Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1990, Page 28
36
Merming
FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990.
Gestaíbúðin Villa Bergshyddan
í Stokkhólmi
íbúöin (3 herbergi og eldhús í endurbyggöu 18. ald-
ar húsi) er léð án endurgjalds þeim sem fást viö list-
ir og önnur menningarstörf í Helsingfors, Kaup-
mannahöfn, Ósló eða Reykjavík til dvalar um tveggja
til fjögurra vikna skeið á tímabilinu 15. apríl til 1.
nóvember.
Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar sem fram
komi tilgangur dvalarinnar og hvaöa tíma sé óskað,
svo og upplýsingar um umsækjanda, skal senda til
Hásselby slott, Box 520, S-162 15 Vállingby, fyrir
28. febrúar nk.
Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu borgarstjóra,
sími 18800.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
HFGoodrieh
AIl-Térrain 30" Kr. 9.220 stgr.
All-Terrain 31" Kr. 10.590 stgr.
All-Terrain 32" Kr. 11.390 stgr.
All-Terraín 33" Kr. 11.930 stgr.
All-Terrain 35" Kr. 13.950 stgr.
Felga, hvít 15x7 Kr. 3.300 stgr.
Felga, hvit 15x10 Kr. 4.490 stgr.
Amerísk
jeppadekk
og felgur
á ótrúlegu verðí
—Bílabú6
Benna
Aukahlutir Varahlutir Sérpantanir
Vagnhöfða 23, sími 685825
ÞAR SEM ALLT FÆST í JEPPANN
Nauðungaruppboð
Á nauðungaruppboði, sem fram á að fara við Bifreiðaverkstæði
Steinars, Smiðjuvöllum 6, Keflavík, föstudaginn 7. desember nk.
kl. 16.00, hefur að kröfu Ásbjörns Jónssonar hdl., Vilhjálms H.
Vilhjálmssonar hrl., Símonar Ólasonar hdl., Jóns Eiríkssonar hdl.,
Gjaldheimtunnar í Reykjavík, skiptaráðandans í Keflavík, Tollgæsl-
unnar í Keflavík og fleiri lögmanna verið krafist sölu á eftirtöldum
bifreiðum:
Ö-5053, Ö-1455, Ö-4317, Ö-8465, A-1729,
Ö-10236, Ö-3465, Ö-11035, V-1368, Ö-4668,
G-11379, Ö-9512, Ö-5008, Ö-10749, Ö-3087,
Ö-10860, Ö-2276, Ö-5381, Ö-8906, Ö-2384,
Þ-3814, Ö-4809, Ö-10438, Ö-1786, R-52904,
Ö-1547, R-70702, Ö-7176, R-11496, X-6769,
Ö-11019, R-71795, Ö-5980, Ö-5912, í-3112,
R-46518, Ö-7165, Ö-8503, Ö-4775, G-5732,
X-7447, Ö-9874, A-11565, Ö-5150, R-64778,
Ö-8619, R-22218, R-17282, G-12523, Ö-11971,
Ö-6262, Ö-5492, Ö-9883, R-67553, Ö-9395,
Ö-3229, Ö-4800, Ö-11366, Ö-11283, Ö-3084,
R-26189, Ö-6532, Ö-5248, Ö-4887, Y-16094,
Ö-3228, J-40, Ö-8210, Ö-9003, Ö-8678,
Ö-5562, Þ-1017, Ö-8763, V-2168, Ö-12014,
Ö-3059, Ö-2463, G-3431, R-63837, Y-18174,
G-148, Ö-11617, Ö-10148, FZ-437, FP-135,
IV-634, GS-205, FK-882, KR-798, TB-218,
KA-727, JJ-203, JI-959, GR-962, ÞA-159,
JÞ-360
Ennfrerpur i er krafist sölu ; í Bridgestone fiskeldiskvi sem staðsett
er fyrir utan Voga, Zetor 6211 traktorsgröfu, f.nr. ZA-523, og
ýmsum lausafjármunum, þ.á m. sjónvörpum. Einnig verða seldar
u.þ.b. 800 myndbandsspólur úr þrotabúi Tómasar Marteinssonar.
Uppboðshaldarinn í Keflavík
Babi Jar
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í gærkvöldi
var flutt Sinfónía nr. 13 eftir Dmítrí Shostakovítsj en
hún gengur undir nafninu Babí Jar eftir kvæði Évgen-
ís Évtúsjenkos. Önnur verk á efnisskránni voru eftir
Arvo Part og Modest Mússorgskí. Stjórnandi á þessum
tónleikum var Eistlendingurinn Eri Klas en einsöng
með hljómsveitinni söng danski bassasöngvarinn Aage
Haugland. Þá kom fram karlakór skipaður söngmönn-
um úr Karlakómum Fóstbræðrum og Karlakór
Reykjavíkur auk hóps atvinnukórsöngvara frá Eng-
landi. Kórstjóri var Peter Locke frá Englandi og píanó-
leikari á æfingum Poul Rosenbaum frá Danmörku.
