Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1990, Qupperneq 43
•#
Afmæli
Sigurgeir Jóhannsson
Sigurgeir Jóhannsson bifreiðar-
stjóri, Fjarðarási 9 Reykjavík, er
fimmtugur í dag. Sigurgeir er fædd-
ur á Mælifellsá í Lýtingsstaðahreppi
í Skagafirði og ólst upp á Brekk-
ukoti og Ljósalandi í Lýtingsstaða-
hreppi. Hann vann almenn sveita-
störf til 1961 og vann við brúargerð
á sumrin 1959-1961. Sigurgeir var
bifreiðarstjóri hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar 1962-1974, hefur
verið sendibfistjóri frá 1974 og ein-
göngu fyrir Bflanaust hf. frá 1980.
Hann hefur verið félagi í Skagfirsku
söngsveitinni síöasthðin þrettán ár
og er í stjóm söngsveitarinnar.
Fjölskylda
Sigurgeir kvæntist Fríði Sigurðar-
dóttur, f. 15. mars 1944. Foreldrar
Fríðu em: Sigurður Jörundsson, b.
á Vatni í Haukadal, og kona hans,
Sveinbjörg Kristjánsdóttir. Böm
Sigurgeirs og Fríðu em: Jóhann
Hlynur, f. 10. desember 1962, starfs-
maður hjá Björgun hf., sambýlis-
kona hans er Elin Bergsdóttir
bankagjaldkeri; Sigurður Örn, f. 30.
júlí 1966, trésmiðurí Rvík, kvæntur
Guðmundu Bimu Ásgeirsdóttur
hárgreiðslukonu; Sigurgeir Sindri,
f. 5. aprfl 1974, og Gauti, f. 21. sept-
emberl976.
Bræður Sigurgeirs eru: Jóhann
Pétur, f. 27. nóvember 1943, verslun-
armaður í Rvík; Snorri, f. 17. janúar
1945, smiður á Seltjamesi, kvæntur
Stefaníu Sigfúsdóttur, foreldrar
Lilju Maríu, gullverðlaunahafa í
sundi á ólympíuleikum fatlaðra í
Seoul; Ingimar, f. 9. október 1949,
trésmiður og skrifstofumaður á
Sauðárkróki, kvæntur Kristínu
Helgadóttur hjúkmnarfræðingi;
Frosti, f. 27. aprfl 1952, þjóðhátta-
fræðingur, kvæntur Steinunni
Guðnýju Jónsdóttur lækni; Jökull
Smári, f. 27. apríl 1952, trésmiður
og bifreiðarsijóri hjá Strætisvögn-
um Uppsalaborgar, kvæntur
Guðnýju Jóhönnu Sveinsdóttur,
matreiöslumanni við Kungsgardets
sjúkrahúsið í Uppsölum; Hjálmar
Rúnar, f. 19. nóvember 1959, tré-
smiður í Rvík, kvæntur Erlu
Dagnýju Stefánsdóttur, og Benedikt
Emil, f. 19. nóvember 1959, bygg-
ingameistari í Rvík, kvæntur Val-
gerði Mörtu Gunnarsdóttur.
Ætt
Foreldrar Sigurgeirs em: Jóhann
Hjálmarsson, f. 27. nóvember 1919,
fyrrv. b. á Ljósalandi í Lýtingsstaða-
hreppi og húsvörður í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð, og kona hans,
María Benediktsdóttir, f. 12. maí
1919. Foreldrar Jóhanns voru
Ujálmar Jóhannesson, b. á Gríms-
stöðum í Svartárdal, og kona hans,
Guðrún Jónsdóttir. Móðir Hjálmars
var Guðbjörg, systir Indriða, lang-
afa Indriða G. Þorsteinssonar rit-
höfundar og Sveins, fóður Jóhanns
Péturs, lögfræðings og formanns
Sjálfsbjargar. Guðbjörgvar dóttir
Árna, b. í Ólduhrygg, Guðmunds-
sonar, bróður Guðmundar, langafa
Sveins Guðmundssonar, forstjóra
Héðins.
Móðir Jóhanns var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Hömrum í Lýtingsstaða-
hreppi, Guðmundssonar, b. á Hömr-
um, Hannessonar, bróður Jórunn-
ar, ömmu Pálma Hannessonar rekt-
ors og langömmu Hannesar Péturs-
sonar skálds.
Foreldrar Maríu voru Benedikt
Ingimundarson, b. í Skálholtsvík í
Hrútafirði, ogkona hans, Lilja
Magnúsdóttir. Benedikt var sonur
Ingimundar, b. á Staðarhóli í
Saurbæ, Jónssonar, hj í Fjósakoti,
Sigmundssonar, b. á Fremri-
Brekku, Andréssonar. Móðir Sig-
mundar var Sigríður Jónsdóttir, b.
