Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Side 27
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
35
Afmæli
Sigurjón Sigurðsson
Sigurjón Sigurðsson, fyrrverandi
lögreglusijóri, Ægisíðu 58, Reykja-
vík, er sjötíu og fimm ára í dag. Sig-
urjón er fæddur í Reykjavík og lauk
lögfræðiprófi frá HÍ1941. Hann var
starfsmaður Sjóvátryggingafélags
íslands hf. 1942-1944 og fulltrúi lög-
reglustjóra 1944-1947. Sigurjón varö
lögreglustjóri í Reykjavík 1947, lét
af embætti 1. desember 1985 fyrir
aldurs sakir og var skólastjóri Lög-
regluskóla ríkisins 1965-1985. Hann
var formaður heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur 1947-1970, umferðar-
nefndar 1955-1987 ogUmferðarráðs
frá stofnun þess 1969 til 1982. Sigur-
jón var í almannavarnaráði ríkisins
og almannavarnarnefndar Reykja-
víkur 1962-1985. Hann var í nefnd
til varnar flugránum 1978-1987 og í
nefndum til að endurskoða löggjöf
um lögreglumenn, almannavarnnir,
útlendingaeftirbt og lögregluskóla.
Sigurjón var fulltrúi íslands í Nor-
rænu útlendinganefndinni 1965-
1985 og á mörgum fundum erlendis
um lögreglu-, umferðar- og öry ggis-
mál. Hann var setudómari í nokkr-
um málum og hafði yfirumsjón með
Bifreiðaeftirliti ríkisins 1951-1977.
Sigurjón var forseti Rotaryklúbbs
Reykjavíkur 1959 og varð heiðurs-
félagi í íþróttafélagi lögreglunnar
1980. Hann hefur skrifaö nokkrar
greinar í fagtímarit um lögreglu- og
umferðarmál. Sigurjón hefur verið
sæmdur stórriddarakrossi fálka-
orðunnar með stjörnu og mörgum
erlendum heiðursmerkjum. Sigur-
jón kvæntist 31. júlí 1942 Sigríöi
Magnúsdóttur Kjaran, f. 9. febrúar
1919. Foreldrar Sigríðar eru Magnús
Kjaran, stórkaupmaður og ræðis-
maður í Rvík, og kona hans, Soffía
Kjaran, f. Siemsen. Börn Sigurjóns
og Sigríöar eru Sofíia, f. 3. október
1944, kennari á Akranesi, gift Ste-
fáni J. Helgasyni yfirlækni, böm
þeirra eru Sigurjón Örn, Ragnheið-
ur Hrönn og Sigríður Helga; Sigurð-
ur, f. 24. mars 1946, lögmaður í Rvík,
kvæntur Hönnu Hjördísi, BA, börn
þeirra eru Tómas, Soffía Elín og
Jóhann; Magnús Kjaran, f. 3. maí
1947, deildararkitekt hjá Húsameist-
ara ríkisins í Rvík, kvæntur Þó-
runni Benjamínsdóttur; Birgir
Bjöm, f. 20. febrúar 1948, hagfræð-
ingur BHMR í Rvík, kvæntur Ingi-
leifu Jónsdóttur líffræðingi, synir
þeirra em Magnús og Árni; Jóhann,
f. 25. október 1952, sjávarlíffræðing-
ur, sérfræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnuninni, kvæntur Helgu Braga-
dóttur arkitekt, börn þeirra eru
Fríða Sigríður, Soffía Dórang Sigur-
jón; Arni, f. 28. desember 1955, dr.
bókmenntafræðingur og ritstjóri,
kona hans er Lilja Valdimarsdóttir,
hornleikari í Sinfóníuhljómsveit-
inni, dætur þeirra eru Snjólaug og
Vala(stjúpdóttir).
