Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1990, Blaðsíða 24
FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990. 32 Afmæli Margrét Jakobsdóttir Margrét Jakobsdóttir útibús- stjóri, ÓðinsvöUum 16, Keflavík, er fimmtugídag. Starfsferill Margrét fæddist að Sólheimum í Vogum á Vatnsleysuströnd og ólst þar upp til ársins 1947 er hún flutti á Akranes en hún hefur búið í Kefla- vík frá 1953. Margrét lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur 1956, starfaði síðan nær samfellt í fjórtán ár hjá Pósti og síma í Keflavík sem vaktstjóri og innheimtugjaldkeri en sl flmmtánárhefurhúnstarfaðhjá Sparisjóðnum í Keflavík og verið útibússtjóri í Sparisjóðnum í Njarð- vík frá opnun hans áriö 1977. Margrét starfaði um skeið í JC- hreyfingunni, er félagi í Inner Whe- el-klúbbi Keflavíkur, var forseti hans árið 1987 og situr þetta starfsár í stjórn umdæmis Inner-Wheel á ís- landi. Fjölskylda Eiginmaður Margrétar er Páll Jónssonsparisjóðsstjóri, f. 9.1.1935, sonur Jóns G. Pálssonar skipstjóra, og konu hans, Agústu Guðmunds- dóttur, sem lengst af bjuggu á Garðavegi 4 í Keflavík. Synir Margrétar og Páls eru Gísli Viðar, f. 11.9.1959, og Jakob Már, f. 5.10.1963. Gísli Viðar er sjúkraflutn- ingamaður í Keflavík, kvæntur Vil- borgu Reynisdóttur, f. 10.7.1961, og eiga þau tvo syni, Pál Ágúst, f. 13.7. 1986, ogReyni Örn, f. 31.8.1989. Jak- ob Már er framreiðslumaður, bú- settur í foreldrahúsum. Systkini Margrétar: Sigríður Vil- borg Jakobsdóttir, f. 23.10.1923, hús- móðir í Vogum, gift Agli Sæmunds- syni; María Jakobsdóttir, f. 16.4. 1927, matráðskona og húsmóðir í Reykjavík, gift Magnús Þorsteins- syni frá Akranesi; Kristín Jakobs- dóttir Guidice, f. 16.4.1927, húsmóð- iríKeflavík,giftRicoGuidicefrá ■ New York; Birna Vilborg Jakobs- dóttir, f. 18.11.1929, stöðvarstjóri Pósts og síma í Garðabæ; Gústaf Adolf Jakobsson, f. 5.6.1932, bif- reiðastjóri hjá Sementsverksmiðj- unni, kvæntur Guðrúnu Ragnars- dóttur, og Björn Hafsteinn Jakobs- son, f. 28.7.1946, rafvirki í Njarðvík. Foreldrar Margrétar voru Jakob Adolf Sigurðsson, f. 29.8.1901, d. 20.9.1969, sundkennari, flskverk- andi og kaupmaður, og kona hans, Margrét Kristjánsdóttir, f. 12.2.1899, d. 15.10.1968. Jakob og Margrét bjuggu í Hafnarfirði, á Vatnsleysu- strönd, á Sólheimum í Vogum, á Akranesi ogloks í Keflavík. Ætt og frændgarður Jakob var sonur Sigurðar Bjarna- sonar, kaupfélagsstjóra í Hafnar- firði. Meðal móðursystkina afmælis- barnsins má nefna Sigurjón á For- sæti, hagleikssmið og hugvitsmann. Margrét, móðir afmælisbamsins, var dóttir Kristjáns, b. á Minna- Mosfelli í Mosfellssveit og á Forsæti í Flóa, Jónssonar, b. í Unnarholti í Hrunamannahreppi, Oddssonar í Austurhlíð í Eystrihreppi, Jónsson- ar. Móöir Kristjáns var Margrét, systir Ingveldar, langömmu Stein- þórs Gestssonar alþingismanns, föður Gests skattstjóra. Ingveldur var einnig langamma Helgu, móður Benedikts Sveinssonar hrl, Ingi- mundar Sveinssonar arkitekts og Einars Sveinssonar, forstjóra Sjóvá Almennra, föður Ástu Sigríðar feg- urðardrottningar. Margrét var dótt- ir Einars, b. í Laxárdal í Eystri- hreppi, Jónssonar, ættföður Laxár- dalsættar í Eystrihreppi. Móðir Margrétar Einarsdóttur var Mar- grét, systir