á Breiðabólstað á Fellsströnd, Guð-
mundssonar. Móðir Benedikts var
Jakobína Magnúsdóttir, b. í Þurra-
nesi í Saurbæ, Einarssonar, b. á
Kvenhóli, Einarssonar. Móðir
Magnúsar var Helga Sigurðardóttir,
b. á Frakkanesi, Einarssonar, og
konu hans, Kolfinnu Magnúsdóttur.
Móðir Jakobínu var Guðný Jóns-
dóttir, b. á Þurranesi, Jónssonar, og
Guörúnar Jóhannesdóttur.
Móðursystir Maríu er Guðný,
móðir Brands Jónssonar, fyrrv.
skólastjóra Heymleysingjaskólans.
Önnur móðursystir Maríu var
Ragnheiður, amma Þorgeirs Ást-
valdssonar. Lilja var dóttir Magnús-
ar, b. í Miðhúsum í Hrútafirði, Jóns-
sonar, b. í Skálholtsvík, Þórðarson-
ar, b. í Heydal, Jónssonar, b. á
Kirkjubóli í Tungusveit, Þórðarson-
ar, fóður Kristínar, langömmu
Magnúsar Óskarssonar borgarlög-
manns. Móðir Magnúsar var Guðný
Magnúsdóttir, b. í Skálholtsvík,
Magnússonar. Móðir Magnúsar
Magnússonar var Sigríður Jóns-
dóttir, b. í Tjaldanesi, Sveinssonar,
og konu hans, Elínar Einarsdóttur,
móður Gríms Thorkelíns leyndar-
skjalavarðar. Móðir Guðnýjar var
Guðrún Andrésdóttir, b. á Kol-
beinsá, Guðmundssonar, og konu
hans, Guðrúnar Björnsdóttur, b. í
Guðlaugsvík, Illugasonar.
Móðir Lilju var Ólöf Magnúsdótt-
ir, b. á Óspakseyri, Jónssonar, al-
þingismanns í Ölafsdal, Bjarnason-
ar á Hraunum í Skagafirði, Þorleifs-
sonar. Móðir Magnúsar var Anna,
systir Einars, föður Indriða rithöf-
undar. Anna var dóttir Magnúsar
prests í Glaumbæ, Magnússonar, og
konu hans, Sigríðar, systur Bene-
dikts, langafa Einars Benediktsson-
ar skálds. Sigríður var dóttir Hall-
dórs Vídalíns, klausturhaldara á
Reynisstað. Móðir Halldórs var
Hólmfríður Pálsdóttir, Vídalíns, lög-
manns í Víðidalstungu. Móðir Páls
var Hildur Arngrímsdóttir lærða,
vígslubiskups á Melstað, Jónssonar.
Móðir Ólafar var Guðrún Jónsdótt-
ir, alþingismanns í Keldudal í
Skagafirði, Samsonarsonar, og
konu hans, Guðrúnar Sigurðardótt-
ur.
Sigurgeir verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Pétur K. Bjamason
Pétur Kristján Bjamason skip-
stjóri, Silfurgötu2, ísafirði, verður
sjötugur n.k. þriðjudag.
Starfsferill
Pétur fæddist í Hnífsdal og ólst
upp á ísafirði. Hann naut almennrar
barnaskólamenntunar þess tíma og
lauk fiskimannaprófi frá Stýri-
mannaskóla islands 1944.
Pétur hóf sjómennsku á ísafirði
fjórtán ára að aldri og var þá á fiski-
bátum en síöar í siglingum á stríðs-
árunum. Eftir námið í Stýrimanna-
skólanum var hann fyrst stýrimað-
ur og síðan skipstjóri, bæði á bátum
og á togurum. Hann var síðar yfir-
hafnsögumaður á ísafirði og loks
veiðieftirlitsmaður hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu til starfsloka.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 2.7.1949 Helgu
Pálínu Ebenezersdóttur, f. 1.12.1923,
húsmóður og kaupkonu, en hún er
dóttir Ebenezers Benediktssonar,
sjómanns í Bolungarvik, og Guð-
mundu M. Pálsdóttur húsmóður.
Pétur og Helga Pálína eiga þrjár
dætur. Þær em Ebba Guðmunda, f.
27.12.1948, hárgreiðslumeistari, bú-
sett í Mosfellsbæ, gflt Þorgrími Okt-
óssyni skrifstofustjóra og eiga þau
tvö börn, Pétur Kristján og Októ;
Herdís, f. 2.11.1950, fóstra, búsett í
Mosfellsbæ, gift Sigurði H. Guðjóns-
syni hrl. og eiga þau fjögur börn,
Helgu Pálínu, Friðjón, Bjarna
Magnús og Gunnhfldi Berit; Elín
Þórhildur, f. 23.7.1958, húsmóðir í
Garðabæ, gift Gunnlaugi Jóhannes-
syni pípulagningameistara og eiga
þau tvö börn, Pétur Bjama og Anitu
Kristjönu.
