Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
5
Viðtalið
Fréttir
Heimsborga
flakkari
Nafn: Jakob Bragi
Hannesson
Aldur: 33 ára
Staða: Kennari og fram-
kvæmdastjóri Reykjavík-
urmaraþons
„Skipulagning hlaupsins er
komin á lokastig og allt hefur
gengið mjög vel. Við vonum bara
að það verði metþátttaka og að
veðrið leiki viö okkur. Þegar eru
um 500 hundruð manns búin að
skrá sig en við vonumst eftir allt
að 1500 manns,“ segir Jakob
Bragi Hannesson, framkvæmda-
stjóri Reykjavíkurmaraþonsins
sem haldið verður sunnudaginn
19. ágúst.
„Ég vil hvetja fólk til þess að
skrá sig sem fyrst í hlaupið því
að eftir daginn í dag tvöfaldast
þátttökugjaldið. Hægt er að velja
um að hlaupa þrjár vegalengdir.
í skemmtiskokkinu hlaupa þátt-
takendur 7 kílómetra, 21 í hálfa
maraþoninu og 42 í því heila.“
A tvíburasystur
Jakob Bragi fæddist i Bonn í
Vestur-Þýskalandi. Foreldrar
hans, Hannes Jónsson og Karin
Waag, unnu þá í sendiráðinu þar.
Jakob á tvíburasystur og fimm
önnur systkini. Tveimur vikum
eftir fæðingu tvíburanna flutti
íjölskyldan til London þar sem
Jakob bjótil fjögurra ára aldurs.
„Ég bjó svo á íslandi þangað til
að ég varð átta ára en þá fluttum
við til Moskvu. Mér likaði ákaf-
lega vel í Moskvu. Ég fór í rúss-
neskan barnaskóla þar og kann
því svolítið í rússnesku.
Þegar ég var tólf ára flutti ég
aftur til Islands. Til nítján ára
aldurs fór ég þó alltaf á sumrin
til Moskvu því að faðir minn var
svo lengi þarna.“
Kennir víða um land
Jakob gekk í Gagixfræðaskól-
ann í Kópavogi og síðar í Mennta-
skólann í Kópavogi. „Eftir stúd-
entspróf kenndi ég á Vopnafirði
og Djúpavogi og fór svo í Kenn-
araháskóla íslands."
Jakob útskrifast úr Kennarahá-
skólanum árið 1982 og hefur síð-
an starfað vítt og breitt um landið
við kennslu, meðal annars í
Reykjavík, á Egilstöðum og nú
síðast á Hellu.
Jakob segist vera mikill áhuga-
maður um íþróttir og þá sérstak-
lega langhlaup.
„Ég hef yflrleitt hlaupið sjálfur
í þessu Reykjavikurmaraþoni en
þetta er í fy rsta skipti sem ég stýri
því. Mér bauðst þetta starf og ég
sló til. Þetta er spennandi verk-
efni og mér hefur alltaf þótt gam-
an að prófa eitthvað nýtt.“
Fyrir utan íþróttimar segist
Jakob lesa mikið og að auki hefur
hann gaman af ferðalögum og
hefur ferðast taisvert á erlendri
grundu.
Jakob á einn son, Guðjón Berg
sem er 12 ára gamall.
-BÓl
Hafrannsóknastofnun Islands:
Engin loðnuleit fyrr en í haust
- segir Jakob Magnússon
„Skip Hafrannsóknastofnunar
hafa ekki verið við loðnuleit í sumar,
þau eru í öðrum verkefnum. Þau eru
nú við seiða- og sjórannsóknir og
munu í þeim leiðöngrum leita að árs-
gamalli loðnu. Það hefur ekki verið
venja undanfarin ár að skip stofnun-
arinnar væru við loðnuleit á sumrin
- þau hafa ekki farið að leita að loðnu
fyrr en í október og nóvember," seg-
ir Jakob Magnússon, fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun íslands.
Það var 1. ágúst síðast liðinn sem
loðnuvertíðin hófst formlega. Enn
sem komið er hefur einungis eitt skip
farið til loðnuleitar, það var Hólma-
borgin frá Eskifirði. Skipverjar leit-
uðu á miðunum 150 mílur norður af
Langanesi en fundu enga loðnu.
