Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1990, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990. 13 „Skál fyrir gamla, góða Hollywood!" Magnús Kristjánsson, fyrsti skemmt- anastjóri Hollywood, Elín Reynisdóttir, síðasta ungfrú Hollywood, og Ingvar Þórðarson, sem verður skemmtanastjóri nýja staðarins. DV-mynd H.Guð. Sviðsljós „Niður með núllið," gætu þeir verið að segja, mennirnir sem unnu við að taka niður stóru Hollywood-stafina, þegar þeir roguðust með o-ið niður af grindinni. DV-mynd Brynjar Gauti melbrosia FYRIR BREYTINGARALDURINN NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN Laugavegi 25, sími 10263. Fax 621901 Holly- wood kveður - nýr staóur opnaöur fljótlega Um síðustu helgi var haldinn loka- dansleikur veitingastaðarins Holly- wood sem um árabil var aðal- skemmtistaður unga fólksins í Reykjavík. í lok dansleiksins á laug- ardaginn var hið fræga Hollywood- teppi skorið niður og gestir máttu hafa á brott með sér teppisbút til minningar. Mikil handagangur var í öskjunni og örtröð myndaðist og margir gerðust það stórtækir að rog- ast út með heilu strangana á öxlun- um. Flestir fengu þó smábút til að setja í minningaralbúmið. Sú var tíðin að röðin fyrir utan Hollywood var oft á annað hundrað metrar og menn hrósuðu happi ef þeir náðu að komast inn fyrir lokun. En tími Hollywoodstjarnanna í Reykjavík leið undir lok og aðrir staðir tóku við því lykilhlutverki í íslensku skemmtanalífi sem þessi staður hafði áður. Nú hafa nýir eig- endur tekið við staðnum og hyggjast opna nýjan og breyttan skemmtistað í Hallarmúlanum þann 8. desember. Það eru mágarnir Sturla Birgisson, sem er einn af eigendum húsgagna- verslunarinnar Casa-Mirale, og Axel Ólafur Ólafsson pípulagningamaöur sem keyptu Hollywood og vinna nú að gagngerum breytingum. „Út með glimmerið“ er kjörorð þeirra. Allt sem minnir á gamla Hollý verður íjarlægt og inn kemur svart teppi, dökk leðurhúsgögn og veggirnir verða málaðir dökkir. „Þetta verður hrátt en hlýlegt,“ segir Sturla. „Við ætlum að höfða til ungs fólks á aldr- inum 20-30 ára, eða svipaðs hóps og nú sækir Borgina og Casablanca. Okkur tókst að stela Hermanni Hin- rikssyni plötusnúð frá Borginni og Hilmari Árnasyni plötusnúð frá Casablanca og þeir koma til með að snúa skífunum hvor á sinni hæðinni hjá okkur.“ Á nýja staðnum verður eitt stærsta hljómkerfi á landinu og á áætlun er að setja þar upp mesta „laser show“ sem hér hefur sést. Klæðnaður verð- ur frjáls og barþjónar og annað starfsfólk verður einnig frjálslega klætt. Ekki er enn búið að velja staðnum nafn en það kemur til með að verða „eitthvað íslenskt", sagði Sturla Birgisson, annar eigandi nýja staðar- ins. H.Guð. Leiðbeiningarit sent til þeirra sem eiga að nota sjóðvélar. Kassanum á aðloka Leiðbeiningaritið Sjóðvélar. Hafðu þín viðskiptiá hreinu! verður sent til sjóðvélarskyldra aðila í þessari viku. Ritið liggur frammi hjá skattstjórum og fjármálaráðuneytinu. Ólöglegar sjóðvélar í viðskiptum eiga nú að heyra sögunni til. Þessa dagana eru sjóðvélar- skyldir aðilar að fá í hendur leiðbeiningarit þar sem meðal annars eru ítrekuð þau skilyrði sem löglegir peningakassar verða að uppfylla. Þeir sem enn hafa skráningu sína í ólagi eru ein- dregið hvaltir til að koma viðskiptaháttum sínum strax í löglegt horf. Viðskiptavinurinn á að fá kassa- kvittunina í hverjum kassa verður að vera innri strimill og einnig dagsölu- og uppsöfnunarteljari FIÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Horfur eru á að viðurlög við brotum á reglum um tekjuskráningu verði hert verulega á næst- unni. Lögleg og rétt notuð sjóðvél er allra hag- ur og tryggir öryggi í viðskiptum. Það er því mikilvægt að bæði neytendur og notendur sjóðvéla taki höndum saman um að stuðla að heiðarlegum og traustum viðskiptum. Glugginn verður að sjást W heidarW

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.