Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Side 10
10
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
Myndbönd
DV listinn
í síðustu viku var engin vin-
sældalisti birtur og er það ein
ástæðan fyrir stórfelldum breyt-
ingum sem verða á listanum þessa
vikuna. Önnur ástæða er sú að rétt
fyrir páska var gefið út mikið af
vinsælum kvikmyndum sem koma
inn á listann núna. Má þar nefna
þrjár framhaldsmyndir og er ein
þeirra, Another 48 Hours, í fyrsta
sæti. Hinar tvær eru vísindaævin-
týramyndirnar Robocop 2 og
Gremlins 2.
Aðrar nýjar myndir, sem koma
inn á listann, eru gamanmyndin
Heart Condition, hin harðsoðna
mynd Krays-bræðranna, og ævin-
týramyndin Invisible Kid. Vafa-
samt er að Another 48 Hours haldi
fyrsta sætinu lengi: Það eru nokkr-
ar sterkar myndir sem berja á
gluggann.
(-)
(-)
(1)
(-)
(2)
(-)
(-)
8(3)
9 (-)
10(7)
Another 48 Hours
Heart Condition
Bad Influence
Robocop 2
Days of Thunder
Gremlins 2
Krays Brothers
Short Time
invisible Kid
Tremors
★★!4
Varasamir ólátapúkar
GREMLINS 2
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Joe Dante.
Aðalhlutverk. Zach Gilligan, Phoebe
Cates og John Glover.
Bandarísk, 1990-sýningartimi 106 mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Það er ekki oft sem fekst betur
upp með framhaldsmyndir heldur
en frumgerðina en svo er þó með
Gremlins 2. Gremlins var hin besta
skemmtun og Gremlins 2 er enn
betri skemmtun. Nú er þaö ekki
lítill bær sem verður fyrir hinni
miklu offiölgun sem á sér stað hjá
Gremlins-bangsanum ef vatn
fí&fjdM \\\\We told yxfu.
Kcmember the rules.
You didn’t It£tcn.
a GKEMLÍNS 2
kemst á litla sæta krúttið heldur
er það sjálf New York. Þar finna
þessir ólátapúkar nógu stórt um-
hverfi í einum skýkjakljúfnum sem
þeir nánast leggja í rúst á hálfum
sólarhring.
Aðalpersónurnar eru þær sömu
og í fyrri myndinni en hafa flutt
sig um set og vinna fyrir stórtækan
fjármálamann sem lítur eiginlega á
sjálfan sig sem guð. Það er John
Glover sem fer sérlega skemmti-
lega með hlutverk þessa oflátungs.
Vegna slysni streymir vatnsbuna
á litla krúttbangsann og út honum
skoppa bræður hans sem eru hinir
verstu stríðnispúkar og þegar þeir
fjölga sér skríða hinir eiginlegu
Gremlins úr púpum sínum og
dreifa sér um skýjakljúfinn.
Myndin er uppfull af fyndnum
og skemmtilegum atriðum og þótt
vissulega séu sum hrottafengin er
eiginlega ekki annað hægt en brosa
að öllu saman. Þessir púkar hafa
svo innilega gaman af því að vera
ótuktarlegir. Hámarki ná lætin í
þeim þegar þeir komast inn á til-
raunstofu þar sem verið er að gera
ýmsar erfðatilraunir. Þar ná þeir
sér verulega á strik.
Þótt ekki sé hægt að mæla með
Gremlins 2 fyrir ung börn er mynd-
in hin besta skemmtun fyrir alla
aðra sem hafa húmorinn í lagi og
sæmilegasterkartaugar. -HK
★★
Aföðrumheimi
NIGHTBREED
Útgefandi: Bíómyndir.
Leikstjórn: Clive Barker eftir eigin hand-
riti, byggt á bók hans, Cabal.
Aðalhlutverk: Craig Sheffer, Anne
Bobby, David Cronenberg og Charles
Haid.
Amerísk 1990 - sýningartími 98 mín.
Bönnuó börnum innan 16 ára.
Hér segir frá Boone nokkrum sem
á við veruleg sálræn vandamál aö
stríða. Hann er í meðferð hjá sál-
fræðingi sem hjálpar honum aö
berjast við martraöir sem hann fær
tíðum. Þessar matraðir fialla ávallt
um furðulandið Midian þar sem
fiöldi furðuvera, tæplega af þessum
heimi, býr fiarri heimsins glaumi.
Þegar Boone er vændur um morð
og þarf að flýja undan lögreglunni
kemst hann að raun um að senni-
lega er töfralandið Midian til og þar
getur hann leitað skjóls.
Cliver Barker, sem stjómar um-
ræddri mynd eftir eigin sögu, þykir
meðal snjöllustu rithöfunda sem
rita hrollvekju- og spennubók-
menntir. Honum hefur verið líkt
við Stephen King og margir telja
þá jafnoka.
