Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Síða 26
34
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
I>V
Merming
Erfiðleikar í rekstri Almenna bókafélagsins:
Stjórnin veitir heimild
til að auka hlutafé
Miklir erfiöleikar hafa verið í
rekstri Almenna bókafélagsins und-
anfarin tvö ár. í fyrra var um 40
milljóna tap á rekstri Almenna bóka-
félagsins og Bókaverslun Eymunds-
sonar sem er undir stjóm félagsins.
Áriö 1988 var tapið 5 milljónir.
Stjórn félagsins hélt í síðustu viku
fund um aðgerðir til bjargar rekstr-
inum. Þar var samþykkt heimild til
félagsins að selja húseignina Austur-
stræti 18. Þá var einnig samþykkt að
veita heimild til að auka hlutafé Al-
menna bókafélagsins um allt að 140
milljónir króna. Talið er líklegt að
sú heimild verði nýtt. Bókaútgáfa á
vegum Almenna bókafélagsins mun
verða með sama sniði í ár og hefur
verið undanfarin ár.
Hvað varðar sölu á húseigninni
Austurstræti 18, þá hefur heyrst að
bæði Eimskipafélag íslands og
Sjóvá-Almennar hafi hug á að kaupa
húsnæðiðefafsölunniverður. -HK
Tökurhafnar
á Börnum
náttúrunnar
Friðrik Þór Friðriksson hefur
nú haldið norður á Hornstrandir
ásamt fríðu föruneyti, en þar eru
að heljast tökur á nýjustu kvik-
mynd hans, Börnum náttúrunn-
ar sem gerð er eftir handriti hans
og Einars Más Guðmundssonar
rithöfundar. Friðrik fékk 25 millj-
ónir úr Kvikmyndasjóði til að
gera myndina en það er aðeins
hluti af áætluðum kostnaði. Rjall-
ar mjmdin um Geira sem hittir á
elliheimilinu æskuvinkonu sína,
Stellu. Þeim likar vistin illa og
ákveða að stijúka heim á æsku-
stöðvar vestur í Aðalvík. Lýsir
myndin ferðalagi þeirra þangað.
Þaö eru Gísli Halldórsson og Sig-
ríður Hagalín sem leika Geira og
Stellu. Aðrir leikarar eru Val-
gerður Dan, Baldvin Halldórsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Hallmar
Sigurðsson og fleiri.
Það er íslenska kvikmynda-
samsteypan sem stendur að gerð
myndarinnar.
Sumartónleikarnir:
Ann Wallström
hlýtur
heiðursiaun
Nokkrir velunnarar Sumartón-
leika í Skálholtskirkju hafa stofn-
að verðlauna- og styrktarsjóð til
að efla iðkun barokktónlistar.
Sænskum fiðluleikara, Ann
Wallström, voru veitt fyrstu
verðlaunin.
Á vegum Sumartónleika í Skál-
holtskirkju starfar Bachsveitin í
Skálholti, sem er-lítil strengja-
sveit er leggur sig fram við túlkun
barokktónlistar. Leiðsögtr og for-
ysta Bachsveitarinnar hefur frá
upphaft verið í höndum ungrar
sænskrar listakonu, Ann Wall-
ström, sem hefur sérhæft sig í
leik á strokhljóðfæri frá barokk-
tímanum. Hún hefur komið í
Skálholt á hverju sumri í sex ár
til hljóðfæraleiks og þjálfunar
Bachsveitarinnar. Verðlaunin,
sem Wallström fékk, jafngilda
listamannalaunum íslenska rík-
isins.
VerðlaunaafTiendingin fór fram
í Skálholti að loknum flutningi
Árstiðanna eftir Vivaldi, en þetta
vinsæla tónverk var flutt tvisvar
sinnum. Var kirkjan fullsetin
áheyrendum i bæði skiptin.
Dönskkórtón-
listíReykjavík
í kvöld heldur danski kórinn
Corda Vocale tónleika í Laugar-
neskirkju. Corda Vocale er frá
Árósum og er þetta fyrsta utan-
ferð kórsins, en hann var stofnað-
ur 1985. Tónlistin, sem kóiinn
flytur í kvöld, er dönsk kórtónlist
og einnig tónlist eftir Schults,
Brahms og Verdi. Aðrir tónleikar
kórsins verða annað kvöld í Nor-
ræna húsinu. Þar verður flutt
dönsk veraldleg tónlist frá ýms-
um tímum.
