Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Síða 11
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
11
Uflönd
Austur-Þjóðverjar urðu að biða í allt að 20 ár eftir að fá Trabant.
Simamynd Reuter
Notaðir bílar
streyma til Aust-
ur-Þýskalands
Tugir þúsunda Austur-Þjóðverja
hafa sett viðskipti með notaða bíla í
Vestur-Þýskalandi á annan endann
með aö því er virðist takmarkalaus-
um áhuga á bílum sem landar þeirra
í vestrinu vilja helst ekki nota leng-
ur.
Efnahagur Austur-Þýskalands er
að hruni kominn en það breytir engu
um að landsmenn vilja eignast
„nýja“ bíla strax í stað.þess að bíða
í flmm ár eða lengur þar til hag-
kerfið hefur komist á réttan kjöl á ný.
Verð á notuðum böum hefur hækk-
að stórlega og þeir eru óðum að
hverfa af markaðnum eftir að kaup-
æði Austur-Þjóðverjanna hófst.
Ódýrir nýir bílar seljast nú líka sem
aldrei áður.
„Það eru sárafáir bílar eftir,“ sagði
Hinrich Petersen, bílasali í Hamborg,
í samtah við Reutersfréttastofuna.
Hamborg er aðeins í 60 kílómetra
fjarlægð frá landamærunum sem
áöur skildu löndin að. „Það eru að-
eins mjög dýrir bílar sem seljast illa,“
sagði Petersen.
Fyrr í þessum mánuði var áætlað
í Vestur-Þýskalandi að fyrir árslok
hefðu Austur-Þjóðverjar keypt 500
þúsund notaða bíla fyrir vestan. í
árslok 1992 yrði þessi fjöldi orðinn
1,3 milljónir.
Áður en stjórn kommúnista féll í
Austur-Þýskalandi gat biðin eftir
nýjum Trabant orðið allt að 20 ár.
Biðin gerði bílaeign að einstökum
lúxus og nú er eins og opnast hafl
fyrir flóðgátt þegar Austur-Þjóðverj-
ar fengu aðgang að bílaflota Vestur-
Þjóðverja.
Dæmi eru um að verð á vinsælum
bílategundum hafi.tvöfaldast. Vest-
ur-Þjóðverjar eru ekki of hressir með
ástandið því nú er nánast ómögulegt
fyrir þá að kaupa sér notað bíla. Bíla-
salarnir eru þeir einu sem kætast og
haft er eftir Helmut Haussmann, ráð-
herra efnahagsmála í Bonn, að hann
mundi gerast bílasali ef hann væri
ekki í núverandi embætti.
Reuter
Svíþjóö:
Réttarhöld gagnrýnd
Meiri leynd mun hvíla yfir réttar-
höldunum yfir sex sænskum lög-
regluforingjum, sem ákæröir hafa
verið fyrir ólöglegar hleranir við
rannsókn Palmemorðsins, heldur en
þeim njósnamálum sem upp hafa
komið í Svíþjóð. Dómstóll í Stokk-
hólmi hefur tekið afstöðu með sak-
sóknara og lýst því yfir að næstum
öh réttarhöldin fari fram fyrir lukt-
um dyrum.
Þessi ákvörðun hefur sætt mikillar
gagnrýni og hefur sænska ríkið verið
borið saman við einræðisríki.
Lögregluforingjarnir sjálfir og
verjendur þeirra hafa lýst yfir
óánægju sinni. Telja lögregluforingj-
amir sig ekki munu verða sýknaða
í augum almennings, jafnvel þó þeir
verði það fyrir rétti. Vilja allir lög-
reglumennirnir sex að málið fái eins
mikla umfjöllun opinberlega og
mögulegt er.
