Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1990, Side 18
18
Veiðivon
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990.
'................I ..■Il.lll. II. ■ IIII II
Þjóðar-
spaug DV
Gáfaðir menn
Lítil stúlka á spurningaaldrin-
um spuröi eitt sinn fóður sinn aö
því hvort gáfaðir menn væru líka
góðir eiginmenn.
„Gáfaöir menn gifta sig ekki,“
svaraði faðirinn að bragði.
Helvíti
Prestur nokkur var að því
spurður hvernig umhorfs væri í
helvíti. Hann svaraði:
„í helvíti er allt ómöglegt. Þar
sjá t.d. Bretar um matseldina. ít-
ahr um hreinlætiö. Grikkir um
tæknihliðina, Svíar um skemmti-
atriðin og íslendingar um rekst-
urinn á ölu saman.“
Alltafjafiifalleg
Tveír kunningjar, sem ekki
höfðu hist lengi, mættust loks á
götu. Er þeir öföu heilsast, spurði
annar:
„Er konan þín alltaf jafhfalleg
og hún var?“
-„Já, blessaður vertu,“ svaraði
hinn, „en hún er hins vegar hálf-
tima lengur að verða það nú orð-
iö.“
Ríkidæmið
Moldríkur maður í Reykjavík
var eitt sinn að lýsa fyrir vinnu-
manni sínum hvernig hann hefði
auögast. Komst hann m.a. svo að
orði:
„Ég byrjaði fátækur, með tvær
hendur tómar. Ég pússaði skó
fína fólksins niöri í bæ frá morgni
til kvölds."
Aödáunarsvipurinn á hlu-
standanum leyndi sér ekki en þá
bætti milljónarinn viö:
„Ér ég hafði burstað skó í tvö
ár samfleytt dó ríkur frændi
minn og arfleiddi mig að öllu og
á því lifi ég nú.“
Aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga um helgina:
Grettir Gunnlaugsson
áfram formaður
í dag og á morgun munu veiði-
menn víða af landinu ræða málin
uppi í Borgarfirði á aðalfundi Lands-
sambands stangaveiðifélaga. Líklega
verða kringum eitt hundrað manns
á þessum stærsta stangaveiðifundi
árins. Rædd verða helstu mál stanga-
veiðimanna þessa dagana, eins og
verð á veiðileyfum, kvótamálið,
ástandið í hafinu og laxafækkunin í
veiðiánum. Grettir Gunnlaugsson
verður örugglega áfram formaður en
ekfci hefur heyrst um neitt mót-
framboð. Grettir hefur setið í eitt ár
sem formaður LS.
Margt fróðlegt
kom fram á
aðalfundi Ármanna
„Þetta var góður aðalfundur og ýmis-
legt fróðlegt var rætt þar,“ sagði
Daði Harðarson, formaður Ar-
manna, en þeir héldu aðalfund fyrir
skömmu.
„Það var fámennt en góðmennt á
fundinum, líklega eitthvað um þrjá-
tíu sem mættu. Vetrarstarfið er aö
komast á fullt, fluguköst byrjuð og
hnýtingar fyrir alvöru. Mér líst vel
á starfið í vetur,“ sagði Daði formað-
ur ennfremur.
Lokatölurnar úr DV,
ganga undir nafninu
Svarta skýrslan
Lokatölurnar, sem DV birti úr
veiðiánum, ganga undir nafninu
Svarta skýrslan hjá veiðimönnum
þessa dagana. Þar sést það svart á
hvítu hve veiðin var léleg sums stað-
ar í veiðiánum. Það hefði ekki veriö
hægt að bíða þangað til Veiðimála-
stofnun birti sínar veiðitölur í mars
eða apríl. Hún getur það bara ekki
fyrr vegna þess hve bókum var seint
skilað inn til þeirra. ,
Póstkassinn fullur
af umsóknum
um veiðileyfi
Þótt veiðin hafi verið lítil í mörgum
veiðiám eru veiðimenn byrjaðir að
panta fyrir næsta sumar. Við heyrð-
Regnbogasiiungurinn hefur tekið
tóbýspúnninn og fleiri veiddust á
eftir.
DV-mynd G. Bender
um af einum áreiganda fyrir
skömmu að líklega yrði hann að fá
sér stærri póstkassa. Hann væri allt-
af fullur af umsóknum þegar hann
sækti póstinn. Samt er þetta ekki
nema tveggja stanga veiðiá en svona
feiknalega vinsæl.
Fékk einn sjóbirting,
eina rjúpu og eina gæs
Það getur verið verið betra að hafa
vaðið fyrir neðan sig sé farið að veiða
eða skjóta. Viö fréttum af einum um
daginn sem átti sjóbirtingsveiðileyfi
en vissi að veiðin yröi htil svo hann
tók byssuna meö. Og hann náði í einn
sjóbirting, eina rjúpu og eina gæs,
svo hann fór ekki alveg tómhentur
heim úr veiðitúrnum. En hann sá
ekki fugli eða fiski meira á svæð-
inu.
-G.Bender
Þeir hafa fjölmennt, veiðimennirnir á öllum aldri til veiða innst í Grafar-
vogi þar sem vænir regnbogasilungar hafa sést í torfum.
Finnur þú fimm breytingai? 78
3 □
m
lifú
D B í
©PIB
COPENMACIN
U D
~i n Q Q fl □. D n n ~i n
i í i r lí \ 1 ir r ' ’ iim
0II
d u r
n
QQQÖO
TTTTTtf
© PIB
COPENMACIN
Þetta er í síðasta skipti sem þú færð sleik af sleikipinnanum mínum. Nafn:.........
Heimilisfang:.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í Ijós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
/
Vinningamir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 78
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Sigurvegarar fyrir sjötug-
ustu og sjöttu getraun
reyndust vera:
1. Þuríður Þorsteinsdóttir,
Úthlíð 12,
105 Reykjavík.
2. Örn Sigurgeirsson,
Laugateigi 22,
105 Reykjavík.
Vinningarnir verða
sendir heim.