Norrænahúsiö:
Opidhús
Þjóölög er þema á opnu húsi í
Norræna húsinu í kvöld. Dag-
skráin er einkum ætluð ferða-
mönnum frá Norðurlöndum sem
hér dvelja. Helga Jóhannsdóttir
þjóðlagasafnari talar um íslensk
þjóðlög fyrr og nú og leikur tón-
dæmi af snældu. Helga hefur um
árabil ferðast um ísland og safnað
lögum sem annars var hætta á
að fallið hefðu í gleymsku. Eftir
að Helga hefur lokið fyrirlestri
og tóndæmum syngur Sigríður
Jónsdóttir nokkur íslensk þjóö-
lög. Sigríður stundaði fyrst
söngnám í Reykjavík. Hún hefur
nýlokið framhaldsnámi i tónlist 1
Bandaríkjunum með söng sem
aðalgrein.
Ari Kristinsson, handritshöfundur og leikstjóri:
Pappírs Pési dýr
og erf iður leikari
Ari Kristinsson leikstýrir og skrifar handritið að Ævintýri Pappírs Pésa. DV-mynd Brynjar Gauti
Ný íslensk kvikmynd, Ævintýri Pappírs Pésa,
veröur frumsýnd í Háskólabíói þann 1. septemb-
er. Þetta er bama- og fjölskyldumynd og er
handritshöfundur og leikstjóri Ari Kristinsson.
Framleiðandi er Vilhjálmur Ragnarsson fyrir
hönd kvikmyndafyrirtækisins Hrif hf. sem gerir
Ævintýri Pappírs Pésa sem kostaði tæpar 50
milljónir króna.
Áður hefur sama fyrirtæki gert tvær stuttar
kvikmyndir um Pappírs Pésa sem sýndar voru
í sjónvarpinu. Fyrri myndinn var byggð á leik-
riti Herdísar Egilsdóttur en það er einmitt hún
sem á hugmyndina að Pappírs Pésa.
Myndin Ævintýri Pappírs Pésa er sérstök að
því leytinu, eins og nafnið bendir til, að Pappírs
Pési er ekki lifandi vera heldur úr pappír. Hefur
sú staðreynd skapað sérstakar aðstæður fyrir
kvikmyndagerðarmennina eins og kemur fram
í eftirfarandi spjalli sem DV átti við Ara Krist-
insson um Ævintýri Pappírs Pésa og feril hans
í íslenskri kvikmyndagerð.
Löng reynsla að baki
„Ég hef verið í kvikmyndagerð í ein tíu ár, eða
frá upphafi íslensku kvikmyndabylgjunnar svo-
kölluðu, og hef staðið bak við kvikmyndavélina
við slatta af íslenskum kvikmyndum," segir Ari
Kristinsson. „Fyrst var ég aðstoðarkvikmynda-
tökumaður við Land og syni, síðan kvikmynd-
aði ég Rokk í Reykjavík fyrir Friörik Þór Frið-
riksson. Fyrir Friðrik hef ég einnig kvikmyndað
Skyttumar. Þá hef ég kvikmyndaö allar myndir
Þráins Bertelssonar nema Jón Odd og Jón
Bjarna.“
Ævintýri Pappírs Pésa er fyrsta kvikmyndin
sem Ari leikstýrir. Áður hafði hann ásamt kvik-
myndatökunni skrifaö handrit ásamt Þráni
Bertelssyni að sumum mynda hans.
„Upprunalega var Pappírs Pési sjónvarpskvik-
mynd sem var framleidd í samvinnu við þýska
sjónvarpsstöð. Þjóðverjar höfðu svo áhuga á að
framleiða áframhaldandi seríu. Það stóð til að
þeir ættu tvo þriðju hluta í sjónvarpsserí.mni.
Síöar kom í ljós að þeir vildu aöeins kaupa sýn-
ingarréttinn. Þá vorum viö komnir svo langt í
gerð þáttanna að við urðum að finna okkur
nýjan tekjugrundvöll ef halda átti áfram með
þættina. Varð úr að viö bættum kvikmyndinni
við, sem er algengt í þessum bransa, og er kvik-
myndin unnin að hluta til upp úr sjónvarps-
þáttunum sem eru átta talsins.
