Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1990.
39
Veiðivon
>
í
• Skúli G. Jóhannesson horfir eftir fiski við Laxá í Aðaldal en áin er komin yfir 1200 laxa.
300 laxar komnir á land í Haukadalsá:
51 lax í fyrsta holli
með maðkinn
>
í
Jj
)
'>
„Það kom 51 lax í fyrsta holli eftir
að útlendingarnir voru í ánni og við
veiddum alla laxana á maðk,“ sagði
Andrés Guðlaugsson en hann var að
koma úr Haukadalsá. En Andrés
hefur veitt í Haukadalsá í yfir þrjátíu
skipti. „Flestir laxarnir, sem við
fengum, voru nýir og það eru komn-
ir um 300 laxar úr ánni. Laxarnir,
sem við veiddum, voru frá 6 pundum
upp í 12. En við misstum vænan lax
í Torfahyl,“ sagði Andrés ennfrem-
ur.
Grímsá í Borgarfirði að
komast í 600 laxa
„Grímsá er komin í 600 laxa og það
er fiskur um alla á en ekki mikið,“
sagði Sturla Guðbjarnarson í Fossa-
túni er við spurðum frétta af ánni.
„Fyrsta hollið eftir útlendinga veiddi
65 laxa en þegar gengur hægt hjá
okkur er góð veiði í Norðurá og
Þverá. Við erum bara með allt annan
laxastofn,“ sagði Sturla í lokin.
„Þetta var rólegt í Grímsá, holhð
veiddi 14 laxa og ég náði einum - lít-
ið af laxi neðst í ánni en eitthvað
ofar í henni,“ sagði veiðimaður sem
var aö koma úr Grímsá í vikunni>
„Það er lítið af nýjum fiski sem kem-
• Laxinn getur tekið vel þegar flug-
an hefur verið lengi í ánni og stund-
um er þetta mokveiði.
DV-myndir ÁBB og G.Bender
ur í ána, eiginlega ekki neitt,“ sagði
veiðimaðurinn úr Grímsá. Þegar
veiði í Grímsá er góð er yfirleitt tregt
í Norðurá og Þverá og svo öfugt,
svona er veiðin víst.
Laxinn farinn að láta sjá sig
í Baugsstaðaósnum
„Veiðin hefur gengið vel í Baugs-
staðaósnum og veiðimenn, sem voru
þar fyrir nokkrum dögum, veiddu
ofarlega og veiddu vel,“ sagði Ágúst
Morthens er 'við spurðum frétta.
„Veiðimennirnir fengu tvo 6 punda
sjóbirtinga, einn 2 pund og tvo eins
punda sjóbirtinga. Þeir fengu líka 6
bleikjur, punds fiska. Laxinn er far-
inn að láta sjá sig í ríkara mæli og
er stærsti laxinn 17 pund,“ sagði
Ágúst ennfremur.
Hvolsá og Staðarhólsá að
rjúfa 200 laxa múrinn
„Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum
eru að rjúfa 200 laxa múrinn og það
hafa veiðst 600 bleikjur," sagði Símon
í Kjörbúð Hraunbæjar í gær og bætti
við: „Stærsti laxinn er 15 pund en
stærsta bleikjan er 5 pund. Laxaholl-
ið, sem ég var í fyrir skömmu, fékk
15 laxa og það næsta á undan okkur
veiddi 17 laxa, bleikjuveiðin gekk
líka velú sagði Símon.
Flugan gefur vel I
Reykjadalsá
„Það eru komnir á milli 20 og 30
laxar. Ég var á laugardaginn í ánni
og veiddi 5 laxa, alla á flugu," sagði
Dagur Garðarsson í gær er við spurð-
um um Reykjadalsá í Borgarfirði.
„Klettsfljótið gefur best, svo Hamars-
geirinn. Hann er 10 pund sá stærsti
og mest hefur veiðst á flugu,“ sagði
Dagur.
Reykjadalsá hefur oft verið kölluð
„heimaá" Steingríms Hermannsson-
ar forsætisráðherra en hann og fjöl-
skylda hans eiga sumarhús við bæ-
inn Klett. Steingrímur var í Reykja-
dalsá fyrir skömmu og náði einum
laxi þrátt fyrir vont veiðiveður, sól
og blíðu.
• Silungsveiðin hefur verið góð í
mörgum veiðiám og vötnum, hér er
Þröstur Leó Gunnarsson með góða
bleikjuveiði vestur á fjörðum.
14 punda lax úr Korpu og yfir
300laxar á land
„Korpa hefur gefið eitthvað yfir 300
laxa og hann er 14 pund sá stærsti,"
sagði Jón Ingi veiðimaður er við
spurðum frétta af ám Veiðifélagsins
á Stöng, en þeir hafa Korpu og
Langadalsá. „Úr Langadalsá eru
komnir á milli 70 og 80 laxar, frekar
hefur nú veiðin verið treg þar vestur
frá,“ sagði Jón Ingi í lokin.
