Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
9
Útlönd
De Maiziere hreinsar til í austur-þýsku stjórninni:
Vill reka þá sem
segja meiningu sína
- segir Wolgang Thierse, formaður jafnaðarmanna
Landbúnaðarráherrann Peter Pollack varð að víkja úr austur-þýsku stjórn-
inni eftir viðtæk mótmæli bænda. Símamynd Reuter
„Það eru grundvallarmistök hjá
foræstisráöherranum ef hann telur
sig geta leyst öll vandamál með því
að reka þá sem þora að segja mein-
ingu sína,“ sagði Wolfgang Thierse,
formaður flokks jafnaðarmanna í
Austur-Þýskalandi, á fréttamanna-
fundi eftir að fjórir ráðherrar höfðu
vikið úr stjórninni.
Tveir af ráðherrunum urðu að
víkja vegna ágreinings innan stjórn-
arinnar um tilhögun sameiningar-
innar við Vestur-Þýskaland en hin-
um var borið á brýn að vera óhæfir
eftir víðtæk mótmæli tugþúsunda
bænda.
Lothar de Maiziere forsætisráð-
herra hefur átt í deilum við jafnaðar-
menn í stjórninni um stöðu austur-
þýskra fyrirtækja eftir sameining-
una. Jafnaðarmenn vilja að ríkis-
fyrirtæki njóti sérstakra skattaíviln-
ana fyrst eftir að sameininguna svo
þeim gefist betra ráðrúm til að mæta
harðri samkeppni.
Stjórnin í Bonn hefur verið á sama
máli og de Maiziere í því að styrkja
ekki ríkisfyrirtækin. Þessi ágrein-
ingur varð í gær til þess að fjármála-
ráðherrann Walter Romberg úr röð-
um jafnaðarmanna varð að víkja úr
stjóminni.
Landbúnaðarráðherrann, Peter
Pollack, var rekinn eftir að sýnt þótti
að stefna hans gekk í berhögg við
vilja mikils meirihluta bænda í
landinu. í gær mótmæltu þeir þús-
undum saman og sögðu að sam-
keppnin við stéttarbræðuma í vestri
væri að gera þá gjaldþrota. Aðrir sem
viku úr stjórinni voru efnahagsmála-
ráðherrann dr. Pohl og dómsmála-
ráðherrann Wuenche.
Stjórnin í Austur-Þýskalandi
stendur tæpt eftir þessar hræringar
og engir nýir ráðherrar hafa verið
tilnefndir. De Maiziere lítur þó svo á
að sameiningin við Vestur-Þýska-
land sé á engan hátt í hættu þrátt
fyrir þetta því jafnaðarmenn eru
sýnu ákafari í sameiningarmálunum
en Kristilegir denókratar þannig að
þeir munu ekki standa í vegi fyrir
henni þótt þeir á endanum víki úr
Stjórninni. Reuter
Litháar semja við
Rússa um viðskipti
Sovétlýðveldið Rússland og Lithá-
en hafa gert með, sér samkomulag
um samvinnu á sviði verslunar og
viðskipta. Rússland hefur frá upp-
hafi verið kjaminn í Sovétríkjunum
en Litháar hafa getið sér orð fyrir
að rísa upp gegn landstjórninni.
Samningurinn á að taka til ársins
1991. Hann var í gær undirritaður
af Prunskiene, forsætisráðherra Lit-
háens, og Ivan Silayev, forsætisráð-
herra Rússlands í Vilnu, höfuðborg
Litháens.
Engar upplýsingar hafa fengist um
efni samningsins. Litháar eru nú að
reyna að bæta sambúðina við önnur
lýðveldi innan Sovétríkjanna án þess
að semja um það beint við ríkis-
stjórnina í Moskvu.
í síðasta mánuði var ákveðið að
fresta gildistöku sjálfstæðisyfirlýs-
ingarinnar frá í vor um 100 daga gegn
því að refsiaðgerðum gegn Litháum
yrði hætt. Frestunin tekur gildi þeg-
ar samningaviðræður við stjómina í
Moskvu hefjast en þangað til reyna
Litháar að bæta stöðu sína með öll-
um ráðum.