Systkini Péturs: Guðmundur
Falk, sem er látinn; Pétur M.B., er
dó ungur; Guðrún Þorbjörg, nú lát-
in; Jóhanna María; Friðrik Tómas;
Jóhannes Bjami; Eyjólfur Níels;
Kristín Magnea; Guðrún Guðleifs;
Ehsa Rakel; Lúsía; Jón Aðalbjörn
ogHannesTrausti.
Foreldrar Péturs voru Bjami
Magnús Pétursson, f. 3.1.1892, d.
19.2.1957, sjómaður og síðar neta-
gerðarmaöur á ísafirði, og kona
hans, Herdís Jóhannesdóttir, f. 23.9.
1891, d. 7.8.1961, húsmóðir.
Ætt
Bjarni var sonur Péturs, b. á Hálsi
á Ingjaldssandi, Magnússonar og
Jóhönnu Jónsdóttur.
Herdís var dóttir Jóhannesar járn-
smiðs Elíassonar, b. í Efri-Hlíð í
Helgafellssveit, Jónssonar, b. í
Straumfjarðartungu, Jónssonar, b.
í Seljum, Jónssonar.
Móðir Herdísar var Guðrún Þor-
björg Jónsdóttir, b. í Fremri-Arn-
PéturKristján Bjarnason.
ardal og á Hallsstöðum á Langadals-
strönd, Sæmundssonar, b. í Fremri-
Arnardal, Ámasonar. Móðir Guð-
rúnar Þorbjargar var Vigdís Jóns-
dóttir, vinnumanns í Stakkanesi,
Sumarhðasonar. Móðir Vigdísar
var Þorbjörg Þorvarðardóttir, b. í
Eyrardal, Sigurðssonar, b. í Eyrar-
dal, Þorvarðarsonar, ættföður Eyr-
arættarinnar.
Pétur tekur á móti gestum á heim-
ili dóttur sinnar og tengdasonar að
Bjargartanga 7, Mosfellsbæ, sunnu-
daginn 28.10. eftir klukkan 15.00.
Guðbjörg Guðmundsdóttir Kjerúlf
Guöbjörg Guðmundsdóttir Kjer-
úlf húsmóðir, tfl heimflis að Hring-
braut 50, Reykjavík, er níræð í dag.
Guðbjörg fæddist að Sauðhaga í
Skriðdal í Suður-Múlasýslu og ólst
upp að Sauðhaga, að Hafursá og á
Völlum.
Hún var húsfreyja að Hafursá þar
sem hún bjó fyrst með foreldrum
. sínum og síðar ásamt bróður sínum,
Jóni G. Kjerúlf.
Guðbjörg giftist 6.1.1935 Oddi
Kristjánssyni, f. 3.10.1901, en hann
er látinn, byggingameistara sem
byggði m.a. Skriðuklaustur fyrir
Gunnar Gunnarsson rithöfund og
síðar m.a. ýmsar opinberar bygg-
ingar á Akureyri. Foreldrar Odds
vom Kristján Friðfinnsson, b. í
Saurbæjarhreppi, og Sigríður
Grímsdóttir.
Synir Guðbjargar og Odds eru
tveir, Guðmundur og Sigurður
Kristján. Guðmundur er fæddur
20.1.1936, læknir, kvæntur Jórunni
Jónsdóttur tækniteiknararf. 26.1.
1938 og eiga þau þrjú böm, Guð-
björgu, f. 28.10.1962, Kristínu, f. 4.12.
1964, og Jón Odd, f. 6.4.1971. Sigurð-
ur Kristján er fæddur 22.1.1940,
tæknifræðingur, kvæntur Herdísi
Tómasdóttur textflhönnuði, f. 26.5.
1945, og eiga þau þrjú böm, Tómas
Má, f. 1.2.1968, Kristínu Vilborgu,
f. 24.5.1972, og Sigríði Björgu, f. 3.5.
1977.
Systkini Guöbjargar: Jón G. Kjer-
úlf, nú látinn, var búsettur á Reyð-
arfirði, kvæntur Guðlaugu Péturs-
dóttur og áttu þau þrjú böm og eitt
fósturbarn; Anna Kjerúlf, nú látin,
húsfreyja í Hábæ í Vogum á Vatns-
leysuströnd, var gift Sveini Páls-
syni, sem einnig er látinn, og áttu
þau fjögur börn; Sólveig Kjerúlf, nú
látin, húsmóðir í Reykjavík, var gift
Gunnari Jónssyni, sem einnig er
látinn, og áttu þau fimm böm; Sig-
ríður Kjerúlf, nú látin, húsfreyja í
Fljótsdal, var gift Guðmundi frá
Freyshólum, og Andrés Kjerúlf,
fyrrv. b. á Akri, Reykholti, nú til
heimilis að Dvalarheimfli aldraðra
í Borgarnesi, en kona hans var
Halldóra og eignuðust þau þrjú
börn.
