Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1990, Blaðsíða 31
39
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990.
DV Lífsstíll
Ég er doktor Jeckyll og ég ætla að
fylgja ykkur um öngstræti og dimm
sund Edinborgar í kvöld. í kjölfarið
fylgdu nokkrar vel valdar sögur um
drauga, aftökur, galdrabrennur og
ýmsan annan hrylling sem átt hefur
sér stað í aldanna rás í þessari sögu-
frægu borg. Síðan var lagt af stað í
tveggja tíma gönguferð um gamla
borgarhlutann. Það er fyrirtækið
Robin’s Edinburgh Tours sem skipu-
leggur gönguferðir um borgina. Yfir-
leitt tekur hver göngutúr um tvær
klukkustundir og kostar hann þrjú
pund eða um 330 krónur. Lagt er af
stað frá gosbrunninum á þaki
Waverley byggingarinnar í allar
ferðirnar.
Alla daga er boðið upp á fjórar
mismunandi gönguferðir með leið-
sögn: ein er sérstaklega sniðin fyrir
þá sem hafa stuttan tíma en vilja sjá
eitthvað af borginni, önnur er um
söguslóðir gamla bæjarins, sú þriðja
um yngri borgarhlutann og svo
draugagangan áðurnefnda. Það er
hægt að mæla með þessum göngu-
ferðum, þær eru ekki ýkja erfiðar en
mjög skemmtilegar, auk þess sem í
þeim gefst tækifæri á að fá yfirsýn
yfir borgina og sögu hennar á stutt-
um tíma.
Skoskt kvöld, þar sem boðið er upp á þjóðlega skemmtun, er ettirminnilegt.
Edinborg:
Skotlandi og fyrrum dvalarstaður
Maríu Stuart. Þar eru til sýnis Ust-
munir og málverk frá ýmsum tím-
um, vefnaður og húsgögn.
Tvö önnur söfn er vert að minnast
á, það eru National Gallery of Scot-
land í Mound og Royal Museum of
Scotland í Chambers Street. Auk
þessara safna er fjöldi annarra safna
sem vert er að gefa gaum.
Hótel, veitinga-
staðir og pöbbar
Það er urmull veitingastaða í Edin-
borg og má þar nefna indverska, kín-
verska, austurríska, thailenska, ít-
alska, hefðbundna skoska og svo
framvegis. Verðlagið á veitingastöð- r
unum er nokkuð mismunandi en
meðalverð á máltíð með léttvínsglasi
er um 1000 krónur fyrir manninn.
Nær allir pöbbar bjóða upp á snarl
yfir daginn og meðalverð á máltíð
með bjórglasi er um 360 krónur fyrir
manninn eða jafnmikið og eitt ölglas
kostar á pöbb í Reykjavík.
Ferðaskrifstofan Atlantik býður
upp á helgarferðir til Edinborgar nú
í vetur. Ódýrasta ferðin er fjögurra
daga ferð sem kostar 29.600 krónur
fyrir manninn miðað við gistingu í
tveggja manna herbergi. í ódýrustu
Hvar er kastalinn?
- í draugagöngu með frægri persónu
Fallegborg
Edinborg er afar falleg borg og hún
hefur þann kost umfram margar aðr-
ar borgir að hún er ekki ýkja stór
og mjög auðvelt að rata. Skotar eru
upp til hópa afar vingjarnlegt fólk
og hjálpfúst. Til að mynda ef ein-
hvem vantar skiptimynt í strætó
dugar að hrópa upp yfir vagninn og
spyrja hvort einhver geti skipt fyrir
mann og um leið eru allar buddur á
lofti. Svo hafa Skotar einkar gaman
af að tala um fótbolta og klassísk
spurning er hversu mörg fótboltalið
séu á íslandi. Annað uppáhaldsum-
ræðuefni Skota eru Englendingar.
Skotar hafa mikla þjóðemisvitund
og þeir em stoltir af sögu sinni en
Englendingar fara dálítið í taugarnar
á þeim. Einn karl, sem ég spjallaði
við í Edinborg, sagöi mér í óspurðum
fréttum að mesta böl lífs hans hefði
verið að fæðast í Englandi en ekki
Skotlandi. Foreldrar hans sem voru
af skosku bergi brotnir drýgðu þá
höfuðsynd að flytja til Englands og
þar fæddist maðurinn. Þeir fluttu svo
aftur til Skotlands tíu árum síðar og
það var mesta lán lífs hans. Enn þann
dag í dag sagðist þó viðmælandi minn
ekki þora að segja það nema í
ákveðnum hópum að hann hefði
fæðst í Englandi, fólk ætti nefnilega
til að taka honum illa þegar það frétti
hvar hann hefði fæðst.
Útsýnisferðir
Af öðra sem fólk getur tekið sér
fyrir hendur ef það vill fá einhverja
yfirsýn yfir borgina í stuttri helgar-
ferð er að fara í útsýnisferð með leið-
sögumanni um borgina. Á kortérs
fresti allan daginn leggja rútur af
stað frá Waverley brúnni og fara
hring um eldri og yngri borgarhlut-
ana. Útsýnisferðin kostar þijú pund
eða 330 krónur og hægt er að fara
úr rútunni við sögufræga staði og
skoða þá og taka svo næstu ferð og
halda þannig áfram hringinn með
stoppum eða fara með rútunni einn
hring sem tekur um klukkustund.