Vigdísar, langömmu Kristins, kaupmanns í Geysi, afa Kristins Björnssonar, forstjóra Skeljungs. Margrét var dóttir Steindórs, b. í Auðsholti í Ölfusi, Sæmundssonar, ættfóður Auðs- holtsættarinnar. Móðir Margrétar Kristjánsdóttur var María, systir Kristbjargar, ömmu Eyglóar Viktorsdóttur óperusöngkonu. Önnur systir Mar- íu var Kristín, amma Unnar Svein- bjarnardóttur fiðluleikara. María var dóttir Einars, b. í Hellisholtum í Hrunamannahreppi, Jóhannsson- ar, b. í Efra-Langholti. Móðir Maríu var Vigdís Einarsdóttir, b. á Helga- stöðum í Biskupstungum, bróður Eiríks í Vorsabæ, langafa Sigríðar, móður Vigdísar forseta. Eiríkur var einnig langafi Guðmundar Einars- sonar frá Miðdal, myndlistarmanns, föður Errós og Ara Trausta jarð- fræðings. Þá var Eiríkur langaíi Sig- ríðar, móður Bergs Guðnasonar lög- fræðings, föður Guðna knatt- spyrnumanns. Móðir Vigdísar Ein- arsdóttur var Kristbjörg, systir Jóns, langafa Valdimars, langafa Margrét Jakobsdóttir. Þrastar Árnasonar skákmeistara. Systir Kristbjargar var Solveig, langamma Sigurgeirs, afa Þorkels Sigurlaugssonar, íjármálastjóra Eimskipafélagsins. Kristbjörg var dóttir Gottsveins, b. í Steinsholti, Jónssonar, ogkonu hans, Kristínar Magnúsdóttur, b. í Steinsholti, Jóns sonar, ættföður Hörgsholtsættar- innar, langafa Jóns, langafa Vigdís- ar, móður Harðar Sigurgestssonar, forstjóra Eimskips. Margrét og Páll eru erlendis um þessarmundir. Leiðréttingar Guðmunda Kristín Þorsteinsdóttir Guðmunda Kristín Þorsteinsdótt- ir varð fimmtug 21. október Föðursystir Guðmundu var Val-' gerður Bjarnadóttir, gift John W. Gott, kaupsýslumanni á Englandi. Eiríkur M. Kjerúlf Eiríkur Kjerúlf varð sjötugur 29. október. Bróðir Eiríks er Gunnlaugur á Egilsstööum. Sigríður, amma Her- dísar Þorgeirsdóttur, ritstjóra Heimsmyndar, Eiríks Jónssonar fréttamanns og Ólínu Þorvarðar- dóttur borgarfulltrúa, var dóttir Þorvarðar Kjerúlf, bróður Jóns Kjerúlf, b. á Melum. Guðmundur Daðason Guðmundur Daðason varð níræð- ur 13. nóvember Eftirlifandi systir Guðmundar er Guðrún, f. 17. maí 1898. María And- résdóttir ólst upp hjá Guðmundi Einarssyni, prófasti á Kvenna- brekku. Öm Sigurgeirsson Örn Sigurgeirsson vélvirki, Laugateigi 22, Reykjavík, er sextug- urídag. Örn er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni Héðni og hefur unnið hjá Eimskipafélagi íslands hf. frá 1958. Fjölskylda Örn kvæntist 20. nóvember 1954 Ingibjörgu Gestsdóttur, f. 12. júlí 1930, sölumanni. Foreldrar Ingi- bjargar eru-Gestur Halldórsson, b. í Garðsvík á Svalbarðsströnd, og kona hans, Elín Ásgeirsdóttir. Synir Arnar og Ingibjargar eru Sigurgeir, kvæntur Guðrúnu Sigurjónsdóttur og eiga þau þrjá syni; Gestur, kvæntur Önnu Óskarsdóttur og eiga þau fjögur börn og Sveinbjörn, kvæntur Hrefnu Ólafsdóttur og eiga þauþrjúbörn. Ætt Foreldrar Arnar eru Sigurgeir Helgi Sigurgeirsson, f. 17. ágúst 1898, d. 18. júní 1965, skipstjóri í Rvík og kona hans, Helga HaÚdórsdóttir, f. 23. janúar 1906, d. 18. ágúst 1976. Föðursystkini Arnar eru Helga, kona GeirsTálssonar, bygginga- meistara í Rvík; Hrefna, kona Jóns Arinbjömssonar, útgerðarmanns síðar kaupsýslumanns í Rvík og Kópavogi, og Bertel, trésmíðameist- ari, kvæntur Fjólu Oddsdóttur. Sig- urgeir var sonur Sigurgeirs