Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Blaðsíða 28
36
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
Merming
>
Smámyndir í tumi
Gallerí Sævars Karls að Bankastræti 9 er griðastað-
ur hátt yfir glaumi Laugavegar sem eflaust fer fram-
hjá mörgum sem ekki eiga beinlínis erindi upp á efstu
hæð samnefndrar tískuverslunar.
Hér er um að ræða nokkurs konar turnherbergi,
mettað tveggja átta dagsbirtu sem á stundum verður
svo sterk að erfitt er að gaumgæfa listaverkin á
skjannahvítum veggjunum. Ljósílæðið kemur stund-
um niður á sýningum smærri verka, en verður oftar
til að auka á ánægju áhorfandans. Sem betur fer, því
galleríið er eins og sniðið utan um smærri verk, for-
myndir, myndrænar hugleiðingar eða fingraæfmgar,
sem veita oft og tíðum betri innsýn í þankagang mynd-
listarmanna heldur en sérsýningar á stórum verkum.
í slíkum verkum greinum við svita og tár, átök við
grundvallarreglur myndrænnar tjáningar og þau dýr-
mætu augnablik þegar hugvit, tilfmningar og tækni
leggjast á eitt.
Innlifun
Halldóra Emiisdóttir heitir ung hstakona, nýútskrif-
uð úr Gerrit Riitveld listaskólanum í Amsterdam.
Þessa dagana sýnir hún úrval lítilla gvassmynda á
pappír í turnherbergi Sævars Karls. Um þessar yfir-
lætislausu myndir sínar segir hún: „Þær hafa ekki
hátt, en vilja fá að dingla milli veruleika eins og þær
koma fyrir, án frekari útfærslu."
Eins og þær koma fyrir gefa þessar myndir ef til
vill ekki skýra hugmynd um þau markmið sem lista-
konan hefur sett sér. En þær gefa sterklega til kynna
að hún reisi listsýn sína ekki á rökrænum eða hug-
myndalegum grunni, eins og margir Hollandsfarar,
heldur á tilfinningalegri innlifun og fangbrögðum við
Misjafn sauður...
fellur eins og flís við rass.
Þá fagna ég sérlega tilkomu íslandsvina, húmorista
sem allt eins geta velgt Stuðmönnum undir uggum ef
rétt og festiiega verður á spilunum haldið. Lagið Gam-
alt og gott fær fyrstu ágætiseinkunn. Sæmundur er
síðri.
Skrautfjöður hljómplötuútgáfunnar Skífunnar er
Síðan skein sól. Hún flytur á plötunni Hitt og þetta
... þrjú lög. Þau eru öll hin áheyrilegustu og sýna að
Sólin plumar sig ágætlega án Tony Clark sem stýrði
gerð stóru Sólarplatnanna tveggja. Mátulega Stones-
legir fyrir minn smekk, Helgi og félagar.
Langi Seli og Skuggamir eru gengnir til hðs við
Skífuna og ætla að senda frá sér plötu með haustinu.
ísjakinn er lag Sela og félaga á Hinu og þessu ... Lag-
ið er dálítið Dr. Feelgoodlegt. Hálfgildings „pöbba-
billy“. Ekki jafnsterkt og Breiðholtsbúgí og Kontínen-
talinn en skemmtilegt samt.
Síðast en ekki síst má vekja athygli á laginu Ávallt
viðbúnir með Sverri Stormskeri. Sverrir hljómar nú
loksins almennilega á plötu. Annaðhvort hefur honum
fafið stórlega fram i stúdíói síðan síðast eða hann
hefur ráðið sér upptökusfjóra. Textinn við Ávallt við-
búnir er smágrín um skátahreyfinguna. Allt í góðu
þó.
Þar með eru upp taldir ljósustu punktarnir sem ég
fann á safnplötunni Hitt og þetta ... Til viðbótar í
nokkurs konar eftirskrift má nefna að Eftirlitið leynir
á sér sem og Karma. Hins vegar bjóst ég við meiru frá
Rokkabillybandi Reykjavíkur. Gengur betur næst hjá
þeim piltum.
