Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Page 8
Útlönd
Flóttamenn streyma
til Jórdaníu
Utanríkisráöherra iraks, Tareq
Aziz, sagði í viðtali við bandarískan
sjónvarpsfréttamann í Bagdad í gær
að fljótlega yrði tekin ákvörðun um
hvað gera skyldi við nokkra þeirra
þijú þúsund Bandaríkjamanna sem
eru í haldi í írak. Sagði ráðherrann
að Bandaríkjamönnunum, sem eru í
haldi á heimilum sínum eða á hótel-
um, yrði ekki gert mein.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði í gær að íraskir hermenn hefðu
hindrað hóp bandarískra stjórnarer-
indreka frá því að fara frá írak. Heíði
þeim veriö tilkynnt að sett yrðu ný
skilyrði fyrir brottflutningi þeirra.
Sovésk yfirvöld greindu frá því í
gær að yfirvöld í írak hefðu hindrað
yfir fimm þúsund sovéska borgara í
að yfirgefa írak. Sovéskar konur og
börn fá að fara úr landi en ekki karl-
menn.
Þeir útlendingar sem gátu
streymdu frá Kúvæt og írak til Jórd-
aníu í gær og kváðust margir þeirra
hafa sætt illri meðferð. Að sögn jór-
danskra embættismanna komu fjög-
ur þúsund útlendingar til landsins á
tólf klukkustundum. Meðal þeirra
voru tvö þúsund Egyptar, á fjórða
hundrað Jórdanir auk Sýrlendinga,
Indveija, Líbana, Pakistana, Filipps-
eyinga, Yemenbúa, Túnismanna og
Pólverja. Pólverjarnir voru einu Evr-
ópubúamir sem komu til Jórdaníu í
gær. Ferðamenn sögðu í gær að um
fjögur þúsund manns biðu við landa-
mæri Iraks eftir að komast til Jórd-
aníu.
Flóttamennirnir sögðu nokkra
hafa dáið í eyðimörkinni, sumir
hefðu villst og margir hefðu fest bíla
sína í eyðimerkursandinum.
Aö sögn Filippseyinganna, sem
komust yfir, vora þeir rændir öllum
verðmætum sínum og vegabréfum.
Reuter
Þessi kúvæska fjölskylda flúði frá Kúvæt gegnum eyðimörk Saudi-Arabíu
til Jórdaníu. Simamynd Reuter
Skaðast vegna
viðskiptabannsins
Ymis hlutlaus ríki, sem bíða efna-
hagslegt tjón vegna viðskiptabanns-
ins gegn Irak, eru nú sögð íhuga að
biðja Sameinuðu þjóðirnar, SÞ, um
aðstoð. Heimildarmenn innan Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna
greindu frá þessu í gær.
Hingað til hafa aðeins .yfirvöld í
Búlgaríu opinberlega greint frá því
að þau hyggist fara fram á aðstoð en
fleiri hafa lýst yfir áhyggjum sínum.
Er búist við að jafnvel Indland, Júgó-
slavía og Jórdanía muni biðja um
hjálp.
Yfirvöld í Búlgaríu hafa lýst yfir
fullum stuðningi við viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna gegn Irak. En
þau hafa jafnframt bent á rétt sinn
samkvæmt lagagrein Sameinuðu
þjóðanna þar sem kveðið er á um að
þau ríki sem bíði tjón vegna aðgerða
stofnunarinnar geti snúið sér til
hennar til að fá lausn á vanda sínum.
Skuld íraks við Búlgaríu er áætluð
1,2 milljarðar dollara og hefur verið
greitt af henni með olíu. Búlgarar
höfðu einnig flutt matvæli til Iraks
auk þess sem þeir höfðu staðið að
byggingarframkvæmdum.
Reuter
Flutningabíll á leið til íraks gegnum Jórdaníu. Með því að framfylgja við-
skiptabanninu gegn írak myndu Jórdanir skaða mjög eigin efnahag þar
sem þeir telja viðskiptin við íraka mikilvæg. En þeir segjast vera að kanna
hvernig hægt sé að f ramfylgja banninu. Simamynd Reuter
.{ f : : pp%|Y }. < “r, i p • r kytTjminMjr f
FIMMTUDAGUR 16. AGÚST 1990.