Foreldrar Guðbjargar vom Guð-
mundur Andresson Kjerúlf, f. 24.10.
1864, d. 1947, b. í Sandhaga og á
Hafursá, og kona hans, Vilborg
Jónsdóttir, f. 25.4.1867, d. í ágúst
1962, húsfrú.
Til hamingju með afmælið 27. október
90 ára
50 ára
Guðrún Einarsdóttir,
Hlíðarbraut 2, Blönduósi.
85 ára
Helga Játvarðsdóttir,
Æsufelli 6, Reykjavik.
Þórður Kárason,
Höfðahlíð 13, Akureyri.
Jóhann Elíasson,
Skerðíngsstöðum, Hvamrashreppl.
Þórmundur Guðmundsson,
Grænumörk 1, Selfossi.
80 ára
40 ára
Halldóra Gísladóttir,
Sleggjulæk, Stafholtstungnahreppi.
75 ára
Bergur Þórmundsson,
Austurvegi 51, Selfossi.
60 ára
Sigurjón Björnsson,
Garöi, Ripurhreppi.
Höskuldur Sigurjónsson,
Sólbrekku 8, Húsavík.
Sæbjörg Guðmundsdóttir,
Grænukinn 30, Hafnarfirði.
Sigurður M. Stefánsson,
Álfaskeiði 82, Hafnariirði.
Ólafur Jóhann Pálsson,
Kleppvegi 106, Reykjavík.
Jón Elíasson,
Þjóðólfsvegi 3, Bolungarvik,
Bórður Guðmundsson,
Lambhaga 40, Selfossi.
Kristján M. Jónasson,
Hrauntungu 1, Kópavogi.
Una Muja Guðmundsdóttir,
Suöurhólum 4, Reykjavík.
Guðbjörg Gunnlaugsdóttir,
Króktúni 5, Hvolhreppi.
Gestur Jónssou,
Grófarseli 28, Reykjavík.
Steinunn H. Sigurðardöttir,
Gyðufelli 6, Reykjavik.
Friðrik Magnússon,
Kambsvegi 1, Reykjavík.
Gunnar Jónsson,
Norönrbrún 34, Reykjavík.
Gottskálk Jón Bjamason
Gottskálk Jón Bjamason fram-
kvæmdastjóri, Giljaseli 13, Reykja-
vík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Gottskálk fæddist í Reykjavík og
ólst upp í Bústaðahverfinu fram að
fermingu en flutti þá í Kópavoginn.
Hann starfaði fyrst hjá vita- og
hafnamálastjóra að loknu skyldun-
ámi og hóf þar nám í bifvélavirkjun
árið 1966. Námi í Iðnskólanum lauk
hann 1968 og sveinsprófi árið 1970.
Að námi loknu starfaði hann við
akstur, einkum við fólksflutninga
en árið 1972 stofnaði Gottskálk
þungavinnuvélafyrirtækið Krana
sf. og hefur rekið það síðan.
Fjölskylda
Gottskálk kvæntist 18.7.1970
Arndísi Önnu Hervinsdóttur, f. 17.1.
1950, húsmóður, dóttur Hervins
Guðmundssonar, er lést 1979, og
Önnu Guttormsdóttur er lést 1981.
Böm Gottskálks og Arndísar
Önnu eru Heiöar, f. 3.9.1974, Hild-
ur, f. 13.2.1978, ogHaukur, f. 2.6.
1982.
Systkini Gottskálks: Ragnar, f.
27.8.1949, bílstjóri og á hann eina
dóttur; Heiða, f. 23.9.1962, húsmóð-
ir, gift Helga Magnússyni og eiga
þau tvö börn; Hinrik, f. 4.10.1965,
tónlistarnemi í Þýskalandi en sam-
býhskona hans er Sigurlína Magn-
úsdóttir og eiga þau eina dóttur.
Foreldrar Gottskálks: Bjarni Gott-
skálksson, f. 11.5.1926, ráðuneytis-
bílstjóri, og Christhild Friðriksdótt-
ir, f. 27.11.1928, kennari.
Gottskálk tekur á móti gestum frá
klukkan 17.00-19.00.
Studioblóm
Þönglabakka 6, Mjódd,
noröan við Kaupstað,
sími 670760
viðöll
»jb ■ '■ : 4'