ÁT
Tvö sumur í röð hafa stóru útgáfurnar tvær, Skífan
og Steinar, sent frá sér sína safnplötuna hvor. Plöt-
urnar eru svo keimlíkar aö Steinamenn hirtu ekki
einu sinni um að flnna nýtt nafn á sína. Um þá plötu,'
Bandalög 2, hefur þegar verið fjallaö í DV.
Skífuplatan er Hitt og þetta. Aðallega hitt alla leið.
Ef til vill býr eitthvert spaug á bak við nafnið. Svo
djúpt er hins vegar á því að sá er þetta ritar skilur
ekki baun.
Á plötunni er 21 lag. Þar af eitt í tveimur útsetning-
um, samtals yfir 77 mínútur í flutningi. Efnið kemur
úr öllum áttum: rokk, popp, miðjumoð og fleira. Sumt
Nýjar plötur
Ásgeir Tómasson
er fullunnið - annað enn á vinnslustiginu er þaö var
gefið út. Eitt og eitt lag heyrist manni ekkert erindi
hafa átt á plötu: Nokkur eru hreint og beint ágæt.
Mest er þó miðlungs á plötunni Hitt og þetta ...
í sjálfu sér þarf ekki að fara mörgum orðum um
plötuna. Hún lýtur að öllu leyti lögmálum sumarsafn-
plötunnar. Við fáum smá forsmekk af haustútgáf-
unni. Vönu mennirnir gauka að okkur sumarsmellun-
um. Efnileg nöfn eru kynnt og síðan er fyllt upp í með
viðeigandi uppfyllingarefni.
Toppurinn á plötunni er tvímælalaust lagið Lag eftir
lag með Pís of keik. Þar er greinilega á ferðinni fólk
sem kann sitt fag. Ekki sakar aö myndband við lagið
Halldóra Emilsdóttir á sýningu sinni.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
þann efnivið sem hendi er næst. Smámyndir hennar
eru könnunarleiðangrar yfir á útjaðra hins þekkjan-
lega, „dingla milli veruleika", minna ýmist á landslag,
hluti í landslagi eða arftekin tákn, stundum á allt þetta
í senn. Eftirtektarvert er þaö litróf sem listakonan
beitir, en það er að uppistöðu heitt og höfugt, en með
sérkennilega kaldhömruðum blæbrigðum.
Sýning Halldóru Emilsdóttur í Galleríi Sævars Karls
stendur til 31. ágúst.
Andlát
Guðrún Gísladóttir, Sæbólsbraut 3,
Kópavogi, andaðist fóstudaginn 10.
ágúst.
Ragnar Hallgrímsson, Nesvegi 45,
Reykjavík, lést í Borgarspítalanum
miðvikudaginn 15. ágúst.
Magnús Guðmundsson, Safamýri 27,
Reykjavík, er látinn.
Jardarfarir
Ásdís Pálsdóttir, Lækjargötu 3,
Hvammstanga, sem lést 13. ágúst,
verður jarðsungin frá Hvamms-
tangakirkju laugardaginn 18. ágúst
kl. 14.
Útíör Aldísar Hugbjartar Kristjáns-
dóttur, Bergþórugötu 16a, fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík íostu-
daginn 17. ágúst kl. 13.30.
Karl B. Jeppesen, Ventura, Kalifor-
níu, er látinn. Jarðarförin hefur farið
fram.
Björn Viktorsson, Grenigrund 3,
Akranesi, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju fóstudaginn 17. ágúst
kl. 14.
Útför Birnu Kristínar Finnsdóttur,
Holtagötu 2, Akureyri, fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 17.
ágúst kl. 13.30.
Jón Þorleifsson múrarameistari
verður jarösunginn frá Keflavíkur-
kirkju fóstudaginn 17. ágúst kl. 14.
Þór Reynir Jensson, sem lést 13.
ágúst á Sólvangi, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu
fóstudaginn 17. ágúst kl. 10.30.
Þórarinn Árnason frá Stóra-Hrauni
veröur jarösunginn frá Dómkirkj-
unni í Reykjavik fóstudaginn 17.
ágúst kl. 15.
Matthildur Kristín Gunnarsdóttir
símavörður, Reykjalundi, Mosfells-
bæ, verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju fóstudaginn 17. ágúst kl. 15.
