Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Blaðsíða 32
r
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 1990.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Þetta snýst
umpólitík
•jr „Þetta snýst um pólitík. Reyndir
sveitarstjórnarmenn hljóta að vilja
fá Húnboga í starflð. Mér sýnist á
öllu aö sjálfstæðismenn ætli að reyna
allt til að Lárus Jónsson fái þetta
starf," sagði reyndur sveitarstjórn-
armaður við DV.
Eins og kunnugt er er risin mikil
deila innan Sambands íslenskra
sveitarfélaga um ráðningu fram-
kvæmdastjóra. Tveir umsækjendur,
Húnbogi Þorsteinsson og Lárus
Jónsson, fengu fjögur atkvæði hvor.
Venjulega sitja níu menn í stjórn-
inni. Einum þeirra hefur verið mein-
að að sitja á stjórnarfundum þar sem
hann er hættur afskiptum af sveitar-
stjórnarmálum. Deilt er um réttmæti
> ék þeirrar ákvörðunar. Sá sem ekki fær
að sitja stjórnarfundina er Ölvir
Karlsson, fyrrverandi oddviti í Ása-
hreppi í Rangárvallasýslu. Sunn-
lendingar sækja fast að hann fái að
sitja í stjórninni og ef ekki þá komi
varamaður í hans stað.
Sólarlandaferðir:
Hækka um 2,5%
Sólarlandaferðir hækkuðu um
2,5% hjá feröaskrifstofunum á
^ þriðjudaginn vegna aukins eldsneyt-
iskostnaðar flugfélaganna og gengis-
breytinga.
Að sögn Karls Sigurhjartarsonar,
formanns Félags íslenskra ferða-
skrifstofa, reiknaði hagdeild þeirra
út að ferðaskrifstofumar þyrftu
2,4-2,5% meðaltalshækkun. Vægi
flugsins í heildarpakkanum væri um
30% og eldsneytishækkunin nú
þýddi hærra verð á leiguflugi. Þessi
hækkun yrði þó ekki innheimt hjá
þeim sem væru búnir að borga upp
í topp.
Hann sagði aö flugfélögin væru
búin að hækka leiguflugið en ekki
áætlunarflugið en búist væri við
hækkun á því mjög fljótlega þar sem
^ eldsneytishækkunin fæli í sér gífur-
legan kostnaðarauka sem kæmi
straxfram. -pj
Aldraðir á Akureyri:
Pan byggir
þjónustuhús
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Fyrirtækið Pan hf. átti lægsta til-
boðiö í byggingu þjónustuhúss fyrir
aldraöa á Akureyri en þjónustuhúsið
mun rísa við fjölbýlishúsin tvö við
Víðilund sem aldraðir hafa byggt.
Tilboð Pan hf. nam 56,4 milljónum
króna en S.J.S. verktakar voru með
Jfc næstlægsta tilboðiö upp á 57,2 millj-
ónir króna.
Fjögurra ára drengur drakk vatn af rafgeymum:
„Mamma, vatnið
var svo vont“
- sagöidrengurinnviðmóðursína
„Eg var að þvo bílinn minn við
Olísstöðina við Álfheima. Sonur
minn, fjögurra ára, var með mér.
Hann var að lahba um meðan ég
þvoöi bílinn. Drengurinn kom til
min og sagði að vatnið hefði verið
svo vont. Eg vissi ekki hvaöa vatn
hann var að tala um. Það var fólk
sem sá að hann hafði verið við raf-
geyma sem standa við ryksuguna
á bensinstöðinni. Þegar við athug-
uðum betur haföi hann sötrað vatn
sem lá á rafgeymunum," sagði
móðir fjögurra ára gamals drengs
sem drakk vatn sem lá á rafgeym-
um við bensínstöð Olís við Álf-
heima.
„Ég fór með drenginn inn á bens-
ínstöðina. Afgreiðslufólkið sagöi
mér að gefa honum tyggjó og fara
með hann á slysadeildina. Það
gerði ég. Þar var mér sagt, sem
betur fer, að þetta væri ekki alvar-
legt. Vatnið var ekki mikið blandað
sýru og þvi ekki mjög hættulegt
Mér var einnig sagt að það hefði
getað farið mun verr. Ef vatnið
hefði verið meira blandað þá hefði
hann getaö skaddað barkann mikiö
og jafhvel misst röddina," sagði
móðirin.