Barker færist hér meira í fang en
hann ræður við með góðu móti. Það
sem vel er gert em gervi íbúa Mi-
dian og þau ein og sér halda mynd-
inni á floti eftir því sem þaö er
unnt. Sagan sjálf er þunglamaleg
og ósannfærandi og minnir lítið á
stíl Barkers á prenti en þar ætti
hann trúlega að halda sig sem mest.
Meðal leikara er skástur annar
hrollvekjumeistari, David Cronen-
berg, sem leikur sálfræðinginn af
mikilli innlifun. Aðrir standa sig
sýnu verr. Barker ætti að halda sig
við bókaskrif en fóröunarmeistar-
ar þeir sem hér lögðu hönd á plóg
eiga mikiö hrós skiliö fyrir sitt
verk. -Pá
★★★
Smáir glæpir og stórir
CRIMES AND MISDEMEANORS
Útgefandi: Skífan.
Leikstjórn: Woody Allen eftir eigin hand-
riti.
Aðalhlutverk: Caroline Aaron, Alan
Alda, Woody Allen, Claire Bloom og
Mia Farrow.
Amerisk 1989 - Sýningartimi 95 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Hver er sekur og hver er saklaus.
Hið illa sem mennirnir gera mun
ávallt fylgja þeim. Sá sem breytir
rangt mun fá sína refsingu, hvort
sem albrotið kemst upp eða ekki.
Þetta er viðfangsefni leikstjórans
Woodys Allen í kvikmyndinni
Crimes and Misdemeanors.
Hér eru sagðar tvær sögur. Önn-
ur fiallar um auglækni nokkurn
sem fær ekki losnað við ástkonu
sína sem hótar að segja eiginkon-
unni allt af létta og fletta þar með
ofan af framhjáhaldinu. Augn-
læknirinn getur ekki hugsað sér
slíkt og fær bróður sinn, sem er
vafasamur karakter, til þess að láta
koma konugarminum fyrir kattar-
nef en sér dálítið harkalega eftir
öllu saman.
Hin sagan fiallar um kvikmynda-
gerðarmanninn Clifford sem fær
Vaskurvélmaður
ROBOCOP2
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Irwin Kershner eftir handriti
Frank Miller og Walon Green.
Aðalhlutverk: Peter Weller, Nancy
Green, Daniel O’Herlihy, Tom Noonan,
Belinda Bauer og Gabriel Damon.
Amerísk - 1990.
Sýningartimi: 112 mínútur.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Fyrri myndin um vélvædda lög-
regluþjóninn Robocop naut um-
talsverðra vinsælda enda um frum-
lega sögu að ræða og stíll Ver-
hovens hins hollenska tryggði
myndinni ómælda aðdáun marga
kvikmyndaunnenda, Það er því í
sjálfu sér eðlilegt að peningamenn
hafi gengið í það mál að gera fram-
haldsmynd um blikkkappann. En
það er vandi að gera góða fram-
haldsmynd og fátítt að þær standi
fyrirmyndinni á sporði.
Hér er á ferðinni hefðbundin
framhaldsmynd. Ekkert frumlegt
er við söguna heldur er notast við
gamlar lummur úr þeirri fyrri og
reynt að breiöa yfir hugmyndafá-
tæktina meö gegndarlausum blóðs-
úthellingum. Pjáturlöggan er söm
við sig og leikarar í aukahlutverk-
um reyna eftir megni að leika en
tekst misjafnlega. Athygli vekur
sérstaklega óviðfelldin hugmynd
að gera tæplega fermdan krakka
að höfuðpaur þess glæpagengis
sem Robocop fæst við.
Margt fleira er ekki um þetta að
segja. Þetta er vond mynd um vont
fólk og höfðar á subbulegan hátt til
lægstu hvata mannsins. Engu að
síður á þessi mynd eflaust eftir að
njóta talsverðra vinsælda meðal
myndbandaeigenda og er þeim ósk-
að góðrar skemmtunar.
-Pá
C R I M E Sp AND
M ISDEMEANQRS
C. Á » a UN E AABQN ALAN ALDA
WOODY ALLEN CI..AIR K BLQQM
MIAFARROW JUANNABLEASQN
ANJLUL’A HUSTQN MARTtN LANUAU
jenny:nichcht, jcrry obsach
SAM WAT LHaTQN C f? I M E R
A N V. M f £ D E M E A N ö R ÍS"i
: nnARiro «. warrc
það verkefni að gera heimildar-
mynd um mág sinn sem er óþol-
andi leiðinlegur sjónvarpsfram-
leiðandi. Vesahngs Clifford tekur
verkið að sér með hangandi hendi
og er að lokum rekinn. Hann kynn-
ist fagurri konu sem hann verður
ástfanginn af en má sjá á eftir henni
í klærnar á máginum.
