Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1990, Blaðsíða 11
XX
FÖSTUDAGUR 30. NÖVÉMBER 1990.
Lafði Díana lyftir fjögurra ára
gamalli krabbameinssjúkri
stúlku upp úr bíl sem boðinn
verður upp til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum á næsta
ári.
Díana:
Vemdari
krabba-
meinssjúkra
bama
Lafði Díana eða prinsessan af
Wales vinnur mikið af alls kyns
góðgerðarmálum, ekki síst þar
sem yngstu þegnar þjóðfélagsins
eiga í hlut. Hún er meðal annars
verndari styrktarsjóðs sem stofn-
aður var til að hjálpa börnum
sem veikst hafa af krabbameini.
Ýmsar leiðir eru farnar í fjáröfl-
unarskyni en þessi mynd var tek-
in þegar nýtt fjáröflunarátak var
kynnt á dögunum. Þá var sýndur
splunkunýr Ford Escort sem gef-
inn hefur verið á sérstakt góð-
gerðaruppboð sem fram fer á
næsta ári. Peningunum af sölu
bílsins og annarra hluta, sem
boðnir verða upp, renna í þennan
styrktarsjóð.
Ágústa Ágústsdóttir á hlaðinu á
Holti. DV-mynd Reynir
Flateyri:
Prestsfrúin
sendir frá sér
plötu og bók
Reynir Tiaustason, DV, Flateyii;
Ágústa Ágústsdóttir, sópran-
söngkona og prestsfrú í Holti í
Önundarfirði, stendur í stórræð-
um þessa dagana. Þann 22. nóv-
ember kom út hljómplata með
söng hennar og samdægurs kom
út bók eftir hana.
Að sögn Ágústu er bók hennar,
„Sumar á Sólheimum“, byggð á
stílfærðum berskuminningum
hennar úr Brekkudal í Dýrafirði.
Þetta er frumraun hennar á sviði
skáldsagnarhstar. Bókaútgáfan
Hildur gefur bókina út.
Á hljómplötunni eru tveggja
ára upptökur með söng Ágústu
við undirleik Angesar Löve
píanóleikara. Lögin á plötunni
eru eftir Grieg, Sibelíus, Sjöberg
og ýmsa íslenska höfunda.
Ágústa gefur sjálf út plötuna en
nýtur góðrar aðstoðar Kaupfé-
lags Dýrfirðinga.
Sviðsljós
Birkir Fossdal, sem starfar í jarðgöngunum í Ólafsfjarðarmúla, þarf ekki
að fara langt verði hann þyrstur i vinnunni. Úr berginu i göngunum fossar
hið besta drykkjarvatn niður i „drenlagnirnar" i vegarkantinum og þar
geta Birkir og félagar hans fengið sér sopa verði þeir þyrstir.
DV-mynd GVA
Madonna tjúttar
og hneykslar
Madonna i banastuði á næturkiúbbi í Paris.
Símamynd Reuter
Poppstimið Madonna lét sig ekki
vanta á tískusýningamar í París á
dögunum. Á myndinni er hún í bana-
stuði á einum næturklúbba í þessari
borg borganna. Sá sem situr til hægri
er einhver Tony Ward en hann mun
vera kærasti Madonnu þessa dagana.
Annars segja fréttir að kapalsjón-
varpsstöðin MTV muni ekki sýna
nýjasta tónlistarmyndbánd Ma-
donnu, Justify My Love, en þar geys-
ist hún um í kynferðislegri fantasíu
sem komið hefur við einhver við-
kvæm hjörtu. Myndbandið verður
hins vegar gefið út eftir um tvær vik-
ur og þá geta menn dæmt sjálfir -
og tjúttað með.
PETIT
í baksturinn
Islenskt og gott
Tilboð vikunmr
Rjómalöguð sjávarréttasúpa.
Lambafilet með villisveppasósu,
smjörristuðu grœnmeti
og bakaðri kartöflu.
Kaffi.
Kr. 980,-
Hamborgara- og pizzutilboð alla virka daga.
\
Opið frá kl. 11.30 til 23.30
Hamraborg 11 - sími 42166