Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Page 7
LAUGARDAGÚR 6. APRÍL '1991. Fréttir 'Opið íþróttamót Hestaíþróttasambands íslands: Ungknapar fjölmenntu ogstóðusig meðprýði Sigurvegarar í töltkeppni fullorðinna. Frá hægri: Trausfi Þór Guðmundsson, Sigurbjörn Bárðarson, Hinrik Braga- son, Hafliði Halldórsson og Gunnar M. Gunnarsson. DV-mynd E.J. Hestaíþróttasamband íslands stóð fyrir opnu íþróttamóti í Reiðhöllinni dagana 28. og 30. mars. Rúmlega sex- tíu knapar frá átta hestamannafélög- um tóku þátt í mótinu og var keppt í fjórum flokkum. Athygli vakti hve ungknapar voru áhugasamir um þátttöku. Til dæmis kepptu tuttugu knapar í fjórgangi unglinga, en ekki nema sex knapar í flokki fullorðinna. Aðstæður hafa batnað stórlega í Reiðhöllinni á undanförnum tveim- ur árum, enda virðist keppnisvöllur- inn henta sínu hlutverki vel. Verð- laun voru glæsileg. Auk bikara og verðlaunapeninga var kosið par í hverjum ílokki og voru verðlaunin stórt páskaegg. Með parinu var átt við hest og knapa, sem þóttu glæsi- legastir. Margir frægir hestar komu fram. Til dæmis sigraði Trausti Þór Guð- mundsson á Gími í tölti og Sigur- bjöm Bárðarson sigraði í íjórgangi á Kraka. Helstu úrslit voru þessi: Barnaflokkur í fjórgangi barna sigraði Lilja Jóns- dóttir á Gáska, Guðmar Þ. Pétursson var annar á Mána og Gunnar Ö. Haraldsson þriðji á Þokka. í tölti sigraði Guðmar Þ. Pétursson á Mána, Hulda Jónsdóttir var önnur á Seif og Lilja Jónsdóttir, systir Huldu, þriðja á Gáska. Guðmar Þór Pétursson vann íslenska tvíkeppni og varð stigahæstur knapa í barna- ílokki. Unglingaflokkur Jón Þ. Steindórsson sigraði í fjór- gangi á Hörða, Theodóra Mathiesen var önnur á Boða og Daníel Jónsson þriðji á Geisla. í tölti unglinga sigr- aði Daníel Jónsson á Geisla, Mar- íanna Gunnarsdóttir var önnur á Kolskegg og Sigurður V. Matthíasson þriðji á Venusi. Guðmar Þ. Pétursson vann hlýðni- keppni unglinga á Mána og Sigurður V. Matthíasson var annar á Greiða. Sigurður vann hindrunarstökk ungl- inga á Greiða en Daníel Jónsson var annar. Daníel vann íslenska tví- keppni, en Sigurður olympíska tví- keppni og varð einnig stigahæstur unglinga. Ungmennaflokkur Halldór Viktorsson sigraði í fjór- gangi og tölti ungmenna á Herði. Hjörný Snorradóttir var önnur í fjór- gangi á Gjafari og Egill Steingríms- son þriðji á Karra. Svo til sömu knapar voru í úrslit- um í tölti ungmenna. Þar var röðin: Halldór Viktorsson á Herði, Ólafur Jónsson á Illuga og Skorri Stein- grímsson á Móra. Sigurður V. Matthíasson sigraði í flmmgangi ungknapa á Venusi, Daní- el Jónsson var annar á Glanna og Logi Laxdal þriðji á Kjóa. Halldór Viktorsson vann íslenska tvíkeppni en Hjörný Snorradóttir varð stiga- hæst knapa. Fullorðnir Sigurbjörn Bárðarson sigraði í fjór- gangi á Kraka, Gunnar Gunnarsson var annar á Silfurblesu og Fríða Steinarsdóttir þriöja á Söndru. Guðni Jónsson sigraði i fimmgangi á Skolla, Trausti Þór Guðmundsson var annar á Snúði og Sigurbjörn Báröarson þriðji á Brynju. Trausti Þór Guðmundsson sigraði í tölti á Gími, Sigurbjörn Bárðarson var annar á Kraka og Hinrik Braga- son þriðji á Hrefnu. Sigurbjörn Bárðarson sigraði í hlýðnikeppni á Hæringi en Hulda Gústafsdóttir var önnur á Sindra. Sigurbjörn sigraði einnig á Hæringi í hindrunarstökki, en Hjörný Snorradóttir var önnur á Brjáni. Sig- urbjörn Bárðarson varjsigursæll sem fyrr, vann: íslenska og olympíska tvíkeppni og varð stigahæstur knapa. -EJ rá og meö 8. apríl r Landsbanki íslands miöbæKeflavíkur. í framhaldi af kaupum Landsbankans á Samvinnu- bankanum hefur útibúi Samvinnubankans verið breytt í Landsbankaútibú sem opnar formlega þann 8. apríL Landsbankinn býður viðskiptavini velkomna í hið nýja útibú og óskar starfsfólki s—y i* !,j ' j I >yVjLL*ÍP’/ M QV | ■■ . j velfarnaöar undir nýju merkL Aígiviöslutími útibúsins að Hafnargötu 57 er alla virka daga frá kl. 9:15-16:00. Síminn er 92-112 88. k S|; inndsbaim^v- Æfk íslands MM Bankl allra landsmanna opnar Landsbanki Islands útibú í miðbæ Keflavíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.