Tónleikamir hófust á verki Parts, Til minningar um
Benjamín Britten. Verkið byggist á þrástefi og pedal-
tóni sem hljómar veíjast um en klukkuspil er notað
til að tákna dauðann. Þetta er áheyrilegt verk en ekki
er þar sérlega þykkt á stykkinu. Söngvar og dansar
dauðans eftir Mússorgskí eru dökk tónlist og dapurleg
eins og hæfir 'efninu og raunar stíl höfundarins líka.
Þetta kemur ekki í veg fyrir að fegurð þeirra njóti sín,
sem er sérkennileg og grípandi, eins og við mátti bú-
ast þar sem þetta sérkennilega og frumlega tónskáld
er annars vegar. Margir tónleikagestir söknuðu þess
að textinn fylgdi ekki með í efnisskrá tónleikanna sem
að öðru leyti er hið vandaðasta plagg og er rétt að
geta þess að svo hefur yfirleitt verið um efnisskrár
hljómsveitarinnar það sem af er vetrinum. Þeir tón-
leikagestir sem sækja Ijóðatónleika hafa nú vanist því
að hafa jafnan undir höndum íslenskar þýðingar á
erlendum söngtextum sem auðvitað er mjög til hjálp-
ar, ekki síst þegar sungið er á svo framandi tungum
sem rússneska er fyrir flestum.
Félag áhugamanna um
bókmenntir
Laugardaginn 1. desember efnir Félag
áhugamanna um bókmenntir til mál-
þings um íslenskar bókmenntir síðara
áratugar undir yfirskriftinni: Bókmennt-
ir 1990: Hvað gerðist? Þingið verður hald-
ið í Norræna húsinu og hefst kl. 10 f.h.
Jólabasar Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra í Reykjavík og nágrenni,
verður haldinn laugardaginn 1. des. og
sunnudaginn 2. des. í Sjálfsbjargarhús-
inu, Hátúni 12, Reykjavík, 1. hæð, oghefst
salan kl. 14 báða dagana. Inngangur að
vestanverðu. Á basarnum verður mikið
úrval af munum á góðu verði, „tombólu-
prís“, til dæmis jólaskreytingar og margs
konar aðrar jólavörur, útsaumur,
pijónafatnaöur, púðar, kökur og margt
fleira. Einnig verður glæsilegt happ-
drætti og kaffisala með hlaðboröi.
Barnakvikmynd og fyrirlestur
I Norræna húsinu
Á sunnudag kl. 14 verða sýnda danskar
barnakvikmyndir. Kl. 17 heldur Dag
Schjelderup-Ebbe prófessor fyrirlestur
um norska tónskáldið Johan Svendsen,
150 ára minning. Reykjavíkurkvartettinn
leikur strengjakvatett í a-moll, ópus 1 og
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Hlíf Sig-
urjónsdóttir leika rómönsu nr. 26 fyrir
fiðlu og píanó.
Breiðfirðingafélagið
Félagsvist verður sunnudaginn 2. des-
ember kl. 14.30 í Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14. Allir velkomnir.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur jólafund sinn þriðjudaginn 4. des-
ember kl. 20 í Sjómannaskólanum. Borið
verður fram hangikjöt, laufabrauð og
fleira. Konur eruu beðnar að hafa með
sér smájólapakka því skipst verður á
gjöfum. Nánari upplýsingar gefur stjórn-
in.
Laugardagskaffi
Kvennalistans
í laugardagskaffi Kvennalistans í þessari
viku, 1. desember, verður fiallað um ís-
land og Evrópubandalagið. Frummæl-
endur verða Halldór Árnason en harrn
er starfsmaður Samstarfsnefndar at-
vinnurekenda í sjávarútvegi; Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir blaðakona og Kristín
Einarsdóttir alþingiskona. Laugardags-
kaffið er ávallt opið öllum þeim sem á
annað borð hafa áhuga á málefninu
hveiju sinni. Það á sér stað í húsnæði
Kvennalistans að Laugavegi 17, hefst kl.
10.30 og lýkur kl. 13.
Tapað fundið
Gullarmband tapaðist
Tapast hefur gullarmband með gull-
hlekkjum í síðustu viku. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 23739. Fundar-
laun.
Síamslæða tapaðist
7 mánaða síamslæða tapaðist af Laugar-
nesveginum á sunnudagskvöldið sl. Þeir
sem hafa einhveijar upplýsingar vinsam-
legast hringi í síma 34523 Páll eftir kl. 18.
Andlát
Gunnar Ágústsson símvirki, Barma-
hlíð 17, Reykjavík, lést í Borgarspít-
alanum 28. nóvember.
Ágúst Ingvarsson, lést á Borgarspít-
alanum miðvikudaginn 28. nóvemb-
er.
Þórunn Guðjónsdóttir, Skeiðarvogi
79, lést að morgni 28. nóvember.
Þórunn Finnbogadóttir, frá Moshlíð,
Barðaströnd, Elhheimilinu Seljahlíð,
Reykjavík, lést 29. nóvember.
Guðný Ingibjörg Björnsdóttir, Eski-
hlíð 12a, lést á Vífilsstöðum 28'nóv-
ember.
