Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
Utlönd
Hættan á aö Sovétríkin liðist í sundur hefur aldrei verið meiri en nú. Mörg lýðveldanna virðast stefna að sam-
bandsslitum. Teikning Lurie
Sovétlýðveldin rísa upp gegn Gorbatsjov:
Forsetinn spáir
blóðugum átökum
- hljóti nýr sambandssáttmáli ekki samþykki
Michail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, ætlar aö halda fast við hug-
myndir sínar um nýjan sambands-
sáttmála fyrir Sovétríkin þrátt fyrir
aö mörg lýðveldanna hafi mótmælt
hugmyndum hans kröftuglega. Full-
trúar Moldóvu gengu lengst í gær
’með því aö víkja snúðugt af fundi
fulltrúaþingsins. « i
Gorbatsjov sagði eftir ótök gær-
dagsins áð óhjákvæmilegt væri að
einn maður hefði yfirstjóm ríkisins
á hendi. Hann sagði að hugmyndir
sínar um samband lýðveldanna
væra ekki aðeins nauðsynlegar til
að koma í veg fyrir klofning Sovét-
ríkjanna heldur einnig til að afstýra
blóðugum átökum.
Þrátt fyrir ákveðnar yfirlýsingar
er Gorbatsjov mikill vandi á hönd-
um. Vaxandi óánægja er í Mið-Asíu-
lýðveldinum með miðstjórnina í
Moskvu. Þá eru Eystrasaltslýðveldin
ákeðin í að aúka sjálfstæði sitt og
sömuleiðis Moldóva. Sundurþykkja
eykst því stööugt þrátt fyrir allar til-
raunir til að veija samband lýðveld-
anna og aukin völd forsetans.
Moldóvar eru ósáttir við að Gor-
batsjov beitti sér ekki af hörku gegn
sjálfstæðiskröfum minnihlutahóps
innan lýðveldisins og dró þannig úr
völdum og áhrifum Moldóva sjálfra.
Fulltrúar Eystrasaltsríkjanna telja
að þjóðum þeirra hafi verið þröngvað
með hervaldi til að ganga í Sovétrík-
in og vilja því ná sjálfstæði á ný í
áföngum. í Mið-Asíifiýðveldunum er
það skoðun margra að löndin þar
hafi áratugum saman verið arðrænd
af Rússum. Þar vilja menn nú nota
hvert tækifæri til aðrétta hlut sinn.
Sterkustu lýöveldin í Sovétríkjun-
um eru hka óánægð með sinn hlut.
Rússar og Úkraínumenn segjast
léggja meira til ríkisheildarinnar en
önnur lýðveldi og vilja fá áhrif í sam-
ræmi við það. Nái Gorbatsjov ekki
samkomulagi við leiðtoga þessara
tveggja lýðvelda er honum nauðugur
einn kostur, að gefa hugmyndir sínar
um nýjan sambandssáttmála upp á
bátinn. Reuter
28 ' FLATUR FERKANTAÐUR SKJÁR. FÍN UPP-
LAUSN. SKIPANIR BIRTAST Á SKJÁ. ÞRÁÐIAUS
FJARSTÝRING. BEIN TENGING FYRIR MYND-
BANDSTÆKl, TENGING FYRIR HEYRNARTÓL/
AUKA HÁTAIARA. SVEFNROFI.
Utanrikisráðherrarnir á fundi NATO í Brussel segja að Sovétmenn hafi
ekki gefið upp öll hergögn sín. Símamynd Reuter
Telja Sovétmenn
fela skriðdreka
SÉRTILBOÐ KR. 69.950 stgr.
RÉTT VERÐ KR. 84.350 stgr.
20” MONO M/FJARST. TILB. 35.950.- stgr.
RETTVERÐ 42.750,- sigr.
14" MONO M/FJARST. TILB. 25.950.- stgr.
RETT VERÐ 30.500.- sigr.
10” 12 VOLT OG 220 VOLT
í SUMARBÚSTAÐINN EÐA ELDHÚSIÐ
. TILBOÐ 33.950.-stgr.
RÉTTVERÐ 38:000,- sigr.
5 ÁRA ÁRBYRGÐ
Á MYNDLAMPA
3B Afborgunarskiímálar [g]
VÖNDUÐ VERSLUN
Á fundi utanríkisráðherra NATO
í Brassel kom fram mikil óánægja
með að Sovétmenn hafi farið í kring-
um nýgert samkomulag um samdrátt
í heföbundnum herafla í Evrópu með
því að flytja hersveitir austur fyrir
Úralfiöll en samningurinn nær ekki
til þess svæðis.
Efasemdir af þessu tagi komu fyrst
fram meðan verið var að ganga frá
samningnum í haust. Þá var ákveðið
að horfa fram hjá sögusögnum um
herflutninga til austurs. Nú hefur
málið verið tekið upp að nýju þegar
fyrir dyram stendur að semja einnig
um Kjarnavopn.
Mál þetta getur haft áhrif í einstök-
um ríkjum NATO þegar kemur að
því að afvopnunarsamningurinn
verður ræddur á þingum þeirra.