Að vanda er það mannfólkið og
allar þess fiölbreyttu ástríður sem
eru Allerr hugleiknastar. Hann fer
sjálfur með hlutverk Cliffords
aumingjans, sem tekst ekkert al-
mennilega, og gerir það frábærlega
vel. Handritiö leiftrar af þeirri lág-
stemmdu kímni sem Allen er vel
þekktur fyrir og ekki skaðar valinn
maður í hverju rúmi. Nægir að
nefna auk hans Farrow í hlutverki
konunnar sem þeir mágar berjast
um, Martin Landau, sem er frábær
í hlutverki augnlæknisins, og Alan
Alda sem er bráðskemmtilega óþol-
andi sem mágurinn leiðinlegi.
Kvikmyndataka meistarans
Svens Nykvist setur síðan punkt-
inn yfir i-ið og gerir þessa mynd
að sannkallaðri gersemi fyrir kvik-
myndaunnendur. Inn í söguþráð-
inn er fléttað fiölda skota úr göml-
um kvikmyndum eins og til
áherslu. Þannig notar Allen kvik-
myndirnar sem slíkar sem tjáning-
armiðil.
Allt ber að sama brunni. Þetta er
mynd sem enginn unnandi góðra
kvikmynda ætti að láta fram hjá
sér fara. Þó hún láti ekki mikið
yfir sér og ekkert ofbeldi fangi aug-
að sýnir hún, svo ekki verður um
villst, hvílík meistaratök Allen hef-
ur á forminu þegar liggur vel á
honum. Góða skemmtun. -Pá
★★ !4
Óhugnaður neðanjarðar
TREMORS
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Ron Underwood.
Aðaihlutverk: Kevin Bacon, Fred Ward
og Finn Carter.
Bandarisk, 1990 - sýningartím i 96 m in.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Tremors er hryllingsdmynd sem
lætur lítið yfir sér en veitir góða
skemmtun öllum þeim sem á annað
borð hafa gaman af slíkum mynd-
um. Hún minnir um margt meira
á eldri tegundir af hryllingsmynd-
um þar sem ein ófreskja setur allt
á annan endann en þær háþróuðu
hryllingsmyndir á borð við Alien
myndirnar sem hvað mestrar hylli
njóta í dag.
Kevin Bacon og Fred Ward leika
tvo fafandverkamenn sem vinna
að ýmsum verkefnum í eyðimörk-
inni. Fljótlega í byrjun myndarinn-
ar verða þeir varir við óútskýran-
leg vegsummerki. Lík manna
finnast og eru ótrúlega illa farin,
bíll hefur verið dreginn hálfur ofan
í jörðina og lík eins manns finnst
uppi í rafmagnsstaur og hafði hann
látist úr hungri.
Skýringin kemur brátt í ljós. í
eyðimörkinni, nánar tiltekið undir
henni, hafa risasnákar hreiðrað
um sig og fara með ógnarhraða
undir yfirborðinu og ráðast á allt
sem lifandi er.
Myndin gerist svo aðallega í litlu
þorpi sem hefur verið umkringt af
risasnákum þessum og þýðir lítið
að fara á milli húsa því að við hinn
minnsta titring eða fótatak rjúka
þeir af stað í þá átt sem hljóðið
kemur úr.
Þótt ekki séu tækniatriðin í
myndinni mjög áberandi eru öll
þau mál mjög vel leyst og í raun
miklu betur leyst en í mörgum yfir-
borösmeiri kvikmyndum. -HK
I hefndarhug
BLIND VENGEANCE
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Lee Philips.
Aðalhlutverk: Gerald McRaney, Lane
Smith og Don Hood.
Bandarísk, 1990 -sýningartími 92 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Auga fyrir auga og tönn fyrir
tönn gæti verið mottó Blind Venge-
ance. Aðalpersónan er Garland
Hager sem veröur vitni að því að
morðingjar sonar hans eru fundnir
saklausir í réttarhöldum sem fara
fram í heimabæ morðingjanna.
Garland, sem er vel efnaður mað-
ur, ákveður að selja allt sem hægt
er að selja og gefa það sem eftir er
og einbeita sér eingöngu að því að
þjóna réttlætinu eins og hann sér
það. Hann býr sig undir hörö átök
og heldur til bæjarins þar sem son-
ur hans var myrtur og gætir þess
vel að allir viti að hann er kominn
og í hvaða tilgangi.
c*c
vto«ci
og nær aldrei aö vera sannfærandi
heild. Þá er leikararaliðið ekki
mjög gott ef undan er skilinn Ger-
ald McRaney sem fer ágætlega með
hlutverkfóöurins. -HK