Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
Spumingin
Hverjir verða íslands-
meistarar í knattspyrnu?
Sigurður Sigurðsson stýrimaður: Ég
vona aö þaö veröi Framarar enda er
ég sjálfur gamall Framari.
Hrafnkell Hlöðversson verkamaður:
Ég hef ekki hugmynd um það. Ég
fylgist ekkert meö knattspymu.
Snæbjörn Sigurðsson bóndi: Ég veit
þaö ekki. Ég fylgist voöa lítið meö
þessu en heföi viljað að KA ynni
mótið.
Svanfríður Aradóttir húsmóðir: Ég
veit þaö ekki. Ég hef ekkert vit á fót-
bolta. Ég segi bara KR.
Ólafur Hjaltason fulltrúi: Nú vefst
mér tunga um tönn. Ætli þaö verði
ekki bara KR aö þessu sinni.
Kolbrún Sigurðardóttir snyrtisér-
fræðingur: Framarar.
Lesendur______________________________________________________dv
Boeing á einum hreyfli til Keflavíkur:
Hve öruggar eru tveggja
hreyfla vélar í langflugi?
Boeing-flugvélar af tegundunum 757 (flugvélar Flugleiða eru a> þeirri gerð)
og 767 sem er breiðþotugerðin.
Magnús Gunnarsson skrifar:
Það hefur staðið nokkur deila um
ágæti þeirra tveggja hreyfla far-
þegaflugvéla sem teknar hafa verið
í notkun t.d. á flugleiö yfir Atlants-
hafiö. Hvaö sem líður áliti sérfræð-
inga um flugdrægni, hreyflategund
og almennt öryggi sem þessar flug-
vélar eiga aö vera búnar, era margir
flugfarþegar ekki alls kostar ánægðir
að neyðast til ferðast með þessum
nýju flugvélum. - Farþegar frá ís-
landi til Vesturheims eiga t.d ekki
völ öðrum farkosti en þessum nýju
tveggja hreyfla vélum.
Það er þess vegna engin furða þótt
fólk fylgist gaumgæfúega með hveiju
atviki sem úrskeiðis fer hjá tveggja
hreyfla flugvélum sem annast far-
þegaflug yfir hafið. - í Morgunblað-
inu sl. sunnudag birtist frétt um að
Boeingþota frá þekktu bandarísku
flugfélagi hefði þurft að snúa við af
leið sinni og lenda á Keflavíkurflug-
velli á einum hreyfli með tæpega 100
farþega innanborös. - Ekkert annað
blað (eða fjölmiðill, held ég, svo und-
arlegt sem þaö er) birti frétt um
málið. Þetta var þó stórfrétt í sjálfu
sér og kemur íslenskum flugfar-
þegum talsvert við.
í fréttinnikom þó ekki mikið fram,
t.d. ekki annað en að véhn hefði ver-
ið af gerðinni Boeing 767 og frá flugfé-
laginu Delta í Bandaríkjunum. Ekk-
ert var sagt um eðli bilunarinnar og
hvort véhn hefði farið aftur stuttu
síðar eða hvort farþegar hefðu þurft
að bíða annarrar flugvélar eða þeir
beðið á meðan á viðgerð stóð.
Þessi atburöur vekur óneitanlega
upp ýmsar spurningar hjá íslenskum
flugfarþegum, t.d. hvort þessi til-
tekna vél sé sams konar og þær er
Flugleiðir nota á leiðinni til Amer-
íku, hvaða ráðstafanir séu gerðar til
að ná varaflugvelh ef hreyfill bilar á
miðri leið til Ameríku og hvort full-
hlaðin vél þessarar tegundar geti
auðveldlega flogiö tímunum saman
að næsta varaflugvelli, t.d. ef lokaö
er í Keflavík nokkru eftir flugtak
þaðan. Ég held að hér sé á ferðinni
mál sem ekki hefur verið nægilega
kynnt í fjölmiðlum og ekki þarf aö
efa að áhugi íslenskra flugfarþega er
mikill á tæmandi upplýsingum um
þetta efni.
Eftir þeim upplýsingum sem les-
endasíða DV fékk hjá flugumsjón á
Keflavíkurflugvelh, var umrædd Bo-
eingþota af gerðinni 767 (sennilega
400 gerðin en um það vissi flugum-
sjón ekki og heldur ekki vakthafandi
aðih í flugturni Keflavíkurflugvall-
ar). Þotan var af svokallaðri breið-
þotugerð hvað snertir innréttingu á
farþegarými og mun stærri en þær
vélar sem Flugleiðir nota og eru af
gerðinni Boeing 757-200. - Umrædd
flugvél lenti laugardagsmorguninn
11. ágúst og fór ekki þaöan aftur fyrr
en tveimur dögum síðar eftir að mót-
orskipti höfðu verið framkvæmd.
Afrek fatlaðra í Hollandi
Áhugamaður skrifar:
Venjulega er dagskrá sjónvarps-
stöðvanna mun síðri á sumrin en
1 a veturna. Undantekning frá þeirri
reglu var þáttur sem sýndur var á
Stöð 2 á dögunum og fjallaði um
fatlaða íþróttamenn.
Með þessu bréfi vil ég bara koma
þakklæti til Stöðvarmanna fyrir
þessa ágætu mynd. Myndin sýndi
svo ekki v§rð um villst að keppni
fatlaðra er grfðarlega hörð og að
krakkamir okkar unnu ógleyman-
leg afrek þarna í Hollandi.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
ingu.
Verður afrakstur hundaskítsins notaður til þess að fóðra hross i vetur?