Stjómin í Moskvu hefur tekið vel í
að kanna á ný hvaða herafla þeir
hafa. Sovétmenn hafa ekki neitað
ásökunum um að upplýsingar þeirra
um heföbundinn herafla hafi veriö
rangar en vilja gera sem minnst úr
máhnu og kenna ónákvæmum
skýrslum um að einhveiju munar.
Þá er einnig deilt um hvort hergögn
sem tilheyra sjóhemum en eiga að
notast á landi skuh teljast með. Sov-
étmenn segja að ekki hafi verið sam-
ið um afvopnun á höfunum enn og
því skuU landgönguprammar ekki
teljast meö í samningunum sem
gerður var í haust. Leiðtogar NATO
era á öðra máli enda er ekki mikfil
munur á skriðdrekum sem nota á til
innrása af sjó og öðrum skriðdrek-
um. Reuter
I>V
Fyrruin borgarstjóri New York, Ed Koch. f Símamýnd Reuter
Palestínumenn köstuðu í gær gijóti aö Ed Koch, fyrrum borgarstjóra
New York, er hann var á ferð um gamla borgarhlutann í Jerúsalem. í
fylgd með Koch var borgarstjóri Jerúsalems, Teddy Kollek. Gengu þeir
án lögreglufýlgdar um þröngar götur í markaöshverfi araba þar sem all-
ar verslanir vora lokáðar vegna allsheijarverkfalls.
el frá því að Persaflóadeilan reis og meiri órói varð á herteknu svæðunum
í kjölfar morða ísraelskra lögreglumanna á áfián Palestínuraönnum á
Musterishæðinni í Jerúsalem.
Myrtlr vegna yf irhafnar
Dýr yfirhöfn er nú orðin tilefni til morðs í New York. Þeir sem eru í
pelsum eða nýtísku leðurjökkum eiga nú á hættu að láta lífíð fyrir. Frá
desemberbyijun hafa fimm manns veriö myrtir og fiórir særðir vegna
dýrra yfirhaíha.
Talsmaöur lögreglunnar í New York segir að áður hafi það komið fyrir
að menn hafi veriö myrtir fyrir íþróttaskóna sem þeir voru með á fótun-
um eða vegna þess aö árásarmaöurinn hafi vfijað komast yfir gullskart-
grip sem þeir báru. Alls hafa tvö þúsund morð verið framin í New York
það sem af er þessu ári og meðal fórnarlambanna er tugur barna sem
óvart varð fyrir skoti byssumanna.
Þó svo að fáir hafi verið handteknir er það skoðun lögreglunnar að
árásarmennirnir séu unglingar eða ungir menn. Lögreglan segir að best
sé að veita ekkert viðnám. Það hafi þó reyndar komið fyrir að maður
hafi verið skotinn eftir að hann Iét af hendi jakkann sinn.
Reyndar eru leðuijakkar einnig notaðir til að bjarga mannslifum í New
York. Tveir menn björguðu ungbarni úr brennandi húsi á mánudaginn
með því aö grípa það meö leðuijakka eftir að móðir þess haföi fleygt því
ÚtUmglUgga. Reuter
Hundurbjargarbarni
Sandra Rodriguez, sem er tæpra tveggja ára, týndiat á sunnudagskvöld-
íö í bænum Lugo á Spáni. Þar hefur verið fremur kalt í veðrf en hund-
ur litlu telpunnar hélt á hennf hita um nóttina. Snemma á mánudags-
morgun fundust þau bæði hell á húfi og virtist ekki hafa orðið meint
af útiviatinni um nóttina. Simamynd Reuter
Hættir við sfjórnarmvndun
Jan 01s2ewski, lögfræðingur
Samstöðu, kvaðst í gær hafa hætt.
stjórnarmyndunarviðræðum
vegna ágreinings við Lech Walesa,
fyrrum leiðtoga Samstöðu og ný-
kjörinnforseta Póllands. Olszewski
greindi ckki nánar frá hvað bæri á
milli.
Ekki þykir ljóst hvern Walesa
muni biðja næst um að mynda
stjórn. Heimfldarmenn Samstöðu
sögðu um helgina að hinn nýkjörni
forseti hefði einnig farið þess á leit
við kaupsýslumanninn Jan Krzys-
ztof Bielecki og hægri sinnaða
sfiómmálamanninn Antoni Mad- Jan Olszewski, lögfræðíngur Sam-
erewiczsaðþeirhæfuviöræöurum stöðu. simamynd Réuter
myndun nýrrar sfiórnar.
Fráfarandi forsætisráðherra, Tadeusz Mazowiecki, tilkynnti afsögn sina
eftir ósigur í fyrrí umferð forsetakosninganna.
NámuslysíPóllandi
Qflug gassprenging varð í kolanámu seint í gærkvöldi nálægt Katowice
í suðurhluta Póllands. Að minnsta kosti fiórir menn létu lifið í sprenging-
unni og þrjátíu og þrir vora fluttir slasaðir á sjúkrahús.
í nótt var ekki vitað hversu margra væri saknað. Að því er sagði í frétt
PQlska útvarpsins voru um sextíu manns við vinnu í námunni er spreng-
ingin varð.
I síðustu viku létu fiórir námuverkamenn lífið við hrun í námu nálægt
Katowice.
Koch grýttur í Jerúsalem