Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1990, Side 19
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990.
19
Vísnaþáttur
Öðravísi en venjulega
Fyrir skömmu birti ég hér vísu
eftir sjálfan mig og beindi hermi til
skáldbróöur norður í landi. Ég sá
fljótt að þetta var vafasamt þar sem
ég vék að trúarlegum skoðunum
og kannski ekki nógu varfæmis-
lega. En vísan átti sér tilefni í eigin
umhverfi mínu og einu orði eða
réttara sagt hluta þess hefði ég átt
að breyta. Ég ákvað því að hirta
vísuna að nýju, endurskoðaða að
þessu leyti. Hún er svona:
Leiðist mér stundum
lífsins þungi
og langar þá burt úr ærslasolli.
En fæðist þá kannski
sem andarungi
í öðrum og verri sullupolli.
Þetta er ferhenda en vegna þess að
dagblaðsdálkar eru mjóir brýt ég
hana í fleiri línur að þessu sinni.
Hafi einhverjir lært vísuna eins og
ég birti hana í fyrra skiptið þá læt
ég það óátalið. En orðhlutinn sem
ég breyti er sóttur í fyrri mynd
sinni í bílaplan sem nú er í ríkari
mæli en áður mér til skapraunar
vegna stórbyggingar sem byrgir
mér meiri og fegurri náttúrudýrð.
Auðvitað á ég og mitt fólk ekki
meiri rétt til heillandi útsýnis og
sæmilegs andrúmslofts, að maður
nú ekki tah um mennilegra um-
ferðar- og umgengnishátta en aðrir.
En hafa ekki síðustu vikur sýnt
okkur hve of mikil þröng í byggða-
og umferöamálum er hættuleg?
Þeir sem hér byggja urðu uppvísir
að því að greiða ekki sjálfsögðustu
skatta. í staö þess að taka hressi-
lega á málum þeirra keyptu ríki og
bær byggingar þeirra, sem enn
standa ónotaðar, þær sem full-
byggðar eru. Var þá brýnt aö bæta
við? Óbyggðar lóðir í Kópavogi eru
enn nógar til. Aö baki þessum
byggingum standa pólitískir hug-
sjónamenn sem veifa skikkjum
miskunnsemi og mannúðar. Þetta
verða dýrar íbúðir og gætu staðið
lengi auðar. Enn hefur sannleikur-
inn um þetta framtak ekki séð
dagsins ljós. '
Undirritaður og kona hans eru
dæmd til þess útsýnis að horfa nið-
ur á stóran geymsluvöll bíla rétt
við dyr sínar og glugga og Heilsu-
gæslustöövar Kópavogsbæjar þar
sem myndast hefur óhroðapoúur
sem í safnast rigningarvatn og alls-
konar olíu- og smurningarefni sem
þessum farartækjum fylgja. Vellin-
um er skipt í tvennt meö gömlum
símastaurum svo að með þeim
myndast hlið sem bílarnir og veg-
farendur verða að þræða er þeir
koma og fara. Lægð er um miðjan
völhnn og snjó er rutt að staurun-
um á vetrum og svehbunkar mynd-
ast. Pípulagnir hafa upphaflega átt
að taka viö rigningar- og leysinga-
vatni en þau 5 ár sem við höfum
átt elhbústað á efstu hæö Heilsu-
gæslustöðvarinnar hefur verið htið
Vísnaþáttur
en skóvarpsdjúpt stöðuvatn í öðru
hliðinu. Þar er flesta daga ársins
ógeðslegur hroðapollur af þeim sót-
og smumingsefnum að ónefndri
þeirri ohu sem lekur stöðugt úr
tugum farartækja.
Þarna fer flesta daga, og þó eink-
um um helgar, mikill fjöldi prúð-
búins fólks og leggur blómum
skreyttum bílum. Þarna eiga leið
brúðhjón, venslamenn þeirra og
gestir. Þarna eru einnig erf-
idrykkjufólk og syrgjendur.
Ónefndir em þá afmælishópar og
fermingargestir, jóla- og héraðs-
hátíðagleðskaparmenn og konur.
Konumar o.fl. dragandi á eftir sér
fína kjóla og peysufót. En þó hef
ég einkurn í huga hversdagsfólk
sem á erindi á skrifstofur, bókasafn
og heilsugæslustaði að ónefndum
þeim ungu mönnum sem eiga hér
heima á svæðinu og flestir eru bún-
ir reimuðum grófsóluöum skóm
eða stígvélum. Slóð þeirra má rekja
upp alla stiga og ganga flesta daga,
þeim til skapraunar sem eiga aö
þrífa óhroöann a.m.k. einu sinni í
viku og hafa dapurlega reynslu af
því að htið gagnar að vera að kosta
upp á endurnýjun gólfteppanna.
