Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
Fréttir
Grænlend-
ingar vilja
hvalveiði-
samstarf
Grænienska landstiómin er
óánægð meö stjórn Dana á hval-
veiðimálum og vill nú fara sínar
eigin leiðir. Grænlendingar eru
ósáttir við algera Mðun hvala og
voru ósáttir viö hversu Iinir Dan-
ir voru á fundi Alþjóða hvalveið-
iráðsins í Hollandi á dögunum.
Landstjómin telur hvalveiði-
stofna þola ákveðna veiöi og vilja
sumir fara út í hvalveiðisamstarf
milli Grænlands, íslands, Noregs
ogFæreyja. -pj
Akureyri:
„Karnivali“
Kolaportsins
hafnað
Gylfi Eristjánsson, DV, Akureyii
Bæjarráð Akureyrar hafnaöi
erindi frá Kolaportinu í Reykja-
vík sem óskaöi eftir aðstoð bæjar-
yfirvalda við skipulagningu og
framkvæmd þess að koma upp
sérstöku markaðstorgi „kamiv-
al“ á Akureyri í ágúst á næsta ári.
Bæjarráð sá ekki ástæöu tll að
verða við erindinu, en vísaöi því
áfram til íþróttafélagsins Þórs
sem hefur rekiö hliðstæða starf-
semi í bænum.
Norðanáttin
komin
Segma Thorarensen, DV, Qogri:
Hér er farið aö kólna enda kom-
in noröanátt og rigning hefur
verið siðustu daga. Margir bænd-
ur vom langt komnir með hey-
skapínn, sem hér stendur oftast
yfir í 15-20 daga með öllum nú-
tíma heyvinnslutækjum, en gras-
iö þarf að vera grasþurrt, þegar
því er keyrt í flatgryfjumar, til
að fá fyrsta fiokks fóður.
DV
Sveitarfélögin búin að sýna spilin 1 álmálinu:
AUantsál vill fá
tilbúna lóð oq höf n
- iðnaðarráðuneytið með áhyggjur af undirboðum sveitarfélaganna
Staðirnir þrír sem sækjast eftir
álveri eru nú búnir að sýna viðræðu-
nefnd Atlantsálshópsins spilin sín og
er ekki gert ráð fyrir fleiri fundum
þeirra í milli en þessir aðilar rædd-
ust við á þriðjudaginn.
Fundurinn fór fram með þeim
hætti að fulltrúar staðanna þriggja,
Reykjaness, Eyjafjarðar og Reyðar-
fjarðar, komu inn á teppi Atlantsál-
manna hverjir í sínu lagi og vom
krafðir um tilboð. Tilboðin geta þó
engan veginn tahst bindandi, enda
aöilar ekki með slík umboð, en sveit-
arfélögin hafa gengið frá sínum hug-
myndum í formi viljayfirlýsinga.
Samkvæmt heimildum DV settu
Atlantsálmenn fram óskir um að
fasteignagjöldin yrðu lægri en gert
var ráð fyrir. Gert var ráð fyrir aö
fasteignagjöldin gæfu um eina millj-
ón dollara af sér á ári eða um 57
milljónir króna. Er þá miðað við
200.000 tonna álver. Þó að menn séu
sammála um að fasteignagjöldin
skipti ekki höfuðmáh þá eru þau
hluti af heildinni. Þá má geta þess að
í minnispunktum ráðuneytisins frá
því í upphafi viðræðnanna var rætt
um fasteignagjöld upp á 75 milljónir
þannig að þessi upphæð hefur stöð-
ugt veriö að lækka.
Vilja leigja hafnaraðstöðu
Þá munu Atlantsálmenn hafa lagt
fram óskir um að sveitarfélögin
tækju að sér að skila tilbúinni lóð
og höfn. Ekki er fullkomlega ljóst
hvort þeir greiða fyrir undirbúning
lóðarinnar en þeir vilja fá hana í því
ástandi að hún sé tilbúin til bygging-'
ar. Munu Eyfirðingar allavega ætla
sér aö láta Atlantsál greiða fyrir lóö-
araðstöðuna enda yrði væntanlega
dýrast að undirbúa lóð þar.
Fyrirtækið hefur að sjálfsögðu
möguleika á að gera höfnina en vill
gjarnan draga úr fjárfestingarkostn-
aði og láta sveitarfélögin um það og
greiða síðan bara leigu fyrir not af
höfninni. Iðnaðarráðuneytið mun
þegar í upphafi viðræðnanna hafa
tilkynnt að hver og einn staður yrði
að semja um hafnaraöstöðu, það er
að segja að engin ríkisstyrkur yrði
til hafnarframkvæmdanna.