skip- stjóra Bjarnasonar, b. í Engidal í Skutulsflrði, Jónssonar, b. í Stakkadal, Sumarliðasonar, b. í Breiðabóli, Sumarliðasonar, b. í Meirahrauni, Jónssonar, b. í Þemu- vík, Jónssonar, b. Hallsstöðum, Ein- arssonar, b. í Reykjaflrði, Jónssonar b. í Reykjafirði, Bjömssonar, jám- smiðs á Þórustöðum, bróður Brynj- ólfs biskups. Björn var sonur Sveins, prófasts í Holti í Önundar- firði, Símonarsonar. Móðir Bjarna var Þorbjörg Þorvarðardóttir, b. í Eyrardal, Sigurðssonar, b. í Eyrar- dal, Þorvarðarsonar, ættföður Eyr- ardalsættarinnar. Móðir Sigurgeirs Bjarnasonar var Herdís Jónsdóttir, b. á Hvammi á Barðaströnd, Bjarna- sonar og konu hans, Sigríðar Jó- hannesdóttur. Móðir Sigurgeirs Sigurgeirssonar var Ólína Olafsdóttir, fór til Vestur- heims með foreldrum og systkinum, Brynjólfssonar, b. á Skeggstöðum í Svartárdal, Brynjólfssonar, b. á Gilsbakka í Skagafiröi, Magnússon- ar. Móðir Ólínu var Ólöf grasalækn- ir Helgadóttir, útvegsb. á Lamba- stöðum í Garði, Helgasonar, b. á Kaldrananesi í Mýrdal, Árnasonar. Móðir Helga Helgasonar var Vigdís Þorleifsdóttir, lögréttumanns í Skaftafelh, Sigurðssonar, sýslu- manns á Smyrlabjörgum í Suður- sveit, Stefánssonar. Móðir Þórdísar var Sigríður Jónsdóttir, lögréttu- manns í Selkoti, ísleifssonar, ætt- föður Selkotsættarinnar. Helga var dóttir Halldórs, b. í Hall- dórsbúð í Grundarfirði, Indriðason- ar, b. á Búðum í Eyrarsveit, Hall- dórssonar, í Skoravík á Fellsströnd, Örn Sigurgeirsson. Helgasonar, b. í Skoravík, Halldórs- sonar, b. í Stóragerði í Eyjafirði, Helgasonar, föður Guðrúnar, langömmu Jóns Magnússonar for- sætisráðherra. Dóttir Guðrúnar var Guðrún, langamma Stefáns Jó- hanns Stefánssonar forsætisráð- herra. Móðir Halldórs í Skoravík var María Oddsdóttir, b. á Dagverð- areyri í Glæsibæjarhreppi, Gott- skálkssonar og konu hans, Ólafar Indriðadóttur. Móðir Indriða á Búð- um var Ása Jónsdóttir, b. í Ytri- Fagradal, Nikulássonar. Móðir Helgu Halldórsdóttur var Dagfríður Jóhannsdóttir, b. á Kvemá, Dags- sonar, b. á Skerðingsstöðum í Eyr- arsveit, Þórarinssonar. Örn tekur á móti ættingjum og vinum á heimili sínu kl. 16-21. 80ára Svava Skúladóttir, Hátúni 10A, Reykjavík. 70 ára Þórunn Jónsdóttir, Hrífunesi, Skaftárhreppi. Ragna Sigfúsdóttir, Fjarðarseli 35, Reykjavík. Hörður Steinþórsson, Hverfisgötu 14, Reykjavík. 60 ára Kristján Gísiason, Hafnagötu 12, Höfnum. Margrét Guðmundsdóttir, Flyðrugranda 18, Reykjavík. Ásta G. Söberg, Háengi 14, Selfossi. KjartanGuðjónsson, Jaðarsbraut 35, Akranesí. Þorgerður Ólafsdóttir, Heiðarbraut57, Akranesi. 50 ára Carl Bjarni Rasmusson, Þrastarlundi 19, Garðabæ. Brynbildur Sigúrðardóttir, Laugamesvegi 63, Reykjavík. Anna Kristín Jóhannsdóttir, Túngötu 8, Seyðisfirði. Guðmundína Samúelsdóttir, Bárugötu 17, Akranesi. 40 ára Bjamey Sigurlaugsdóttir, Langholti III, Hraungerðishreppi. Bj öm Ingi Ingason, Flúðaseli 90, Reykjavík. Albert R. Aðalsteinsson, Jörfabakka 12, Reykjavík. Júlíana S. Sigurlaugsdóttir, Jörundarholti 138, Akranesi. Ema Björk Antonsdóttir, Safamýri 40, Reykjavík. Jósep Zophoniasson, Norðurgötu 51, Akureyri. Sigurrós Þ. Stefánsdóttir, Fellstúni 12, Sauðárkróki. Halldór Fannar EHertsson, Álfhólsvegi 32, Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.