-G.Bender
FACO FACO
FACD FACD
FACOFACO
LISTINN Á HVERJUM
MÁNUDEGI
Kvikmyndahús
Bíóborcfin
ÞRUMUGNÝR
Þessi f rábæra þruma er gerð af Sondru
Locke sem gerði garðinn frægan i
myndum eins og Sudden Impact og
The Gauntlet. Hinir stórgóðu leikarar,
Theresa Russel og Jeff Fahey, eru hér
í banastuði svo um munar.
Þrumugnýr - frábær spennumynd.
Aðalhlutverk: Theresa Russel, Jeff Fahey,
George Dzundza, Alan Rosenberg.
Leikstjóri: Sondra Locke.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
FULLKOMINN HUGUR
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
SJÁUMST Á MORGUN
Sýnd kl. 5 og 9.05.
STÓRKOSTLEG STÚLKA
Sýnd kl. 7 og 11.05.
Bíóhöllin
FIMMHYRNINGURINN
Þessi stórkostlega topphrollvekja, The First
Power, er og mun sjálfsagt verða ein aðal-
hrollvekja sumarsins i Bandaríkjunum. The
First Power - topphrollvekja sumarsins.
Aðalhlutv.: Lou Diamond Phillips, Tracy
Griffith, Jeff Kober, Elizabeth Arlen.
Leikstjóri: Robert Reshnikoff.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnum börnum innan 16 ára.
ÞRÍR BRÆÐUR OG BÍLL
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
FULLKOMINN HUGUR
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
STÓRKOSTLEG STÚLKA
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.05.
AÐ DUGA EÐA DREPAST
Sýnd kl. 9 og 11.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
SiÐASTA FERÐIN
Sýnd kl. 5 og 7.
Háskólabíó
CADILLACMAÐURINN
Splunkuný grínmynd með toppleikurum.
Bílasalinn Joey 0 Brian (Robin Williams)
stendur í ströngu í bílasölunni. En það er
ekki eingöngu sölustörfin sem eru að gera
honum lífið leitt, peninga- og kvennamálin
eru I mesta ólestri. Með aðalhlutverk fer
enginn annar en Robin Williams sem sló svo
eftirminnilega I gegn í myndunum Good
Morning Vietnam og Dead Poets Society.
Leikstjóri: Roger Donaldsson (No Way out,
Cocktail)
Aðalhlutv.: Robin Williams, Tim Robbins.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
SÁ HLÆR BEST...
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
LEITIN AÐ RAUÐA OKTÓBER
Sýnd kl. 5 og 9.15.
Bönnuð innan 12 ára.
MIAMI BLUES
Sýnd kl. 9.10 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
SHIRLEY VALENTINE
Sýnd kl. 5.
VINSTRI FÓTURINN
Sýnd kl. 7.20.
PARADÍSARBÍÓIÐ
Sýnd kl. 7,
Laugarásbíó
A-salur
AFTUR TIL FRAMTÍÐAR III
Fjörugasta og skemmtilegasta myndin úr
þessum einstaka myndaflokki Stevens Spi-
elberg. Marty og Doksi eru komnir í villta
vestrið árið 1885. Þá þekktu menn ekki bíla,
bensín eða Clint Eastwood.
Aðalhlutv.: Michael J. Fox, Christopher
Lloyd og Mary Steenburgen.
Mynd fyrir alla aldurshópa. Frítt plakat fyrir
þá yngri. Númeruð sæti á 9 og 11.15,
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.15.
B-salur
BUCK FRÆNDI
Endursýnum þessa bráðskemmtilegu mynd
með John Candy.
•Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
C-salur
CRY BABY
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Regnboginn
i SLÆMUM FÉLAGSSKAP
Hreintfrábær spennutryllir þar sem þeir Rob
Lowe og James Spader fara á kostum.
Aðalhlutv.: Rob Lowe, James Spader, Lisa
Zane.
Leikstj.: Curtis Hanson.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
NUNNUR Á FLÓTTA
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
SEINHEPPNIR BJARGVÆTTIR
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
HJÓLABRETTAGENGIÐ
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
HELGARFRÍ MEÐ BERNIE
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stjörnubíó
MEÐ LAUSA SKRÚFU
Aðalhlutv.: Gene Hackman, Dan Aykroyd,
Dom DeLuise og Ronny Cox.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 14 ára.
FJÖLSKYLDUMÁL
Sýnd kl. 7.
STÁLBLÓM
Sýnd kl. 9.
POTTORMUR Í PABBALEIT
Sýnd kl. 5 og 11.05.
Veður
Noröaustan átt á landinu, víðast gola
eða kaldi, skýjað á Norður- og Norð-
austurlandi og dálítil súld, einkum á
annesjum og í útsveitum. Á Suðvest-
ur-, Suður- og Suðausturlandi léttir
smám saman til með morgninum,
en hætt er við siðdegisskúrum. Vest-
anlands verður líklega skýjað með
köflum en úrkomulítið. Hiti yfirleitt
6-10 stig norðan heiða en 11-15 stig
syðra.