Mun láta nærri aö höfn við Keilis-
nes á Reykjanesi kosti 15 milljónir
dollara eða 855 milljónir króna. Gert
er ráð fyrir hafnir við Eyjafjörð og
Reyðarfjörð kosti 7 mhljónir dollara
eða 400 til 450 milljónir króna. Rétt
er að taka það fram að ástæðan fyrir
þvi hve dýr höfnin viö Keilisnes er
er meðal annars sú að þar þarf að
byggja grjótgarð upp á 160 milljónir
króna. Suðurnesjamenn telja síðan
að sá mismunur sem eftir er skýrist
einfaldlega með því að þeir ætli að
gera betri höfn.
Einnig má geta eins kostnaðarhðar
í viðbót en það er vegagerð og vatns-
lagnir vegna verksmiðjunnar. Þetta
er eitt af því sem þarf að' komast að
samkomulagi um en hins vegar þarf
ekki að hafa áhyggjur af aðstöðu-
gjöldunum því þau verða ekki lögð á
verksmiðjuna.
Ráðuneytið með áhyggjur
vegna undirboða
Samkvæmt heimildum DV mun
iðnaðarráðuneytið hafa nokkrar
áhyggjur vegna undirboða sveitarfé-
laganna enda ljóst að þau leggja mik-
ið kapp á að fá verksmiðjuna til sín.
Mun ráðuneytið hafa stungið upp á
að menn reyndu að koma saman og
samræma sjónarmið sín til að forð-
ast það að undirboð þess, sem endan-
lega hreppi hnossið, valdi honum
óbætanlegs skaða. Var shkur fundur
á mánudaginn.
Þetta er hins vegar tahð nokkuð
viðkvæmt gagnvart Atlantsálfyrir-
tækinu sem vhl auðvitað að sem
mest samkeppnrYíki. Mun heldur
ekki hafa verið ætlunin að láta þá
vita af þessum fundi.
-SMJ
Umferð vélhjóla bönnuð í Hrísey
- umferðvinnuvélatakmörkuð
o
„Hávaði, sem stafar af umferð vél-
hjóla, hefur verið áratugavandamál
hér í Hrísey. í sumar má segja að það
hafi keyrt um þverbak því hér hafa
veriö þrjú vélhjól á ferðinni og sum
þeirra meö ólöglega útbúna hljóð-
deyfa. Þaö hefur mikiö verið kvartað
vegna þessara hjóla og þau hafa sett
leiðinlegan svip á bæinn,“ segir Jó-
hann Þór Hahdórsson, oddviti í Hrís-
ey.,
„A stað eins og Hrísey, þar sem
mikh kyrrð ríkir, getur eitt mótor-
hjól verið mikill friðarsphlir. Hávað-
inn, sem berst frá slíku tæki, virðist
miklum mun meiri í kyrrðinni en á
stað þar sem stöðugur erhl ríkir. Það
var því ákveðið samhljóða í hrepps-
nefndinni að banna umfeÆ vélhjóla
og torfærutækja um eyna og tak-
marka umferð vinnuvéla. Bannið
hefur enn ekki tekið ghdi en er í
undirbúningi.
Það ghdir í raun og veru sama um
vinnuvélamar og hjólín. Þær valda
hávaða. Það var því ákveðiö í hrepps-
nefndinni að takmarka umferð
þeirra. Til dæmis verður bannað að
aka um nokkrar götur í þorpinu á
vinnuvélum og það má ekki hreyfa
þær eftir ákveðinn tíma á kvöldin.
Hins vegar má segja að með þessum
ákvæðum sé fyrst og fremst verið að
vekja fólk th umhugsunar um að
nota þessi tæki ekki meira en nauð-
syn ber th og sphla ekki þeirri kyrrð
sem hér ríkir. Hrísey hefur orð á sér
meðal ferðamanna fyrir að vera
kyrrlátur staður og viö vhjum ekki
sphla því orðspori.
Bönn eru alltaf neyöarúrræði en
það hefur allt verið gert til að benda
ökumönnum vélhjólanna á aö valda
ekki hávaðaspjöllum hér í eynni en
þeir hafa ekki látið segjast. Hávaði
af völdum vinnuvéla og vélhjóla er
mesta umhverfisvandamál sem við
höfum átt viö að glíma hér í Hrísey
th dagsins í dag og því ráðlegt að
grípa strax í taumanna,"
-J.Mar
í dag mælir Dagfarí____
Saddam er bandamaður
Heimspressan og skammsýnir
stjómmálamenn víða um heim
hafa verið að uppnefna Saddam
Hussein, forseta Iraks, og kaha
hann böðulinn frá Bagdad eða Hitl-
er okkar tíma. Sagðar em hryh-
ingssögur af mannvonsku hans og
stþrveldin hafa sameinast í því aö
fordæma innrásina í Kuwait. Gjör-
völl heimsbyggðin hefur tekið
höndum saman um að einangra
Saddam Husein og írak og Banda-
ríkjamenn safna nú tugþúsunda
hérliði við landamæri Iraks og
Saudi-Arabíu.