Lögfræðiprófessor í Uppsölum,
Torleif Bylund, segir að þessi
ákvörðun dragi úr trausti almenn-
ings á réttarkerfinu í Svíþjóð. Telur
Bylund það mikilvægt að almenning-
ur þurfi að fá að fylgjast með rann-
sókninni á því hvort háttsettum emb-
ættismönnum og stjórnmálamönn-
um hafi verið kunnugt um ólöglega
hlerun hjá Kúrdum sem grunaðir
vom um morðið á Olof Palme, fyrr-
verandi forsætisráðherra Svíþjóðar.
Öryggislögreglan megi ekki verða
ríki í ríkinu, segir prófessorinn. Þeir
sem átt hali aðild að hlerunum verði
að taka afleiðingunum af gerðum
sínum.
Hjá dómstólnum veija menn sig
með því að visa til öryggis ríkisins.
Ef vitnum á að reynast mögulegt að
starfa áfram í öryggislögreglunni má
ekki koma fram hver þau eru. Verða
þau látin koma í dómshúsið gegnum
bakdyr og um neðanjarðarganga.
TT
KSí,
&&
Það
eru 39 kryddtegundir í
Caj P.’s grill-og
steikarolíunni
4*
VÖRUMIÐSIDÐ
Þ
egar þú grillar, steikir eða marinerar
skaltu nota Caj P.’s grill- og steikarolíuna.
Caj P.’s inniheldur 39 ólíkar krydd-
tegundir og þegar þú finnur
kryddlyktina kemstu að raun
um, að Caj P.’s grill- og steik-
arolían er allt sem þarf til
að gera steikina bragðbetri
og bragðmeiri.
.k.&Grmt
l#S 1
^ ÖffrrrrmQr.
32i?fcLKA KBvp2SSAS*aS>
Innflutningur og dreifing
á góðum matvörum
Snjómaður
á ferli?
Mikill viðbúnaður var meðal sov-
éskra landamæravarða austarlega í
Sovétríkjunum nýlega eftir að varð-
maður hafði komið auga á tveggja
metra háa veru með glóandi augu,
að því er sovéska fréttastofan Tass
greindi frá í gær. Veran, sem skaut
vörðunum skelk í bringu, þótti líkj-
ast snjómanninum ógurlega.
Þegar varðmaður setti viðvörunar-
kerfi í gang hvarf skepnan en sást
svo skömmu síðar vera að reyna að
klifra upp á þak. Hún greip þó aftur
til fótanna og hvarf inn í skóglendi.
Að sögn Tass fréttastofunnar hefur
eiginkonum og börnum starfsmann-
anna á svæðinu verið bannað að fara
frá landamærastöðinni.
Sovéskir fjölmiölar hafa nokkrum
sinnum greint frá því að snjómanns-
ins hafi orðið vart en venjulega hefur
verið talið að hann héldi sig í
Himalayafjöllunum.
p J.d, for kvinner ^
For kvinner med mens iPMS)
besvær og problenicr med oter-
S^ngsalderen,
melbrosia inneholder bl. a. livs
sno«toff"UnOSyier- li‘ami„er.
sporstoffer og emyrner.
PRODUSEMT:
melbtosin Intemational,
MELBKOSLA P.I.D. er hrein náttúruafurð sem inniheldur beepollen, perga pollen og Royal Yelly og færir þér Iifsorku i rikum meeli.
MELBROSIA P.I.D. er fyrir konur á öllum aldri. Mætið nýjum degi hressar og fullar af lifskrafti - i andlegu og Iíkamlegu jafnvægi - alla daga
mánaðarins. Breytingaaldurinn er timabil sem mörgum konum er erfitt. Ef til vill getur MELBROSIA P.I.D. gert þér þetta timabil auðveldara.
MELBROSIA er ekki ný framleiðsla. Að baki er áratuga reynsla. MELBROSIA er selt i flestum heilsuvöruvérslunum um alla Evrópu.
Aðeins það besta er nógu gott fyrir þig.
UMBOÐ OG DREIFING NATTURULÆKNINGABUÐIN LAUGAVEGI25, SÍM110263. FAX 621901
Reuter