íraskur olíubíll brennur í Kúvætborg. Myndin var tekin i siðustu viku af óþekktum Kúvætbúa sem afhenti hana
breskum kaupsýslumanni. Simamynd Reuter
Bush heldur fast
við stef nu sína
Bandarískir fallhlífarhermenn við komuna til Saudi-Arabíu í gær. Alls eru
nú um sextíu þúsund bandarískir hermenn við Persaflóa. Símamynd Reuter
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur fjölgað í bandaríska herliðinu
við Persaflóa og era þar nú um sex-
tíu þúsund bandarískir hermenn.
Sólarhring áður en Hussein Jórdan-
íukonungur var væntanlegur til
sumardvalarstaðar Bandaríkjafor-
seta með skilaboð frá íraksforseta
tilkynntu yfirvöld í Washington að
þau ætluðu að senda um tuttugu Ste-
alth-orrustuþotur, þær sjást ekki á
radar, og eitt flugmóðurskip til við-
bótar til Persaflóa. Þótti augljóst að
Bandaríkjaforseti væri að marka
stefnu sína fyrir viðræðumar við
Jórdaníukonung.
í ræðu í gær sagði Bush að upp-
bygging heraflans við Persaflóa, sem
kostar sjö þúsund dollara á mínútu
að því er áætlað er, væri ekki aðeins
til að veija Saudi-Arabíu heldur
einnig til að koma íröskum her-
mönnum frá Kúvæt og koma emírn-
um af Kúvæt aftur til valda. Bush
kallaði íraksforseta lygara og morð-
ingja.
Sendiherra íraks í Washington
sagði í gær að Hussein Jórdaníukon-
ungur væri með leynileg skilaboð til
Bush Bandaríkjaforseta frá Saddam
Hussein íraksforseta. Sagðist sendi-
herrann ekki vita um innihald bréfs-
ins en gat þess þó að nú gæti verið
síðasta tækifærið til að koma í veg
fyrir stríð. Á sunnudaginn stakk ír-
aksforseti meðal annars upp á því
að arabískir hermenn kæmu til
Saudi-Arabíu í stað þeirra banda-
rísku.
Vígstaðan í Miðausturlöndum þótti
í gær hafa breyst talsvert eftir að
íraksforseti bauð írönum friðar-
samninga. Með boði sínu virtist for-
setinn vera að tryggja sér flutninga-
leið til íraks austan frá auk þess sem
hann vill hafa fleiri hermenn til taks
gegn Vesturlöndum. Saddam Hus-
sein bauðst til þess í gær að kalla
íraska hermenn heim frá því svæði
í íran sem írakar hemámu í Persa-
flóastríðinu. Hann bauðst einnig til
að viöurkenna landamærasamning
ríkjanna frá 1975 um Shatt al-Arab
siglingaleiðina auk þess sem hann
kvaðst ætla að leysa úr haldi alla
íranska stríðsfanga. Saddam Huss-
ein hefur einnig látið lausa smábófa
í írak til að geta fjölgað í herliði sínu.
Mikill fógnuður ríkti í íran við
fregnina og líta íranir á friðarvið-
leitni íraksforseta sem sigur. írönsk
yfirvöld hafa fordæmt innrásina í
Kúvæt en þau hafa einnig fordæmt
veru erlends herafla á Persaflóa.
Sérfræðingar telja ólíklegt að íran-
ir muni veita írökum vopnaða að-
stoð. Sumir sérfræðingar segja að nú
muni írakir ef til vill reyna að sann-
færa írani um að leyfa flutning á
vörumtilogfráírak. Reuter
Skotnar til bana í Saudi-Arabíu
Bandarísk kona og tíu ára dóttir
hennar vora skotnar til bana í Riy-
adh í Saudi-Arabíu á þriðjudags-
kvöld í átökum milli lögreglu og eit-
urlyfjasala sem rændi bíl þeirra, að
því er segir í fréttum saudi-
arabískrar fréttastofu í morgun. Lög-
reglan náði eiturlyfjasalanum.
Starfsmenn bandaríska sendiráðs-
ins í Saudi-Arabíu greindu frá því
að konan hefði verið sex bama móð-
ir og hefði hún búið í Saudi-Arabíu
í sjö ár ásamt manni sínum og börn-
um. Að sögn bandarísku sendiráðs-
starfsmannanna var atvikið á þriðju-
dagskvöld i engum tengslum við upp-
byggingu bandarísks herafla í
Saudi-Arabíu. • Reuter