Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
33
LífsstOI
Bjórinn dýrastur
hér á landi
íslendingar og Norömenn eru meö
hæst verð á bjór allra landa í veröld-
inni. Hver flaska af Löwenbráu, sem
er algengasti bjórinn hérlendis, kost-
ar 132 krónur. Nórðmenn eru með
tvo styrkleika. Bjórflaska í styrkleik-
anum 6,2% kostar 141 íslenska krónu
en flaska í styrkleikanum 4,7%, sem
- Norðmenn fylgja fast á eftir
er nokkkum veginn sambærilegur
viö íslenska bjórinn, kostar töluvert
minna eða 85 krónur. Flaskan af
Löwenbráu er 5% að styrkleika.
Samkvæmt frétt norsku fréttastof-
unnar NTB halda Norðmenn því
fram að hvergi sé bjór dýrari úr
verslun en hjá þeim. Það er ekki í
fyrsta sinn sem frændþjóðir okkar í
Skandinavíu gleyma að taka ísland
með í reikninginn. Norðmenn virð-
ast ekki hafa kynnt sér verðlag á bjór
hérlendis. Með einfoldum saman-
burði má auðveldlega sjá að bjór er
töluvert dýrari hér á landi.
Ef skoðaðar eru verðhækkanir á
áfengi frá því bjórinn var leyfður
hérlendis kemur í ljós að bjór hefur
hækkað um 13 af hundraði (frá vori
1989). Á sama tíma virðast sterk vín
hafa hækkað öllu meira. íslenskt
brennivín hækkar frá 1400 í 1590
(14%), Smirnoff vodka úr 1730 í 2010
(13%), Johnny Walker viskí úr 2070
Þessir piltar kippa sér ekki upp við það þótt verð á bjór sé hátt hér á landi.
í 2490 (20%) og Gordons gin úr 1920
í 2240 (17%).
Létt vín virðast hins vegar hafa fraumilch hvítvín er á 590 sem er
hækkað minna, Anháuser Lieb- sama verð og vorið ’89 og Piat de
Neytendur
Beaujolais hækkaði úr 790 í 860 krón-
ur sem samsvarar 9% hækkun. Hér
á landi ráða gengisbreytingar og
flutningsgjöld miklu um verðbreyt-
ingar á áfengi.
Norðmenn hafa beitt öðrum aö-
ferðum við verðhækkanir á áfengi.
Þeir hafa lengi reynt að stýra hjór-
neyslunni í ákveðinn farveg með
verðlagi. Með því að hafa mikinn
verðmun á 4,7% bjórnum og þeim
sterkari (6,2%) hefur þeim nánast
tekist að útrýma sterkari tegund-
inni. Nýlega tóku Norðmenn einnig
upp á því að gera strangari lög um
sölu sterks bjórs. Áður var hægt að
velja hann úr hillum í búðum, nú
þarf að fá afgreiðslumann til að tína
hann til fyrir viðskiptavinina.
Forstöðumenn bruggverksmiöja í
Noregi kvarta mjög yfir verðlags-
stefnu stjórnvalda í bjórmálum. Þeir
benda á að bjór hefur hækkað langt
fram yfir almennar hækkanir á
neysluvörum. Auk þess hefur bjór-
inn hækkað meira en aðrar vinteg-
undir í Noregi og þaö eiga framleið-
endur bjórs erfitt með að sætta sig
við. Þróunin er enda sú að innfluttar
víntegundir vinna á á markaðnum
gagnvart norska bjómum í Noregi.
Enn sem komið er láta íslenskir
bjórneytendur ekki háa verðið slá sig
út af laginu, en ef þróunin yrði svip-
uð hér á landi og hjá frændum okkar
Norðmönnum er ekki ólíklegt að
bjórneysla minnki í samanburði við
aðra drykki.
ÍS
Afgreiðslutími verslana um hátíðamar:
Opið flesta
daga til 22
- Hagkaup Eiðistorgi með opið á Þorláksmessu
Verslanir verða almennt opnar
lengur síðustu dagana fyrir jól eða
allt til klukkan 22 en almennt verður
lokað í verslunum á Þorláksmessu.
Hagkaup Eiðistorgi verður þó meö
opið frá 13-18 á Þorláksmessu.
Dagana 20.-22. desember verða
flestar verslanir með opið frá 9 til 22
en verslanir í Kringlunni verða þó
ekki opnaðar fyrr en kl. 10 að morgni.
Verslanir á Laugaveginum verða þó
flestar opnar til 23 þann 22. desember
eins og venja er á Þorláksmessu, en
vegna þess að Þorláksmessu ber upp
á sunnudag verður lokað þann dag.
Á aðfangadag verður opið fyrir
hádegi til klukkan 12 eins og venja
er. Þann 27. desember verða flestar
verslanir Kringlunnar lokaðar en
opið í verslunum á Laugaveginum.
Sami afgreiðslutími verður þann 31.
desember eins og þann 24. Síðasta
virka daginn fyrir áramót, 28. des-
ember, verður viðhafður venjulegur
afgreiðslutími. Eftir áramót, þann 2.
janúar, verða verslanir almennt lok-
aðar vegna vörutalningar.
ÍS
Hnetukossar
120 g hveiti
50 g strásykur
70 g malaðar heslihnetur
'A tsk. salt
'A tsk. steyttur kanill
Rifið hýði af hálfri sítrónu
1 eggjarauða
80 gr. kalt smjör
Skreyting:
1 eggjahvíta
60 g strásykur
50 g malaðar heslihnetur
40 heilar heslihnetur
Blandið hveiti, sykri, hnetum, salti,
kanil og sítrónuhýði saman í skál,
hvolfið á hveitistráð vinnuborð og
gerið laut í miðjuna. Setjið eggja-
rauðuna þar í. Skerið smjörið í þunn-
ar flögur og dreifið yfir hveitið. Saxið
allt saman með stórum hníf og hnoð-
ið síðan í deig.
Mótið deigið í sívalning, 4 sm. í
þvermál. Vefjið í álþynnu og látið
bíða í kæh í 30 mín.
Hitið ofninn í 200° C. Smyrjið bök-
unarplötuna með smjöri. Þeytið
eggjahvítuna vel, bætið strásykri út
í smátt og smátt. Þeytið áfram þar
til hvíturnar eru gljáandi og halda
lagi þegar þeytaranum er lyft upp
úr skálinni. Blandið möluðu hnetun-
um saman viö.
Skerið deigið í 40 jafnþykkar sneið-
ar sem raöað er á plötuna. Smyijið
marengsdeiginu ofan á og setjið 1
heshhnetu á hveija köku. Bakið kök-
umar í 12 til 15 mín. eða þar til þær
eru gulbrúnar.
Takið af plötunni og látið kólna á
grind.
Sími með simsvara
Verð kr.
9.980,-
Sjálfvirkt val — Innbyggður hljóðnemi og hátalari —
12 minni — 3 minni fyrir beint útval — Hvert móttekið
skilaboð í allt að 150 sek. — Ljós í takkaborði —
Tónval, púlsval — Veggfesting.