Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
Ólyginn
sagði...
Madonna hefur ekkert sérstakt dálæti á Englandi og var því fegnust þegar hún komst upp í flugvél þaðan í burtu eftir að hafa haldið tónleika fyrir fullum Wembleyleikvangin- um fyrir skemmstu. Starfsmenn Hyde Park hótelsins, þar sem stjarnan gisti meðan á dvölinni stóð, voru því líka fegnir þegar Madonna yfirgaf hótelið. Tvö þúsund aðdáendur höfðu nefni- lega staðið fyrir utan bygginguna allan tímann sem Madonna dvaldist þar, í þeirri von að sjá henni bregða fyrir.
Rob Lowe var líka í Englandi eins og Ma- donna. Hann var þar kynnir á tónleikum sem haldnir voru til styrktar fótluðum börnum. Á tónleikunum komu fram ýmsir frægir tónlistarmenn eins og Phil Collins, Eric Clapton, Paul McCartney, Tears for Fears, Dire Straits og fleiri. Lowe kvartaði sáran undan enska sumarveðr- inu. „í hvert skipti sem ég kem hingað til Englands byrjar að rigna,“ sagði leikarinn sem síðast sló í gegn í myndinni „Bad Influ- ence“.
Michael Kea- ton hélt ræðu á ráðstefnu um um- hverfismál fyrir stuttu. Þar sagði hann: „Við fræga fólkið getum verið sjálfselsk og montin en við getum samt sem áður lagt okkar af mörkum til að gera þennan heim betri." Nokkrar aðrar stömur svo sem Tom Cruise, Pat Benatar og Meg Ryan tóku undir með Keaton. Lisa Bonet sagðist smám saman vera að breyta gömlum venjum. Núna færi hún til dæmis iðulega með eigin inn- kaupatösku til að versla til að komast hjá því að nota plast- eða bréfpoka.
__________________________________Sviðsljós
BruceWillis:
Sestur í helgan stein
Áður fyrr var Bruce víðfrægur fyrir
sitt villta liferni en nú kveður við
annan tón.
þorp í fjöllum Idaho. „Við viljum lifa
venjulegu og rólegu segir Bruce
Willis.
Fyrir nokkrum árum bárust stöð-
ugt fregnir af hinu villta líferni Bruce
Willis leikara. Hann var tahnn óþol-
andi montinn og partíglaður í meira
lagi. Slúðurblöðin kepptust um að
birta hneykslissögur af hegðun hans
enda var af nógu af taka.
Nú kveður hins vegar við annan
tón. Bruce er búinn að gifta sig og
eignast bam og dvelur nú í róleg-
heitunum heima í faðmi fjölskyld-
unnar kvöld eftir kvöld.
Bruce, sem orðinn er 35 ára, sló
fyrst í gegn í sjónvarpsþáttunum
Moonlighting. Síðan lék hann í kvik-
myndinni Die Hard sem varð geysi-
vinsæl og nú nýverið var Die Hard 2
frumsýnd. Hann segist endanlega
hafa snúið baki við sínu gamla líf-
erni. „Ég er hættur að drekka og með
hjálp konunnar minnar hef ég náð
tökum á feimninni og óörygginu sem
ég reyndi hér áður fyrr að fela með
slæmri hegðun og sjálfumgleði."
Á yngri árum stamaði Bruce mikið
og það er fyrst núna sem hann hefur
alveg náð tökum á staminu. „Ég
komst að því að þegar ég var að leika
einhvern annan þá hætti ég að
stama. Hins vegar átti ég erfitt með
mál í einkalífi mínu. Núna hef ég
fyrst náð því andlega jafnvægi sem
„Hún hefur gert ur mér heimakæran eiginmann sem nýtur einkalífsins og
samverunnar við fjölskylduna," segir Bruce Willis um eiginkonu sína, Demi
Moore.
þarf til að losna við stamið." um að flytjast með tveggja ára dóttur
Bruce og kona hans, Demi Moore, sína, Rumer, í burtu frá hinu ljúfa
sem einnig er leikkona, eru að hugsa lífi Los Angeles og upp í lítið sveita-
Skólahljómsveit Akraness:
Fraekileg för til Rostock
Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi:
Skólahljómsveit Akraness sneri
fyrir nokkru heim úr frækilegri fór
til Rostock í A-Þýskalandi, þar sem
hún fékk forkunnargóðar móttökur.
í kjölfar heimsóknarinnar til
Rostock hafa sveitinni borist heim-
boð frá Búlgaríu, Ungverjalandi,
Finnlandi og Belgíu.
Andrés Helgason, stjórnandi sveit-
arinnar, sagði í stuttu spjalli við DV
að ferðin hefði heppnast einstaklega
vel og hefði þar allt hjálpast að; góð-
ur undirbúningur, góðar móttökur
og góð spilamennska sveitarinnar.
„Þétta var krökkunum ómetanleg
reynsla og þjappaði hópnum mjög
vel saman,“ sagði Andrés.
Alls lék sveitin á 13 tónleikum á
þeim 10 dögum sem dvalið var í A-
Þýskalandi. Einir tónleikar voru
skyldutónleikar, þar sem þrettán
hljómsveitir frá mörgum þjóðlönd-
um léku, hitt voru tónleikar þar sem
DV-mynd Árni S. Árnason
sveitin lék oftast ein en einnig með Hópurinn, sem fór til Rostock, var 12 fararstjórar með í íorinni. Tveir
öðrum í nokkrum tilvikum. 45 hljóðfæraleikarar en einnig voru þeirra léku með sveitinni.
Flateyri:
Unglingar fjölmenntu á
námskeið Rauða krossins
Reynir Traustason, DV, flateyri:
Björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri
stóð fyrir námskeiði í skyndihjálp
nýverið. Fenginn var leiðbeinandi
frá Rauða krossinum, Þórir Steinars-
son, sem er brottfluttur Flateyring-
ur. 35 manns mættu á námskeiðið
og það verður að teljast mjög gott í
ekki stærra plássi.
Flestir þeirra sem námskeiðið
sóttu voru unglingar á aldrinum
12-16 ára og vekur það athygli að
unglingar skuli fást til að eyða tíma
sínum yfir hásumarið í lærdóm og
bókastagl.
Ástæðan er eflaust geysiöflugt starf
unglingadeildar björgunarsveitar-
innar en meðlimir hennar eru nán-
ast allir unglingar á staðnum.
Nokkrir þátttakenda á námskeiðinu. DV-mynd Reynir
Hópur fólks af Lækjarbotnaætt svokallaðri kom saman fyrir skömmu og gróður-
setti fimm þúsund trjáplöntur í suðurhlíðum Skarðsfjalls. Hér voru á ferðinni
niðjar Sæmundar Guðbrandssonar hreppstjóra að Lækjarbotnum á Landi og
konu hans, Katrínar Brynjólfsdóttur Ijósmóður. Með þessu vildi fólk af Lækjar-
botnaættinni heiðra landgræðsluátak sem viða er gert um þessar mundir. Á
myndinni má sjá hluta hópsins gróðursetja hin ágætustu tré.