Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Side 5
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
5
Fréttir
Húsnæðisnefnd Hafnarflarðar:
Forseti bæjar-
stjórnar ráð-
inn í stöðuna
- mikil óánægj a 1 nefndinni
„Ég mótmæli því, fyrir hönd
Verkamannafélagsins Hlífar, að
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði láti
sín deilumál ná inn í nefndir og
gera þær hálfóstarfhæfar," sagði
Sigurður T. Sigurðsson, formaður
Hlífar og fulltrúi verkalýðsfélag-
anna í húsnæðisnefnd Hafnarfjarð-
ar.
Miklar deilur hafa verið innan
húsnæðisnefndarinnar um ráðn-
ingu framkvæmdastjóra. Jóna Ósk
Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjóm-
ar Hafnarfjarðar, hefur verið ráðin
framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Það eru bæjarstjómir sem ráða
starfsfólk í húsnæðisnefndir. Þrír
fulltrúar í nefndinni mæltu með að
Jóna Ósk yrði ráðin, tveir vildu
ráða annan umsækjanda. Fulltrúar
verkalýðsfélaganna í Hafnarfírði
tóku ekki þátt í tillögugerð um
ráðningar starfsmanna.
í bókun, sem fulltrúar verkalýðs-
félaganna létu frá sér, segir: „En
eins og málum er nú komið munum
við ekki taka þátt í tillögugerð um
starfsfólk húsnæðisnefndar þar
sem við teljum vinnubrögðin for-
kastanleg. Við getum ekki og mun-
um ekki taka þátt í því að láta
flokkspólitísk sjónarmið ráða gerð-
um manna, fram yfir faglegt mat á
hæfni þeirra fjölmörgu sem sóttu
um þetta ábyrgðarmikla og krefj-
andi starf.“
Grétar Þorleifsson, formaður
nefndarinnar og fulltrúi verkalýðs-
félaganna, studdi ekki Jónu Ósk en
hann er krati og hefur verið virkur
í starfi fyrir flokkinn.
„Það er helmingur Hafnfirðinga
kratar. Það er ekkert óeðlilegt þó
kratar séu ekki alltaf sammála um
alla hluti,“ sagði Guðmundur Árni
Stefánsson bæjarstjóri.
Guðmundur Árni sagði aö þrír
fulltrúar í stjórn húsnæðisnefndar
hefðu stutt Jónu Ósk, tveir hefðu
stutt annan umsækjanda og tveir
hefðu ekki tekið þátt í vali á um-
sækjendum. Jóna Ósk fékk at-
kvæði meirihluta bæjarstjórnar,
það er atkvæði kratanna í bæjar-
stjórninni.
Alþýðuflokkur á tvo fulltrúa í
nefndinni. Alþýðubandalag á einn,
Sjálfstæðisflokkur einn, fuUtrúar-
áð verkalýösfélaganna í Hafnar-
firði á tvo fulltrúa og Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja einn.
-sme
Salernin í Austurbæjarskólanum komust í fréttir í fyrra þar sem ástand
þeirra þótti afar bágborið. Þóttu salernin heilsuspillandi og nánast hættuleg
börnunum. Nú horfir hins vegar til betri vegar þar sem gagngerum endur-
bótum á salernisaðstöðu skólans er að Ijúka. DV-mynd Hanna
Múlagöngin malbikuð:
Umferð í byrjun desember
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi:
Framkvæmdum við Múlagöng miðar
vel. Gerð drenlagna er lokið og búið
er að koma vatnsklæðningu í loft og
veggi. Um tíma töfðu miklar vatns-
æðar fyrir verkinu og úr göngunum
renna fram 150 sekúndulítrar.
Framkvæmdir við vegagerðina
báðum megin eru vel á veg komnar.
Næsta stóra verkefni verður malbik-
un vegarins í göngunum sjálfum og
verður byrjað að malbika fyrstu dag-
ana í október ef veöur leyfir. Lagt
verður 12 sentímetra þykkt slitlag.
Þegar því lýkur þarf að koma fyrir
rennu fyrir rafmagnskapal. Hurðirn-
ar fyrir gangamunnana koma frá
útlöndum.
Bjöm Harðarson staðarverkfræð-
ingur spáir því að umferð verði
hleypt á göngin í byrjun desember
en auðvitað getur veðrið sett strik í
reikninginn.