Jarðsett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Lárus Á. Ársælsson, Kirkjuvegi 43,
Vestmannaeyjum, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju í Vestmannaeyj-
um laugardaginn 18. ágúst kl. 14.
Elín Halla Gunnarsdóttir, Sigurjóna
Örlygsdóttir og Sigurður Sigurðsson,
sem létust í Svíðþjóð 5. ágúst sl„
verða jarðsungin frá Víðistaöakirkju
í Hafnarfirði fóstudaginn 17. ágúst
kl. 13.30.
Aldís Ó. Sveinsdóttir lést 7. ágúst.
Hún fæddist á Hjálmstöðum í Laug-
ardal 7. október 1895, dóttir hjónanna
Sveins Eyjólfssonar og Önnu Guð-
mundsdóttur. Aldís giftist Jóni Ól-
afssyni en hann lést árið 1971. Þau
hjónin eignuðust sex börn. Aldís
eignaðist einn son fyrir hjónaband.
Aldís stundaði lengst af fiskvinnslu-
störf, lengst hjá Fiskiðjuverinu og
BÚR. Útför hennar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Magnús Guðmundsson er látinn.
Hann fæddist að Vallanesi á Völlum
31. maí 1912, sonur hjónanna Aðal-
bjargar Stefánsdóttur og Guðmund-
ar Þorbjörnssonar. Magnús lauk
prófi frá Samvinnuskólanum 1931 og
var starfsvettvangur hans hjá Kaup-
félagi Héraðsbúa. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Unnur Gunnlaugsdótt-
ir. Þau hjónin eignuðust þrjú böm.
Útfór Magnúsar verður gerð frá
Reyöarfjarðarkirkju í dag kl. 14.
Tilkynrdngar
50 ára útskriftarafmæli
Nemendur eldri deildar Héraðsskólans á
Laugarvatni veturinn 1939-40 hafa í
hyggju að koma saman á Laugarvatni
laugardaginn 25. ágúst nk. kl. 13 og halda
upp á 50 ára útskriftarafmæli. Þar ætla
þeir að dveljast til sunnudags og riíja upp
gömul kynni en margir hafa ekki hist í
þau 50 ár sem liðin eru frá því að þeir
kvöddust á hlaðinu á Laugarvatni. Þátt-
töku skal tilkynna til einhvers eftirtal-
inna manna í síðasta lagi sunnudaginn
19. ágúst nk. og munu þeir jafnframt veita
allar nánari upplýsingar. Bjarni Ey-
vindsson, Hveragerði, s. 98-34153, Hjalti
Þórðarson, Selfossi, s. 98-21166, Konráð
Gíslason, Varmahlíð, s. 95-38199 og Páll
Þorsteinsson, Reykjavík, s. 91-82941. Eru
bekkjarfélagar hvattir til að koma og eiga
góða stund saman í gamla skólanum.
Kattahótelið í Reykjavík
minnir fólk á að láta bólusetja ketti áður
en það kemur með þá í gæslu og panta
pláss tímanlega. Sími Kattahótelsins er
641461.
Norræna stjórnmálafræði-
sambandið
mun halda IX. þing sitt hér á landi dag-
ana 15.-19. ágúst. Ráðstefnan verður
haldin 1 Háskóla íslands og hefur Félags-
vísindadeild Háskólans veg og vanda af
skipulagningu hennar. Um 200 stjóm-
málafræðingar hvaðanæva af Norður-
löndunum, sem aöild eiga að samband-
inu, munu sitja ráðstefnuna. Hún hefst í
dag, 15. ágúst í Odda með mótttöku ráð-
stefnugesta, en næstu þrjá daga á eftir
munu ráðstefnugestir vinna í litlum
vinnuhópum þar sem afmörkuð málefni
verða rædd frá sjónarhóli stjórnmála-
fræðinnar. Má þar nefna umræðuhópa
um þróunina í A-Evrópu, umhveríis-
stjórnmál, skipulag stjórnmálaflokka,
jafnrétti kynjanna á næsta áratug, opin-
bera stjórnsýslu og stefnumótun, og
Norðurlöndin og samrunaþróunina í
Evrópu. Þá verður einnig haldin sameig-
inleg námsstefna um íslensk stjórnmál
fmuntudaginn 16. ágúst sem prófessor
Svanur Kristjánsson stjómar.