DV-mynd RaSi
Hundaveiki og hrossakjöt
Hestavinur skrifar:
Síðastliðið vor birtust fréttir í blöð-
um um veiki í hundum, en smitun
hennar var sögð tilkomin vegna úti-
vistar hundanna á Geirsnefi við Ell-
iðavog. - Sá staöur er að vonum út-
bíaður í hundaskít því þar mega
hundaeigendur láta hundana ganga
lausa og lítt sem ekkert hirða þeir
um að hreinsa eftir hunda sína
þama.
Nú væri þetta ekki í frásögur fær-
andi nema vegna þess að einhverjir
hestamenn hafa nú slegið Geirsnefið
og hirt afrakstur hundaskítsins til
þess að fóðra vini sína á í vetur.
Satt að segja ofbýður mér að hesta-
menn skuli fóöra gæðinga sína á
hundaskítskrydduðu heyi. Spurn-
ingin sem hins vegar brennur á mér
sem þeim hestavini sem ég er - aö
þykja afar gott að eta hrossakjöt;
Ætli óhætt sé að neyta kjöts af þeim
hrossum sem eru fóðruð á hunda-
skítnum?
Búum við ekki í
lýðræðisþjóðfélagi?
Gunnar Þórarinsson skrifar:
Þótt ég hafi gerst brotlegur við
sjálfan mig og hafi gert margar og
ítrekaðar tilraunir eftir alvarlegt bíl-
slys til þess að fá létta vinnu, m.a.
hjá Reykjavíkurborg, er mér tjáð að
enga vinnu sé að fá.
Eg vildi nú spyrja: Er kannski
ráðningarskrifstofan eins og Félags-
málastofnun borgarinnar, þegar
spurt er um húsnæði? Svarið er oftar
en ekki það sama: því miður, ekki til
herbergi eða íbúð. - Jú, annars,
kannski fyrir einstakt prúðmenni
sem gengur vel um og hefur heilsu
til að mála eða skúra gólfin eftir sig.
Ég þekki ekki alla Reykvikinga,
þótt ég sé hér fæddur og upp alinn í
þessum fallega bæ og eigi þess vegna
fullan rétt á því að hlustað sé á mig.
Það er af sém áður var þegar ég fékk
húsaskjól hjá bænum þar sem núna
er hinn viröulegi Seðlabanki íslands.
- Ég skýt þessu nú svona inn hér til
gamans fyrir þá sem nenna aö lesa
þetta.
En hvað atvinnu fyrir fólk - sem
orðið hefur fyrir slysi og er í þann
veginn að ná heilsu - og þó stundum
ekki - varðar er það afskaplega
þreytandi þegar talað er við fólk sem
segir sem svo: Ég skal athuga málið,
hringdu seinna - eftir tvo daga, eða
eftir einn eða tvo mánuði.
Tökum Múlalund, vinnustað fyrir
öryrkja, sem dæmi. Jú, þú getur
fengið vinnu í svo sem einn mánuð
og fengið meðmæh og síðan- ættu
meðmælin að duga þér til að fá vinnu
við þitt hæfi. Og hvað svo?
Bráðabirgðalögin og undirskrift forseta:
Óskiljanleg framkvæmd
Elsa skrifar:
Mér finnst lesendabréfið í DV hinn
9. ágúst sl. frá Kristjáni Kristjánssyni
vera orð í tíma töluð og tek undir
allt sem þar er sagt. En þar er hann
að ræða setningu bráðabirgðalagnna
og texta þann sem þeim fylgir frá
forseta íslands og er undanfari þess-
ara bráðabirgðalaga.
Ég er þess fullviss að fólk hefur
almennt ekki áttað sig á hvers konar
klúður þessi lög eru, og ekki síður
sá gjömingur sem forsetaembættið
er látið framkvæma með aðfararorð-
unum á undan lögunum. Þar er því
beinlínis haldið fram að launatilboð
frá vinnuveitendum sé frumorsökin
fyrir setningu bráðabirgðalaganna,
en ekki samningaviðræður BHMR
og viðsemjendanna, ríkisins.
Ég veit ekki hvers konar öfl eru
að þróast hér í þjóðfélaginu, sem láta
sér í léttu rúmi liggja að blekkja eða
gera a.m.k. tilraun til að blekkja for-
setaembættið eins og hér virðist ver-
ið að gera. - Eða hvað á fólk að halda,
þegar svona er staðið að verki?
Auðvitað era bráðabirgðalögin
ekkert annað.en óhæfuverk sem er
unnið vísvitandi til að klekkja á laun-
þegum í landinu - ekki bara á
BHMR-fólkinu - heldur öllum laun-
þegum á íslenskum vinnumarkaði.
Líklegast þykir mér að stjórnvöld séu
að gera tilraun á launþegum með til-
liti til framtíðaraðstæðna hér á landi,
þegar við höfum verið fest í sameig-
inlegri ríkjasamsteypu Evrópu. - ís-
lensk stjórnvöld þurfi að sanna hvers
þau séu megnug að hemja launþega
á vinnumarkaði og sýna að hægt sé
að stöðva hvers konar framgang og
uppákomur sem rekja má til baráttu
fyrir bættum kjörum eða beinum
launakröfum.
Ég vona sannarlega að einhverjir
innan launþegahreyfinganna hafi
þann kjark að leggja til atlögu við
þessi öfl í stjórnkerfinu og sem virð-
ast líka eiga sér bandamenn í röðum
forsvarsmanna launþegahreyfing-
anna. - Nýjustu fréttir af mótmælum
einstakra manna innan launþega-
samtakanna gefa manni von um ein-
hveija hreyfingu í þá átt.