Hvað varðar markað þá er betra að koma
kvikmynd og sjónvarpsþáttum á framfæri held-
ur en aðeins sjónvarpsþáttunum. Við erum til
að mynda komnir á lokastig með að seljá kvik-
myndina til dreifingar í Bandaríkjunum. Fer
kvikmyndin á hærra verði þar en sjónvarps-
þættimir einir myndu fara, þótt lengri séu.“
Ævintýri Pappírs Pésa er alíslensk kvikmynd
og segir Ari að ef um áframhaldandi framleiðslu
veröi að ræða, hvort sem er efni fyrir sjónvarp
eða kvikmynd, þá verði að meiri hluta til um
erlenda framleiðslu að ræða.
„Það er frekar galU á myndinni, þegar hugað
er að erlendum markaði, að hún skuli vera með
íslensku taU. Erlendur markaður gagnvart
barnáefni virðist opinn og ef hún væri með
ensku tali þá væri hún mun auðveldari í sölu.“
Eins og gefur að skilja þarf mikinn fjölda
áhorfenda til að Ævintýri Pappírs Pésa borgi
sig. Þó segir Ari aö áhættan sé ekki eins mikil
eftir aö hafa séð hversu vel myndinni hefur
verið tekið af erlendum dreifingaraðilum.
„Það virðist vera mikill áhugi erlendis á
barnaefni. Hingað til hefur gengið frekar illa að
dreifa íslenskum kvikmyndum erlendis, oft
vegna þess hversu þær eru bundnar íslenskum
staðháttum. Kvikmyndir fyrir böm virðast aftur
á móti hafa endalausan markað og em mun létt-
ari í sölu. Flestar sjónvarpsstöðvar eru að auka
harnaefni og það kallar náttúrlega á meiri íjöl-
breytni í bamamyndagerð."
Hver er Pappírs Pési?
Ari segir að fyrsta myndin um Pappirs Pésa
hafi verið skrifuð eftir leikriti Herdísar Egils-
dóttur. Síðan hefur hugmyndin þróast. „Þjóð-
verjar, sem tóku þátt í gerð myndarinnar, gerðu
ákveðnar kröfur, vildu hafa skemmtanagUdi í
fyrirrúmi og hafa því umbúðir breyst, en Papp-
írs Pési er aUtaf eins og samkvæmur sjálfum sér.
Pési er ekki léttur leikari. Hann getur ekki
leikið nema í logni og ekki má vera rigning. Þá
verður aUtaf að vera tU taks sérstök grind svo
hægt sé að stjórna honum. Pappírs Pési er því
dýr og erfiður leikari."
í fyrstu myndinni var honum aðeins stjórnað
eins og brúðu með strengjum og var ekki laust
viö að það sæist í myndinni.
„Viö lærðum mikið við gerð fyrstu myndar-
innar,“ segir Ari, „en um leið og við höfum full-
komnað tæknina í að stjórna Pappírs Pésa hefur
hann orðið dýrari í framleiðslu. Langmesta
vinnan við kvikmyndina var í kringum Pésa.
Það er ekki hægt aö segja Pappírs Pésa að
ganga í gegnum dyr eins og öðrum leikurum.
Það verður að stjórna hverju skrefi sem hann
tekur.“
Það verður ekki mikið um hvUd hjá Ara Krist-
inssyni, því í gær hélt hann ásamt fríðu liði
kvikmyndagerðarmanna norður á Hornstrand-
ir en þar eru að hefjast tökur á Börnum nátt-
úrunnar sem Friðik Þór Friðriksson leikstýrir
og Ari kvikmyndar:
„Ég mun koma í bæinn til að vera við frum-
sýningu á Ævintýri Pappírs Pésa en fara strax
aftur næsta dag vestur, en áætlað er að kvik-
myndatakan við Börn náttúrunnar taki tvo
mánuði.“ Eftir að vinnunni við mynd Friöriks
lýkur tekur við gerö barnamyndar fyrir Sjón-
varpið og sitthvað fleira er í deiglunni hjá Hrif-
mönnum sem of snemmt er að minnast á nú.
-HK