Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
Útlönd
Útlendingar reyna að
komast frá Líberíu
Um fimmtíu útlendingar slógust í
fór með vestur-þýskum sendiráðs-
mönnum þegar þeir mynduðu bíla-
lest sem yfirgaf Monróvíu, höfuðborg
Líberíu, í gær. Lestin fór þó ekki
langt því aö uppreisnarforinginn
Charles Taylor stöðvaði för hennar.
Um 60 menn frá Guineu höfðu von-
ast til að fá að fljóta með en förinni
var heitið til Fílabeinsstrandarinnar.
Vestur-þýska sendiráðin er I austur-
hluta Monróvíu, þar sem bardagar
hafa verið einna harðastir síðustu
daga, og töldu sendiráðsmenn ekki
seinna vænna að forða sér.
Liðsmenn Charles Taylor eru sagö-
ir hafa stöðvað lestina vegna þess að
þar voru með menn frá nágranna-
ríkjunum en þau hafa reynt að stuðla
aö friði í landinu með því að senda
alþjóðlegar gæslusveitir á vettvang.
Það vill Taylor ekki, enda sér hann
fram á að hafa fullan sigur í barátt-
unni við Samuel Doe forseta.
Allir sem yfirgefa 'höfuðborgina
verða að fá vegabréf sem Þjóðfrelsis-
fylking Taylors gefur út, enda er
engin leið að yfirgefa Líberíu á landi
án þess að fara yfir yfirráðasvæði
hans.
Sjö ríki í Vestur-Afríku eru nú að
draga saman lið í gæslusveitir. Þeim
er ætlað að stöðva átökin og sjá til
þess að frjálsar kosningar verði
haldnar í landinu við fyrsta tæki-
færi. Taylor hefur svarið að ráðast
gegn þessum sveitum af fullri hörku
ef þær kom inn fyrir landamærin.
Taylor hefur látið erlend sendiráð
í friði að mestu þar tii í gær að hann
hótaði vestur-þýska sendiherranum
öllu illu ef hann ræki ekki um 5000
flóttamenn út af lóð sendiráðsins.
Eftir það ákvað sendiherrann að
reyna að komast úr landi.
Reuter
Vestur-þýski sendiherrann fór fyrir bílalest sem reyndi að komast frá Líberíu
í gær. Lestin var stöðvuð áður en hún komst úr landi. Símamynd Reuter
ÓLAFSFJÖRÐUR
Nýr umboðsmaður okkar frá 13. ágúst er Elfa Hann-
esdóttir, Bylgjubyggð 5, sími 96-62105.
ÞORLÁKSHÖFN
Nýr umboðsmaður okkar frá 15. ágúst er Unnur
Jónsdóttir, Oddabraut 17, sími 98-33779.
Almennur lögtaksúrskurður
,,Hér með úrskurðast að lögtök mega fara fram til tryggingar eftir-
töldum vangoldnum opinberum gjöldum, álögðum 1990, á ein-
staklinga og lögaðila á Eskifirði og í Suður-Múlasýslu að liðnum
8 dögum frá birtingu þessa úrskurðar.
Gjöldin eru þessi: tekjuskattur, eignaskattur, útsvar, aðstöðugjöld,
sérstakur eignaskattur, vanskilafé staðgreiðslu, eindagað fram til
júlíloka 1990, vangreiddur virðisaukaskattur fyrir tímabilið maí og
júní 1990, með eindaga 5. ágúst 1990, vinnueftirlitsgjald, slysa-
tryggingagjald atvinnurekenda skv. 20. gr., kirkjugarðsgjald, at-
vinnuleysistryggingagjald, sérstakur skattur á skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði, iðnlána- og iðnaðarmálagjald, launaskattur, slysa-
tryggingagjald vegna heimilisstarfa, gjald I framkvæmdasjóð aldr-
aðra, aðflutningsgjöld, skráningargjöld skipshafna, skipaskoðun-
argjald, lestagjald og vitagjald, bifreiðaskattur, þungaskattur sam-
kvæmt ökumælum og fast gjald, skoðunargjald bifreiða og slysa-
tryggingagjald ökumanna 1990, viðbótar- og aukaálagningar
söluskatts og sekta vegna fyrri tímabila, skipulagsgjald af nýbygg-
ingum. Þá nær úrskurðurinn til viðbótar- og aukaálagningar fram-
angreindra opinberra gjalda vegna fyrri tímabila.
Lögtök fara fram án frekari fyrirvara en að ofan greinir, á kostnað
viðkomandi gerðarþola en á ábyrgð Gjaldheimtu Austurlands."
Eskifirði 16. ágúst 1990.
Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu,
bæjarfógetinn á Eskifirði,
Sigurður Eiríksson.
Lögreglan fjarlægði lík þeirra föllnu og virtist ekki hirða um hvort menn voru lifs eða liðnir þegar þeim var hent upp
á vörubíla.
Hörð ættflokkaátök blökkumanna í Suður-Afríku:
Unglingar börðu mann til
óbóta og kveiktu íhonum
Mikil grimmd og harka var í inn-
byrðisátökum blökkumanna í hérað-
inu umhverfis Jóhannesarborg í
Suður-Afríku í gær. Haft er eftir vitn-
um að unglingar hafi brennt mann
til bana eftir að hafa barið hann fyrst
til óbóta. Maðurinn var skilinn eftir
liggjandi í bióði sínu þegar bensíni
var hellt yfir hann og kveikt í.