Akureyri alskýjað 7
Egilsstaðir alskýjað 7
Hjarðarnes alskýjað 9
Galtarviti rign/súld 6
Keíla víkurflugvöllur skýj að 9
Kirkjubæjarklausturléttskýjaö 8
Raufarhöfn alskýjað 6
Reykjavík skýjað 8
Sauðárkrókur rign/súld 7
Vestmannaeyjar hálfskýjað 10
Bergen skýjað 14
Helsingi léttskýjað 19
Kaupmannahöfn þokumóða 19
Osló rigning 16
Stokkhólmur þokumóða 18
Þórshöfn skýjað 11
Amsterdam úrkoma 17
Barcelona léttskýjað 23
Berlín skýjað 19
Feneyjar heiöskírt 19
Frankfurt rigning 19
Glasgow rigning 12
Hamborg rigning 18
London léttskýjað 14
LosAngeles skýjað 20
Lúxemborg rigning 15
Madrid léttskýjað 17
Maliorca léttskýjað 21
Montreal þokumóða 18
New York heiðskirt 24
Nuuk þoka 4
Oriando léttskýjað 24
París rigning 17
Róm þokumóða 21
Vín skýjað 20
Gengið
Gengisskráning nr. 154. -16. ágúst 1990 kl. 9.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 56,690 56,850 58,050
Pund 107,430 107,734 106,902
Kan.dollar 49,526 49,666 50,419
Dönskkr. ~ 9,4791 9,5059 9,4390
Norsk kr. 9,3378 9,3642 . 9,3388
Sænsk kr. 9,8395 9,8672 9,8750
Fi. mark 15,3486 15,3919 15,3470
Fra.frankl 10,7883 10,8188 10,7323
Belg.franki 1,7601 1,7651 1,7477
Sviss. franki 43,3957 43,5182 42,5368
Holl. gyllini 32,1545 32,2453 31,9061
Vþ. mark 36,2167 36,3189 35,9721
Ít. líra 0,04925 0,04939 0.04912
Aust. sch. 5,1483 5.1628 5,1116
Port. escudo 0,4105 0,4117 0,4092
Spá. peseti 0,5898 0,5915 0,5844
Jap.yen 0,38387 0.38495 0.39061
írskt pund 97,187 97,461 96.482
SDR 78,1290 78,3495 78,7355
ECU 75,1879 75,4002 74,6030
Fiskmarkaðimir
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
15. ágúst seldust alls 11,041 tonn.
Magn i Verð i krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Þnrskur 4,061 77,85 50,00 85,00
Þprskur, stór 0,026 80,00 80,00 80,00
Þorskur, smár 0,134 63,00 63,00 63,00
Ýsa 0,605 86,32 80,00 90,00
Karfi 3,097 35,09 21,00 39.00
Ufsi 0,334 30,00 30,00 30,00
Ufsi, smár 0,407 28,60 20,00 30.00
Steinbitur 0,701 60,00 60.00 60,00
Langa 1,106 30.00 30,00 30.00
Lúða 0,446 164,18 150.00 220.00
Koli 0,127 24,43 15,00 34,00
Faxamarkaður
15. ágúst seldust alls 106,038 tonn.
Þorskur 10,799 90.78 8,80 99,00
Ýsa 40,585 84,23 50,00 99,00
Karfi 29,857 35,10 31,00 36,00
Ufsi 15,188 28.03 20,00 30,00
Steinbitur 4,340 70,07 67,00 71.00
Langa 1,771 50,20 49,00 51.00
Lúða 0,868 312,13 260,00 350.00
Skarkoli 1,983 43,00 43,00 43.00
Keila 0,084 29.00 29,00 29,00
Skötuselur 0,050 15,00 15,00 15.00
Lýsa 0,096 15,00 15.00 15.00
Blandað 0,076 20,00 20,00 20.00
Undirmál 0,339 30,25 20.00 36,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
15. ágúst seldust alls 115,914 tonn.
Skarkoli 0,130 70,00 70,00 70,00
Skata 0,065 70,00 70,00 70,00
Koli 0,691 58,00 58,00 58,00
Undirmál. 0,124 68,06 40.00 72,00
Sólkoli 0,026 70,00 70,00 70,00
Langa 0,317 53.20 49.00 60,00
Blálanga 0.342 49,00 49,00 49,00
Langlúra 0,091 23,00 23,00 23,00
Lúða 0,354 255,04 160,00 380,00
Skötuselur 0,088 331,82 160,00 400,00
Þorskur 39,204 85.32 72,00 113.00
Ýsa 11,114 92,14 90,00 96,00
Karfi 9,737 33,58 35,00 42,00
Ufsi 53,215 43,72 30,00 52,00
Steinbitur 0,839 70,92 20,00 77,00
Hlýri 0,026 62,00 62,00 62,00