Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
dv Lesendur
Yfirlýsing frá Ólínu:
Er borgarf ulltrúi
Nýs vettvangs
Ólína Þorvarðardóttir skrifar:
í lesendabréfi í DV þriðjud. 14.
ágúst undir fyrirsögninni „Flóttafólk
í stjórnmálum?" er þvi ranglega
haldið fram að eftir að ég gekk til
liðs við Alþýðuflokkinn telji ég mig
vera orðna fulltrúa þess flokks í
borgarstjórn. - Þetta er alrangt og
grundvallarmisskilningur. Ég er
borgarfulltrúi Nýs vettvangs en ekki
Alþýðuflokksins sérstaklega.
Ég er með öðrum orðum borgar-
fulltrúi allra þeirra sem áttu aðild
að framboðinu og kusu það. Al-
þýðuflokkurinn átti aðild að Nýjum
vettvangi og sama gildir um Samtök
um betri borg, Æ.F.R. og Óháða kjós-
endur. Allir þessir aðilar eiga tvo
borgarfulltrúa: Ólínu Þorvarðardótt-
ur og Kristínu Ólafsdóttur.
Það vill þannig til að þessir borgar-
fulltrúar eru í sitt hvorum stjórn-
málaflokki en sem borgarfulltrúar
ganga þeir ekki erinda flokkanna
heldur Nýs vettvangs sem er ávöxtur
af samvinnu ólíkra stjórnmálaflokka
og samtaka. Það er þess vegna grund-
vallarmisskilningur að ég sé orðin
sérlegur borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins við það að ganga til liðs við
hann eftir kosningar.
Ég hefl aldrei skipt um flokk eins
og kemur fram í lesendabréfinu
nafnlausa. - Staðreyndin er sú að
Nýr vettvangur er ekki flokkur held-
ur samtök stjórnmálaafla þar sem
fólk úr ólíkum flokkum vinnur sam-
an.
Harmóníkuþætti
þarf að færa til
Svana M. skrifar:
Hvers eiga unnendur harmóníku-
tónlistar að gjalda? Ég er mjög mik-
ill unnandi þessarar tónlistar og
vona að Ríkisútvarpið taki tillit til
þeirra sem halda tryggð við þessa
tónlist og færi harmóníkuþættina
aftur yflr á sunnudagskvöld.
það er ekki gott að hafa þessa þætti
á miðvikudögum kl. 15 þegar fólk er
yfirleitt við vinnu og hefur ekki tök
á því að hlusta. Ég vona því að RÚV
sjái sér fært að gera breytingu hér á.
Hér með vil ég einnig þakka Akur-
eyringunum, Jóhanni og Einari, fyr-
ir þáttinn 8. ágúst sl. Þeirra þáttur
var frá landsmóti harmóníkuunn-
enda sem haldið var aö Laugum í
Þingeyjarsýslu 21. - 24. júní. - Einnig
fær Stöð 2 þakkir fyrir þáttinn sem
hún sýndi frá landsmótinu.
EINSTAKT Á ÍSLANDI
BLAvÐSÍÐUR
FYRIR
265
KRONUR
BÝÐUR NOKKUR BETUR?
TÍMARIT FYRIR ALLA
HUGSUM FRAM A VEGINN
Heiðarleiki er
ekki horfinn
Hulda hringdi: Þegar heim kom uppgötvaði ég
Ég var stödd við Rúmfatalagerinn að veskið var horflð og hélt ég rak-
fóstudaginn 10. ágúst sl. milli kl. leitt aftur að Rúmfatalagernum og
16 og 16.30 þegar ég týndi veski spurðist fyrir um hið týnda veski.
mínu, Ég hafði verið þarna aö Hafði þá einhver fundið það úti og
versla og var að koma vörunum skilað því í verslunina. Þetta sýnir
fyrir í sendiferðabil þegar óhappið aö enn er til gott fólk og heiðarleik-
skeði. inn ekki horfinn að fullu.
Iþróttabuxur
í vanskilum
Margrét Einarsdóttir hringdi:
Frændi minn var staddur á Akra-
nesi dagana 28. og 29. júlí sl. með
fótboltaliði frá Bolungarvík. Hann
fékk nýjan Adidas íþróttagalla áður
en hann fór þangað. Nú var hann svo
óheppinn að týna buxunum frá gall-
anum á íþróttavellinum - eða í
barnaskólanum.
Þetta eru dökkbláar buxur með
stroffi að neðan. Einhver hefur áreið-
anlega fundið þessar buxur og tekið
þær til handargagns án þess að vita
hver á þær. Sá sem hins vegar veit
um afdrif þeirra er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 92-14881 og fá
frekari upplýsingar um hvert skal
koma þeim.
Feður,börn
og samskipti
Kona hringdi:
Ég vil þakka „Sorgmæddri ömmu“
fyrir bréf hennar í DV sl. mánudag
þar sem hún skorar á feður að mynda
samtök um rétt og umgengni við
börn sín og láta ekki eigingjarnar
mæður traðka á sér lengur.
Ég hefi svipaða sögu að segja í sam-
bandi við umgengni við böm og sam-
skipti eða samskiptaleysi feðra við
þau. - Virðist sem mæður hafi allan
rétt þegar allt kemur til alls í þeim
efnum að leyfa börnum fráskildra að
umgangast kynforeldra sína.
Ég myndi gjarnan vilja biðja „Sorg-
mædda ömmu“ að hafa samband við
aðra sorgmædda ömmu ef hún kynni
að hafa áhuga á að ræða málið vegna
svipaðra tilfella og við höfum fjallað
um hér á þessum vettvangi. - Síma-
númer mitt er 670502.
VIDEOTILBOÐ
og myndbandsspóla á aðeins +***. ^ ^
En þá er aðeins hálf sagan sögð...
1000. hver viðskiptavinur fær SAmYO VHR 5100 hágæða-
myndbandstæki að verðmæti 38.000 5*“ í kaupbæti.
Memory repeat • instant loading • 360 daga minni • 8 mismunandi upptökutímar
• rammi fyrir ramma • 3 ára ábyrgð
• •
VIDEO VAL
Arnarbakka 2, sími 76611
BREYTT VIDEOLEIGA
mRGTMEX
O ®
* °\^fo
SA%VO <0$
'S>
Þykkvabœjar-
nasl
r