Fréttamaður frá Reuters fréttastof-
unni kom á staðinn skömmu síðar
og þá var maðurinn enn á lífi en
hann lést skömmu síðar. Þegar lög-
reglan kom á staðinn vafði hún teppi
um manninn og henti honum upp á
vörubíl.
Enn er óljóst hve margir létu lífið
í átökunum milli fylgismanna Af-
ríska þjóðarráðsins og manna af ætt-
bálki zúlúmanna. Þó er vitað að þeir
skipta tugum og samkvæmt síðustu
Undir kvöld hafði lögreglunni tekist
að stilla til friðar en þá lá fjöldi
manna í valnum.
tölum var vitað um 38 menn látna
og hundruð höfðu særst. Þessa viku
hafa um 130 blökkumenn látið lífið í
ættflokkaerj unum.
Lögreglan og herinn beittu ýtrustu
hörku við að stöðva átökin sem þó
blossuðu stöðugt upp á nýjum og
nýjum stöðum. Undir kvöld lægði þó
enda hafði þá gripið um sig almennur
ótti við lögreglu- og hermenn.
Átökin hafa magnast stig af stigi
frá því á sunnudag. í bæjum í ná-
grenni Jóhannesarborgar eru far-
andverkamenn af zúlúættum fjöl-
mennir og hefur þeim lent saman við
menn af ættbálki xhosa sem búa fyr-
ir á svæðinu.
Rauði krossinn hefur ákveðið að
koma upp búðum á svæðinu fyrir þá
sem hafa misst heimili sín.
í morgun var allt með kyrrum kjör-
um en ástand á svæðinu er þó
ótryggt.
Reuter
Ný staöa í Pakistan:
Sonur Zia-ul-Haq
sækir fram til valda
Tveimur árum eftir lát pakist-
anska herstjórans Zia-ul-Haq hefur
sonur hans, Ejaz-ul-Haq, ákveðið
að snúa sér að stjórnmálum og
berjast gegn Benazir Bhutto. Því
er líklegt að nöfn þessara ætta eigi
eftir að heyrast oft í fréttum á kom-
andi árum.
Fyrr í vikunni var haldið sérstak-
lega upp á að tvö ár voru liðin frá
dauða Zia og mátti þá sjá myndir
af honum á götum úti í höfuö-
borginni Islamabad og nærliggj-
andi borgum. Zia lét lífið í flugslysi
sem enn er deilt um hvort hafi ver-
ið hryöjuverk eða ekki.
Ejaz sonur hans er nú 38 ára gam-
all. Markmið hans er að sameina
öfl á hægri væng stjórnmálanna í
Pakistan og ná aftur þeim pólitísku
áhrifum sem faðir hans hafði.
Hann stefnir að framboði í kosn-
ingunum í október en Benazir
verður þar væntanlega einnig með-
al frambjóðenda.
„Ef Benazir býður sig fram þá
verða þessar kosningar persónuleg
barátta milli hennar og mín,“ sagði
Ejaz í samtali við Rauters frétta-
stofuna.
Stjórnmálaskýrendur segja að
Ejaz sé með öllu óreyndur í stjórn-
málum og hann verði ekki í bráð í
það minnsta annað en handbendi
áhrifamanna sem áður stóðu fast
að baki Zia föður hans. Þá vantar
mann sem þeir geta still upp sem
frambjóðanda og telja nú Ejaz
skásta kostinn.
Ejaz er þegar farinn að ferðast
um Pakistan til að kynna sig og
minningarhátíðin um föður hans
fékk fljótlega á sig svip kosninga-
fundar. Hann hefur nú verið leidd-
ur til áhrifa í stjórnmálaflokki föð-
ur síns og lætur æ meira á sér bera.
Reuter
Verð lækkar í Perú
Viku eftir gífurlegar verðhækkan-
ir í Perú vegna spamaðaraðgerða
Fujimoris forseta hefur verð lækkað
skyndilega aftur. í síðustu viku fjór-
faldaðist til dæmis verð á ýmsum
nauðsynjamatvælum og verð á bens-
íni þrjátíufaldaðist. Almenningur
mótmælti harðlega og í fátækra-
hverfum höfuðborgarinnar Lima
létu mótmælendur greipar sópa um
verslar. En nú hefur verð á ýmsum
matvælum lækkað um helming.
Kaupmenn sáu fram á að þeir gætu
ekki selt varninginn.
Vinstri sinnaðir skæruliðar, sem
reyna að vinna stuðning almennings
vegna óánægjunnar með sparnaðar-
aðgerðirnar, kveiktu á þriðjudags-
kvöld í fimm strætisvögnum og í
ostagerð í Lima. Skipuðu skærulið-
arnir farþegunum að fara úr strætis-
vögnunum um leið og þeir hrópuðu
slagorð gegn stjórninni.
Á mánudagskvöld ollu skæruliðar
sprengingu viö forsetabústaðinn. Að
minnsta kosti sex manns hafa látið
lífið í sprengjutilræðum og skothríð
skæruliöa í Perú í þessari viku.
Reuter