Systkini Sigurjóns eru Elín, f. 12.
maí 1901, giftist Ludvig Storr stór-
kaupmanni og ræðismanni, Snjó-
laug, f. 7. ágúst 1903, fyrri maður
hennar var Kja Aage Bmun, sjón-
tækjafræöingur, seinni maður
hennar er Otto Baldvins, raffræð-
ingur; hún er móðir Knúts Bruun
lögfræðings; Ingibjörg, f. 3. júlí 1905,
gift Sigursteini Magnússyni, aðal-
ræðismanni og framkvæmdastjóra
í Edinborg í Skotlandi, móðir Magn-
úsar S. Magnússonar sjónvarps-
manns; Jóhanna, f. 3. desember
1906, gift Sveini Péturssyni augn-
lækni ogBjörn, f. 4. júní 1911, lækn-
ir í Keflavík, kvæntur Sólveigu Sig-
urbjörnsdóttur. Systir Sigurjóns
samfeöra er Guðrún, f. 25. október
1890, d. 4. maí 1960, gift Guðlaugi
Magnúsi Guðmundssyni, verka-
manni í Rvík, móðir Hallgríms Dal-
bergs ráðuneytisstjóra.
Foreldrar Sigurjóns eru Sigurður
Björnsson, f. 14. mars 1867, d. 16.
mars 1930, bmnamálastjóri í Rvík,
og kona hans, Snjólaug Sigurjóns-
dóttir, f. 7. júli 1878, d. 19. mars 1930.
Bróðir Sigurðar brunamálastjóra
var Árni, prófastur í Görðum á
Álftanesi, og voru þeir bræður svil-
ar. Árni í Göröum var afi Árna Sig-
uijónssonar, yfirmanns útlendinga-
eftirlitsins, og langafi Jóns L. Árna-
sonar, stórmeistara í skák og fyrrv.
heimsmeistara unglinga, og Guð-
mundar Árna Stefánssonar, bæjar-
stjóra í Hafnarfirði. Sigurður var
sonur Björns, b. í Höfnum á Skaga,
bróður Árna í Höfnum, föður Am-
órs, prests í Hvammi í Laxárdal, afa
Gunnars Gíslasonar, fyrrv. alþing-
ismanns og prests í Glaumbæ í
Skagafirði, og listmálaranna Sig-
urðar og Hrólfs Sigurðssona og
langafa Stefáns Benediktssonar
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli. Björn
var sonur Sigurðar, b. í Höfnum,
Ámasonar og konu hans Sigurlaug-
ar Jónasdóttur, b. í Gili í Svartár-
dal, Jónssonar. Móðir Jónasar var
Ingibj örg J ónsdóttir „harðabónda",
b. í Mörk í Laxárdal, Jónssonar,
ættföður Harðabóndaættarinnar.
Móðir Sigurlaugar var Ingibjörg
Jónsdóttir, b. á Skeggsstöðum, Jóns-
sonar, ættföður Skeggsstaðaættar-
innar.
Bróðir Snjólaugar var Jóhann Sig-
urjónsson skáld. Snjólaug var dóttir
Sigurjón Sigurðsson.
Sigurjóns, b. og dbrm. á Laxamýri,
Jóhannessonar, b. á Laxamýri,
bróður Jóns í Sýrnesi, langafa Jón-
asar frá Hriflu og Kristjáns, föður
Jónasar, forstöðumanns Ámastofn-
unar. Jóhannes var sonur Kristjáns,
b. á Halldórsstöðum í Reykjadal,
Jósefssonar, b. á Stórulaugum í
Reykjadal, Tómassonar, bróður
Jónasár, afa Jónasar Hallgrímsson-
ar skálds. Móðir Kristjáns var Ingi-
björg Hallgrímsdóttir, systir Gunn-
ars í Laufási, langafa Hannesar Haf-
steins, Móðir Snjólaugar var Snjó-
laug Þorvaldsdóttir, b. á Krossum á
Árskógsströnd, Gunnlaugssonar og
konu hans, Snjólaugar Baldvins-
dóttur, prests á Upsum, Þorsteins-
sonar, bróður Hallgríms, föður Jón-
asar skálds.
