotajárni og málmum
er kominn yfir 200 þúsund tonn. Við
sóttum um starfsleyfi í fyrra og höf-
um ekki fengiö það enn. Það er svolít-
ið kaldhæðnislegt þegar haft er í
huga hve mikið þetta fyrirtæki hefur
lagt fram í umhverfismálum. Það er
hvergi annars staðar tekið á móti
rafgeymum. Vissulega er aðstaðan
niðri í Sundahöfn ekki eins og við
vildum hafa hana en það er verið að
byggja hana upp. Það er hins vegar
erfitt þegar við vitum ekki hvort við
fáum að starfa eða ekki. Einhvers
staðar verða vondir hlutir aö vera
og það er leiðinlegt ef á að fara að
hengja okkur fyrir þessa rafgeyma,“
sagði Sveinn Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Hringrásar, í samtali
við DV.
DV sagði í gær frá haug af rafgeym-
um sem hggja óvarðir á svæði Hring-
rásar við Sundahöfn. Lekur sýra í
jarðveginn og við geymana hafa börn
verið að leik. Lýstu viðmælendur hjá
Hollustuvernd og Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur því báðir yfir að ástand-
ið væri óviöunandi. Þaö kom einnig
Akureyri:
Flett ofan
af þjófagengi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur upplýst nokkurn fjölda inn-
brota sem framin voru í bænum og
utan hans í sumar.
Sömu aðilar voru að verki í þessum
innbrotum, ýmist tveir eða þrír sam-
an, menn rétt innan við tvítugt. Þeir
játuðu m.a. tvö innbrot í verslunina
Esju, önnur tvö í Myndbandaleigu
kvikmyndahúsanna, í veitingahúsið
Hlóðir og Steinhólaskála í Eyjafirði.
Yfirleitt höfðu þeir ekki mikið upp
úr krafsinu, en þessir menn hafa
áður komiö við sögu hjá lögreglunni.
Tónlistar-
dagar í Holti
Söngnámskeið á vegum hinnar
heimsþekktu Wagner-söngkonu frú
Hanne-Lore Kuhse frá Berlín verður
haldið í Holti í Önundarflrði dagana
5.-18. september næstkomandi.
Kennslan mun fara fram í sal Hjálms
hf. á Flateyri en nemendur munu
dvelja í barnaskólanum í Holti.
Námskeiðið verður haldið undir
nafninu „Tónlistardagar í Holti“ en
auk námskeiðsins verður ýmislegt
fleira á döfinni. Verða haldnir tón-
leikar auk þess sem nemendum mun
gefast kostur á að skoða óperur og
tónleika af myndböndum. Nám-
skeiðinu lýkur síðan með tónleikum
þátttakenda og er stefnt að því að
halda þá víðar á Vestfjörðum.
Þegar hafa fjölmargir skráö sig til
þátttöku á námskeiðinu en mikill
fengur þykir að komu þessarar
frægu Wagner-söngkonu til landsins.
Að Tónlistardögum í Holti stendur
Ágústa Ágústsdóttir, prestsfrú í
Holti, en hún hefur áður staöið fyrir
söngnámskeiðum þar vestra. -hlh
fram að Hringrás hefði ekki fengið
umbeðið starfsleyfi, með ákvæðum
um meðferð mengandi efna. Það er
vegna þess að rannsókn á PCB-
mengunarmálinu frá í fyrra, þegar
spennaolía lak í jarðveginn hjá
Hringrás, er enn ekki lokið. Er málið
strandað í kerfinu þar sem deilt hef-
ur verið um hver ætti að greiða
kostnaðinn við að ljúka rannsókn-
inni. Hefur Hollustuvernd ekki haft
peninga til þess.
„Þetta mál er búið að vera að velkj-
ast í kerfinu og eiginlega vitum við
sjálfir minnst um hvar það er statt
núna.“
Sveinn segir að það standi til að
ljúka við að girða svæðið af. Fram-
kvæmdir í næsta nágrenni eins og
byggingarvinna, framkvæmdir við
Viðeyjarbryggju og breytingar á að-
komu inn í fyrirtækið hafi tafið það
verk.
„Það verður aö koma fram að ein-
hvers staðar verða þessir rafgeymar
að vera og það er betra að þeir séu
hjá okkur um stundarsakir áður en
þeir eru fluttir úr landi heldur en að
þeir séu grafnir uppi á sorphaugum.
Þó menn séu almennt orðnir um-
hverfissinnaðir má það ekki lenda á
skökkum aðilum. Við höfum verið
umhverfissinnaðir í áratugi en í raun
aldrei fengið neitt nema skömm í
hattinn fyrir að standa í þessu. Það
er spuming hvort það borgar sig að
standa í úflutningi á rafgeymunum
og því má líta á starfsemi okkar sem
hugsjónastarfsemi. ‘1
-hlh