Skosktkvöld
Það er Royal Mile Banquets í Vic-
toriu stræti 9 sem býður upp á afar
eftirminnilegt skoskt kvöld. Þar sitja
menn yfir skemmtidagskrá sem sam-
anstendur af sögum, dansi, sekkjar;
pípuleik, hamoníkuspih og söng. Á
meðan á skemmtiatriðunum stendur
er boðið upp á fjögurra rétta skoska
máltíð og drykki með. Gestir sitja við
langborð og stöðugt er borið í þá
matur og vín. Öll þjónusta er svolítið
gróf og gerir kannski kvöldið enn
eftirminnilegra fyrir vikið. Þetta er
góð skemmtun sem minnir um margt
á íslensk þorrablót þar sem ungir
sem aldnir skemmta sér saman.
Auk þess er í Edinborg á hveriu
kvöldi hægt að velja um ýmiss konar
tónleika og leiksýningar. í gestamót-
tökum hótelanna er hægt að fá upp-
lýsingar um hvað er í gangi á hveij-
um tíma. Hjá upplýsingaskrifstofu
Ferðamálaráðs í Waverley bygging-
unni er sömu upplýsingar að fá, auk
allra annarra upplýsinga sem ferða-
maðurinn þarfnast, og þar er auk
þess hægt að kaupa miða á ýmsar
uppákomur.
Það era mörg söfn sem gaman er
að skoða í Edinborg og flestallir sem
heimsækja borgina fara að sjá Edin-
borgarkastalann. Það jaðrar við að
vera heilög skylda allra þeirra sem
til borgarinnar koma að líta þann
merka stað augum. Að vísu rakst ég
á Grikkja nokkurn sem hafði dvahð
í borginni í rúma viku og það fyrsta
sem hann spurði mig, þegar við hitt-
umst fyrir tilviljun, var hvort ég vissi
hvar kastalann væri að finna. Þaö
fannst mér nú dáldið fyndin spum-
ing því ég hélt að enginn kæmist hjá
því að sjá kastalann þar sem hann
stendur uppi á háum kletti og gnæfir
bæði yfir eldri og yngri borgarhlut-
ann.
The Scotch Whisky Heritage Cen-
tre er safn sem enginn unnandi viskí-
drykkjarins ætti að láta fram hjá sér
fara. Þar er hægt að fræðast um nán-
ast aht sem lýtur að sögu og fram-
leiðslu þessa víns. Svo má nefna
Huntley House í Canongate en þar
eru til sýnis sögur og munir sem
tengjast sögu borgarinnar.
í Galdstone’s Land, 483 Lawmarket
er th sýnis ýmiss konar verslunar-
varningur frá 17. öld í verslunarbás-
um þess tíma, auk þess sem þar má
sjá dæmigert 17. aldar heimili með
öhum innastokksmunum.
Holyrood Palace er dvalarstaður
bresku konungsfjölskyldunnar í
ferðunum er gist á Stakis Grosvenor
Hotel sem staðsett er skammt frá
miðborginni. Stakis er skemmtilegt
þriggja stjörnu hótel, í viktoríönsk-
um sth sem býður upp á góða þjón-
ustu. Þar era tveir ágætir veitinga-
staðir, bar og pöbb. Sams konar ferð
kostar 30.890 krónur ef gist er á
Mount Royal, sem er þokkalegasta
hótel, en að dómi undirritaðrar ekki
jafn skemmtilegt og Stakis. En hótel-
ið hefur þann kost umfram Stakis
aö vera í miðbænum. Dýrasta ferðin
er svo á 32.880 krónur fyrir manninn.
Þá er gist á Caledonian hótelinu sem
er nálægt miðju Princes Street. Mjög
glæsilegt fimm stjömu hótel, eitt það
glæsilegasta í borginni.
J.Mar
ÞJ0ÐIN FAGNAR NYFENGNU FRELSII LEIGUFLUGI
EGILSSTAÐA-FARGJALDI
j framhaldi af yfirlýsingu stjórnvalda höfum við gert nauðsynlegar ráðstafanir
um leiguflug til London og Kaupmannahafnar næsta sumar.
LONDON
BROTTFARARDAGAR
KAUPMANNAHÖFN
BROTTFARARDAGAR
MA11.8.15.22.
JÚNÍ5.12.19.26.
JÚLÍ3.10.17.24.31.
AGUST7.14.21.28.
SEPTEMBER 4.11.18.25.
MAI2.9.16.23.30.
JUNI6.13.20.27.
JÚLÍ 4.11.18.25.
AGUST1.8.15.22.29.
SEPTEMBER 5.12.19.26.
OG VERÐIÐ: (NEIEKKI PRENTVILLfl)
1VIKAKR. 14.700 - 2 VIKURKR. 15.800
3 VIKURKR. 16.900
0G VERÐIÐ:
1VIKAKR. 15.800 - 2 VIKURKR. 16.900
3 VIKURKR. 17.700
AÐ VIÐBÆTTRI ÞJÓNUSTU OG GISTINGU í MÖRGUM VERÐFLOKKUM SEM KAUPA ÞARF MEÐ
Þú bókar flugið strax, allir hafa jafnan rétt til þessara kjarabóta meðan sætaframboðið okkar leyfir.
Birt með fyrirvara um að stjórnvöld taki ekki til baka gefin fyrirheit um frelsi í leiguflugi.
FLUGFERÐIR
=■ SULHRFLUG
Vesturgötu 12, símar 620066 og 15331