Til hamingju
meö afmæliö
85 ára
Guðmundur Halldórsson,
Magnússkógum 1, Hvammshreppi.
80 ára
Jóhann Ögmundsson,
ÞingvaUastræti 27A, Akureyri.
Valdimar Guðmundsson,
Flókagötu 63, Reykjavik. Hann og eig-
inkona hans, Eybjörg Ásgeirsdóttir,
taka á móti gestum í dag á Holiday
Inn klukkan 17.00 tii 19.00.
75 ára
Kristjana Káradóttir,
Melgerði 26, Kópavogi.
70 ára
Jón G. Þórarinsson,
Háaleitisbraut 52, Reykjavík.
Vilhjálmur Friðriksson,
Skúlagötu 74, Reykjavik.
Guðmundur Sigurjónsson,
Naustahlein 22, Garöabæ.
Guðmundur Gislason,
Granaskjóli 3, Reykjavik.
Ragnhildur Helga Magnúsdóttir,
Kleppsvegi 42, Reykjavík.
60 ára
Þórarinn Guðvarðssori,
Minni-Reykjum, Fljótahreppi.
Reynir Árnason,
Hlíöarvegi 18, Siglufiröi.
Jörundur Kristinsson,
Sunnuflöt 20, Garðabæ.
Halimann Lárusson,
Þorraóösstöðura, Saurbæjarhreppi.
Sigriður Júlíusdóttir,
Hólmgarði 2A, Keflavík. Hún verður
að heiman á aíinælisdaginn.
50 ára
Jóhanna Einarsdóttir,
Bólstaðarhlíð 31, Reykjavik.
Guðrún Matthiasdóttir,
Seivogsgrunni 22, Reykjavík.
Elinborg Þórarinsdóttir,
Hjaliabraut 43, Hafnarflrði.
Hákon Valdimarsson,
Hlíðartúni 31, Höfn.
40 ára
Sigurður Karl Pálsson,
Hagatúni 10, Höfti.
Sesselja Guðrún Sigurðardóttir,
Lækjarhvammi 3, Hafnarfirði.
Ingvi Friöriksson,
Móatúni 13, Tálknafirði.
Hrafn Pálsson,
Fifuseli 13, Reykjavík,
Jónina R. Magnúsdóttjr,
Irabakka 8, Reykjavík.
Pétur Martin Færseth,
Hrauntúni 3, Vestmannaeyjum.
Sigurður Magnússon
Sigurður Magnússon skipstjóri,
Norðurvör 1, Grindavík, er sjötíu
ogfimmáraídag.
Sigurður fæddist á Innstu-Tungu
í Tálknafirði og ólst þar upp. Hann
stundaði bæöi störf til sjós og lands.
Meðal annars stundaði hann hval-
veiðar með Norðmönnum sem
gerðu út frá Tálknafiröi á þessum
árum. Árið 1938 fór Sigurður á ver-
tíð í Grindavík hjá Guöbjarti Guð-
bjartssyni í Bjarmalandi. Haustiö
1941 flutti Sigurður með konu sinni
til Grindavíkur og fljótlega festu þau
kaup á húseigninni Sólheimum. Á
stríðsárunum 1942-1945 var Sigurð-
ur á togurum sem sigldu með ísfisk
á Englandsmarkað. 1945 ræðst hann
í að kaupa bát ásamt Kristni Ólafs-
syni mági sínum, Sverri Sigurðssyni
og fleiri. Báturinn hét Hrafn Svein-
bjarnarson og var tuttugu og tveggja
tonna. 1947 seldu þeir bátinn og
festu kaup á öðrum sem einnig bar
nafnið Hrafn Sveinbjamarson. Þeir
félagarnir réðust í það árið 1950 að
byggja fiskverkunarhús og stofnuðu
fyrirtæki um reksturinn, Þorbjörn
hf. 1958 fór Sigurður í Stýrimanna-
skólann til að afla sér réttinda á
stærri bátum.