En vísan sem ég leiðrétti eða
breytti lítils háttar er ekki ort
heima hjá mér heldur í stuttri bæj-
arferð til Reykjavíkur. Og kannski
á hún sér dýpri bókmenntalegar
rætur en í fljótu bragði virðist.
Sökum hrakandi hehsu okkar
hjóna er okkur uppálagt af lækn-
um, sem við höfum leitað th, að
hreyfa okkur að heiman hvern dag,
þegar th þess viðrar, en bæði erum
við komin á'lífeyrisaldur og shkir
fá ókeypis strætisvagnamiða í
Kópavogi og nokkurn afslátt í
Reykjavík, hvort sem þeir eru þar
heimilisfastir eða ekki. Þessu síð-
astnefnda er yfirleitt ekki veriö að
flagga.
Umrædd ferð okkar, þegar áður-
nefnd vísa var ort, hófst í sólskini.
Meðal annars fórum við að skoða
Kringluna, hina miklu verslun, þar
sem áður var mýri. Sú kvað nú
vera að drepa miðbæjarkaupmenn
1 Reykjavík. Við fengum okkur
kafíisopa og meðlæti. Það var ódýrt
og gott. Veitingastjóri var prúður
miðaldra maður og heyrðist ögn á
mæli hans að hann myndi vera
erlendur. Smádrengur, sem móðir
hafði leyft of mikið sjálfræði, varð
til þess að hann sagði og strauk
koll phtsins: Ekki að príla svona,
góði minn. Þú getur meitt þig.
Þetta varð til þess að ég gaf mig
á tal við þjóninn sem ég annars
hefði ekki gert. Hann hafði verið
hérlendis í átta ár og kunni því vel.
Háttvísi mannsins varð til þess
að mig langaði til að gleðja hann.
Ég haföi yfír setningu hans og bætti
við: Svona fahega íslensku myndu
ekki ahir innlendir stéttarbræður
þínur hafa notað: príla er óvenju
hljómfagurt og háttvíslegt orð að
nota í þessu sambandi. Ég er þjóð-
kunnur rithöfundur og hef hlotið
viðurkenningu. Þess vegna fagna
ég því að fá mann í hóp okkar sem
kann að velja orð sín.
En skáldiö danska, H.C. Anders-
en, kemur hka við sögu þessarar
breyttu vísu sem ég birti hér. Um
það ræði ég í næsta þætti.
Jón úr Vör,
Fannborg 7 Kópavogi
ÞRÍRFRAKKAR
HJÁ ÚLFARI,
Baldursgötu 14,
s. 23939
BJÖRGUNAR-
BIFREIÐAR,
sími
689290
689490
28. okt.
1990
ÁHORFENDAKORT
SKJALDBREIÐUR H
1060
'ÖRlNDAVlK
1 1 (Mosfi
Rásröð í Armstrong Rally
1. Rúnar/Jón, Ford Escort 9. Jón Ebbi/Birgir Már,
RS 2000 MMC Lancer 1600
2. Ásgcir/Bragi, MG Metro6R4 10. Guöný/Lára, Toyota
3. Birgir/Þorgrimur, Starlet 1200
Toyota 1600 11. Úlfar/Guömundur T.,
4. Páll/Witek, Ford Escort Chevrolet Camaro 5300
RS 2000 12. Pétur/Magnús, Ford
5. Siguröur Bragi/Rögn- Escort 2000
valdur, Ford Escort 2000 13. Siguröur/Árni, Ford Escort
6. Guömundur Björn/ 2000
Bjarki, Nissan 240 RS 14. Páll/Jón, Nissan Silvia
7. Þröstur/Viktor, Ford 200 SX 1800
Escort 2000 15. Haraldur/Siguröur,
8. Tryggvi/Laufey, Toyota 1600
Citroén Axel 1300 16. Jóhannes/Aöalsteinn, Ford
Escort 2000
ix
BLÁFELL
Faxaleni 12, sími 670420
HLJ0MTÆKIIBILAIURVALI
LanghoHsvegi 89
Gimilegur Grillseóill
Réttur dagsins i hádeginu
Ræsingartimi fyrsta bíls inn á sérleiðir:
Sérl.
1.1(1. 8.40
2. kl. 9.40
3. kl. 10.30
4. kl. 11.30
5. kl. 13.00
6. kl. 13.15
7. kl. 14.40
8. kl. 15.30
Endamark við Hjólbarðahöllina,
Fellsmúla, kl. 18.00