Miðað við hvað þessi maður er
vondur og ef mark er tekið á öllum
yfirlýsingunum um valdagræðgi
hans og eyðheggingarmátt, skýtur
skökkvu viö að enginn leggur í
hann. Saddam Hussein hefur ráðist
á Kuwait en enginn treystir sér til
að ráðast aftur á Saddam. Maöur-
inn situr á stærstu olíulindum
heims en enginn blakar við honum.
Landið er sett í herkví, en nú em
þeir að rífast um það hjá Samein-
uðu þjóðunum, hvort hafnbanninu
megi fylgja eftir með hervaldi! Það
þorir enginn aö leggja til atlögu við
þennan einmana olíufursta og
heimurinn stendur máttvana gagn-
vart stríðsreksM hans. Einu vopn-
in sem menn hafa á hann eru níð-
skrif og hatursáróður, sem auövit-
að berst aldrei th íraks, því landinu
hefur verið lokað í báöar áttir.
Spumingin er hvort Saddam Hus-
sein hafi hugmynd um þaö að sam-
anlagðar þjóðir heims hafa formælt
honum og Dagfara er th efs að ír-
aksforseti hafi einu sinni hugmynd
um það hvað hann er vondur mað-
ur.
Meðan menn bíta í skjaldarrend-
ur án þess að hafast frekar að og
meðan sérfræðingar og stjóm-
málamenn tíunda afleiðingamar
af þessu stríðsástandi fyrir botni
Persaflóa, er rétt að minna á að hér
uppi á íslandi em th menn sem
gráta krókódhstámm. Það em ekki
allir sem fara hla út úr olíustríðinu.
Fyrir þaö fyrsta gefur augaleið
að raforkan úr íslensku fossunum
mun snarhækka í veröi og veröa
eftirsóttari þegar olíuskorturinn
fer að segja til sín. íslendingar
standa í viðræðum við Atlantal-
hópinn um stóriðju og sölu á raf-
orku og Saddam Hussein hefur
heldur betur fært okkur búhnykk-
inn með árásinni á Kuwait. Þá má
ekki gleyma því að olíuverðs-
hækkanir í útlöndum um stundar-
sakir gefa mörgum atvinnurekand-
anum kærkomið tækifæri til að
hækka hjá sér útsöluverðið á þeirri
forsendu að innkaupsverðið
hækki. Útgerðin, flugfélögin, olíu-
félögin og hvers konar iðnaðar-
framleiðendur geta nú skotið sér á
bak viö aukinn kostnað, sem rak-
inn veröur th meintrar hækkunar
á olíunni, og þannig geta menn
kastað öhum sínum syndum á bak
við olíuna og verðlagshækkanir
komist í eðlhegt horf. Það hefur
engin hemja veriö í verðstöðvun-
inni og verðlaginu eftir að menn
fóru að tala um þessa déskotans
þjóðarsátt. Saddam Hussein hefur
komið þjóðarsáttinni fyrir kattar-
nef.
Bandalag háskólamenntaðra rík-
isstarfsmanna getur sömuleiðis
þakkað Saddam Hussein liðveisl-
una. Nú mun framfærslan rjúka
upp fyrir rauðu strikin og háskóla-
menn munu fá sína langþráöu
kauphækkun, sem þeir hafa krafist
þvert ofan í allar verðbólguspár.
Háskólamönnum kemur ekki við
þótt verðbólgan vaxi né heldur þótt
aðrir fái hækkanir. Þeir vhja fá sitt
kaup og engar refjar. Og fá svo
átómatiskt hækkanir þegar hinir
fá hækkanir í kjölfarið á olíuverðs-
sprengingunni frá Saddam. Innrás-
in í Kuwait er mikh himnasending
fyrir íslensku skæruliðana í BHMR
og Hinu íslenska kennarafélagi.
Það segir þeim að enda þótt heim-
urinn geri tilraun th að einangra
einn mann, eina þjóð eða einn hóp
i þjóðfélaginu og sameinist um að
tala iha um þennan hóp, þá þorir
enginn að leggja í hann ef hópurinn
er nógu hortugur og frakkur og
býður öðrum birginn.
Saddam Hussein er iha umtalað-
ur og útskúfaður. Bandalag há-
skólamenntaðra ríkisstarfsmanna
situr í sams konar súpu hér uppi á
íslandi, en sér nú væntanlega fram
á betri tíma í ljósi þeirrar reynslu
sem Saddam Hussein öðlast við að
fara sínu fram. Það leggur enginn
í hann.
Það kann að vera að Saddam
Hussein sé illa þokkaður annars
staðar. En hann á vissulega banda-
menn á íslandi. Og íslendingar eiga
bandamann í Saddam.
Dagfari