Sigurður var skipstjóri í yfir þrjá-
tíu ár og alltaf á bátum er báru nafn-
iö Hrafn Sveinbjamarson. Hann var
alla tið mjög happasæll og lands-
þekkturaflamaður. Sigurður hætti
til sjós 1969 og fór að vinna við fyrir-
tæki í landi. Hann var í mörg ár
hleðslustjóri hjá SÍF og sá um lest-
um á saltfiski til útflutnings. Um
tíma var hann í samninganefnd fyr-
ir LÍÚ. Síðustu árin hefur Sigurður
átt trillu sem hann hefur róið á sér
til ánægju og heilsubótar.
Sigurður giftist þann 18. október
1940 Þórlaugu Ólafsdóttur, f. 15. okt-
óber 1920. Þórlaug er dóttir hjón-
anna Ólafs Þorleifssonar og Ragn-
heiðar Helgu Jónsdóttur frá Þór-
kötlustöðum.
Börn Sigurðar og Þórlaugar voru
sjö og þar af eru fimm á lífi: Ólafur
Ragnar, f. 14. febrúar 1941; Guðrún,
f. 11. september 1943; Sóley Jó-
hanna, f. 25. mars 1945, d. 26. októb-
er 1957; Bjarney Kristín, f. 25. mars
1945, d. 6. desember 1962; Guðjón, f.
12. júní 1950; Sóley Þórlaug, f. 17.
júní 1958; og Hrafnhildur, f. 13. júní
1962.
Sigurður var tíundi af sautján
bömum foreldra hans. Þijár systur
Sigurðar eru nú á lífi, þær Ingi-
björg, Rósa og Lovísa.
Móðir Sigurðar var Guðrún Guð-
mundsdóttír frá Botni í Tálknafirði,
Sigurður Magnússon.
f. 24. nóvember 1884, d. 8. júní 1942.
Faöir Sigurðar var Magnús Guð-
mundsson frá Tálknafirði, f. 1878,
d. 5. ágúst 1930.
Andlát
Óskar J. Þorláksson
Óskar J. Þorláksson.
Óskar J. Þorláksson, fyrrv. dóm-
prófastur, lést þriðjudaginn 7. ágúst.
Óskar verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni kl. 13.30 í dag, fimmtudag-
inn 16. ágúst.
Óskar Jón fæddist 5. nóvember
1906 í Skálmarbæ í Álftaveri og lauk
guðfræðiprófi frá HÍ1930. Hann var
í framhaldsnámi í trúfræði, predik-
unarfræði og nýja testamentísfræð-
um í Oxford og London um sex
mánaða skeið 1930-1931 og fór í
námsferðir til Noröurianda 1931 og
1967 og Oxford 1947. Óskar var sókn-
arprestur á Kirkjubæjarklaustri
1931-1935 og settur prófasiur í Vest-
ur-Skaftafellsprófastsdæmi 1934-
1935. Hann var sóknarprestur á
Siglufirði 1935-1951 og dómkirkju-
prestur í Rvík 1951-1976. Óskar var
settur dómprófastur 1964 og skipað-
ur 1973-1976. Hann var stundakenn-
ari í Gagnfræðaskóla og Barnaskóla
Siglufjarðar 1936-1951 og í Kvenna-
skólanum í Rvík 1953-1976. Óskar
var í skólanefnd Barnaskóla Siglu-
fjarðar 1936-1951 og í sáttanefnd
Siglufjarðar 1935-1951. Hann var í
stjóm Gesta- og sjómannaheimibs
Sigluíjarðar frá stofnun þess 1937-
1951 og formaður Búnaðarfélags
Siglutjarðar 1937-1948. Óskar var í
barnaverndarnefnd Siglufjarðar í
nokkur ár og í stjórn Söguféiags
Siglufjarðar 1943-1951. Hann var
varasáttasemjari í Norðurlandsum-
dæmi 1944-1951 og í framkvæmda-
nefnd Stórstúku Islands 1952-1953.