Reuter
Móhíkanar verjast enn
Enn kom í gær til átaka milli kana-
dísku lögreglunnar og borgara í
Montreal vegna þess að ekki hefur
tekist að rjúfa vegartálma sem indí-
ánar af ættum móhíkana hafa reist
á brú þar í borg.
í átökunum særðust í það minnsta
12 lögregluþjónar. Lögreglan notaði
táragas til að dreifa mótmælendum.
Mótmælendur vilja að herinn gangi
fram í að rífa niður vegartálmann
en stjómin, sem nú um hríð hefur
átt í útistöðum við móhikanana, hik-
ar við að beita valdi.
Upphaf deilnanna er að indíánarn-
ir vilja ekki að gerður verði golf-
völlur á landi sem þeir segja aö
stjómin hafi tryggt þeim einkaafnot
af. Deila hefur smátt og smátt magn-
ast og eru margir íbúar Quebec-
fylkis ósáttir við að stjórnvöld skuli
ekki ganga harðar fram gegn indíán-
unum.
Um 4400 hermenn hafa verið kall-
aðir út til vonar og vara en þeim
hefur verið skipað að skipta sér ekki
af deilunum nema ríkisstjórn
Kanada ákveði það. Um 1000 manns
tók þátt í mótmælunum í gær, þar
af vom um 100 unglingar.
Reuter
Mikil harka var í átökunum í Montreal. Hér sést einn mótmælenda kasta
grjóti að lögreglunni. Simamynd Reuter
Námsmenn i Suður-Kóreu beita bensínsprengjum óspart í mótmælum sín-
um. Nú síðast varð bandarísk herstöð fyrir barðinu á þeim.
Simamynd Reuter
Áfram órói 1 Suður-Kóreu:
Bensínsprengjum
kastað að banda-
rískri herstöð
Um fimmtíu suður-kóreskir náms-
menn köstuðu bensínsprengjum og
grjóti að bandarískri herstöð í Seoul
í gær. Engar skemmdir urðu en þetta
þykir undirstrika vaxandi óróa í
landinu.
Lögreglan kom á staðinn og beindu
námsmennirnir þá spjótum sínum
að henni. Tókst þeim að hrekja sveit
lögreglumanna á brott en lögðu á
flótta þegar lögreglunni barst hðs-
auki.
Bandaríkjamenn hafa viðurkennt
að árás hafi verið gerð á herstöðina
en talsmaður hersins vildi ekkert
láta hafa eftir sér um máhð. Þetta er
lítil herstöð um þijá kílómetra frá
aöalstöðvun Bandaríkjahers í Seoul.
Fyrr í vikunni óku nokkrir náms-
menn inn^ aðalstöðina og héldu þar
uppi mótmælum í um 10 mínútur.
Þátt fyrir að hámsmennirnir færu
inn á bannsvæði var enginn þeirra
handtekinn.
Námsmennirnir krefjast þess að
bandaríski herinn hverfi úr landi.
Þessi mótmæh eru líka hluti af vax-
andi áhuga fólks í Suður-Kóreu á
sameiningu við Norður-Kóreu en í
gær börðust námsmenn og lögregla
við háskólann í Seoul vegna þess að
stjórnvöld vildu meina námsmönn-
um að sækja sameiningarhátíð við
landamærin. Reuter
Búddamunkar með eyðnismit
Yfir hundrað og fiörutíu búdda-
munkar í Thailandi eru meðal þeirra
tuttugu þúsund landsmanna sem
smitaðir eru af eyðni.
Tölur þessar voru kynntar á ráð-
stefnu um eyðni sem haldin er í Thai-
landi þessa dagana. Af þeim sem eru
smitaðir eru tuttugu og þrjú prósent
hommar og sextíu og sjö prósent eit-
urlyfianeytendur. Sextíu og átta lög-
reglumenn eru meðal smitaöra.
I Thailandi hafa yfirvöld áhyggjur
af hraðri útbreiðslu eyðni vegna
mikils VændÍS. Reuter
Seljum í dag og næstu daga nokkur
lítillega útlitsgölluð GRAM tæki 3|3
með góðum afslætti. áraáEyrgð
GOÐIR SKILMALAR
TRAUST ÞJÓNUSTA
jFDnix
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI (91)-24420