Félag eldri borgar
Göngu-Hrólfar hittast nk. laugardag kl.
10 að Nóatúni 17. Farin verður ferð um
Reykjanes og Selvog nk. laugardag kl. 13
frá Nóatúni 17. Verð kr. 1.500 meö mat.
Tapað fuxidið
Steingrár fress tapaðist
Hefur einhver séð steingráan fresskött
með hvítt trýni og neðan á fótum. Hann
týndist frá Dal í Mosfellsbæ í síðustu
viku. Ef einhver hefur orðið hans var,
þá visnamlegast látiö vita í síma 666885.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu á viðskipta-
síðu DV i gær að þessar myndir af
þeim Herði Sigurgestssyni, forstjóra
Eimskips, tii vinstri, og Stefáni Hilm-
arssyni, bankastjóra Búnaðarbank-
ans, til hægri, víxluöust. Við biðjum
hlutaðeigandi velvirðingar.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
t
Astkær faðir okkar, tengdafadir, afi og langafi,
Þórarinn Árnason
frá Stóra Hrauni
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavik föstudaginn
17. ágústkl. 15.
Kristín Þórarinsdóttir
Lára Þórarinsdóttir Beck
Elisabet Þórarinsdóttir
Elín Þórarinsdóttir
Inga Þórarinsdóttir
Gyða Þórarinsdóttir
Einar Nikulásson
Halldór Beck
Stefán Gíslason
Hans Gústafsson
Olafur G. Eyjólfsson
Hafliði Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Fjölmiðlar
Burt með gamalmennin
Stjómmálamenn karpaum meiri-
hlutakaup ríkisins í íslenskum aðal-
verktökum (því milljarðafyritæki) á
meðan verið er að fleygja ósjálf-
bjarga og fársjúkum gamalmennum
út af sjúkrahúsum borgarinnar. Er
þetta þjóöfélagnormalt? Neyöar-
ástand er að skapast í landinu vegna
þess að fólk sem þarf að stunda sína
vinnu allan daginn verður að fá fri
frá störfum, fara heim og taka að
sér hjúkrunarstörf á öldruðum ætt-
mennum sem ættu að vera undir
læknishendi. Nú, eða fólkið er sent
heim og liggur þar eitt og án aiirar
aöhlynningar. Ég tel þetta mái vera
mjög alvarlegt og varð því hissa
þegar heiibrigðisráöherra sagöi með
bros á vör í fréttatíma Sjónvarpsins
í gærkvöldi: „Villþessiþjóð borga
meiri skatta?" Ogefnislega sagði
hann vera allt of mikið af gömlu
fóiki í þessu landi. - Það er víst ekki
sama hvar þeir skattpeningar, sem
þykja orðið ansi ríflegir sem við
borgum, liggja. Sennilega er betra
að ávaxta þá í einokunarfyrirtæki
og sýna góða stöðu ríkiskassans
þegar líöur að kosningum en að
bjarga gamla fóikinu. Það er hvort
eð er alit of margt og tími til að losna
við eitthvað að því. Þannig virðist
manni hugsanagangur ráðherrans
vera.
Annað kemur manni á óvart. í
gærkvöldi var rætt við Þórhildi Þor-
leifsdóttur, þingmann Kvennalist-
ans, um ísienska aðalverktaka. Mér
sýndist að Þórhildur vissi ekkert um
þetta mál og kom með neyöarleg
svör um að flokkur sinn væri á
móti útlendum her. Kvennalistinn,
sem þóttist vinna fyrir íjölskyldur
þessa lands og bættum hag kvenna
og bama, lætur sér ekki koma í hug
að gera athugasemdir þegar ríkið
lætur stórfé liggja i fyrirtæki í stað
þess að laga ástand öldrunardeilda.
I þess staö röflar Þórhildur um her-
ínn. Ég held það sé alltaí'að koma
betur i ljós að Kvennalistinn hugsar
ekki eins mikið um velferð fóiksins
í landinu og hann vera vili. En gerir
það nokkur flokkur? - ekki get ég
séðþað.
-Elín Aibertsdóttir