Óskar var umdæmisstjóri Rotaryfé-
laganna á íslandi 1948-1950 og for-
maður slysavarnadeildarinnar Ing-
ólfs í Rvík 1953-1965. Hann var í
stjórn Hins ísl. biblíufélags 1954-
1980, í stjórn Vetrarhjálparinnar í
Rvík 1954-1964 og í skólanefnd
Kvennaskólans í Rvík 1967-1982.
Óskar hefur samið: Vestur-Skafta-
felissýsla, (Árbók FÍ1935) og Héð-
insfjörður og Siglufjörður, (í Árbók
FÍ1938). Hann var ritstjóri og útgef-
andi: Barnasálmar og ljóð, 1944; Við
móðurkné, 1946; Kirkjuklukkan,
safnaðarblað Siglufjarðar 1947-1950;
Reginn (meðritstjóri) 1938-1950;
Safnarblað Dómkirkjunnar (meðrit-
stjóri) 1951-1976; Rotary Norden
(meðritstjóri) frá 1960 og Hvers
vegna er ég bindindismaður? (með-
útgefandi) 1967.
Oskar kvæntíst 21. nóvember 1934
Vigdlsi Elísabetu Ámadóttur, f. 12.
nóvember 1896. Foreldrar Elísabet-
ar vom Árni Eiríksson, b. í Gerða-
koti á Miönesi, og kona hans, Ebn
Ólafsdóttir. Synir Óskars og Elísa-
betar eru óskírður drengur, f. 19.
janúar 1936, lést næsta dag og Árni,
f. 10. júlí 1939, bankastarfsmaður,
kvæntur Heiðdísi Gunnarsdóttur.
Fósturdóttir þeirra er Helga Pálma-
dóttír, f. 4. júb 1936, sviösstjóri hjá
Sjónvarpinu, gift Helga Samúels-
syni, verkfræðingi hjá Húsnæðis-
málastjóm.
Systur Óskars eru Sigríður Guð-
rún, f. 13. apríl 1902, gift Bjarna
Guðjónssyni, látínn, myndskeraí
Vestmannaeyjum og Guörún, f. 20.
september 1920, gift Einari Hauki
Eiríkssyni, starfsmanni Skattstof-
unnar í Rvík gagnfræöaskólakenn-
ara i Vestmannaeyjum.
Foreldrar Óskars vom Þorlákur
Sverrisson, b. í Skálmarbæ í Áifia-
veri, og kona hans, Sigríður Jóns-
dóttir. Þorlákur var sonur Sverris,
b. í Skálmarbæjarhraunum, Magn-
ússonar, b. á Kársstöðum, Jónsson-
ar. Móðir Þorláks var Sigríður Jóns-
dóttír, b. á Eystra-Hrauni, Arasonar
Jónssonar, prests á Skinnastað,
Einarssonar. Móðir Sigríðar var
Ingveldur Gísladóttir, b. í Hörgsdal,
Jónssonar og konu hans, Sigríöar
Lýðsdóttur, sýslumanns í Vík í
Mýrdal, Guðmundssonar.
Sigríður var dóttir Jóns, b. í
Skálmarbæ, Sigurðssonar, b. á
Borgarfelh, Jónssonar, b. oghrepp-
stjóra í Hbð, Jónssonar. Móðir Jóns
í Skálmarbæ var Anna Árnadóttír,
b. i Hrífunesi, Árnasonar og konu
hans, Rannveigar Jónsdóttur. Móð-
ir Sigríðar var Guðrún Vigfúsdóttir,
b. í Flögu, Bótólfssonar og seinni
konu hans, Sigríðar Ólafsdóttur, b.
í Holti í Veri, Gíslasonar, bróður
Ingveldar.