Magnúsína S. Jónsdóttir, Droplaug-
arstöðum (áður Grettisgötu 83) lést á
Droplaugarstöðum miðvikudaginn
28. nóvember.
Jarðarfarir
Ingveldur Jónsdóttir, Skeggjastöð-
um, Garði, verður jarðsungin frá
Útskálakirkju í Garði laugardaginn
1. desember kl. 11.
Kristín Helga Guðmundsdóttir, er
lést 22. nóvember, verður jarðsungin
frá Hvuisneskirkju laugardaginn 1.
desember kl. 13.30.
Sigurlína Guðrún Guðmundsdóttir
frá Efri-Miövík, Aðaldal, Suðurgötu
12, Keflavík, er andaðist á sjúkrahúsi
Keflavíkur að morgni laugardagsins
24. nóvember sl., verður jarösungin
frá Keflavíkurkirkju laugardaginn
1. desember kl. 14.
Kjartan Jónsson lögmaður lést- 24.
nóvember. Hann var fæddur í
Reykjavík þann 17. október 1925, son-
ur Jóns Kjartanssonar og Salvarar
Ebenezardóttur. Kjartan lauk emb-
ættisprófi frá lagadeild Háskóla ís-
lands 1955. Síðustu árin starfaði
hann viö embætti borgarfógetans í
Reykjavík. Eftirlifandi eiginkona
hans er Þorbjörg Pétursdóttir. Þau
hjónin eignuðust sjö börn.
Útfór Kjartans verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Hermannsbikarinn
Danskeppni8-13 ára
Sunnudaginn 2. desember stendur Dans-
kennarasamband íslands fyrir dans-
keppni barna í samkvæmisdönsum í
Tónabæ. Keppt er í aldurshópunum 8-9
ára, 10-11 ára og 12-13 ára. Keppt er um
hinn svokallaða Hermannsbikar. Það
par, sem fær flest samanlögð stig, vinnur
bikarinn. Þetta er í annað sinn sem keppt
er um þennan bikar sem er farandsbikar
og gefinn var DSÍ af Hérmanni Ragnari
Stefánssyni og frú Unni Arngrímsdóttur,
konu hans, í þeim tilgangi að það stæði
fyrir keppni sem þessari ár hvert sem
næst stofndegi DSÍ sem var 20. desember
1963. Sem fyrr segir verður keppnin hald-
in í Tónabæ og hefst kl. 15. Aðgöngumið-
ar verða seldir við innganginn, miðasala
opnuð kl. 13.30.
Félag eldri borgara
Opiö hús í Risinu, Hveríisgötu 105, i dag,
fóstudag. Kl. 14, félagsvist, kl. 16.30 verð-
ur leikfimi fyrir félagsmenn undir stjóm
Guörúnar Nílsen. Göngu-Hrólfar hittast
á morgun, laugardag, kl. 10 í Risinu,
Hverfisgötu 105.
Félag fráskilinna
heldur fund í kvöld, 30. nóvember, kl.
20.30 í Templarahöllinni við Eiríksgötu.
Nýir félagar velkomnir kl. 20.
Húnvetningafélagið
Félagsvist laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Basar KFUK
KFUK heldur árlegan basar sinn í
Kristniboðssalnum að Háaleitisbraut
58-60, 3. hæð, laugardaginn 1. desember
og hefst hann kl. 14. Að venju verður þar
margt eigulegra muna sem hentugir eru
til jólagjafa. Heimaþakaðar kökur,
lukkupakkar og fleira. Á meðan basarinn
er opinn verður selt kaffi og meðlæti.
Samkoma verður á sama stað sunnudag-
inn 2. desember kl. 20.30.
Tórúist
Finnur Torfi Stefánsson
Þessi vankantur var einnig tilfinnanlegur í Babí Jar
sinfóníunni þótt upplýsingar um verkið í efnisskránni
væru að öðru leyti ágætar. Það er athyglisvert hve
þetta mikla tónverk er í rauninni einfalt að gerð. Það
er í eðh sínu tónalt verk sem fær fersk litbrigði með
þeim einfalda hætti að stækka og minnka tónbil.
Hrynjandinni, sem mótast af mjög stöðugum púls, er
haldið lifandi með áherslubreytingum. Snilld höfund-
arins felst í því hve mikinn mat hann gerir sér úr
þessum einfóldu vinnubrögðum. Margra grasa kennir
að sjálfsögðu í þessu langa verki en dökkir tónar eru
þó víða áberandi þar til í lokakaflanum. Þá léttir til
og endir verksins er undursamlega bjartur og fagur.
Það er mikið stórvirki að takast á hendur flutning á
svo miklu verki. Bæði stjórnandinn Eri Klas og hljóm-
sveitin ásamt með karlakómum komust þó með ágæt-
um frá þeirri raun í öhum meginatriöum þótt finna
mætti að ónákvæmni á stöku stað. Stjarna kvöldsins
var hins vegar sá stóri Dani Aage Haugland sem söng
sig inni í hjörtu áheyrenda með sinni mjúku bassa-
rödd. Áheyrendur fögnuðu tónlistarfólkinu mjög inni-
lega í lok tónleikanna og enduðu með að spretta á
fætur til áherslu.