Skýringuna á því að loðnan léti ekki
sjá sig töldu skipverjar meðal annars
liggja í því aö hitastig sjávar væri
óvenjuhátt miðað við árstíma. „Það
liggur ekkert fyrir um hvort hitastig
sjávar er hærra en í meðalári. Hita-
stigið er einn af þeim þáttum sem við
erum að rannsaka núna. Það mun
svo koma í ljós síðar hvort hitastigið
á þátt í því að loðnan hefur ekki enn
látið sjá sig,“ segir Jakob.
-J.Mar
[UNDADAGA
UTSALAIJAPIS
A hundadagaútsölunni í Japis er allt aö 50% verðlœkkun
á eigulegustu munum, svo sem...
HLJÓMTÆKI: SAMSTÆÐUR ■ VIDEOTÖKUVÉLAR
ÖRBYLGJUOFNAR
Panasonic SG HM30, 2x20 W, fjarst.
Verð var 42.600,- NÚ 29.000,-
Technícs X 900, 2x60 W, fjarst.
Verð var 65.900,- NÚ 39.900,-
Technícs X 920, 2x80 W, fjarst.
Verð var 81.800,- NÚ 49.900,-
Sony XOD 101, 2x40 W.
Verð var 51.700,- NÚ 39.900,-
(Allar samstæðurnar eru án geísla-
spilara.)
MYNDSEGULBANDSTÆKI
Sony CCD F 250, fullkomin 8 mm hand-
hæg tökuvél.
Verð var 95.400,- NÚ 69.900,-
Sony CCD V95, mjög fullkomin og vönd-
uð 8 mm tökuvél.
Verð var 159.500,- NÚ 99.900,-
Panasoníc NV MC 30 VHS C hi-fi stereo-
myndavél.
Verðvar 111.000,- NÚ 89.000,-
SJÓNVARPSTÆKI
Panasoníc NV L28, digítal PAL/NTSC af-
spilun o.fl. o.fl.
Verð var 77.800,- NÚ 59.900,-
Samsung VK 8220, 3ja kerfa tæki.
Verð var 51.200,- NÚ 39.900,-
GEISLASPILARAR
Samsung RE 576D, 17 1, 600 vött.
Verð var 23.500,- NÚ 13.750,-
Samsung RE 576TC, 17 I, 600 vött,
tölvustýrður.
Verð var 25.800,- NÚ 18.900,-
Panasoníc NN 5508, 20 I, 650 vött,
tölvustýrður.
Verð var 28.200,- NÚ 21.500,-
Panasonic NN 6207, 28 I, 700 vött.
Verð var 35.100,- NÚ 24.000,-
RYKSUGUR
Sony KV C2723, 27" skjár, nícam stereo,
teletext., Qarst. o.fl.
Verð var 159.000,- NÚ 129.000,-
Sony KV X21TD, 21" skjár, stereo, tele-
text., fjarst. o.fl.
Verð var 138.000,- NÚ 95.000,-
Panasonic TC 2185, 21" flatur skjár,
fjarst.
Verð var 73.650,- NÚ 52.600,-
Panasonic MCE 41, 600 vött.
Verð var 11.500,- NÚ 8.900,-
Panasonic MCE 97, 1100 vött.
Verð var 15.800,- NÚ 11.900,-
Sony D 20 ferðageislaspilari.
Verð var 24.700,- NÚ 14.900,-
Sony CDP 390' m/fjarst.
Verð var 23.300,- NÚ 15.900,-
Sony CDP 470, fullkominn
m/fjarst.
Verð var 25.900,- NÚ 19.900,-
Technícs SLP 202
Verð var 27.300,- NÚ 19.900,-
Technics SLP 222 m/fjarst.
Verð var 34.600,- NÚ 25.900,-
ATH.! Verðið er staðgreíðsluverð
spilarí
UTSALAN I FULLUM GANGI
JAPIS*
BRAUTARHOLTI2 - SÍMI625200