Móðirin sagði eínnig að hún vissi
til þess að rafgeymar við bensín-
stöðina við ÁJfheima væru geymdir
úti en svo er ekki í Grafarvogi, aö
sögn hennar, heldur eru þeir
geymdir þar í útiskýli sem börn
eiga erfltt með að komast í.
„Hann er hræddur vegna þessa
atviks. Hann spyr raikið hvort
matur og drykkir séu eitraðir. Það
er sama hvort honum er boðið eitt-
hvað eða systur hans, hann er líka
hræddur um hana,“ sagöi móðirin.
-sme/hlh
Greipur SH 7 valt á hliðina þegar verið var að taka hann upp i Daníelsslipp í gær. Talið er að allnokkrar skemmdir
hafi orðið á bátnum. Reynt verður að rétta Greip af i dag og þá verður Ijóst hversu mikið hann er laskaður.
-DV-mynd S
Fjögra manna saknað:
Gengu sjálfir
til byggða
Fjögra manna frá Orkustofnun var
saknað í nótt og var í undirbúnigi
að hefla mikla leit þegar þeir létu frá
sér heyra. Tildrög málsins voru þau
að mennirnir voru fluttir inn að
Sauðavatni, suðaustur af Snæfelli á
Fljótsdalsheiði, með þyrlu og var
ætlunin að sækja þá þangað um kl.
19 í gærkvöldi. Þegar til átti að taka
var komin svartaþoka og ekki hægt
að finna þá.
Hefjast átti leit að mönnunum í
morgun þegar þeir hringdu frá bæn-
um Sturluflöt í Fljótsdal. Höfðu þeir
verið fjórir saman og voru vel búnir.
Gengu þeir í alla nótt, um 20 til 30
kílómetra. _sjyy
Amarflug:
Ráðherrann vardad
bjarga andlitinu
- segir Hörður Einarsson
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra lýsti þvi yfir í gær að skuld-
ir Arnarflugs gagnvart ríkinu yrðu
felldar niður sem svaraði til þess að
þær hefðu verið lækkaðar um 150
milljónir 17. mars 1989 eða daginn
sem ríkisstjórnin samþykkti aðstoö
við fyrirtækið.
Eins og kunnugt er hefur staðið
deila milli félagsins og ráðherra um
þetta mál í sextán mánuði. Ólafur
Ragnar iýsti því síöan yfir í gær að
meginástæðan fyrir töfunum hefði
verið fyrrum stjórnendur fyrirtækis-
ins. Með nýjum stjórnarmönnum
hefði málið verið leyst.
„Ég er náttúrlega ánægður með að
þessi afgreiðsla er komin,“ sagði
Hörður Einarsson, útgáfustjóri DV
og fyrrverandi stjórnarformaður
Arnarflugs.
„En ég vek athygli á að hún fékkst
ekki fyrr en það var búið að pína
ráðherrann til þess að gera þetta eft-
ir sextán mánaða valdníðslu og emb-
ættisvanrækslu. Auðvitað þarf mað-
urinn að bjarga á sér andlitinu með
einhverjum hætti. Það þurfti að kæra
hann fyrir þeim manni sem ber meg-
inábyrgð á því að hann situr í þessu
embætti því kjósendur í landinu bera
ekki nokkra ábyrgð á þessum
manni," sagði Hörður. -gse
Litlar fréttir af
íslendingum í Kúvæt
„Við vitum ekki annað en að það
sé allt í lagi með íslendinga í Kúvæt.
Það eru viðræður í gangi milli íraka
og utanríkisráðuneyta Norðurland-
anna um að Norðurlandabúum í
Kúvæt og írak verði leyft að fara úr
landi,“ sagði Finnbogi Rútur Arnar-
son í utanríkisráðuneytinu í samtali
viðDVímorgun. -J.Mar
LOKI
Ætli maður verði þá
ekki bara áfram í sólar-
lampanum
Veöriðámorgun:
Norðan-og
norðvestan-
gola eða kaldi
Á morgun verður norðan- og
norðvestangola eöa kaldi. Dálítil
súld um landið norðanvert, eink-
um út við sjóinn, og 6-10 stiga
hiti en allvíða bjart veður og 11-16
stig syðra.
Einn sá
ódýrasti
í bænum
ÍSVAL
v/Rauðarárstig
Jón Bjarnason
úrsmiður,
s. 96-25400